Spakmæli:

 

 

 

Rétta hugarfarið, horfðu EINGÖNGU á það jákvæða,

og verður lífið þá margfalt skemmtilegra.

Trasinger Warter.

 

Dæmdu ekki daginn af því sem þú hefur uppskorið, heldur
af fræjunum sem þú hefur sáð.
Robert Louis Stephenson.

 

Gefðu manni fisk, og mettu hann í einn dag.

Kenndu manni að veiða, og mettu hann að eilífu.

Zhuangzi

 

Ef þú vilt að draumar þínir rætist, verðurðu að vakna

Amerískt.

 

Menn komast næstum yfir allt ef þeir flýta sér ekki

Gösta Ekman eldri.

 

Bjartsýnum manni skjátlast eins oft og bölsýnum en honum líður ólíkt betur

ÓK

 

Það er enginn auður eins og þekking, og engin fátækt eins og vanþekking.

Ali ibn Abi-Talib

 

Ég get fyrirgefið barni sem óttast myrkrið, en aftur á móti er það virkilegur harmleikur þegar fullorðið fólk hræðist dagsbirtuna.

Plató

 

Þekking er fjársjóður sem fylgir eiganda sínum hvert sem hann fer.

Kínverskt spakmæli

 

Ef maðurinn finnur ekki frið í sjálfum sér er tilgangslaust fyrir hann að leita hans annars staðar.

Höf: ókunnur

 

Eina aðferðin til þess að bera sigur af hólmi í deilum við vekjaraklukkuna er að gefast upp fyrir henni.

Höf: ókunnur

 

Framfærslueyrir eftir skilnað er eins og að kaupa hey fyrir dauðan hest.

Groucho Marx.

 

Enginn vill vera svo lyginn, að hann viti ekki sjálfur hvað er satt

Ágústínus.

 

Góð orð eru mikils verð og kosta lítið

George Herbert.

 

Það er betra að hafa munninn lokaðan og láta fólk halda að þú sért bjáni

en að opna hann og taka af allan vafa.

Mark Twain

 

Leyndarmálið við að halda sér ungum er að vera heiðarlegur, borða hægt og að ljúga til um aldur sinn

Lucille Ball.

 

Þegar maður eldist er ekki svo erfitt að forðast freistingar, heldur að finna þær

Hö: ókunnur

 

Þetta er minnisverður dagur – af því hann kemur aldrei aftur.

Werner Aspenström.

 

Svo auðugur er enginn að hann geti keypt sér aftur fortíð sína.

Oscar Wilde.

 

Hamingjan og kossinn eiga eitt sameiginlegt: Það er aðeins hægt að njóta þeirra með öðrum

Höf: ókunnur

 

 “Síðasti hlanddropinn lekur aldrei úr limnum fyrr en eftir að þú setur hann aftur í buxurnar”

Kínverskt spakmæli

 

Sá sem spyr er bjáni í bili. Sá sem spyr ekki verður alltaf bjáni.

Kínverskur málsháttur

 

Hver eiginmaður er húsbóndi á sínu heimili - þangað til gestirnir eru farnir.

Belgískur málsháttur.

 

Vitur maður les bækur og einnig lífið sjálft.

Lin Yutang

 

Ég reyni að vera frekar auðmjúkur. Ef ég gengi um segjandi við alla hversu góður ég er, færi allt á verri veg.
Johnny Miller

 

Oft þarf meiri hugrekki til að breyta um skoðun en til að halda henni

Willy Brandt

 

Sannleikurinn er dýrmætari en allt annað sem vér eigum, förum því sparlega með hann

Mark Twain.

 

Herbergi án bóka er eins og líkami án sálar.

Marcus Tullius Cicero

 

Þér getur misheppnast margoft en ert ekki misheppnaður fyrr en þú ferð að kenna öðrum um

 Olus Petri.

 

Þegar stjórnmálamaður segir, að við sérum í sama báti, skaltu vara þig, það þýðir að það ert þú sem átt að róa.

 Vilheim Moberg.

 

Gleði og ánægja eru jafn nauðsynleg og matur og drykkur.
Marteinn Lúther
 

Þeim mun fáorðari sem bænin er, þeim mun betri er hún
Marteinn Lúther

 

Stundum eru mennirnir svo önnum kafnir við að frelsa heiminn, að þeir gleyma að sýna hver öðrum kærleika.
Olfert Ricard

 

Gjör ekki það sem þú vilt að enginn viti.
Kínverskt

 

Það þarf tvo til að segja sannleikann - annan til að tala, hinn til að hlusta

Höf: ókunnur

 

Miður aldur er þegar þú heldur enn að þér muni líða betur í fyrramálið.

Bob Hope

 

Það besta sem þú eyðir í barnið þitt er tími!
Arnold Glasow

 

Ef þú átt í vandræðum með barnið þitt, er einungis rökrétt að álykta svo að barnið eigi líka í vandræðum með þig!
Donald J. Holmes

 

Þú getur ekki kennt barni þínu að hugsa um sjálft sig nema þú leyfir því að reyna að bjarga sér.

Barnið mun gera mistök, en af mistökunum lærir það.
Henry Ward Beecher

 

Vinnan bíður á meðan þú sýnir barni þínu Regnbogann, en Regnboginn mun ekki bíða á meðan þú vinnur.
Höfundur óþekktur

 

Strákur er eina efnið sem hægt er að gera mann úr.
Höfundur óþekktur

 

Börn eru ferðalangar sem eru nýkomin á nýjan furðulegan og framandi stað sem þau vita ekkert um.
John Lock

 

Framtíð okkar gengur á fótum barnanna.
Phillip Brooks

 

Börn eiga hvorki fortíð né framtíð; þau lifa í núinu, sem mjög fá okkar gera.
Jean de la Bruyere

 

Þar sem nú stendur kona, stóð stelpa áður
Jeffrey Holland

 

Börn veita því frekar athygli sem þú gerir en þess sem þú segir.
Mama Ziglar

 

Sú ákvörðun að eignast barn er sú ákvörðun, að eilífu gangi hjarta þitt utan líkama þíns.
Höfundur óþekktur

 

Ræktaðu barnið í sjálfum þér, það færir þér hamingju fram yfir gull.
Ludwig Van Beethoven

 

Children, you don't just love them, you fall in love with them.
Frasier

 

Í dag þurfa börnin okkar að læra margt af því sem fólki til forna var bannað að vita.
Ashleigh Brilliant

 

Við eyðum fyrstu 12 mánuðunum af ævi barnsins okkar í að kenna þeim að tala og ganga

og næstu 12 mánuðum þar á eftir í að segja þeim að þegja og setjast niður.
Phyllis Diller

 

Beiting valds er svo slæm lausn við öllum vandamálum að það er aðeins notað af ungum börnum og stórum þjóðum.
David Friedman

 

Það besta sem foreldri getur gefið barni sínu eru nokkrar mínútur af tíma sínum á hverjum degi.
M. Grundler

 

Andlit barns getur sagt okkur allt, sérstaklega munnsvæðið.
Jack Handey

 

Nú er gagnslaust að velta vöngum yfir því sem þú ekki hefur, hugsaðu heldur um hvað gera má úr því sem fyrir hendi er.

Ernist Hemingway

 

Börn eru gullnáma. Hlutverk hinna fullorðnu er að fá gullið til að glóa.

Loris Malaguzzi

 

Óþekktarormarnir - það eru börn nágrannanna.

Alexander Baron.

 

Mikill er sá maður sem ekki glatar barnshjarta sínu.

kínverskt máltæki.

 

Forlögin gefa okkur ættingja en vinina veljum við sjálf.

J.Delitle.

 

Snúðu andlitinu mót sólinni og þú munt ekki geta séð skuggana.

Helen Keller

 

Það þarf oft meiri kjark til að skipta um skoðun heldur en að vera skoðun sinni trúr

 Hebbel

 

Bestu og fegurstu hluti veraldar er ekki hægt að sjá eða snerta.....heldur finnum við fyrir þeim í hjörtum okkar.

Helen Keller

 

  Flest fólk er um það bil eins hamingjusamt og það ákveður sjálft að vera.

Abraham Lincoln

 

Enginn maður hefur svo gott minni að hann geti verið árangursríkur lygari.

Abraham Lincoln 

 

   Það er auðvelt að segja nokkur hlýleg orð, en bergmál þeirra er svo sannarlega endalaust.

Móðir Teresa

 

 Málverk er ljóð án orða. -

Konfúsíus


Þeir geta ekki rúið okkur sjálfsvirðingu okkar ef við afhendum þeim hana ekki.

Mahatma Gandhi

 

Vingjarnlegt orð sem fellur í dag getur borið ávöxt á morgun.

Mahatma Gandhi
 

[Ef] þú smælar framaní heiminn, þá smælar heimurinn framan í þig.

Magnús Þór Jónsson (Megas)

 

Börn eru óútreiknanleg. Þú veist aldrei hvenær þau munu standa þig að verki í að vera ósamkvæm(ur) sjálfum þér.
Franklin P. Jones

 

Þú getur lært margt af börnunum. Til dæmis hversu mikla þolinmæði þú hefur.
Franklin P. Jones

 

Barn er manneskja sem getur ekki skilið af hverju einhver myndi gefa frá sér lítinn kettling.
Doug Larson

 

Börn þarfnast frekar fyrirmynda en gagnrýnenda.
Joubert

 

Ungabarnið er gott dæmi um minnihlutastjórn.
Málsháttur úr páskaeggi

 

Leyndardómur hamingjunnar er að dást að einhverju án þess að þrá það.
F.H. Bradley

 

Börn eru gullnáma. Hlutverk hinna fullorðnu er að fá gullið til að glóa.

Loris Malaguzzi

 

Óþekktarormarnir - það eru börn nágrannanna.

Alexander Baron.

 

Mikill er sá maður sem ekki glatar barnshjarta sínu.

kínverskt máltæki.

 

Forlögin gefa okkur ættingja en vinina veljum við sjálf.

J.Delitle.

 

Snúðu andlitinu mót sólinni og þú munt ekki geta séð skuggana.

Helen Keller

 

Það þarf oft meiri kjark til að skipta um skoðun heldur en að vera skoðun sinni trúr.

Hebbel

 

Bestu og fegurstu hluti veraldar er ekki hægt að sjá eða snerta.....heldur finnum við fyrir þeim í hjörtum okkar.

Helen Keller

 

  Flest fólk er um það bil eins hamingjusamt og það ákveður sjálft að vera.

Abraham Lincoln

 

Enginn maður hefur svo gott minni að hann geti verið árangursríkur lygari.

Abraham Lincoln

 

 

   Það er auðvelt að segja nokkur hlýleg orð, en bergmál þeirra er svo sannarlega endalaust.

Móðir Teresa

 

 Málverk er ljóð án orða.

 Konfúsíus


Þeir geta ekki rúið okkur sjálfsvirðingu okkar ef við afhendum þeim hana ekki.

Mahatma Gandhi

 

Vingjarnlegt orð sem fellur í dag getur borið ávöxt á morgun.

Mahatma Gandhi

 

 

 

 

 

SigfúsSig. Iceland@Internet.isSigfúsSig. Iceland@Internet.isGestabók Guðbjörg Sól Sigfús Sig

©SigfúsSig. Iceland@Internet.is