Heims um ból, helg eru jól,
signuð mær son
Guðs ól,
frelsun mannanna,
frelsisins lind,
frumglæði
ljóssins, en gjörvöll mannkind
meinvill í
myrkrunum lá
Heimi í hátíð er
ný,
himneskt ljós
lýsir ský,
liggur í jötunni
lávarður heims,
lifandi brunnur
hins andlega seims,
konungur lífs
vors og ljós
Heyra má himnum í
frá
englasöng:
Allelúja.
Friður á jörðu
því faðirinn er
fús þeim að
líkna, sem tilreiðir sér
samastað syninum
hjá
Sveinbjörn Egilsson |

|