Frétt Canis - mbl.is
föstudagur, 02
desember 2005
Hópur svartra
íkorna réðst á flækingshund í skógi nokkrum í nágrenni
þorpsins Lazo í Austur-Rússlandi og bitu hann til dauða. Fólk
sem átti leið hjá varð vitni að þessu og sagði það aðeins hafa
tekið íkornana tæpa mínútu að drepa hundinn.
Íkornarnir hlupu
þá hver í sína áttina og voru margir hverjir með kjötbita í
kjaftinum. Lítið hefur verið um furuköngla á svæðinu og gæti
það hafa orðið til þess að íkornarnir gerðu árás á hundinn, en
vísindamönnum þykir það þó heldur ótrúleg skýring.
Hundurinn mun
hafa gelt að íkornunum þar sem þeir höfðust við uppi í tré.
Skyndilega réðust þá nokkrir á hann. „Þeir slægðu hundinn
bókstaflega,“ sagði blaðamaðurinn Anastasia Trubitsina, í
viðtali við rússneska dagblaðið Komsomolskaya Pravda.
Dagblaðið hefur áður fyrr greint frá árás jarðíkorna á kött.
Vísindamaður í
héraðinu, Mikhail Tiyunov, sagðist aldrei hafa heyrt um slíka
árás íkorna áður. Þeir myndu kannski éta unga úr hreiðrum en
fáránlegt væri að þeir ætu hund. Ef satt reyndist hlyti
ástandið að vera mjög slæmt í skógum þar í héraði. Fréttavefur
BBC greindi frá þessu. |