Rani fíla gegnir margþættu
hlutverki. Fyrst má nefna að fílar
nota hann til að afla sér fæðu. Þeir
brjóta með honum greinar af
trjáplöntum og stinga upp í sig.
Rannsóknir hafa sýnt að fílar geta
lyft allt að 250 kg með rananum.
Fílar nota ranann einnig til að taka
upp vatn, til drykkjar, þvotta og
kælingar. Vegna þess hve þeir eru
gríðastórir eiga fílar erfitt með að
beygja sig niður að vatnsfleti til
að drekka og því kemur raninn í
góðar þarfir. Þeir sjúga vatnið upp
í ranann og sprauta því síðan upp í
munninn.
Þá er raninn einnig mikilvægur til
tjáskipta því að fílar nota hann til
að þreifa hvor á öðrum eða tjá sig á
ýmsan annan hátt; sem og til að
rannsaka hluti. Enn eitt dæmið um
notkun ranans er þegar fílskálfur
dettur ofan í skurð, þá kemur móðir
hans honum til hjálpar með því að
ýta honum upp úr skurðinum með
rananum. Á afrískum fílum eru tvær
totur á enda ranans og gagnast þær
þeim til dæmis til að klóra sér. Hjá
asískum fílum er totan þó aðeins
ein. Af þessu má sjá að fílsraninn
gagnast fílum líkt og handleggur
gagnast okkur.
Fílsraninn er líka nef. Þegar fílar
eru forvitnir eða nálgast eitthvað
sem tortryggir þá, lyfta þeir
rananum upp og þefa út í loftið.
Fílar nota einnig ranann til að
fleygja leðju eða ryki yfir sig og
síðast en ekki síst geta þeir notað
hann til varnar, enda geta höggin
verið ævintýralega kraftmikil og til
dæmis fleygt manneskju tugi metra.
Franski náttúrufræðingurinn
Baron Cuvier (1769-1832) var
mikill áhugamaður um fíla og komst
að raun um að þetta merkilega
líffæri hefur alls um 40 þúsund
vöðva. Til samanburðar má geta þess
að í öllum mannslíkamanum eru
rúmlega 600 vöðvar. Fílsraninn er
svo næmur og nákvæmur að fíll getur
tekið upp krónupening af jafnsléttri
jörðu.
Fróðleikur af vísindavefnum.