GamanOgAlvara

 

Nóttin var svo ágæt ein

Guðbjörg Sól, gamanogalvara, gamanogalvara.com, leit, finna, jól, jólasveinar, jólasveinn, jólin, sigfús sig, frír, frítt, leita, leit, trú, guð, jesús, myndir, mynd, myndavarðveisla, Myndir, fiskar, fuglar, hundar, kettir, kisur, sigurþór guðni, ester inga, iceland, ísl, msn, Fríar auglýsinga

 

Nóttin var sú ágæt ein,

í allri veröld ljósið skein,

það er nú heimsins þrautarmein,

að þekkja hann ei sem bæri.

:/:Með vísnasöng ég vögguna þína hræri:/:

 

Í Betlehem var það barnið fætt

sem best hefur andar sárin grætt.

Svo hafa englar um það rætt

sem endurlausnarinn væri.

:/:Með vísnasöng ég vögguna þína hræri:/:

 

Fjármenn hrepptu fögnuð þann

þeir fundu bæði Guð og mann.

Í lágan stall var lagður hann

þó lausnari heimsins væri.

:/:Með vísnasöng ég vögguna þína hræri:/:

 

                            Einar Sigurðsson