GamanOgAlvara
Aðfangadagskvöld

Guðbjörg Sól, gamanogalvara, gamanogalvara.com, leit, finna, jól, jólasveinar, jólasveinn, jólin, sigfús sig, frír, frítt, leita, leit, trú, guð, jesús, myndir, mynd, myndavarðveisla, Myndir, fiskar, fuglar, hundar, kettir, kisur, sigurþór guðni, ester inga, iceland, ísl, msn, Fríar auglýsinga

 

Eitt sinn voru mjög fátæk hjón,
tvö að ferðast, dag og nótt,
uns þau komu í litla borg,
en konan, var með sótt.
Það var skemmtun borginni í.
Enginn mátti ver´að því
að hjálpa þeim sem þurftu.
Og alls staðar
var sama svar:
“Snautið í burtu!”

Það var aðfangadagskvöld,
fyrsta aðfangadagskvöld
að jólahátíðinni,
þetta aðfangadagskvöld
fyrsta aðfangadagskvöld
er enn barnahátíðin mest,
la la la la barnahátíðin best.

Gistihúsið var yfirfullt,
það var orðið áliðið.
Loksins fundu þau fjárhús eitt,
þau þold´ei lengur bið.
Og þau komust þangað inn.
Konan var aðframkomin,
þar skyldi ungbarn fæðast.
En hlýtt var þar.
Hún fann þar var
ekkert að hræðast.

Það var aðfangadagskvöld…

Síðan fæddi hún fagran son
og í jötu lagði hann.
Allt varð undarlegt kringum þau.
Ný stjarna á himni brann
og smám saman myrkrið fór
en þá birtist englakór
sem knékraup barnin´ungu.
Og allsstaðar
svo heiðbjart var
Englarnir sungu.

Það var himnesk englafjöld
þetta aðfangadagskvöld.
Ný hátíð var upp runnin.
Það var komin jólanótt.
Síðan er hver jólanótt
hvert ár barnahátíðin mest,
la la la la barnahátíðin best.

Lag: Gunnar Þórðarson.

Ljóð Þorsteinn Eggertsson.