Til eru þrjár tegundir sebrahesta og þó nokkrar undirtegundir. Núlifandi tegundir sebrahesta eru sléttusebri (Equus quagga áður Equus burchelli), greifasebri (Equus grevyi) og fjallasebri (Equus zebra). Ein undirtegund sléttusebra, kvaggi (Equus quagga quagga) dó út á 19. öld.
Sléttusebri (Equus quagga)
Eins og nafnið gefur til kynna er kjörlendi hans slétturnar í austanverðri afríku og þá helst í þyrnikjarrlendi og á gresjunum. Sléttusebri er rennilegur og á stærð við smávaxinn hest. Faxið stendur upprétt og eyrun eru smá. Grunnliturinn er hvítur en stundum með gulum blæ, en það fer eftir deilitegundum.
Útbreiðsla sléttusebrans nær frá Súdan í norðri suður til Suður-Afríku. Mest er þó um sebrahesta á Serengeti verndarsvæðinu í Tanzaníu, eða um 200 þúsund dýr, sem deila svæðinu með nærri milljón gnýjum og hundruðum þúsunda Thomson gazella. Áætluð heildarstofnstærð sléttusebra er nærri ein milljón dýr.
Sléttusebrar
Sléttusebrinn gegnir lykilhlutverki sem grasbítur afrísku
sléttanna og eru aðrir grasbítar, svo sem antílópur, mjög
háðir því að deila graslendi með honum. Ástæðan er sú að
sebrar stífa af gróf blöð og stöngla sem aðrir grasbítar geta
ekki melt þannig að mjúk blöð og stönglar vaxa upp sem eru
lífsnauðsynleg fyrir þá.
Helstu óvinir sléttusebrans, fyrir utan menn, eru ljón (Panthera
leo). Samkvæmt gömlum rannsóknum frá Serengeti veiða ljón
um 6% af heildarfjölda sebrahesta þar árlega, sem gerir nærri
12.000 dýr á ári. Hýenur koma næstar með um 4%.
Hjá sléttusebrum má finna tvær gerðir samfélagshópa. Önnur er
hjörð af hryssum sem stóðhestur stjórnar. Hann víkur ekki frá
hryssunum og ver þær ásókn annarra hesta. Með merunum eru
folöld og trippi. Hestar sem hafa ekki yfir neinum hryssum að
ráða safnast saman í piparsveinahjörð.
Greifasebri (Equus grevyi)
Greifasebrinn er nokkuð stærri en sléttusebri og er stærstur
allra sebra. Hann er um 150 cm á herðakamb og vegur um það bil
400 kg. Rendurnar á honum eru þéttari og mjórri en á
sléttusebranum og því er auðvelt að greina þá í sundur.
Greifasebrinn lifir á mun þurrari svæðum en sléttusebrinn og
er betur aðlagaður að þurru loftslagi.
Greifasebri
Greifasebrinn finnst í Eþíópíu, Sómalíu og Kenía. Þar hefur
ótraust stjórnmálaástand í bland við þurrka og hungursneyðar
orðið til þess að gengið hefur óhóflega á stofna greifasebrans
og er tegundin nú komin í talsverða útrýmingarhættu. Sennilega
er tegundin útdauð í Sómalíu en aðeins 150 dýr finnast í
Eþíópíu og rúmlega 2000 dýr í Kenía. Heildarstofnstærðin er
því ekki nema um 2.500 dýr. Verið er að reyna að sporna við
þessari þróun og hefur gott starf verið unnið í Lewa í Kenía
sem miðar að því að fjölga í stofninum, og hefur náðst
sæmilegur árangur í þá veru.
Samfélag greifasebrans er nokkuð frábrugðið sléttusebranum og
líkara því sem þekkist hjá afríska villiasnans (Equus
africanus). Svo virðist sem engin varanleg tengsl séu á
milli fullorðinna dýra. Dýrin safnast í hópa af handahófi og
er sífelld breyting á hópunum. Hryssurnar fara yfirleitt í
langar ferðir í leit af vatni og betri beitarhögum, en
hestarnir reyna að verja ákveðin landsvæði árið um kring og
bíða komu hryssanna að nýju á regntímanum.
Fjallasebri (Equus zebra)
Þessi tegund greinist í tvær aðskildar deilitegundir,
höfðasebra (Equus zebra zebra) og hartmannssebra (Equus
zebra hartmanni). Sú fyrrnefnda er mun lágvaxnari, eða um
120 cm á herðakamb en hartmannssebri er talsvert hærri, eða um
150 cm að jafnaði.
Fjallasebri: Hartmannssebri
Kjörlendi fjallasebrans eru hálendisséttur. Hóparnir
samanstanda vanalega af 2-5 hryssum, folöldum og forystuhesti.
Áður lágu útbreiðslusvæði deilitegundanna saman en nú eru um
1000 km sem skilja þær að. Gengið hefur verið mjög nærri
höfðasebranum og er nú talið að aðeins um 200 dýr séu eftir.
Hartmannssebrinn stendur þó öllu betur með rúmlega 5000 dýr.
Kvaggi (Equus quagga)
Kvaggi var nokkuð frábrugðinn öðrum sebrahestum álfunnar. Hann
var útbreiddur um alla Suður-Afríku, en strax eftir landnám
Búa hófust gengdarlausar veiðar á honum sem að lokum leiddu
til þess að tegundin dó út. Síðasti hópurinn hélt til við Vaal-fljót
en dó sennilega árið 1878 vegna mikilla þurrka sem voru á
svæðinu misserin á undan. Nokkur dýr voru flutt í dýragarða í
Evrópu á þessu tímabili, en síðasta dýrið dó í dýragarðinum í
Amsterdam árið 1883. Má sjá dýrið uppstoppað á
náttúrugripasafninu í borginni.
Kvaggi
Sett hefur verið í gang verkefni sem hefur það að markmiði að
reyna að endurvekja kvagga með kynbótum á sléttusebra. Árið
2000 var tylft dýra sem líkjast mjög kvöggum sleppt á
verndarsvæði í Karoo í Suðu-Afríku, en það eru fyrrum
heimkynni kvagga. Rannsökuð hafa verið lífsýni sem tekin voru
úr uppstoppuðum dýrum og þau notuð til samanburðar við
kynbæturnar. Það er þó umdeilanlegt hvort þessi dýr teljist
vera kvaggar, en ekki er enn hægt að nota slík DNA-sýni til
þess fá fram nýjan einstakling.