|
Fjörutíu hvítabjarna hefur
orðið vart hér á landi frá 1918, að sögn Ævars Petersen, dýrafræðings hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands. Komur hvítabjarna hafa verið tíðastar þar sem
hafís hefur helst borið að landi. Útbreiðslan er mest frá Horni og norður
og austur um að Hornafirði. Algengast er að hvítabirnir sjáist í
hafísárum. Þannig sáust áberandi margir birnir á árunum 1881-82 og
1917-18. Engu að síður hafa hvítabirnir oft sést hér þótt ekki séu
hafísár. Heimildir eru um tvo hvítabirni sem virðast vera undantekning frá
reglunni, björn sem sást á Reykjanesi og annan á Snæfellsnesi.
Þórir Haraldsson, kennari við MA, hefur safnað
sögum af hvítabjörnum. Hann sagði þess getið í annálum að hvítabirnir
hefðu drepið förukonur og börn á 16. öld. Undir lok 19. aldar lenti maður
á Vestfjörðum fullnærri hvítabirni, fékk sár og dó af blóðeitrun. Þórir
sagði að oft hefði litlu mátt muna að birnir sködduðu menn. „Birnir drepa
ekki nafna sína samkvæmt gamalli þjóðtrú. Þar sem hvítabjarna var helst
von voru óvenju margir karlar og piltar sem hétu Björn og Bjarni. Það var
verndarráðstöfun,“ sagði Þórir.
Morgunblaðið
| 19.6.2008 |
|