Vísindamenn hafa fundið út að gíraffar skiptast i sex ólíkar
tegundir en ekki eina eins og áður hefur verið talið.
Rannsókn sem gerð var á lífsháttum gíraffa nýlega leiddi í
ljós að mikill munur er á háralit gíraffa eftir því hvar
þeir eru staðsettir í Afríku. Og jafnframt að hinar ólíku
tegundir gíraffa virðast ekki blandast saman. Það er fyrir
utan gíraffa í dýragörðum þar sem gíraffar af ólíkum
tegundum eignast oft afkvæmi saman.
David Brown sem stjórnaði rannsókninni segir í þætti á BBC um
málið að með því að styðjast við örtækni sé mögulegt að
flokka gíraffa í sex tegundir. Og að hver hópur þeirra fyrir
sig er einangraður frá öðrum hópum.
Þetta er athyglisvert, að sögn Brown, þar sem gíraffar fara
víða um í leit sinni að fæðu og oft eru heimaslóðir þeirra
fleiri hundruð ferkílómetrar að stærð.
Brown segir að sumar af þessum sex ólíku tegundum gíraffa
telji aðeins nokkur hundruð dýr og því sé mikilvægt að huga
að verndun á þeim stofnum. Á síðasta áratug hefur gíröffum
fækkað um 30% á heildina litið og telja þeir nú um 100.000
dýr.