GamanOgAlvara
Pabbi segir

Guðbjörg Sól, gamanogalvara, gamanogalvara.com, leit, finna, jól, jólasveinar, jólasveinn, jólin, sigfús sig, frír, frítt, leita, leit, trú, guð, jesús, myndir, mynd, myndavarðveisla, Myndir, fiskar, fuglar, hundar, kettir, kisur, sigurþór guðni, ester inga, iceland, ísl, msn, Fríar auglýsinga

Pabbi segir, pabbi segir: "Bráðum koma dýrleg jól."
Mamma segir, mamma segir: "Magga fær þá nýjan kjól".
Hæ, hæ, ég hlakka til hann að fá og gjafirnar,
bjart ljós og barnaspil, borða sætu lummurnar.

Pabbi segir, pabbi segir: "Blessuð Magga ef stafar vel,
henni gef ég, henni gef ég, hörpudisk og gimburskel".
Hæ, hæ, ég hlakka til, hugljúf eignast gullin mín.
Nú mig ég vanda vil, verða góða telpan þín.

Mamma segir, mamma segir: "Magga litla ef verður góð,
henni gef ég, henni gef ég, haus á snoturt brúðufljóð".
Hæ, hæ, ég hlakka til, hugnæm verður brúðan fín.
Hæ, hæ, ég hlakka til, himnesk verða jólin mín.

Nú ég hátta, nú ég hátta, niður í, babbi, rúmið þitt,
ekkert þrátta, ekkert þrátta, allt les "Faðirvorið" mitt.
Bíaðu, mamma mér, mild og góð er höndin þín.
Góða nótt gefi þér, Guð, sem býr til jólin mín.