Tegundir:
Piranha fiskar eru til af mörgum tegundum, allar þessar
tegundir eru nokkuð svipaðar í útliti en mismunandi á litin
og sumar eru hættulegri en aðrar. Ég nenni ekki að fara að
telja upp allar tegundirnar hér en þið getið fundið
upplýsingar um þetta hér:
http://www.geocities.com/heartland/prairie/
5962/PiranhaSpecies.html
Stærð: Piranha fiskar eru yfirleitt seldir mjög ungir
í dýrabúðum og eru þá bara á stærð við Gubby fisk. Þeir eru
samt sem áður mjög fljótir að stækka og fólk áttar sig of
ekki á því hversu stórir þeir geta orðið og þarf oft að
kaupa stærra búr fyrir þá. Fyrir fullvaxta piranha fiska er
gott að hafa svona 40-50 lítra fyrir hvern fisk.
Matur: Piranha fiskar eru í rauninni alætur en geta
orðið mjög matvandir ef þeir eru ofdekraðir (eins og mínir)
og hætt að vilja t.d. venjulegann fiskamat. Besta og
einfaldasta fæðan fyrir þá eru líklega rækjur. Einnig er
hægt að gefa þeim allskonar fisk og kjöt, þá helst hrátt og
ekki skemmir fyrir ef það er blóðugt. Það er samt ekki gott
að gefa þeim of mikið kjöt því í lífríki þeirra borða þeir
lítið að því og meltingarfæri þeirra eru meira hönnuð til að
melta fisk. Svo er líka mjög gott að gefa þeim orma, það er
mjög próteinrík fæða og þeir eru vitlausir í það.
Lifandi fæða: Þetta er líklega það sem gerir Piranha
fiskana svona fræga, þeir borða líka lifandi fæðu. Þeir eru
þó engan vegin eins árásargjarnir og flestir virðast halda.
Mjög vinsælt er að gefa Piranha fiskum gullfiska því
gullfiskarnir eru mjög seinir og auðveld skotmörk. En ef
maður setur t.d. einhverja tetrutegund í búrið þá nenna
Piranha fiskarnir oft ekki að eltast við hana því þær eru
svo snöggir og Piranha fiskarnir eru húðlöt kvikindi sem
vilja helst bara liggja allan daginn við botninn. Það er þó
þumalputta regla að allt sem er sett í búrið þeirra verður
étið á endanum, hvort sem það er 10 sekúndum eftir að
fiskurinn fer þangað, viku eða mörgum mánuðum. Það kemur
alltaf að því að hann syndir fyrir framan einhvern Piranha
fiskinn sem ákveður að vaða í hann. Sumir segja að hægt sé
að venja þá á að lifa með einhverjum öðrum fiskum og nota
allskonar trikk eins og að breyta hitastiginu og umhverfinu
í búrinu þeirra áður en hann fer ofan í en það eru skiptar
skoðanir um þetta og þetta endar yfirleitt með því að
fiskurinn er bara horfinn þannig persónulega myndi ég aldrei
tíma að fara að kaupa einhvern flottan fisk og reyna að fá
hann til að lifa með þeim. Piranha fiskar eru rándýr og ef
þeir verða svangir fara þeir fyrr eða síðar að leita sér að
fæði.
HættulegirÞegar Piranha fiskarnir verða orðnir nokkuð
stórir getur verið hættulegt að setja höndina ofan í búrið
því þeir geta bitið ansi illa. Ég set nú reyndar höndina oft
ofan í búrið hjá mér þegar ég geri eitthvað en það er bara
vegna þess að ég kann á þá. Stórir Piranha fiskar geta bitið
putta af manneskju, þeir eru með tennur eins og
rakvélarblöð.
hérna
er smá myndband sem ætti að gefa ykkur hugmynd um það hversu
skæðir þeir geta orðið.
Þetta voru allavega smá upplýsingar um þessi skemmtilegu
gæludýr. Ég mæli með því að eiga svona en í guðanna bænum
ekki kaupa þér Piranha fiska bara að því að þú villt eiga
"einhverja killers" í herberginu þínu sem þú ætlar að gefa
láta éta lifandi dýr og nennir svo ekki einu sinni að hugsa
um þá. Aðal fæða Piranha fiska á að vera dautt fæði, það að
gefa þeim eintóma gullfiska er bara óhollt. Gullfiskar
innihalda óholl vaxtarhormón og svo er alltaf hætta á að
fiskar séu með einhverja sýkla í sér.
Ég gæti eflaust komið með meiri tæknilegar auglýsingar en ég
bara nenni því ekki :) Ef þið hafið einhverjar spurningar
skal ég samt svara þeim.