Snæfinnur snjókarl
var
með snjáðan pípuhatt,
gekk
í gömlum skóm
og
með grófum róm
gat
hann talað, rétt og hratt.
Snæfinnur snjókarl,
bara
sniðugt ævintýr,
segja
margir menn, en við munum enn
hve
hann mildur var og hýr.
En
galdrar voru geymdir
í
gömlu skónum hans;
er
fékk hann þá á fætur sér
fór
hann óðara í dans.
Já,
Snæfinnur snjókarl,
hann
var snar að lifna við,
og í
leik sér brá æði léttur þá,
uns
hann leit í sólskinið.
Snæfinnur snjókarl
snéri
kolli himins til,
og
hann sagði um leið:
„Nú
er sólin heið
og ég
soðna, hér um bil.“
Undir
sig tók hann
alveg
feiknamikið stökk,
og á
kolasóp inn í krakkahóp
karlinn allt í einu hrökk.
Svo
hljóp hann einn,
-var
ekki seinn-
alveg
niðu’r á torg,
með
sæg af börnum söng hann lag,
bæði
í sveit og höfuðborg.
Já,
Snæfinnur snjókarl
allt
í snatri þetta vann,
því
að yfir skein árdagssólin hrein
og
hún var að bræða hann.
Hinrik Bjarnason
|

|