Mamma

 

Þú ert gull og gersemi, góða besta mamma mín.
Dyggðir þínar dásami, eilíflega dóttir þín.
Vandvirkni og vinnusemi væntumþykja úr augum skín
Hugrekki og hugulsemi og huggun þegar hún er brýn.

Þrautseigja og þolinmæði - kostir sem að prýða þig.
Bjölluhlátur, birtuljómi,barlóm, lætur eiga sig.
Trygglynd, trú, já algjört æði.
Takk fyrir að eiga mig.

 

 

 

Kvæði eftir Önnu Þóru 1963