Þú þarft að flýta
þér á fætur sérhvern
dag
finna tannburstann
þinn, koma heilsunni
í lag.
Í dagsins amstri
þarftu að vera klár
og kúl
vinnan kallar á þig,
þetta er endalaust
púl.
Og þér leiðist svo,
því tíminn eyðist og
þú hefur fengið
meira en nóg.
Ég segi nei nei,
ekki um jólin - nei
nei ekki um jólin...
Og þér finnst þetta
vera allt svo
tilgangslaust
engin framtíðarvon,
ekki mikið um
traust.
Svona er það
sérhvern vetur,
sumar, vor og haust
þetta er ekki það
líf sem þú sjálfum
þér kaust.
Því er ei neitandi,
að þetta er
þreytandi
Og þér er orðið um
og ó.
Ég segi nei nei,
ekki um jólin - nei
nei ekki um jólin...