Snæfinnur
snjókarl
var með snjáðan
pípuhatt,
gekk í gömlum
skóm
og með grófum róm
gat hann talað,
rétt og hratt.
Snæfinnur
snjókarl,
bara sniðugt
ævintýr,
segja margir
menn, en við munum enn
hve hann mildur
var og hýr.
En galdrar voru
geymdir
í gömlu skónum
hans;
er fékk hann þá á
fætur sér
fór hann óðara í
dans.
Já, Snæfinnur
snjókarl,
hann var snar að
lifna við,
og í leik sér brá
æði léttur þá,
uns hann leit í
sólskinið.
Snæfinnur
snjókarl
snéri kolli
himins til,
og hann sagði um
leið:
„Nú er sólin heið
og ég soðna, hér
um bil.“
Undir sig tók
hann
alveg feiknamikið
stökk,
og á kolasóp inn
í krakkahóp
karlinn allt í
einu hrökk.
Svo hljóp hann
einn,
-var ekki seinn-
alveg niðu’r á
torg,
með sæg af börnum
söng hann lag,
bæði í sveit og
höfuðborg.
Já, Snæfinnur
snjókarl
allt í snatri
þetta vann,
því að yfir skein
árdagssólin hrein
og hún var að
bræða hann.
Hinrik Bjarnason

|