|
 |
|
|
|
|
|
 |
Karrý fiskur í ofni |
|
hér er einn góður fiskréttur
3til 4 flök af fiski
7dlsúrmjólk
7msk létt mæjones
karry eftir smekk smakk sig til
paprika og fleira grænt ef þú átt ekkert must
ostur ofan á
2pokar hrisgrjón tilda
sjóða hrisgrjón setja þau í botn á eldföstu formi hræra saman súrmjólk
og mæjónes og karry smakka sig til má vera vel gult setja helming af
sósu yfir hrisgrjón hræra í setja svo fiskflök yfir og grænmeti svo
kemur rest af sósu og ostur yfir það æðislegur réttur og léttur líka
verði þér af góðubaka þar til ostur er gullin brúnn ca 20 min
|
|
 |
Fiskur í gráðostasósu 2 |
|
Fiskur, t.d. Skötuselur, Steinbítur eða
Rauðspretta
1/4 l. Rjómi
100 gr. Gráðostur
1 blaðlaukur
Sveppir
Sletta af hvítvíni
Dill, aromat og svartur pipar
Hreinsið fiskinn og skerið í litlar sneiðar,
veltið upp úr krydduðu hveiti. Byrjið á að rista sveppi og lauk á
pönnunni. Takið þá síðan af og setjið fiskinn á sjóðheita pönnuna og
steikið í ca. 3-4 mínútur á hvorri hlið (fer eftir þykkt sneiðanna).
Bætið út í gráðosti, rjóma og hvítvíni. Setjið laukinn oppina yfir og
berið fram.
Alre
|
|
 |
Pönnusteiktur silungur. |
|
4, regnbogasilungar
2,msk, hveiti
2,msk, matarolía
25,gr, smjör
3, jalapeno chilepipar
(kjarnhreinsaðir og í sneiðum)
15, möndluspænir
safin úr 1, sítrónu.
Þerrið fiskinn og veltið upp úr hveiti. Hitið olíu og smjör á stórri pönnu
, steikjið chilipiparinn í 1-2,min. Setjijð fiskinn ´apönnuna og
steikjið á báðum hliðum í um 3,min. Stráið möndluspónum yfir og steikjið
í 2,min. Dreypið' sítrónusafa yfir og hitið aðeins . Skreytið með
kryddjurtum og sítrónusneiðum.
Sóley Baldvinsdóttir
|
|
 |
Skötuselur í rjómabaði |
|
|
Fljótlegur fiskréttur ( Skötuselur)
500 gr Skötuselur
1 stilkur Sellerí
1/2 til 1 paprika
1 til 2 rif hvítlaukur
1/4 rauðlaukur
8 cm púrrulaukur
2 til 3 dl matreiðslurjómi
salt
pipar
karry
tabasco
olia til steikingar
Saxið lauk, papriku og sellerí allt frekar smátt steikið á pönnu smá stund
og takið af, steikið fiskinn í 2 til 3 cm sneiðum kryddið með salti,
pipar og karrýi. Hellið grænmetinu yfir og síðan rjómanum og látið malla
um stund bragðbætið með tabasco Það má bæta meiri papriku í stærri bitum
í réttinn eða einhverju öðru eftir smekk í endann á eldunartímanum.
Palmi E |
|
 |
Mjög
góður fiskréttur, uppskriftin er fyrir 3-4 |
|
7-800 gr ýsa eða þorskur
250 gr sveppir
lítið brokkolí höfuð
3-4 gulrætur
3 hvítlauksgeirar
1 laukur
200 gr smurostur t.d. papriku.
soya sósa
1 fiskteningur
karrý
paprikukrydd
olía
ca 1 dl mjólk
Meðlæti: Hrísgrjón og gott brauð.
1. Allt grænmeti skorið og steikt í olíu á
pönnu.
2. Sletta af soya sósu sett á pönnuna og grænmetið látið mauka aðeins í
henni.
3. Smurosturinn er svo bræddur á pönnunni með grænmetinu og sósan þynnt út
með mjólk. Bætið fiskteningnum saman við og sjóðið í 5 mín. Bragðbætið
með paprikukryddi ef vill.
4. Sósunni er nú hellt í eldfast mót og fisknum raðað ofan á, kryddið
fiskinn með karrý.
5. Setið inn í ofn á 200 gr í 35 mín.
6. Takið fiskinn út og stráið rifnum osti yfir og eldið í 15 mín í viðbót.
Verði ykkur að góðu.
Helena
|
|
 |
Steiktar
fiskibollur 2 |
|
400 gr. beinlaus fiskur
2 matsk. hveiti
1 1/2 matsk. jarðeplamjöl (kartöflumjöl)
2 tesk. salt
1/4 tesk. pipar
1/2 matsk. saxaður laukur
2 dl. mjólk
50 gr. plöntufeiti ( olívuolía)
50 gr. smjörlíki
Sjá
hreinsun á fiski og
fiskdeig. Saxað 4 sinnum með lauknum,
saltinu og piparnum. Hveitið og jarðeplamjölið (kartöflumjöl) hrært
saman við. Mjólkin hrærð í smátt og smátt. Hrært í 1/2 klst.
Plöntufeitin og smjörlíkið brúnað á pönnu og fiskdeigið sett á með
matskeið, sem dýft er ofan í feitina. Steiktar í 15 mín. Borðaðar með
soðnum kartöflum.
Sjóða má bollurnar, og eru þá margskonar sósur notaðar út á þær. Sé það
gert, er lauknum sleppt.
(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)
Aths.ömmu gömlu:
Rétt að benda á tíminn sem Helga telur hæfilegt að hræra deigið miðast við
að hrært sé í höndum eins og þá tíðkaðist - en í hrærivél þarf vitanlega
ekki að hræra svona lengi. |
|
 |
Reykt ýsa
|
|
roðflett,
beinhreinsuð og skorin í bita.
Rjómi (hafið nóg af rjóma).
Sveppir, skornir í sneiðar.
Nýmalaður svartur pipar.
Sveppirnir skornir fínt, steiktir vel í smjöri og settir í fat til hliðar.
Ýsunni velt uppúr smávegis hveiti og piparinn malaður yfir hana.
Ýsan er steikt stuttlega (í tveimur eða fleiri skömmtum ef allt kemst ekki
á pönnuna í einu). Ýsan er þvínæst sett á disk og rjómanum hellt í
pönnuna og safanum af sveppunum líka.
Þegar rjóminn er að sjóða er ýsunni skellt út í rjómann og sveppunum
skellt yfir. Svo er rjóminn látinn sjóða upp (þá þykknar sósan). Þetta
þarf ekki að sjóða lengi, 15+ mínútur. Með þessu er best að hafa nýjar
íslenskar kartöflur.
Ofnbakaður reyktur fiskur með
basilkartöflum
Fyrir 4 , góð uppskrift frá femins.is
Margir muna eftir reyktu ýsunni sem alltaf var borin fram með
kartöflujanfingi. Reykt ýsa er herramannsmatur og hér er ein öðruvísi
eldunaraðferð.
700 g reykt ýsa
600 g meðalstórar kartöflur
ólífuolía
1 msk. smjör
6-8 basilikumlauf, söxuð
salt og svartur pipar
Byrjið á því að leggja fiskinn í bleyti í a.m.k. 4 klukkustundir, skolið
síðan, þerrið hann og skerið í bita. Hitið ofninn í 190 gráður. Sjóðið
kartöflurnar í u.þ.b. 10 mínútur og skerið þær í þykkar sneiðar eða
báta. Leggið fiskbitana (með roðið niður)í eldfast mót og hellið smá
ólífuolíu yfir þá og veltið þeim upp úr olíunni. Bakið í 12-15 mínútur
og haldið fiskinum síðan heitum á meðan kartöflurnar eru í ofninum.
Veltið kartöflunum upp úr olíunni og setjið smjörið með kartöflunum í
smáklípum. Bakið í u.þ.b. 10 mínútur og stráið basilikumlaufum yfir.
Berið kartöflurnar fram með fiskinum.
|
|
 |
Fiskur í bacon-sósu með banönum |
|
600 gr karfaflök/smálúðuflök/ýsuflök !
Hveiti / salt-pipar ( fiskikrydd)
olía til steikingar
2 bananar
Sósa
6 beikonsneiðar
1 laukur
250 gr sveppir
1-2 tsk karrí
1/2 dl vatn
1 dl. rjómi
salt / pipar
Roðflétta fiskinn og skera í bita.
Krydda hveiti með salti og pipar og veltið fiskinum upp úr, steikið í olíu
og haldið honum svo heitum í ofni.
Sneiðið banana í bita eða ræmur. Brúnið þá á pönnunni í augnablik setjið
svo ofan á fiskinn.
SÓSA
Skerið beikonið í litla bita og laukinn smátt, sneiðið niður sveppina.
Steikið beikonið á þurri pönnu bætið lauknum í svo sveppunum. stráið karrí
yfir.
Hellið vatni og rjóma á pönnuna látið sjóða upp og smakkið ykkur til með
salti og pipar.
Berið fram með íslenskum kartöflum !!!- og hrísgrjónum.
|
|
 |
Fiskur
í smjördeigi! |
|
Þetta
er einfaldur réttur sem tekur aðeins 15-20 mín. að útbúa.
600 gr ýsa, smálúða,
þorskur eða karfi
400 g smjördeig ( tilbúið einn pakki)
6 msk steinselja
salt-sítrónupipar
1 egg til penslunnar
Köld sósa:
2 msk graslaukur
2 smk steinselja
2 dl sýrður rjómi (eitt box)
salt-pipar
Skerið fiskinn í nokkur stykki meðalstór i ca. átta stykki.
Saxið steinseljuna, fletjið út smjördeigið og skiptið í jafnmarga parta og
fiskstykkin.
Setjið eitt fiskstykki á miðjuna á smjördeigspartinn, stráið steinselju
yfir og kryddið með sítrónupipar (eða pipar eða góðu fiskikryddi) og
salti.
Lokið smjördeiginu utanum fiskstykkið (pakka fiskinum inn).
Hitið ofninn í 200 C.
Setjið stykkin á smurða bökunarplötu. samskeytin snúa niður.
Stingið gat efst á smjördeigs-pakkann- penslið með egginu.
Bakið í vel heitum ofni (200 C) í ca. 20 mín.
Berið fram með grænmetissalati og soðnum kartöflum/hrísgrjónum.
Tilbrigði: Auðvitað er hægt að pakka inn í smjördeigið með fiskinum t.d.
örlitlu af lauk, eða annarri kryddblöndu !
Pensla kannski fiskinn með soya eða sítrónusafa!
|
|
 |
Fiskisúpa-express |
|
Fyrir 4
Þessi súpa er fljótlöguð en hún mjög góð og má bæta í hana ýmsum fisk- og
skelfisktegundum eftir þörfum og smekk hvers og eins.
Efni í súpuna:
1 msk. smjör eða olía
1 laukur
1 ½ tsk. karrí
2 hvítlauksrif, söxuð
3 msk. sítrónusafi
1 dós Campell´s tómatsúpa
1 ½ dl vatn
2 dl fiskikraftur (teningur og vatn)
½ tsk. cayennepipar
1-2 tsk. Aromat krydd eða Picanta-krydd
200 g fiskur s.s. lúða, steinbítur, karfi, lax ! ) má vera sitt lítið af
hverju)
100 g rækjur
100 g hörpuskel (má sleppa)
2 dl rjómi
Bræðið smjörið og mýkið laukinn í því. Stráðið karríinu yfir laukinn og
hrærið. Bætið hvítlauknum út í og látið krauma í 5 mínútur. Setjið
sítrónusafann, tómatsúpuna, vatnið og fiskikraftinn út í súpuna og látið
suðuna koma upp. Kryddið súpuna og setjið fiskinn út í. Hitið að
suðumarki, bætið rjómanum út í, hitið og berið fram með góðu brauði.
Þessi súpa er fljótlöguð og gerð fyrir þá sem eru að flýta sér. Engu að
síður er hún mjög góð og má bæta í hana ýmsum fisk- og skelfisktegundum
eftir þörfum og smekk hvers og eins.
|
|
 |
Fiskispjót með sítrónu og rósmarín |
|
500 g skötuselur
350 g lúða
200 g hörpuskelfiskur
250 g risarækja, hrá í skel eða humarhalar
2 msk rósmarín, saxað
1-2 hvítlauksrif
1/2 mandarína
4 msk ólífuolía
safi úr 1 límónu / lime
nýmalaður pipar
salt
Skötuselurinn skorinn í 1 1/2 cm þykkar sneiðar.
Lúðan skorin á álíka bita einnig.
Sett í skál ásamt hörpuskel og risarækju.
Rósmarín, hvítlaukur og mandarína sett í matvinnsluvél og hún látin ganga
þar til allt er orðið að mauki. Olíunni þeytt saman við og síðan
límónusafa, pipar og dálitlu salti.
Hellt yfir fiskinn og blandað vel. Látið standa í a.m.k. hálftíma.
Grillið hitað vel.
Fiskbitarnir þræddir á teina til skiptis (ég setti hörpuskelfiskinn innst
á teinana og raðaði þeim þannig á grillið að hitinn var ívið minni þar,
af því að þeir þurfa svo litla eldun, og svo setti ég eina rækju á hinn
endann). Sett á grillið (sem búið er að pensla með olíu) og grillað í
3-4 mínútur við góðan hita; snúið einu sinni. Borið fram strax.
Ath. ef notaðir eru tré-grillteinar, verður að leggja þá í vatn í ca. 1/2
klst. til 1 klst.
fyrir notkun. |
|
 |
Hátíðar
humar |
|
- 500 g humar
- 8 stk tómatar
- 3 msk olía
- 2½ dl rjómi
- 2 tsk karrí
- 1 stk hvítlauksrif
- 1 stk lítið salathöfuð, skorið í strimla
- 1 stk rauð paprika, skorin í strimla
- ½ dl koníak
- salt og nýmalaður pipar
- tabascosósa
Dragið humarinn úr skelinni, snöggbrúnið hann í heitri olíu og kryddið
með salti og nýmöluðum svörtum pipar. Hellið koníakinu yfir, kveikið í
og látið það brenna út. Stráið karríduftinu yfir og bætið mörðum
hvítlauknum saman við. Látið þetta krauma um stund og hrærið í á meðan.
Hellið rjómanum yfir og hrærið. Bætið tómatbátunum og paprikkustrimlunum
saman við. Hitið réttinn að suðu (passið að hann sjóði alls ekki því þá
verður humarinn seigur) slökkvið undir og látið réttinn standa í 2-3
mín. Smakkið til með kryddi og tabascosósu og bætið salatinu út í. Borið
fram með hvítlauksbrauði og hrísgrjónum.
|
|
 |
Lúðusúpa |
|
- 1 kg lúða
- 1 ltr. vatn
- 1 msk edik
- 2 lárviðarlauf
- salt
- 1 msk smjör
- 1 msk hveiti
- 50 g sveskjur
- safi úr 1/2 sítrónu
- 1 msk sykur
Þetta er bara hefðbundið allt í pott og baka síðan upp með smjöri og
hveiti.
|
|
 |
Lax í ofni |
|
- 4 skammtar af laxabitum
- 3 msk Touch of Taste Hummerfond
- 1 dl vatn
- 1 dl sýrður rjómi
- 2 1/2 dl matreiðslurjómi
- 2 tsk franskt sinnep
- 1 msk smátt klippt dill
- pipar
Stillið ofninn á 200°C. Leggið laxinn í eldfast mót og piprið. Sjóðið
saman vatnið, sýrða rjómann matreiðslurjómann og sinnepið í potti.
Hellið sósunni yfir laxinn og bakið í ofninum þar til laxinn er tilbúinn
ca. 30 min.
Stráið dillinu yfir laxinn og berið fram með pressuðu kartöflukartöflum.
|
|
 |
Sjávarréttagratin |
|
- 150 gr rækjur
- 150 gr humar
- 300 gr smálúða
- 200 gr ferskir sveppir
- 1 búnt léttsoðin ferskur grænn spergill
- 4 msk smjör
- 4 msk hveiti
- 2 ½ dl rjómi
- 250 gr rifinn ostur
- 1 stk eggjahvíta, stífþeytt
- soðið af sperglinum
- hvítur pipar og salt eftir smekk
- paprikuduft.
|
|
 |
Fiskur í kryddsósu |
|
- 300 gr.þorskur eða ýsa
- 1/2 blaðlaukur
- 1/2 paprika
- 125 gr. brokkolí
- 1/2 msk olía
- 1 hvítlauksrif
- 1/2 fiskiteningur
- 1 msk tómatkraftur
- 1 tsk timian
- 1 tsk oregano
- 1/2 tsk rósmarín
- salt og pipar
|
|
 |
Pönnusteiktur fiskur |
|
- Þorskur eða ýsa
- 100 gr. Spelti
- Salt og pipar
- 1 msk. Paprikukrydd
- 1 msk. Turmeric (má sleppa)
- 2 egg
- 1 dl. mjólk
Þessi réttur gæti ekki verið einfaldari.
Ég nota þorsk mikið meira en ýsuna (hún er svo þurr og bragðlítil) og er
hann sérstaklega góður ef hann er steiktur eða í ofni.
|
|
 |
Ofnbakaður fiskur
m/tómötum og parmesan |
|
fyrir 4
- 300 gr. pasta
- 600 gr. þorskur eða ýsa
- 3 tómatar
- 2 msk brauðrasp
- 2 msk parmesanostur
- 2 msk steinselja
- 2 msk ólívuolía
- Salt og pipar
|
|
 |
Fiskibollur Rögga |
|
- 1500 gr fiskur (þorskur er bestur)
- 1 meðalstór laukur
- 1-2 egg
- 3-5 dl mjólk
- 3 kúfaðar msk hveiti
- 3 kúfaðar msk kartöflumjöl
- Salt og hvítur pipar (ég set hálfa msk af hvoru, en best er að gera
þetta eftir smekk)
Góð tilbreyting við fiskibollurnar er að bæta 2-3 bollum af hökkuðum
osti í 1500 gr. af fiski.
Ostabollurnar eru sjúklega góðar.
|
|
 |
Gratínerað fiskipasta |
|
Fyrir fjóra
400 g penne rigate (De Cecco)
800 g hvítur fiskur skorinn í bita (t.d. ýsa, þorskur, smálúða)
300 g vel þroskaðir tómatar
30 g kapers (í salti)
2 msk jómfrúrólífuolía (Carapelli)
50 g svartar ólífur
1 púrra (200 g)
20 g smjör
salt og pipar
Skerið fiskinn í bita. Skerið púrruna í
sneiðar (aðeins hvíta hlutann) og mýkið í olínni í 10 mín. Bætið
fiskbitum saman við og eldið áfram í ca. 10 mín. Skerið tómatana í
tvennt í millitíðinni og fjarlægið kjarna. Skerið í þykkar ræmur. Skolið
síðan kapers og ólífur. Bætið svo öllu sama við fiskin og látið blandast
vel í 1-2 mín. Saltið og piprið. Sjóðið pastað hálfan suðutíma (leiðb. á
pakka), sigtið og blandið saman við fiskisósuna í eldföstu smjörsmurðu
móti. Bakið við 180 gr. í 15 mín.og gratínerið á grilli í 2 mín.
Undirbúningstími: 15 ti 20 mínútur
Eldunartími: innan við klukkutími
|
|
 |
Grillaður fiskur með sósu |
|
Uppskrift fyrir tvo:
400 - 450 gr. fiskur að eigin vali, t.d. makríll eða vartari (allur
hvítur fiskur er góður í þennan rétt)
Marinering:
4 msk. kóríander
2 msk. hvítlaukur, niðurskorinn
1 tsk. nýmalaður svartur pipar
Sósa:
3 msk. sítrónusafi
1 msk. hvítlaukur, niðurskorinn
1 msk. jalapeño chilli pipar, niðurskorinn
2 tsk. sykur
Setjið kóríanderinn, hvítlaukinn og
piparinn í blandara. Hrærið vel saman. Þekið fiskinn með maukinu. Vefjið
álpappír utan um fiskinn og grillið í ca. 5 til 6 mín. á hverri hlið,
eða þar til hann er tilbúinn.
Á meðan fiskurinn er á grillinu, útbúið sósuna.
Setjið sítrónusafann, hvítlaukinn, jalapeño og sykurinn í blandara og
hrærið vel saman. Setjið sósuna í skál og berið fram með fiskinum.
Einnig er gott að bjóða upp á grænt salat með.
|
|
 |
Steiktur saltfiskur
á bökuðum kartöfluskífum |
|
Undirbúningur og eldun: 1 klst
Fyrir 4
800g vel útvatnaður saltfiskur, roð og beinlaus í 100g
bitum.
hveiti
smjör og olía
4-6 bökunarkartöflur, eftir stærð
½ laukur, saxaður
2 hvítlauksgeirar, fínt saxaðir
3 dl grænmetissoð (eða vatn og teningar)
1 dl rjómi
3 tómatar
salt og pipar
Kartöflur
Afhýðið kartöflurnar og skerið í ½ cm þykkar sneiðar. Steikið sneiðarnar
í smá olíu á teflonhúðaðri pönnu, þannig að hver sneið brúnist aðeins og
setjið í skál. Steikið laukinn og hvítlaukinn saman í smá olíu án þess
að brúna og setjið saman við kartöflurnar, kryddið með salti og pipar.
Setjið í eldfast mót og hellið soðinu og rjómanum yfir. Bakið í ofni í
40 mín á 180 c. eða þar til kartöflurnar eru gegneldaðar.
Fiskur
Veltið fiskbitunum upp úr hveiti og steikið gullinbrúnan í olíu og
smjöri. Skerið tómatana í sneiðar og leggið ofan á kartöfluformið og
fiskbitana þar á. Setjið aftur í ofninn og bakið í nokkrar mínútur í
viðbót eða þar til fiskurinn er tilbúinn.
Framreiðsla
Berið fram með salati og hvítlauksbrauði.
|
|
 |
Sjávarrétta Paella - að
hætti Spánverja |
|
Fyrir 4-5
2 msk extra virgin ólifiolíu
1 stk rauðlaukur
4 stk hvítlauksrif
4 stk tómatar, grófsaxaðir
½ tsk safran þræðir
1 bolli Basmati hrísgrjón
11 gr kjúklingakraftur "Oscar"
1 ½ bolli vatn
1 tsk salt
1 tsk nýmulin pipar
170 gr smálúðuflök
150 gr rækjur
20 stk kræklinga (má vera í dós)
½ bolli ferskar grænar baunir
¼ bolli söxuð fersk steinselja
Aðferð:
1 Hitið ofninn í 200°c. Hitið olíuna í pönnu sem má fara inní ofn,
steikið hvítlaukinn, laukinn en ekki brúna eða u.þ.b. 3 mínútur, setjið
þá tómatana og safranið útí og steikið til viðbóta í ca. 2 mínútur.
2 Látið suðuna koma upp á vatninu og hrærið kjúklingakraftinum vel
saman við.
3 Hrærið hrísgrjónunum saman og hellið kjúklinasoðinu útí, kryddið
með salt og pipar, færið pönnunna ínní ofn og bakið í ca. 35 mínútur eða
þangað til að hrísgrjóninn eru orðin mjúk. Á meðan hrísgrjóninn eru að
eldast þá skerið smálúðuna í bita og þrífið kræklingana.
4 Setjið kræklingana, smálúðubitana, rækjurnar og kryddið með salt
og pipar og bakið í ca. 15mínútur í viðbót.
5 Þegar Sjávarréttar-Paella er tilbúinn þá dreifið steinseljunni
yfir og berið fram strax.
|
|
 |
Rækju
Enchiladas |
|
Uppskrift fyrir fjóra:
500 gr. rækjur
8 stk. Santa Maria tortillur
1 krukka (350 gr.) Santa Maria salsasósa
125 gr. rifinn ostur
4 msk. olía til steikingar
1/4 tsk. salt
1/8 tsk. nýmalaður svartur pipar
Meðlæti:
1/2 bolli sýrður rjómi
2 tsk. ferskur graslaukur, niðurskorinn
Forhitið ofninn í 130°C. Setjið
bökunarpappír ofan á eina plötu.
Hitið 1 msk. af olíu á pönnu við miðlungshita. Kryddið rækjurnar eftir
smekk og steikið á pönnunni í ca. 4 mín. Fjarlægið rækjurnar af
pönnunni.
Setjið rækjurnar á helming hverrar tortillu, og ost ofan á. Brjótið til
helminga.
Hitið 3 msk. af olíu á pönnu við miðlungshita. Brúnið tortillurnar, ca.
30 sek. á hvorri hlið. Setjið tortillurnar á plötuna og haldið þeim
heitum í ofninum.
Hellið olíunni af pönnunni. Takið fjórar tortillur úr ofninum og setjið
á pönnuna. Bætið helmingnum af salsasósunni út á og látið malla við
miðlungshita, þar til tortillurnar eru orðnar mjúkar, ca. 2 mín., snúið
þeim við einu sinni. Endurtakið með afganginn af tortillunum.
Berið fram með sýrða rjómanum og graslauknum
|
|
 |
Kínverskar fiskibollur |
|
(fyrir 2)
- 400 gr. fiskihakk
- 1 vorlaukur
- 1 hvítlauksrif
- 1 tsk engifer
- 1/2 msk soyasósa
- 1/2 tsk sykur
- salt
- 1/2 msk olía
- 1 msk maísmjöl
- olía til steikingar
Allt sett í skál og hrært vel saman. Mótað í 8-10 bollur eða buff.
Olía er hituð á stórri pönnu og bollurnar steiktar við meðal hita í 5 mín.
á hvorri hlið eða þar til gegnsteiktar og gullinbrúnar.
|
|
 |
Grafinn
lax 2 |
|
- 60 gr salt
- 15 gr þurrkað dill eða mulin dillfræ
- 25 gr sykur
- 2 gr fennikel þurrkað
- 2 gr nýmulinn pipar
- 1 gott laxaflak
|
|
 |
Grafinn
lax |
|
- 4 msk salt fíntukur
- ½ msk pipar
- 1 msk saxaður la
- 1 msk þriðjakryddið
- 3 msk dill þurkað
- 1 tsk saltpétur
- 1 tsk fennel
- laxaflak
|
|
 |
Humarforréttur |
|
|
Humar
2-3 hvítlauksrif
paprika
laukur
sveppir
sett á pönnur eða í pott og brúnað
Hvítlauksostur (með eða án dills)
Rjómaostur
Rjómi
Sett í pönnu eða pott og hrært saman í góða sósu (ég set smá kraft út í
, nauta og/eða grænmetiskraft)
grænmetið sett út í
Þessa sósu má gera áður og láta standa
Humar
Hörpudiskur
Rækjur
Humar og hörpudiskur brúnað aðeins í smjöri og sett svo í heita sósuna
ásamt rækjum og borið fram með góðu brauði
|
|
 |
Fiskur í jógúrtpestósósu |
|
7-800 grömm þorskur, roðflettur og
beinlaus (væri hægt að nota ýsu en ég er hrifnari af þorsk sjálf)
1 dós hrein jógúrt
3 msk tómatpestó (úr sólþurrkuðum tómötum)
1 knippi steinselja
salt og piparSkerið fiskinn í stóra bita. Blandið saman jógúrt,
pestó og hnefafylli af saxaðri steinselju í skál, kryddið með salti og
pipar. Veltið fiskinum upp úr blöndunni og látið standa á meðan
grillið í ofninum er hitað. Raðið fiskinum í eldfast fat og hellið
sósunni sem eftir verður í skálinni jafnt yfir. Setjið í ofninn,
fremur ofarlega og grillið í 6-8 mínútur eða þar til fiskurinn er að
verða steiktur í gegn. Látið hann standa í 1-2 mín eftir að hann
er tekinn úr ofninum. Stráið saxaðri steinselju yfir og berið fram
með t.d. brúnum hrísgrjónum eða bankabyggi og fersku salati.
Ef vill er fínt að drekka með þessu ferskt hvítvín frá Chablis.
|
|
 |
Pizzufiskur |
|
Aðeins minna en 1 dós af uppáhaldstómatsósunni
t.d. Hunt's pizza sauce
nokkur basilíkublöð, bæði í réttinn og til skreytingar ef vill
7-800 g þorskflök, roð og beinlaus
salt og pipar
smávegis olía
ca 20-30 steinlausar svartar ólífur
1 kúla ferskur mozzarella ostur (er líka hægt að nota venjulegan ost)
Hita ofn í 200 gráður. Hita sósu í potti ásamt söxuðum basilíkulaufum ca
8 stk. Fiskur skorinn í hæfilega stór stykki og krydduð með salt
og pipar. Eldfast mót smurt með olíu. Gott er að raða
fiskstykkjunum í það, hella sósunni yfir og dreifa svo ólífunum þar ofan
á. Breiða álpappír yfir mótið og baka fiskinn í ofninum í ca 15
mín. Takið nú fiskinn út úr ofninum, hækkið ofninn í 215 gráður,
takið álpappír af og dreifið niðurskornum mozzarella ofan á. Bakið
áfram í ca 10 mín eða þar til osturinn er byrjaður að taka smá lit.
Fínt að skreyta með basilíkulaufum.
|
|
 |
Sjávarréttasúpa |
|
Fyrir 4-5
- 1 stór laukur, fínsaxaður
- 1 gulrót, þunnt sneidd
- 1-2 hvítlauksrif, pressuð
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1 tsk oregano
- 1 tsk basil
- 2 tsk sítrónupipar
- 1 tsk svartur pipar
- 1/2 tsk karríduft
- 1/2 tsk fish masala krydd (má
sleppa)
- 400 gr niðursoðnir tómatar
- 400 ml dós, humarsúpa (ekki
sykurbætt, án aukaefna og helst lífrænt framleidd). Þeir sem hafa
glúteinóþol ættu að skoða innihaldslýsingu
- 1/2 lítri vatn
- 2 gerlausir fiskiteningar (líka hægt að nota gerlausa
grænmetisteninga t.d. frá Rapunzel og bæta þá 2-3
msk af fiskisósu (Nam pla) út í)
- 150 ml mysa eða óóafengt
hvítvín
- 350 gr ýsa, skorin í litla bita
- 400 gr frosnir blandaðir
sjávarréttir (sem búið er að þíða)
- 150 ml undanrenna eða
léttmjólk
Aðferð:
- Hitið gulrót, hvítlauk og krydd í kókosfeiti eða ólífuolíu.
- Bætið vatni, humarsúpu og tómötunum og mysunni/hvítvíninu saman
við.
- Hækkið hitann og leyfið að malla í nokkrar mínútur.
- Bætið fiskinum út í þegar suðan kemur upp og leyfið að sjóða í
u.þ.b. 8 mínútur.
- Bætið blönduðu sjávarréttunum út í síðustu 2-4 mínúturnar (gætið
þess að ofsjóða ekki).
- Berið fram með nýju, grófu brauði, helst heimabökuðu speltbrauði,
það er best.
- Ef þið viljið gera súpuna meira spari, setjið þá 100
ml af matreiðslurjóma og 50
ml af léttmjólk eða undanrennu.
- Ef það verður smá afgangur af súpunni, þá er upplagt að nota hana
sem pastasósu daginn eftir!! Þykkið súpuna með 2
tsk af sósujafnara (courn flour eða
arrow root) leyst upp í 2 tsk af
vatni, sjóðið pasta og blandið saman, þá er kominn líka þessi fíni
pastaréttur!!!
|
|
 |
Miðjarðarhafs fiskisúpa |
|
Upprunaleg uppskrift er úr bókinni "Af bestu
lyst II". Þessi súpa er hrikalega bragðgóð, seðjandi og ótrúlega holl.
Frábær vetrarsúpa því manni hitnar alveg í gegn við að borða hana. Ég
notaði heilsusalt í stað venjulegs salts og grænmetissoð í staðinn fyrir
kjúklingasoð. Einnig bætti ég við fiskisósu. Súpan hentar vel fyrir þá
sem hafa glúteinóþol og mjólkuróþol.
Miðjarðarhafs fiskisúpa
Fyrir 2-3
- 250 gr blandaðir sjávarréttir,
frosnir
(eða 100 gr beinlaus og roðflettur
fiskur og 150 gr hörpuskel og
rækjur í bland)
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 100 gr sveppir
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 1 tsk svartur pipar
- 1/2 msk karrí duft
- 1/2 tsk turmeric duft
- 200 ml niðursoðnir tómatar
- 300 ml vatn
- 1 gerlaus grænmetisteningur t.d. frá Rapunzel
- 5 lárviðarlauf
- 1/2 lítil dós kræklingur (nota um 75 gr)
- 1/2 búnt steinselja
- 1 tsk fiskisósa (Nam Plah). Má
sleppa
Aðferð:
- Saxið lauk og merjið hvítlauksrif.
- Skerið niður sveppi í þunnar sneiðar.
- Steikið lauk, hvítlauk og sveppi í kókosfeiti eða ólífuolíu í 1-2
mín í stórum potti. Bætið við vatni ef þarf meiri vökva.
- Kryddið með salti, pipar, karrí og turmeric
- Setjið tómata, grænmetissoð og lárviðarlauf út í pottinn.
- Látið suðuna koma upp í 3-4 mínútur.
- Setjið frosna hörpudiskinn útí (eða fiskinn í litlum bitum) og
sjóðið í 3-4 mínútur
- Bætið kræklingnum út í og hita að suðu.
- Saxið steinselju yfir súpuna (og setjið
u.þ.b. 1
msk á hvern disk áður en borið
fram).
- Það er meiriháttar að hafa nýbakað, gróft speltbrauð með súpunni.
Sigrún
|
|
 |
Mexikönsk ýsa |
|
Ég man ekki hvaðan þessi uppskrift er en hún
er að minnsta kosti bragðgóð, létt og afar holl. Það er hægt að kaupa
mjög fínar og hollar sósur í heilsubúðum (sem ekki var hægt hérna fyrir
nokkrum árum) svo það er um að gera að notfæra sér það! Gætið þess samt
að salsasósur geta verið sterkar svo kaupið mild en ekki
hot sósu ef þið viljið ekki of sterkan rétt.
Mexikönsk ýsa
Fyrir 2-3
- 400-500 gr ýsuflök, roðflett og
beinhreinsuð
- 100 gr magur ostur, rifinn
- 2 dl mexikönsk grænmetissósa
(salsa). Gætið þess að ekki sé sykur eða viðbætt efni (t.d. E-600
efni) í sósunni. Sósan ætti ekki að innihalda mikla fitu því
uppistaðan ætti að vera grænmeti. Kaupið helst lífrænt framleidda
sósu í heilsubúð.
- 2 dl salsasósa, mild (passið
einnig hér að kaupa holla og lífrænt framleidda sósu úr heilsubúð)
- 1 tómatur skorinn í þunnar sneiðar
- 2 msk fersk steinselja, söxuð
- Heilsusalt (Herbamare) og pipar
Aðferð:
- Skerið ýsuflökin í nokkra stóra bita.
- Leggið ýsubitana ofan í eldfast mót (óþarfi að smyrja).
- Blandið salsasósunni og hinni sósunni saman og hellið yfir.
- Saltið og piprið eftir smekk.
- Leggið tómatsneiðarnar ofan.
- Dreifið söxuðu steinseljunni yfir.
- Stráið rifna ostinum yfir.
- Hitið í ofni við 200°C í 20 mínútur.
- Berið réttinn fram með brúnum hrísgrjónum og salati eða jafnvel
grófu brauði.
- Ef þið viljið að ýsan taki í sig meira bragð af sósunni þá er gott
að þekja ýsuna alveg með sósunni og láta hana liggja svoleiðis í
nokkra klukkutíma í kæli.
Sigrún
|
|
 |
Kræklinga- og kartöflusúpa |
|
Þessi súpa er saðsöm og góð og ódýr í
þokkabót, kostar innan við 1000 krónur fyrir fjóra! Það þykir nú ekki
mikið nú til dags. Samt sem áður er þetta súpa sem ég yrði glöð að fá á
veitingahúsi, svo góð þótti mér hún. Uppskriftin kemur úr bók sem heitir
’Cook’s Library: Potatoes’. Upphaflega átti að vera 300ml af rjóma og
600 ml af venjulegri mjólk en ég er búin að ’létta’ súpuna aðeins með
undanrennu og magrari rjóma. Fyrir fylltari súpu getið þið notað meiri
rjóma. Mér finnst gott að hafa þessa súpu svolítið í þykkari kantinum og
notaði ég því aðeins minni vökva en uppskriftin gaf. Það má þó setja
minni eða meiri mjólk allt eftir því hvað manni finnst gott. Súpan er
rosa góð með nýbökuðu brauði og það er létt hvítlauks-sjávarbragð af
henni. Gott er að eiga smá afgang daginn eftir, þykkja aðeins með
sósujafnara (kartöflumjöli eða maismjöli) og nota sem pastasósu. Þó
uppskriftin virki flókin er hún það alls ekki, sérstaklega ekki ef maður
notar niðursoðinn krækling. Kartöflurnar getur maður líka verið búinn að
sjóða áður og þá tekur einungis um 20 mínútur að búa til þennan
kvöldmat.
Kræklinga- og kartöflusúpa
Fyrir 3-4
- 1 kg ferskur kræklingur eða
425 gr í dós (með vökva). Geymið
vökvann.
- 3 msk spelti (kartöflumjöl
fyrir þá sem hafa glúteinóþol)
- 400 ml undanrenna
- 300 ml léttmjólk
- 125 ml kaffirjómi,
matreiðslurjómi eða soyarjómi
- 1-2 hvítlauksgeirar, marðir
- 1 stór hnefafylli, steinselja (laufin notuð, stönglunum hent)
- 300 gr kartöflur soðnar (gott að
skera í litla bita áður en þær eru soðnar til að flýta fyrir suðu.
Má setja með eða án hýðis
- Heilsusalt (Herbamare)
- Svartur pipar
Aðferð:
- Ef ferskur kræklingur er notaður þarf að byrja á því að henda þeim
sem hafa brotnar
- skeljar og þeim sem lokast ekki strax um leið og maður bankar í
skelina.
- Skolið undir köldu vatni og togið ’hárin’ af. Skrapið hrúðurkarla
af með beittum hnífi ef þeir eru til staðar.
- Setjið kræklinginn í stóran pott, lokið vel og sjóðið á háum hita
í um 4 mínútur eða þangað til allar skeljarnar opnast. Ef einhverjar
opnast ekki, hendið þeim þá.
- Látið kólna og fjarlægið svo úr skelinni. Sigtið soðvatnið ásamt
skeljunum í sigti og geymið vatnið.
- Ef notaður er kræklingur í dós skal opna dósina og geyma
kræklinginn í dósinni ásamt vökvanum.
- Blandið saman speltinu og nokkrum matskeiðum af mjólk í stóra
skál. Hrærið varlega þangað til þykkt deig hefur myndast.
- Bætið smávegis til viðbótar af mjólk og hrærið vel.
- Bætið afgangnum af mjólkinni ásamt rjóma og undanrennu í pott og
látið suðuna koma upp.
- Hrærið speltblöndunni (eða kartöflumjölsblöndunni) út í (með
sósupísk). Lækkið hitann í miðlungshita og látið krauma í 15 mínútur
eða þangað til súpan þykknar aðeins.
- Blandið steinselju út í og hitið í 2-3 mínútur.
- Látið súpuna kólna aðeins og blandið í matvinnsluvél, blandara eða
notið töfrasprota í um 5 mínútur.
- Setjið súpuna aftur í pott og bætið kræklingnum saman við ásamt
vökvanum (50 ml af soðvatninu
ef notaður var ferskur kræklingur).
- Setjið kartöflurnar saman við.
- Saltið og piprið.
- Látið malla í um 5-7 mínútur eða þangað til súpan er orðin vel
heit.
- Berið fram með nýbökuðu brauði.
Sigrún
|
|
 |
Kínversk ýsa |
|
Siggi Hall.
Fyrir 4
- 800 gr ýsuflök, snyrt og roðflett
Kryddlögur
- 1 msk extra virgin ólífuolía
- 1 msk sesamolía
- 3 msk dökk tamarisósa (í
upprunalegu uppskriftinni var soyasósa)
- 1 msk hvítvínsedik
- 1 tsk ávaxtasykur (sykur var í
upprunalegu uppskriftinni) eða agavesíróp
- 3 cm. engiferrót, flysjuð
og söxuð mjög smátt
- 2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir
- 4-8 vorlaukar (fer eftir stærð), skornir í 5
cm. bita
- 1 rauð eða gul paprika,skorin í strimla
Aðferð:
- Skerið ýsuna í 12 jafnstóra bita.
- Blandið saman olíunni, tamarisósunni, edikinu og ávaxtasykrinum og
látið engiferið, hvítlaukinn, vorlaukinn og paprikustrimlana þar út
í.
- Hellið þessu yfir ýsubitana og látið þá liggja í leginum í 1-2
tíma eða meira
- Takið ýsuna upp úr og látið í eldfast fat.
- Takið sem mest af grænmetinu sem er í kryddleginum og látið það
með skeið jafnt ofan á ýsubitana og látið fylgja vel með af leginum.
- (kryddið smá með svörtum pipar).
- Látið í 140°C heitan ofn í 10-15 mínútur eða þar til ýsan er
tilbúin.
- Berið fram með brúnum hrísgrjónum og tamarisósu.
|
|
 |
Indverskur fiskréttur |
|
Fyrir 2-3
- 500 gr ýsuflök, roðflett og
beinhreinsuð
- 2 tsk karrí
- 1 tsk fish masala (má
sleppa)
- 1 laukur, saxaður
- 1 hvítlauksgeiri, pressaður eða saxaður (má vera meira)
- 1 tsk ferskt engifer,
rifið eða saxað smátt
- 2 lárviðarlauf
- 1 tsk steinselja (nska:
parsley)
- 2-3 msk
mangomauk (má gjarnan vera
svolítið "spicy" þ.e. vel kryddað og sterkt
- 2 tsk maísmjöl (enska:
corn flour, einnig má nota arrow root)
- 200 gr fitusnauður
rjómaostur (t.d. Philadelphia Light) eða Curd ostur
(hleypiostur, ystingur)
- 1-2 dl léttmjólk +
meira eftir þörfum og smekk
- 1 tsk heilsusalt
(Herbamare)
- 2 tsk nigella fræ (svört
fræ sem eru eins og tár í laginu, eru oft í naan brauðum og fást
í austurlenskum matvörubúðum)
- Svartur pipar
- 1 tsk kókosfeiti eða
ólífuolía
Aðferð:
- Látið karrý, lauk, hvítlauk, engifer og lárviðarlauf krauma
í kókosfeiti eða ólífuolíu í u.þ.b.
3 mínútur. Notið vatn til viðbótar ef þarf.
- Takið lárviðarlaufið upp úr.
- Setjið curd ostinn (eða magra rjómaostinn) út í og hrærið í
þar til hann bráðnar
- Bætið mjólk, maísmjöl og mango chutney saman við.
- Sjóðið við vægan hita í 2 mínútur.
- Hrærið í allan tímann.
- Kryddið.
- Skerið fiskiflökin í bita.
- Setjið fiskinn út í sósuna og látið sjóða við vægan hita í
4-5 mínútur með lokinu yfir pönnunni.
- Berið fram með
chapati brauði og
Coriander og papya raita.
Athugið að þeir sem hafa glúteinóþol mega ekki borða chapati
brauð en það má bera fram glúteinlaust brauð í staðinn.
- Sósan þynnist aðeins eftir að fiskurinn er kominn út í en ef
ykkur finnst hún ennþá og þykk, bætið þá smá mjólk út í.
- Berið fram með villihrísgrjónum, eða brúnum
hýðishrísgrjónum.
- Það er líka gott að bera fram gróft snittubrauð
(glúteinlaust fyrir þá sem hafa glúteinóþol) og salat með þessum
rétti.
Sigrún
|
|
 |
Fiskur með kókosflögum og basil |
|
Það er ástæða fyrir því að það er svolítið
mikið af "sósu" í uppskriftinni en hún er sú að það er rosa gott að bera
fram grjón með fiskinum sem drekka í sig sósuna. Ef engin grjón eru
borin fram má minnka undanrennuna niður í 150 ml. Þessi réttur er afar
magur og hollur.
Fiskur með kókosflögum og basil
Fyrir 3-4
- 450 gr ýsu (eða þorsk) fille
(bein og roðlaus)
- 25 gr spelti
- 1 marinn hvítlauksgeiri
- 2 msk red curry paste (rautt
karrímauk í krukkum. Finnið eitthvað hollt, gott kryddmauk, án
viðbættra litarefna, bragðefna eða sykurs. Best að kaupa lífrænt
framleitt)
- 1 msk fiskisósa (Nam Plah)
- 250 ml undanrenna eða
léttmjólk
- 2 msk kókosflögur t.d. frá
Himneskri hollustu (eða kókosmjöl)
- 175 gr kirsuberjatómatar skornir
í helminga
- 20 fersk basil blöð, skorin í ræmur eða rifin
- Heilsusalt (Herbamare) og pipar
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
Aðferð:
- Skerið fiskinn í meðalstóra bita (ég miða við 4 bita á hvert flak
eða svo).
- Setjið speltið í skál og kryddið með salti og pipar.
- Veltið bitunum í speltinu og þekið vel.
- Hitið fiskinn á pönnu með kókosfeitinni eða ólífuolíu (og vatni ef
þarf) í 3-4 mínútur.
- Blandið saman hvítlauk, curry paste, fiskisósunni, mjólkinni og
kókosnum.
- Hellið blöndunni yfir fiskinn og hitið að suðu.
- Bætið tómötunum við og látið krauma í 5 mínútur (gætið þess að
ofhita ekki því þá fara steinarnir að leka út úr tómötunum.
- Dreifið basil blöðunum yfir og hrærið varlega svo að fiskurinn
fari ekki í sundur.
- Best er að hafa grjón með og þá helst hýðishrísgrjón eða bygggrjón
(enska: Pearl Barley).
|
|
 |
Fiskiréttur frá Goa |
|
Þetta er indverskur fiskiréttur. Goa er eyja
rétt við utan Indland sem að Portúgalar réðu einu sinni yfir. Það
skiptir svo sem engu máli, rétturinn er fínn og hollur.
Fiskiréttur frá Goa
Fyrir 4-5
- 35 gr kókosmjöl (gróft), ristað á
pönnu
- 2 hvítlauksgeirar
- 3 litlir chilli (rauðir), saxaðir
- 2 tsk corianderfræ
- 2 tsk cumin fræ (ekki kúmen)
- 1/2 tsk turmericduft
- 1 msk tamarisósa
- 1 msk fínt rifið engifer
- 2 meðalstórir laukar, saxaðir
- 125 ml kalt vatn
- 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 2 meðalstórir tómatar, saxaðir
- 8 curry lauf (fæst í austurlenskum búðum og sumum
matvöruverslunum)
- 125 ml grænmetissoð (1
gerlaus teningur frá Rapunzel) eða fiskisoð fyrir þá sem vilja
- 85 gr þurrkuð kókosmjólk (hægt að
nota kókosmjólk (coconut milk) í staðinn en minnkið þá vatnsmagn
- 160 ml sjóðandi vatn (eða
minna ef notuð er kókosmjólk)
- 1 kg ýsa (eða þorskur fyrir
þá sem borða þorsk) skorin í bita
Aðferð:
- Maukið saman í matvinnsluvél kókosmjöl, hvítlauk, chilli, fræin,
turmeric, tamarisósa, engifer og helminginn aflauknum ásamt köldu
vatninu þangað það er allt maukað saman.
- Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna (ásamt smá vatni) í stórum
potti, hitið afganginn af lauknum þangað til hann er orðinn örlítið
gulleitur.
- Bætið kókosblöndunni saman við og hitið þangað til kemur góð lykt
eða í nokkrar mínútur.
- li>Bætið tómötunum, laufunum og grænmetis (eða kjúklingasoðinu)
við ásamt þurrkuðu kókosmjólkinni (eða kókosmjólkinni) og sjóðandi
vatninu.
- Látið malla, ekki með lokinu á í um 10 mínútur þangað til þetta
fer að þykkna.
- Bætið fisknum við og látið malla í um 10 mínútur með lokinu á.
- Berið fram með bygggrjónum, hýðishrísgrjónum, basmati
hýðishrísgrjónum, naan brauði, gúrkusósu o.s.frv. Athugið að þeir
sem hafa glúteinóþol mega ekki borða bygggrjón eða naan brauð.
|
|
 |
Fiskibollur 2 |
|
Þessar gömlu góðu, íslensku fiskibollur svíkja
engan og líklega eru flest íslensk heimili með einhvers konar
fiskibollur á boðstólum. Hins vegar svíkja gömlu, góðu fiskibollurnar
sem steiktar eru í smjöri, heilsuna. Ég hef aldrei á ævinni steikt mat
sem maður getur auðveldlega bakað og smjör hef ég aldri á ævinni keypt
né notað. Það verður kannski ekki sama áferð á bökuðum fiskibollum en
steiktur, brasaður matur er fyrir mér ekki mannamatur. Um það eru svo
sem skiptar skoðanir he he. Þessi máltíð er ódýr (ef maður kaupir
frosinn fisk) og er holl, próteinrík og létt/fitulítil. Það er upplagt
að gera svolítið magn í einu, baka og svo frysta nokkrar bollur saman
til að borða síðar.
Fiskibollur
Gerir 18-20 bollur
- 450 gr ýsa (einnig má nota
þorsk). Ódýrast er að kaupa frosinn fisk
- 1/4 laukur, saxaður gróft
- 1/4 blaðlaukur, saxaður gróft (má nota lauk í staðinn)
- 1 hvítlauksgeiri, saxaður gróft
- 1/2 tsk saxað, ferskt engifer
(má sleppa)
- 1 egg
- 1/2 dl sojamjólk (einnig má
nota hrísmjólk, haframjólk eða undanrennu)
- 3 msk kartöflumjöl eða spelti
- 1 tsk pipar
- 1 tsk salt (Himalaya eða
sjávarsalt)
- 1 tsk kókosfeiti
Aðferð:
- Setjið laukinn, hvítlaukinn, engiferið og blaðlaukinn í
matvinnsluvélina og blandið í 10 sekúndur.
- Setjið fiskinn saman við laukinn og maukið ágætlega (þannig að
hann losni vel í sundur).
- Bætið speltinu, saltinu og piparnum saman við og blandið í nokkrar
sekúndur eða þannig að úr verði eins konar deig.
- Bætið mjólkinni saman við eins og þurfa þykir, deigið ætti ekki að
vera of blautt.
- Bætið kókosfeitinni saman við.
- Notið bollur með matskeið (gott að vera í plasthönskum og dýfa
skeiðinni í vatn inn á milli).
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Raðið bollunum á plötuna.
- Bakað í ofni við 180° C í um 15-20 mínútur.
- Snúið við og bakið í 10-15 mínútur.
- Berið fram með góðu salati, bygggrjónum eða hýðishrísgrjónum og
tamarisósu.
- Bollurnar má geyma í kæli og hita daginn eftir og upplagt er að
taka þær með í nestið.
|
|
 |
Einföld fiskisúpa |
|
Þessi fiskisúpa er bæði einföld og ódýr og
upplögð þegar maður á t.d. ýsusporð (ýsuafgang) í ísskápnum. Sem er oft
einmitt í miðri viku. Þessi súpa kemur úr bókinni The Soup Bible sem er
svo sannarlega biblía að mínu skapi enda uppfull af góðum
súpuuppskriftum. Ég elska súpur... helst ef þær eru bragðsterkar (ekki
of samt) og heitar. Með nýbökuðu brauði finn ég hamingjuna streyma um
mig með hverri skeið. Sérstaklega ef er kalt í veðri. Ég skil ekki
kaldar súpur, finnst þær algjörlega tilgangslausar. Kaldar súpur eiga að
heita drykkir í súpuskál. Það ruglar mig að borða kalda súpu með skeið.
Ég verð eins og pínu einhverf og verð hrikalega óróleg þegar ég sit
fyrir framan skál af einhverju köldu sem heitir súpa því það er eitthvað
svo algjörlega rangt við kaldar súpur, algjörlega rangt. Ég er kannski
bara með ’súpu-fælni’ (soupaphobia ha ha)! Upprunaleg uppskrift innihélt
rjóma og meiri vökva en mér finnst betra að hafa hana aðeins þykkari og
bragðmeiri og rjóminn finnst mér óþarfur nema spari. Þessi súpa hentar
vel fyrir þá sem eru með glúteinóþol eða ofnæmi því það er ekkert hveiti
eða spelti í súpunni. Súpan ætti eiginlega að heita Ódýra,
ósparilega fiskisúpan í miðri viku en Einföld fiskisúpa er
kannski meira aðlaðandi.
Einföld fiskisúpa
Fyrir 4
- 1/2 laukur, saxaður gróft
- 175 gr sæt kartafla, afhýdd og
söxuð gróft
- 175 hvítur fiskur (ýsa, þorskur, steinbítur), bein- og
roðhreinsaður
- 50 gr gulrót, söxuð
- 1 tsk oregano
- 1/2 tsk kanill
- 1 lítri vatn og 2-3 grænmetisteningar. Ef þið finnið lífrænt
framleiddan fiskikraft, kaupið hann þá, annars má nota
grænmetiskraft og fiskisósu
- 3 msk fiskisósa (nam plah).
Fæst í austurlensku hillunum í flestum stórmörkuðum
- 75 ml léttmjólk (eða magur
rjómi, spari)
Aðferð:
- Setjið lauk, sæta kartöflu, fisk, gulrót , oregano, kanil og 800
ml af vatni (ásamt teningum og
fiskisósu) út í stóran pott. Ef þið eruð með fiskiafganga (ekki
ósoðinn fisk) þá skuluð þið ekki setja fiskinn út í strax.
- Látið sjóða þangað til kartöflurnar eru orðnar mjúkar.
- Kælið aðeins.
- Notið töfrasprota eða matvinnsluvél og maukið allt vel (ef þið
eruð með matvinnsluvél, maukið þá í litlum skömmtum). Ef þið eruð
með fiskiafganga þá má setja þá út í hér og mauka áfram.
- Setjið súpuna aftur í pottinn, bætið mjólkinni við og hitið upp að
suðumarki.
- Berið fram með heitu, nýbökuðu brauði til að ná hinni fullkomnu
hamingju.
|
|
 |
Fiskisúpa |
|
(Ætluð 4 - 6 manns.)
½ kg af silungi, laxi, þorski eða öðrum fiski;
10-12 bollar af vatni;
Salt;
1 bolli þeyttur rjómi;
3 - 5 bollar af jurtum, t.d. ungum fíflablöðum, villtum kerfli, karsa,
dilli, græðisúru, hvönn, villilauk, kúmeni, steinselju, blóðbergi eða
hvaða öðrum plöntum sem eru örugglega ætar.
Fiskurinn er hreinsaður, skorinn í stykki og settur í pott, vatni hellt
yfir. Það tekur 20 - 30 mínútur að sjóða fiskinn, yfir opnum eldi.
Þá eru stykkin tekin upp úr og beinhreinsuð, sett aftur í pottinn.
Þeytta rjómanum og söxuðum jurtunum bætt út í. Látið sjóða áfram í
20 - 30 mínútum og salti bætt í eftir smekk.
Bera má fram flatkökur með fisksúpunni og gott er að bæta smjörklípu í
súpuna.
|
|
 |
Steiktur fiskur |
|
|
brauðrasp
brauðendar þurkaðið í ofni og hakkaðir
1 stórt flak ýsa eða 2 lítil flök.
5 msk. brauðrasp
2 msk. heilhveiti
2 tsk. salt
1 tsk. aromat
1 tsk. sítrónupipar
1 tsk. hvítur pipar
1 egg
2 msk. mjólk
Egg og mjólk þeytt með gaffli
Fiskinum er velt upp úr eggjahrærunni og síðan raspinu
steikt á pönnu uppúr olíu.
|
|
 |
Fiskibollur |
|
|
200 gr fiskur
1 tsk. salt
1/2 laukur
1 msk. hveiti
1 msk. kartöflumjöl
örlítinn pipar
1/2 egg
1 1/2-2 dl. mjólk
Öllu er blandað saman nema vökvanum, honum er
bætt smá saman við og hrært vel í á milli.
Bollur búnar til með skeið, steikt uppúr olíu og
síðan soðið í
8-10 mín.
|
|
 |
Spaghetti með skelfiski |
|
|
Fyrir 6
2 krukkur Skelfiskur (Vongole alla marinara)
400 g. Spaghetti
3 stk. Hvítlauksgeirar, saxaðir
4 msk. Ólífuolía
100 ml. Þurrt hvítvín
3 stk. Litlir þurrkaðir chillipipar
1 hnefi steinselja, hökkuð
Sjóðið spaghetti-ið og meðan það sýður, svissið hvítlaukinn í olíu á
stórri pönnu.
Bætið skelfiskinum útí, hvítvíni og chilipipar og hitið vel saman.
Sigtið pastað og hellið skelfiskblöndunni yfir og stráið steinselju
yfir.
|
|
 |
Grænmetisfiskur 2 |
|
|
Fiskur skorinn í teninga
fiskikrydd
Olía
ferskir sveppir
gulrætur brokkolí
grænmetisteningur
Léttur sveppasmurostur
mjólk
kjötteningur
Eldfastform er smurt með olíuFiskur skorinn í teninga, kryddaður með
Knorr fiskikryddi og settur í eldfasta formið.Ferskir sveppir og gulrót
skornið í sneiðar og brokkolí bitað niður. Grænmetið er síðan steikt í
olíu á pönnu og grænmetisteningi bætt út í. Grænmetið er síðan látið
krauma í eigin safa í smá stund undir loki. Sveppasmurostur er bræddur í
mjólk og kjötkrafti bætt út í.Grænmetið er síðan sett yfir fiskinn og
sósan þar yfir. Þetta er síðan bakað í ofninum þar til vel er farið að
krauma í fiskinum og er þá ostur settur yfir réttinn.
Gott með brauði og kanski hrísgrjónum, eða kartöflum
|
|
 |
FISKBAKSTUR |
|
|
1,5 kg
nýr, soðinn fiskur
120 gr smjörlíki
120 gr. hveiti
8 dl mjólk
salt, múskat, pipar
3 egg
3 msk brauðmylsna
Jafningur bakaður upp, kryddaður og síðan kældur þar til ylvolgur.
Eggin aðskilin. Rauðunum hrært saman við jafninginn og fiskurinn settur út
í. Eggjahvíturnar þeyttar og settar út í síðast.
Eldfast mót smurt með matarolíu og brauðmylsnu stráð í það.
Jafningurinn settur í mótið og brauðmylsnu stráð yfir.
Mótið sett í ofnskúffu með vatni.
Hiti 200° í 45 mín.
|
|
 |
SKARKOLAFLÖK M/RÆKJUM OG ASPARGUS |
|
(F. 6 MANNS)
6 skarkolaflök
olíusósa úr 2 eggjarauðum
2 msk fisksoð
1 lítil dós aspargus
steinselja eða karsi
rækjur
6 lítil hveitibrauð
Fiskflökin vafin upp og fest með litlum trépinna.
Soðin í saltvatni, látið síga vel af þeim og þau færð upp á litla diska.
Olíusósu og fisksoði hrært saman og því hellt yfir flökin.
Skreytt með rækjum, aspargus og steinselju eða karsa.
Hveitibrauð borið með.
|
|
 |
STEIKTAR FISKBOLLUR |
|
750 gr. fiskur
3 tsk salt
5 msk hveiti
3 msk kartöflumjöl
1/4 tsk pipar
1/4 tsk múskat
7-8 dl mjólk
___
Smjörlíki til steikingar
___
Fiskur og salt hrært vel saman.
Kartöflumjöl, hveiti og krydd sett út í og þetta hrært vel samfellt.
Mjólkin sett smátt og smátt út í.
Ef deigið verður of þunnt má bæta kartöflumjöli eða eggjahvítu út í.
|
|
 |
Bacalao a la Transmontana |
|
|
6 væn stykki saltfiskur
6 þunnar sneiðar skinka
2 msk. smjör
3 msk. olífuolía
3 msk. hveiti
1 dl hvítvín
1 tómatur eða tómatpasta
2 laukar
3 egg
3-4 hvítlauksrif
salt, pipar, steinselja
stappaðar kartöflur
Fiskurinn útvatnaður með roðið upp í 24-36 tíma. Vatni hellt af og
stykkin roðflett og beinhreinsuð. (Eða nota tilbúinn, útvatnaðan fisk,
til dæmis frá Ektafiski.) Fiskurinn lagður í eldfast mót í þunnum
sneiðum og skinka á milli laga.
Laukur skorinn í þunnar sneiðar og steiktur í smjöri eða olíu - ekki
brúnaður - og settur ofan á fiskinn. Hveiti hrært út í hvítvíni og
hræran sett út í fituna á pönnunni og tómatur, hvítlaukur og krydd með.
Hrært vel og hitað og hellt yfir fiskinn. Steinseljan yfir þetta allt.
Kartöflustappa ofan á þetta og þekur vel. Bakað í ofni við góðan hita í
20-30 mínútur. Stífþeytt eggin sett ofan á og látið bakast þar til hún
er gulbrún.
Etið með ristuðu brauði eða hvítlauksbrauði.
|
|
 |
Grænmtisflak |
|
Ferskt grænmeti, t.d.
laukur
paprika
kúrbítur
gulrætur
brokkoli
blómkál
tómatur
- eða bara það sem mannni þykir gott
+pipar og kraftur
Þorskflak eða ýsuflak
svolítill rifinn osturGrænmetið brytjað og sett í eldfast form / fat
Malið agnarögn af pipar yfir og fáein korna af salti eða hvítlaukssalti.
Alls ekki mikið salt, helst ekkert.
Kreistið ögn af sítrónusafa yfir flakið, malið ögn af pipar á það og
leggið ofan á grænmetið. Rífið ost og dreifið yfir flakið.
Bakiið í ofni við ca 200° þar til grænmetið er tilbúið - eigum við að
segja 20 mínútur eða svo
Má hafa brauð eða hrísgrjón eða kartöflur með en ef maður hefur mikið
grænmeti er það nóg.
|
|
 |
Saltfiskteningar í grænmeti |
|
1 pk saltfiskur frá Eðalfiski
Sletta af olíu
1 kúrbítur
2 paprikur
1 laukur
3-5 hvítlauksrif
1 ds niðursoðnir tómatar
Svartar og grænar ólífur
2 tsk hunang
svartur piparSaltfiskurinn roðflettur og skorinn í teninga
Olía sett á pönnu og hituð. Laukurinn steiktur stutta stund og síðan
annað grænmeti, hvítlaukur smátt skorinn settur síðast út í ásamt
ólífum. Loks niðursoðnir tómatar. Kryddað og látið malla dágóða stund.
Þegar grænmetið er tilbúið er slökkt undir pönnunni, saltfiskbitarnir
settir út í, sökkt í grænmetið og lok sett á pönnuna. Látið standa í
svona 5-7 mínútur þar til fiskbitarnir eru um það bil gegnheitir -
léttsoðnir.
Með þessu má hafa eftir smekk kartöflur, hrísgrjón eða brauð - eða bara
borða þetta eins og það er.
|
|
 |
Ýsypanna |
|
2 ýsuflök
1 paprika
1/2 - 1 kúrbítur
6-8 tómatar
2-3 hvítlauksrif, pressuð
pipar
salt
Grænmetið skorið, steikt aðeins í olíu, lok sett á pönnuna og látið
krauma svolitla stund (hámark 10 mínútur. Pipar og pínulítið salt.
Ísuflökin skorin í renninga eða teninga og bitarnir settir út í
grænmetið og látið krauma áfram þar til þykkustu bitarnir eru rétt að
verða soðnir í gegn.
Borðað með soðnum kartöflum eða hrísgrjónum.
|
|
 |
Pönnusteiktur saltfiskur |
|
|
Fiskurinn
700 g saltfiskur útvatnaður
hveiti
egg
ókryddað rasp
svartur pipar
Fiskurinn skorinn í jafna bita. Bitunum velt upp úr hveiti, síðan
eggi og loks raspi. Steiktur á pönnu í olíu, kryddaður með
nýmuldum pipar eftir smekk.
Sósan:
½ rauð paprika
½ græn paprika
2 laukar
4-5 hvítlauksrif
1 dós niðursoðnir tómatar
½-1 tsk. soya
½ tsk hunang
Paprikan skorin í ræmur, laukarnir sneiddir og hvítlaukurinn saxaður.
Allt steikt í olíu í skamma stund. Tómötunum skellt út á þetta og
síðan soyunni og hunanginu. Látið krauma í 10-15 mínútur.
Fiskstykkin lögð ofan á sósuna í pönnunni og þannig borið á borð.
Salatið:
tómatar sneiddir
rauðlaukur sneiddur
svartar ólífur
1-2 msk. balsamedik
2-3 msk. ólífuolía
Tómötum, ólífum og rauðlauk blandað saman í skál. Olíu og
balsamediki hellt yfir.
|
|
 |
Ofnbakaður saltfiskur |
|
Saltfiskflök (ca. 700 g)
2 hvítlaukar skornir í sneiðar
1 msk. paprikuduft
ólífuolía
Meðlæti:
Tómatar og rauðlaukur skorið í sneiðar, sett í skál og olíu dreypt yfir.
Soðnar kartöflur og ólífur.
Fleira gott með fiskinum:
Paprika í strimlum
Laukur eða rauðlaukur í sneiðum
Tómatar sneiddir
- hitað í olíu.
Hvítlaukssósa:
Mæjónes eða sýrður rjómi
Jafnmikið af ólífuolíu
1 laukur, maukaður
1 hvítlaukur, maukaður
fersk steinselja söxuð
salt og pipar
- allt hrært saman.Flökin útvötnuð í 3-4 daga. Fiskurinn skorinn í
jafna bita. Bitunum velt upp úr hveiti. Brúnaðir á pönnu í
ólífuolíu og settir í eldfast form.
Hvítlaukurinn gljáður í olíu á pönnu. Paprikunni stráð yfir.
Hrært vel og hellt yfir fiskinn í forminu.
Bakað í ofni í 5-10 mínútur.
|
|
 |
Flatfiskrúllur |
|
|
Hráefni
150 gr. ferskir sveppir
1
gulur laukur
1
1/2 msk. smjör
1
dós niðursoðnir tómatar
1
fiskkraftteningur
2
dl. þurrt hvítvín
2
tsk. estragon
1
dl. vatn
800 gr. roðflett rauðsprettuflök eða annar flatfiskur
1
- 2 tsk. maldonsalt
2
msk. mjúkt smjör
2
tsk. estragon
1
1/2 msk. mjúkt smjör
1
1/2 msk. hveiti
1
dl. rjómi
2
msk. fínhökkuð steinselja
Uppskriftin er miðuð við fjóra:
Handverkið
1. Fínskera sveppina og laukinn. Látið renna af tómötunum.
2. Bræða smjörið eða smjörlíkið í víðum, grunnum potti eða pönnu. Brúna
sveppina og laukinn hægt. Láta tómatana útí.
3. Setja teninginn útí ásamt víni, estragoni og vatni. Sjóða undir loki í
ca. 10 mín.
4. Breiða úr fiskflökunum á bretti og strá salti yfir. Blanda smjöri og
estragoni saman og láta eina smjörklípu á hvert fiskflak. Rúlla þeim
síðan upp eða leggja saman. Til að halda flakinu upprúlluðu eða saman er
ljómandi að nota tannstöngla (sem vinsamlegast fjarlægið þegar rétturinn
er borinn fram!).
5. Blanda smjöri og hveiti saman með gaffli og setja í sósuna. Hræra
varlega og láta malla í nokkrar mínútur. Gott að láta rjóma útí, en hann
gerir sósuna mildari.
6. Leggið fiskinn síðan í sósuna og látið malla í u.þ.b. fimm mínútur
undir loki, en án þess að sjóði.
7. Strá steinselju yfir.
8. Bera fram með hrísgrjónum, salati og nýbökuðu brauði.
|
|
 |
Lúða í rasphjúp... |
|
|
Hráefni
800-900 gr
smálúða (má vera þorskur eða skötuselur líka)
2 msk olía
5-6
kokteiltómatar
rúnnstykki eða
brauðendi
2-3
hvítlauksgeirar
kryddjurtir,
ferskar ef til eru annars þurrar
2 tsk
dijon-sinnep
Sítrónuvökvi
af ½ sítrónu
smjörklípa
maldonsalt
nýmalaður
pipar
Matreiðsla
Hita ofn í
200°C. Fiskurinn settur í smurt fat, kryddaður með salti og pipar og
helmingurinn af hvítlauknum. Sítrónusafa hellt yfir og látið standa í
stundarkorn. Síðan er olíu hellt yfir fiskinn og tómatbátum raðað
meðfram fiski. Álpappír settur yfir mótið og skellt í ofninn.
Fiskurinn
bakaður í um 10 mín og aðeins lengur ef stykkin eru þykk. Á meðan gefst
tækifæri útbúa rasphjúpinn. Setjið brauðið í matvinnsluvél, afganginn af
hvítlaukinn og krydd. Maukið. Eftir steikingu fiskjar er mótið tekið út
úr ofninum og mylsnan sett yfir bæði fisk og tómat. Sett í ofn að nýju
og steikt í 3-5 mínútum þar til mylsnan er gullin. Þá er bráðnu smjöri
hellt yfir, ekki síst þar sem fiskurinn er undir. Setjið í ofninn að
nýju í tvær mínútur.
Berið fram með
salati.
Svo er það
borðbænin: Fyrir allt sem mettar mann, mikla ríka gjafarann.
|
|
 |
Spænskur fiskréttur |
|
|
5-700 gr. rauðspretta eða annar fiskur
1 dós hrein
jógúrt
1 msk. pestó
fetaostur
ólífur
Fiskurinn
beinhreinsaður og settur í eldfast mót. Jógúrt og pestó blandað saman og
hellt yfir fiskinn.
Ólífur
sneiddar niður og dreift yfir fiskinn ásamt fetaostinum.Bakist í 20-30
mín í ofni við 200° hita.
Gott að bera fram með snittubrauði og salati. Verði ykkur að góðu
|
|
 |
Fiskisúpa með grænmeti |
|
|
Fiskisúpa sem er holl og góð og fljótleg.
Innihald:
Gott að bera fram með volgu smábrauði og smjöri.
Aðferð:
Fiskurinn
soðinn í blöndu af mysu, vatni og salti (ath. að ofsjóða ekki). Sellerí
og laukur saxað og blaðlaukurinn skorinn í þunnar sneiðar. Grænmetið
látið krauma í smjörinu í u.þ.b. 5 mín. í potti. Karríi bætt í. Skera
gulræturnar í þunnar sneiðar og snöggsjóða þær. Láta hveitið yfir
grænmetið í pottinum og væta í með 1 lítra af fiskisoði.
Bragðbæta með
fiskikrafti og Season all, rjóminn látinn útí og hitað að suðu.
Eggjarauðurnar hrærðar í skál og súpunni jafnað út í. Látið aftur í
pottinn og rækjurnar, gulræturnar og beinlausi fiskurinn settur í. Nú má
alls ekki sjóða í pottinum.
|
|
 |
Fiskur í ofni 2 |
|
|
-
Roðlaust og beinlaust ýsuflak sett í eldfastmót
sem búið er að setja smá matarolíu og klípu af smjörva í.
-
Hellið smá
mjólk yfir flakið og hyljið falkið með ostsneiðum.
-
Setjið þetta
inn í bakaraofn sem hitaður hefur verið í 170° og bakið í 20 mín.
-
Fljótlegt og
einfalt
|
|
 |
Fiskipanna |
|
Fiskiréttur sem er ferskur á bragði
1 skammtur (margfalda með fjölda matargesta)
3 kartöflur -
sjóða, skræla og skera í sneiðar
150g
fiskifilet -
skera í teninga
sitrónusafi
(nokkrir dropar)
pipar, salt
-
sprauta safann á fiskinn og krydda hann
og láta standa í 30 mín
2 laukar -
skera hvorn í 8 báta
1 kúrbítur -
skera í helminga þvert um langan, og
síðan í sneiðar (eins og hálfmánar)
Hita olíu á pönnu og steikja fiskinn og
laukinn við mikinn hita í um 5 mín. Lækka hitann, bæta kúrbít og
kartöflum út í og láta malla í 5 mín í viðbót. Hella sósuna út á og láta
malla í 2 mín í viðbót.
|
|
 |
" Góð ráð og leiðbeiningar" |
|
|
Tekið af Fjörfiskur.is
Steiking:
Pönnusteiking hentar yfirleitt vel hvort sem fiskurinn er steiktur heill,
í flökum eða bitum. Góður pönnusteiktur fiskur, passlega stökkur að utan
og safamikill að innan er ávallt sígild og góð máltíð. Pönnusteiking
byggist fyrst og fremst á því að yfirborð hráefnisins er snögg steikt
til að loka bragð og safa inni í hráefninu. Mismunandi fisktegundir má
aðlaga að ótal uppskriftum, hvort sem fiskurinn er hjúpaður með hveiti,
heilhveiti, haframjöli, eggjum eða bara smjörsteiktur.
Til að ná tilætluðum árangri í eldamennskunni þarf að gæta vel að því að
hitinn á pönnuni sé hæfilegur, þannig að fiskurinn fái jafna og góða
steikingarhúð. Sé hitinn of mikill vill hann brenna og verða dökkur og
ólystugur. Sé hitinn hinsvegar of lítill verður fiskurinn fölur linur og
ólystugur. Einnig skiptir miklu máli að pannan sé vel viðloðunarfrí til
að hráefnið festist ekki við hana. Best er að steikja fiskinn upp úr
olivuoliu eða t.d. ISO4 olíunni (færri hitaeiningar), einnig er sambland
af olivuoliu og smjöri góður kostur (ýrist minna þegar vatn út hráefninu
kemur saman við oliuna). Fiskur þornar auðveldlega við of mikla eldun
því er mikilvægt að hann sé hæfilega matreiddur þegar hann er borinn á
borð. Passlega tilreiddur og eldaður fiskur er afar ljúffengur og sómir
sér vel á hvaða veisluborði sem er.
Djúpsteiking:
Djúpsteiking er ávallt skemmtileg og góð aðferð til að
matreiða fisk. Yfirleitt er fiskurinn hjúpaður með deigi eða brauðmylsnu
til að verja hann, deigið eða brauðhjúpurinn gefur fiskinum stökt og
gott bragð. Fiskur hjúpaður úr hveiti, eggjum og eða brauðmylsnu er
algengur réttur víða um heim. Skera þarf fiskinn í passlega bita eða
ræmur sem henta í djúpsteikinguna. Stórir bitar eru lengi að steikjast
og verða gjarnan ofsteiktir að utan og of lítið steiktir í kjarna.
Mikilvægt er að nota góða og nýja
oliu við steikinguna, gömul olia gefur fiskinum vont bragð. Þegar vel er
staðið að djúpsteikingunni, olian ný og fersk og hitastigið rétt, er
djúpsteiktur fiskur dásamlega góður matur.
Soðning:
Fiskur hentar mjög vel til suðu. Hæg og passleg suða þar
sem hann er settur í kalt vatn eða í kryddsoð eru algengar
matreiðsluaðferðir. Fiskinn má sjóða í potti á eldavel eða í eldföstu
móti í ofni. Ýmist er hann settur í vatn sem umlykur hann eða hann
látinn gufusjóða í lokuðu íláti. Sé fiskurinn gufusoðinn er best að láta
hann liggja á gatarist þannig að gufan sé í beinni snertingu við
fiskinn. Gufusuða tekur álíka langan tíma og venjuleg suða. Seyði sem
myndast við gufusuðu er oftast mjög sterkt og hentar því sjaldnast sem
grunnur í sósu, gangstætt því þegar fiskurinn er soðin í potti.
Í venjulegri suður er best að setja
fiskinn í kalt vatn og láta hann sjóða hægt, fiskurinn rýrnar minna og
heldur bragði mun betur á þennan hátt. Einnig er gott að setja fiskinn í
svokallað snöggseyði, en snöggseyði er suðuvökvi sem notaður er til að
sjóða viðkvæmt hráefni. Snöggseyði hefur áhrif á fiskholdið og gerir það
stinnara og ekki eins viðkvæmt þegar fiskurinn er tekinn upp úr
suðuvökvanum. Einnig er upplagt að sjóða fisk í mjólk til að milda bragð
og eða til að ná úr honum sterku bragði, s.s. úr söltum eða reyktum
afurðum.
Ofnsteiking:
Ofnsteiking er mjög algeng og auðveld aðferð við að matreiða fisk.
Fiskurinn er ýmist lagður í eldfast mót og bakaður eða hann látinn sjóða
í ofnskúffu með t.d. kryddjurtum og grænmeti. Einnig er algengt að baka
hann í eiginn vökva innvafinn í álpappír með ferskum kryddjurtum.
Hver kannast ekki við gratíneraðann fisk í eldföstu móti með góðri sósu
eða með góðum völdum kryddjurtum eða grænmeti. Góður gratineraður
fiskréttur er afbragð og er alltaf vinnsæll réttur sem stendur fyrir
sínu.
Fiskur sem vafinn er inn í álpappír, ásamt völdum kryddjurtum, soðnar í
eigin safa er skemmtileg tilbreyting og afar ljúffeng máltíð. Mikilvægt
er að oliubera álpappírinn áður en fiskurinn er vafinn inn í pappírinn
svo að roðið eða hráefnið festist ekki við álpappírinn.
Auðvelt er að setja fyllingar inn í fisk, ýmist inn í kviðarholið eða
vefja flökum eða sneiðum utan um fyllinguna og nota álpappírinn um leið
til að halda utan um hráefnið á meðan á steikingu stendur. Auðvelt er að
forma réttinn til, þar sem álpappírinn heldur þeirri lögun sem hráefnið
er formað í. Algengast er að baka fiskinn við ca. 170°C, sé hitinn of
mikill vill fiskurinn þorna og verða ólystugri. Sé fiskur hjúpaður með
t.d. brauðmylsnu er ráðlagt að steikja við meiri hita eða allt að 200°C
jafnan hita, við of lágan hita verður hann linur og ólystugur.
Ofnar eru mjög misjafnir og því getur eldunartími á milli ofna verið mjög
mismunandi þó svo þeir séu stilltir á sama hitastigið. Ofnar með viftu,
steikja eða baka hráefnið mun betur og við skemmri tíma þar sem viftan
dreifir hitanum mun betur en hefðbundnir ofnar.
Grillun/Glóðun:
Fátt er eins skemmtilegt og að grilla eða glóða heilann fisk. Hver kannast
ekki við þá notalegu tilfinningu að sitja við grillið eða við opinn eld
og glóða ljúfengan fisk eftir vel lukkaða veiðiferð.
Eldun á glóðum er í senn ánægjuleg og rómantísk tilbreyting frá
hefðbundinni eldamennsku, gefur matnum aukið gildi og er skemmtileg
tilbreyting frá daglegu amstri, ekki síst þegar vinir og ættingjar slást
í hópinn.
Fiskur getur verið laus í sér og losnað í sundur, en með gætni má
auðveldlega grilla heilann fisk með roði beint á glóðarristinni með því
að snúa honum með varkárni og þá helst aðeins einu sinni. Gott er að
pensla fiskinn reglulega á meðan á eldun stendur með oliu eða t.d.
kryddvökva sem inniheldur örlítið af oliu. Olian kemur í veg fyrir að
fiskurinn festist við glóðarristina eða fisktengurnar, séu þær notaðar.
Algengt er að nota svokallaðar fisktengur (samlokurist) þegar flök eða
sneiðar eru grillaðar.
Feitari fiskur s.s. lax, silungur, bleikja eða lúða henta einkar vel til
grillunar. Gott er að pensla fiskinn vel og vandlega með oliu á meðan á
steikingu stendur, magran fisk þarf að pensla oftar.
Gott er að setja fiskinn á álpappír (gljáandi hliðin að fiskinum), þá er
hægt að nota safann af fiskinum sem safnast í pappírinn sem soð eða
soðsósu (seyði) með fiskinum. Athugið að það tekur lengri tíma að grilla
fisk í álpappír en óvarinn fisk. Gott er að opna álpappírinn síðustu
mínóturnar á eldunartímanum til að fá bragð frá glóðinni.
Algengt er að bæta einhverjum góðum við á glóðina, t.d. hikkoriuvið til
tilbreytingar til að fá reykkeiminn af viðnum í matinn. Varist hinsvegar
að nota of mikið, þar sem fiskur er fljótur að taka í sig bragðið frá
viðnum.
Upplýsingar og heimildir; Matreiðslubók Iðunnar.
|
|
 |
Indverskur fiskréttur (f. 6) |
|
|
600-800 g fiskflök |
|
2 stórir laukar |
½ tsk engifer |
|
2 græn / gul
epli |
1-2 msk
karrý |
|
2 bananar |
75-100 g
smjörlíki |
|
2 rauðar
paprikur |
1 tsk salt |
|
Stillið ofninn á 200° C
Hreinsið
fiskinn, látið hann í aldfast mót og látið mótið í ofninn. Hreinsið
ávexti og lauk, skerið lauk og papriku í ræmur, banana í bita og epli í
þunna báta. Hitið 30 g smjörlíki á pönnu, steikið laukinn og hluta af
kryddi, þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Setjið laukinn svo ofan á
fiskinn og bakið áfram. Endurtakið þetta með það sem eftir er af
grænmeti, ávöxtum og kryddi.
Borið fram
með hrísgrjónum, helst hýðishrísgrjónum. |
|
|
 |
Ýsa m/sítrónupipar |
|
|
Karríhrísgrjón: |
1 tsk karrý |
|
grænmetiskraft (1 tening) |
4 dl
hrísgrjón |
|
1 msk
smjörl. |
6 dl vatn |
|
Hitið
karrýið og grænmetiskraftinn í smjörlíkinu í potti. Bætið hrísgrjónunum
útí og blandið þeim vel saman við kryddið. Hellið vatninu í pottinn og
látið sjóða þar til vatnið er allt gufað upp.
Meðan
hrísgrjónin sjóða er fiskurinn tekinn til.
Ýsumagn
ræðst af fjölda matargesta. Setjið fiskinn í eldfast mót og stráið yfir
salti og sítrónupipar að vild. Bakið í ofni við 200° C í ca. 10 mín,
stráið þá osti yfir og bakið þar til ostur er bráðinn.
Berið fram
með hrísgrjónunum og kannski brauði og salati. |
|
|
 |
Fiskur í grænmetissósu |
|
|
Þetta þarftu: 800gr fiskflök,
200gr sveppir, 1/2
dós kurlaður ananas í eigin safa,
1msk olía, 1
laukur, 1/2 blaðlaukur, 2 gulrætur,
1 græn paprika,
1 rauð paprika,
125gr smurostur (t.d. sveppa),
1 1/2dl léttmjólk,
salt, pipar aða
sítrónupipar, paprikuduft, karrí, fiskteningur (ef maður vill),
hrísgrjón.
Svona gerirðu:
Roð- og beinhreinsið fiskinn og sneiðið sveppina. Leggið fiskinn í
eldfast mót og setjið ananasinn yfir hann og sveppina líka. Saxið og
skerið grænmetið og léttsteikið á pönnu. Saltið og piprið. Bætið ostinum
útí og bræðið hann. Hellið svo mjólkinni útí. kryddið svo með
paprikudufti og karrýi og setjið teninginn útí ef ykkur finnst það
vanta. Hellið svo sósunni yfir fiskinn og skellið þessu svo í ofninn á
200° og bakið í hálftíma. Á meðan þetta bakast þá er upplagt að sjóða
grjón!
Að lokum: Þetta
kom á óvart, bjóst ekki við því að þetta væri svona gott! Uppskriftin er
fenginn úr bókinn Af bestu lyst nr1 og í henni stendur að í hverjum
skammti (uppskriftin er fyrir 6) séu ekki nema 278 hitaeinigar! Næst
þegar ég elda þetta þá ætla ég að prufa að hafa einhvernveginn öðruvísi
grænmeti, pottþétt brokkolí. Mér fannst það eiginlega vanta. Svo held ég
að það sé líka gott að hafa með þessu cous-cous. Ég ætla að prófa það
næst.
|
|
 |
Fiskréttur að hætti Lúlla
Lauks |
|
- gestaupskrift
Þetta þarftu:
Slatta af ýsu, lausa í roði og beinum, 1/2-1 lauk, 2 hvítlauksrif,
túmat, rifinn ost, cajun krydd, ólívuolíu og eldfast mót. Borðist með
hrísgrjónum og soya
Svona gerirðu:
Skellir cajun kryddi á ýsuna bak og fyrir og lætur hana svo á botninn á
mótinu.. Laukinn og hvítlaukinn í múlínexinn og í tætlur... sem dreifist
yfir ýsuna. Svo er túmaturinn skorinn í skeiðar og lagður yfir ...
oggulítil ólífuolía yfir allt saman... og að lokum ostinum stráð yfir.
heila klabbinu svo skellt í upphitaðann ofn á 175° í 10-15 mínútur og
síðan er bara að gúffa í sig.
Að lokum: Lúmskt
gott að sáldra steiktum lauk yfir þegar maður er búinn að fá sér á
diskinn. Í indónesíu er t.d. steiktur laukur rosalega vinsæll með
hrísgrjónum og eiginlega ómissandi eftir að maður kemst upp á lag með
það. Hinsvegar er varhugavert að neyta mikið af þessum rétti fyrir
mikilvæg mannamót... en hann virkar samt ágætlega við kvefi ;)
Enn að lokum:
Þessi réttur er niðurstaða mikillar þróunarvinnu þar eð í fyrstu borðaði
ég ekki hvítlauk og fannst ýsa vond, en Björt fannst laukur vondur...
einhvernveginn þá kombinera hinsvegar öfgarnar svona hreint út sagt
ágætlega saman :)
|
|
 |
Fiskisúpa Miðjarðarhafsins |
|
|
Þetta þarftu: 400g fiskur, roðlaus og beinlaus,
250g hörpudiskur, 4 laukar, 3 hvítlauksrif, 400g sveppir, 2 msk olía, 3
tsk salt, 2tsk svartur pipar, 1msk karrí, 2tsk túrmerik, 1dós
niðursoðnir tómatar, 1/2 lítri hvítvín (má nota kjúklingasoð), 1/2 lítri
vatn, 3 lárviðarlauf, 1 dós kræklingur, 1 búnt steinselja.
Svona gerirðu:
Saxið lauka og hvítlauk og skerið niður sveppi. Mýkið í olíu í 1-2
mínútur í stórum potti. Kryddið með salti, pipar, karrí og túrmeriki.
Setjið tómata, hvítvín (eða soð), vatn og lárviðarlauf út í pottinn.
Látið suðu koma upp og sjóðið í 3-4 mín. Skerið fiskinn í litla bita og
setjið í súpuna ásamt frosnum hörpudiski. Sjóðið í 3-4 mínútur. Bætið
kræklingnum útí og hitið að suðu. Saxið steinseljuna og stráið yir
súpuna.
Að lokum: Þó þetta
heiti fiskisúpa er þetta sjúklega góð súpa. Ég hef eiginlega alltaf lúðu
í henni og sleppi líka kræklingnum því mér finnst hann vondur og set
yfirleitt humar í staðinn.. að sjálfsögðu! En það er alveg hægt að setja
allskonar fiska í þetta.. að sjálfsögðu ber maður nýbakað brauð fram með
svona súpu og mæli ég með massa brauði kollusætu :-) Ég fékk þessa
uppskrift upphaflega úr bókinni Af bestu lyst 2 og get sko sagt ykkur að
þessi súpa er ógeðslega holl.
|
|
 |
|
|
|
600 g ýsa
1 blaðlaukur
2 paprikur,
mismunandi að lit
1 dós sýrður
rjómi
2-3 msk
appelsínuþykkni
1 tsk engifer
½ fiskteningur
½ tsk salt
1 ½ dl mjólk
lítil dós mini
maís, eða uþb. 200 g frystur.
Frostið látið
slakna nokkuð úr ýsunni, svo auðvelt sé að skera hana í smærri bita –
kjósir þú að hafa þá heldur. Skerðu laukinn og paprikurnar í ræmur. Í
potti hrærir þú nú saman: sýrða rjómanum, þykkninu, engifernum,
fiskteninginum, saltinu og mjólkinni –komdu suðunni upp og láttu malla
um stund. Hrærðu síðan öllu grænmetinu útí og loks bætirðu ýsunni saman
við. Heildina sýður þú nú í uþb 7 mín. Og berð svo fram með soðnum
hrísgrjónum og snittubrauði.
|
|
 |
Fiskur í gulu karrí |
|
|
Aðferð: 800 gr blandaður fiskur
(ég notaði rauðsprettu, þorsk og lax)
skorinn í munnbita
400 gr kartöflur, skornar í munnbita
1 dós kókosmjólk
4 stilkar sítrónugras (lemmongrass)
1-2 msk gult karrímauk
1 laukur, sneiddur
6 hvítlauksrif, söxuð
salt
Hitaðu pott. Settu hluta kókosmjólkur út í og leystu karrímaukið upp í
kókosmjólkinni. Settu afganginn af kókosmjólkinni út í ásamt
sítrónugrasinu (brjóttu stilkana í nokkra búta). Settu kartöflurnar út í
ásamt lauknum og hvítlauknum. Láttu sjóða í 5 mín eða þar til
kartöflurnar eru nánast soðnar. Settu fiskinn út í, komdu suðunni upp,
settu lok á pottinn, taktu af hellunni og láttu standa í 10-15 mín eða
þar til fiskurinn er gegn"seyddur".
Berðu fram með salati (og hrísgrjónum).
|
|
 |
Humarsúpa 2 |
|
|
Hráefni:
Humar, grænmeti (gulrætur laukur, sellerý, blaðlaukur), fiski og
nautakraftur, tómatpuré, karrý, paprikuduft, einiber, timjan,
hvítlaukur,rósmarín,svört piparkorn, lárviðarlauf, hvítvín, vatn,rjómi,
, koníak
Aðferð: allt sett í þessari röð brúna og merja skeljarnir setja
svo tómatpure út í og brúna það með grænmeti sjóða niður í 2 klst og
fleyta ofan af síðan er soðið sigtað og þykkt með maizena mjöli og bætt
út í rjómi koníaki og humarhölunum
|
|
 |
Humarsúpa |
|
|
Hráefni:
Humar, grænmeti (gulrætur laukur, sellerý, blaðlaukur), fiski og
nautakraftur, tómatpuré, karrý, paprikuduft, einiber, timjan,
hvítlaukur,rósmarín,svört piparkorn, lárviðarlauf, hvítvín, vatn,rjómi,
, koníak
Aðferð: allt sett í þessari röð brúna og merja skeljarnir setja
svo tómatpure út í og brúna það með grænmeti sjóða niður í 2 klst og
fleyta ofan af síðan er soðið sigtað og þykkt með maizena mjöli og bætt
út í rjómi koníaki og humarhölunum
|
|
 |
Hörpuskel í Papriku |
|
|
Hráefni:
Paprikur
Risahörpuskel
Pestó
Furuhnetur
salt og pipar
Aðferð: Paprikurnar skornar í tvent og kjarnhreinsaðar
grænistilkurinn skilin eftir
pesto sett í botnin og furuhnetur stráð yfir síðan settar 1-2 hörpuskeljar
eftir stærð salt og pipar stráð yfir raðað á plötu eða eldfastmót og
bakað við 200 C í 10-15 mín eða þar til hörpuskelin er aðeis farinn að
taka lit.
|
|
 |
Ýsa í beikon piparsósu |
|
|
Hráefni:
rúmlega 1 kg. ýsa
aromat-krydd
pipar
5 dl. rjómi
250 gr. beikonostur
1 stk. piparostur
1 lítil dós kotasæla
1 púrrulaukur
1 bakki sveppir
1 bréf beikon, meðalstórt
Aðferð: Ofninn er stilltur á 180°, rjóminn hitaður og ostarnir
bræddir þar í
eldfast mót er smurt að innan,
fiskurinn skorinn í hæfilega bita, einnig púrrulaukur og sveppir,
þessu er raðað í lögum í formið,
krydd og rjómablöndunni hellt yfir
síðan þakið með smáttskornu beikoni
bakað í 30-35 mínútur.
Fiskurinn er borinn fram með hrísgrjónum og
gúrku-melónusalati
Gúrku-melónusalat:
1-2 gúrkur og 1-2 hunangsmelónur eftir stærð
gúrkan er afhýdd síðan er gúrkan og melónan sneiddar í litlar kúlur með
kúlujárni ef það er til, annars skorið í litla bita,
sett í skál og salti stráð yfir,
salatið er látið standa í kæli og borið fram mjög kalt,
fallegt er að klippa steinselju yfir.
|
|
 |
Pitsu ýsa |
|
|
Samantekt: Mjög góður fiskur,
næstum því eins og pizza.
Hráefni:
Hráefni og meðhöndlun:
800 gr. ýsuflak, skipt í 4 hluta
ofan á hlutana er smurt t.d. pitsa-pronto eða
annari pitsasósu
ofan á það má setja t.d. sveppi, olífur, pepparoni eða annað sem hugurinn
girnist og rifinn ostur þar ofan á.
Sem sagt farið með eins og pitsu.
Fiskbitarnir settir á álpappír eða í eldfast mót.
Ofninn hitaður og stilltur á grillið
fiskurinn grillaður í 12-15 mín.
Borið fram t.d. með brauði og salati
|
|
 |
Rækjupæ |
|
|
Hráefni:
pædeig.
ópiluð rækja, má líka nota frosna
fetaostur í vatni
egg
rjómi
origano
hvitlaukur
Aðferð:
Deig:
150 gr. hveiti
100 gr. smjör
100 gr. súrmjólk
Hnoðið öllu saman og breiðið útí eldfast mót ca. 24 cam pikkið botninn og
forbakið í 20 mín við 200c.. Einnig má nota tilbúið deig úr pakka.
Fylling:
500 gr. ópilluð rækja (ca. 150gr. pillluð)
200 gr, fetaostur í vatni
½ tsk origano
1 hvítlauksrif
3 egg 2 ½ dl. rjómi
Pillið rækjuna og þerrið vel. Myljið fetaostinn og dreifið yfir botninn.
Rækjunum raðað ofaná, Egg, rjómi og krydd þeytt létt saman og hellt
yfir. Bakað í 35 mín við 200 cC.
Jammi þetta er svo gott...... Berið fram með salati og hvítlaukssósu.
ps. má einnig nota frosna rækju.
|
|
 |
Lax með eplum og ólífum |
|
|
Hráefni:
600 g nýflakaður og roðflettur lax, skorinn í 4 jafnstór stykki
1 epli, skorið í þunna báta
100 g steinlausar og grófhakkaðar grænar ólífur (etv. fylltar með möndlum,
papriku eða hvítlauk)
nýmalaður svartur pipar t.d. Maldon
safi úr sítrónu
Aðferð: Raðið laxabitunum í ofnfast fat og þekið með eplabátum og
ólífum ásamt pipar. Bakið í 170°C heitum ofni (forhituðum) og takið út
eftir nákvæmlega 8 mínútur. Heimabakað heilkornabrauð er gott meðlæti,
t.d. heilkornaspeltbrauð úr Himneskt grófspelti, og létt salat eða
gufusoðið grænmeti. Munið að rétturinn bragðast jafn vel kaldur sem
heitur og hægt að útbúa nóg í nestið á morgun eða kaldan kvöldmat.
|
|
 |
Engifer lax |
|
|
Hráefni:
1 kg laxaflök
1 dl hrásykur
1 dl Maldon hafsalt
4 msk rifinn engifer
rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu
1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla
Aðferð: Blandið öllum kryddefnum saman. Leggið laxinn á fat með
roðið niður og sáldrið kryddblöndunni yfir hann og þrýstið inn í flakið
með fingrunum. Snúið nú flakinu við, þannig að roðið snúi upp. Breiðið
plastfilmu yfir fatið og geymið það í ísskáp í u.þ.b. 12 tíma. Flakið er
tekið úr ísskápnum og skorið í örþunnar sneiðar. Gott er að hafa
klettasalat eða léttsoðið spínat með þessum bragðmikla laxi.
|
|
 |
Rækjusalat 1 |
|
|
Hráefni:
2 dl köld, soðin hrísgrjón
1 laukur
½ paprika græn
½ paprika rauð
¼ agúrka
1 dós sýrður rjómi
1 msk franskt sinnep
Sítrónusafi
Pipar og Garlic & herb seasoning (McCormic)
Rækjur að vild hvers og eins
Meðlæti:
Ristað brauð eða heitt hvítlauksbrauð. Salatið skal útbúa allt að 3 klst.
áður og geyma það í kæliskáp á meðan.
|
|
 |
Öðruvísi rækjusalat |
|
|
Mjög gott með ristuðu brauði og
ísköldum bjór..
500 gr. saxaðar rækjur
1 blaðlaukur saxaður,
1/2 gul paprika og 1/2 rauð paprika
500 gr. kotasæla
1 dós sýrður rjómi
2msk majó
1/4 dós kurlaður ananas
1 1/2 tsk. karrý
|
|
 |
Kína fiskur |
|
|
Ýsa
Sveppir
Hvítkál
gulrætur
laukur
paprika
míni mais
sykurbaunir
baunaspírur
hveiti/salt og pipar
Sósan:
3 msk púðursykur
1/2 bolli sojasósa(helst sæt soja)
vatn(svona 1 bolli)
skerið fiskinn í frekar littla bita(svona þumal stóra)
veltið upp úr hveiti og kriddið með salti og pipar
steikið grænmetið á pönnu(skera það fyrst,kálið smátt)
takið grænmetið af og steikið fiskin-bara létt á hvorri hlið
hellið grænmetinu aftur út á
blandið saman púðursykrinum,soja og vatni
hellið yfir pönnuna og gufusjóðið í smá stund
Berið fram með soðnum grjónum og brauði ef vill.
|
|
 |
Ýsa m/karrý og eplum |
|
|
fljótlegt og einfalt!!
2 meðalstór ýsuflök
3 græn epli
1 tsk karrý
olía
salt
Skerið ýsuflökin í 3-4 cm breiða bita og saltið þá.
Afhýðið eplin og rífið þau niður eða saxið.
Hitið olíuna á pönnu á meðan.
Bætið eplamaukinu og karrýinu á heita pönnuna og blandið vel.
Leggið fiskbitana oná og látið krauma í ca. 10 mín.
Voilá!!!
|
|
 |
Ýsa í tómatsoði |
|
|
ótrúlega góður og einfaldur
ýsuflak matarolía 3-4 lárviðarlauf 1 laukur 2-3 hvítlauksrif 1/2 rauð
paprika
1/2 ten. kjötkraftur salt og pipar vatn 3 msk.tómatpúrra eða sósa rjómi ef
vill
best að matreiða í víðum góðum potti
laukur og paprika skorið niður steikt glært í olíunni smá slatti af vatni
ásamt
kjötkrafti og laufum bætt útí soðið í 2 mín.
púrran sett útí meira af vatni soðið áfram í 10 mín.rjóminn settur útí
fiskurinn skorinn í mátulega bita raðað ofaní pottinn kryddað smá með salt
og pipar
soðið á að fljóta aðeins yfir,soðið áfram í 5-7 mín.það er alls ekki þörf
á rjómanum
en eins og svo oft þá skemmir hann ekki.meðlæti soðin hrísgrjón.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!!!!!!!
|
|
 |
Saltfiskurinn hennar mömmu |
|
|
Hrikalega góður
Saltfiskur
1 laukur
1 púrrulaukur
1 askja rómaostur
1 lítill gráðostur
1 rjómaostur með kryddblöndu
Ostur
Gulrætur
Kartöflur
Mjólk
Saltfiskurinn soðin og beinhreinsaður.
Laukurinn saxaður smátt og soðin í mjólkinni(látið fljóta vel yfir).
Osturinn settur út í mjólkina og soðið jafning. Salfisknum er bætt út í og
sett í eldfast fat. Soðnum kartöflunum er raðað ofaná og svo er settur
ostur.
Þetta er sett í ofn þar til osturinn er orðin brúnaður.
Tekið út og rifnum gulrótum stráð yfir.
|
|
 |
Hvítlaukssteinbítur |
|
|
fljótlegt og frábært
Roðlaus flök af steinbít
hvítlaukur marin (mikið)
olía,salt,pipar.
Rjóma ef vill.
Kryddinu,hvitlauknum og olíunni blandað saman,
steinbiturinn skorin í ræmur og velt upp úr því.
Þetta er svo snöggsteikt á pönnu og sörverað.
Gott að hafa með brauð,hrísgrjón og salat.
|
|
 |
GRJÓNARÉTTUR |
|
|
1. Poki (soðin) af hrísgrjónum,sett í eldfast mót 1.dós af sveppum sett
yfir grjónin,200.gr.rækjur.
1.peli rjómi Allt hrært saman og
3.msk mayonnaise helt yfir réttinn
2.tsk karrý
Rifinn ostur settur yfir
Hitað í ofni í ½ tíma 200°C
Borið fram með hvítlauksbrauði eða ristuðu brauði
|
|
 |
Fiskur fyrir þá sem borða ekki fisk |
|
|
Mjög góður réttur.
Ýsa, hveiti, karrý, paprika (gul, rauð og græn), blaðlaukur, sveppir,
rjómi, soja-sósa, rifinn ostur salt og pipar. Olía til steikingar (smá
smjörlíki).
Ýsan skorin í bita (ekki litla). Hveiti, karrý, salt og pipar sett í
plastpoka. (Má vera sterkt karrýbragð). Fiskurinn settur í pokann og
hrist. Steikt á pönnu þar til ljós brúnt. Raðað í eldfast mót ekki mjög
þétt. Grænmeti brúnað á pönnunni (til að nýta bragðið af fiskinum +
karrýinu). Sett yfir fiskinn, síðan rjóminn látinn fljóta yfir og
nokkrir dropar af sojasósu hellt yfir. Að lokum rifinn ostur (ekki
mikið).
Borið fram með hrísgrjónum, salati og brauði.
|
|
 |
Kvöldsæla |
|
|
Góður forréttur eða kvöldsnarl
Humar rækjur hörpuskel eða það sem þú átt í
kistunni,rósapipar,rjómi,soyasósa (má sleppa)
Skelfiskur smjörsteiktur,tekinn af,rjómi 1/4 ´hellt á pönnuna ,rósapipar
eftir smekk og ca.1tsk soyasósa .Látið þykkna á pönnunni ,borið fram með
ristuðu brauði. verði ykkur að góðu.
|
|
 |
Sjávarréttir í kryddlegi
|
|
|
150g hörpudiskur
250g rækjur
1/2 agúrka
1 paprika, rauð
3 hvítlauksrif, pressuð
1msk ferskt kóríander, saxað smátt
2msk ferskur appelsínusafi
safi úr 1 lime
1dl ólífuolía
1 avokadó
salt
pipar
Skerið hörpudiskinn í litla bita.
Kjarnhreinsið agúrkuna og paprikuna og saxið smátt. Blandið öllu hráefninu
saman, nema avokadóinu. Skerið það svo í sneiðar og berið fram með
réttinum.
Best er að útbúa réttinn 6-10 klst. fyrir framreiðslu.
|
|
 |
Gratineruð hörpuskel |
|
|
Góður forréttur, eða bara sem
máltíð
Hörpuskel
Bernessósubréf
sítrónupipar
Mossarellaost rifinn
Sjóðið hörpuskelina í vatni og sítrónupipar í smá stund alls ekki lengi
því þá verður hún seig. Búið til bernessósu samkvæmt leiðbeiningum á
pakkanum. Hellið hörpuskelinni í sigti og síðan í eldfast mót eða
skálar, hellið sósunni yfir, stráið svo ostinum yfir allt og undir
grillið í ofninum þar til osturinn verður gullinbrúnn, berið fram með
ristuðu brauði og smjöri, ef þetta á að borðast sem máltíð þá er gott að
bæta við fersku góðu salati eftir smekk hvers og eins. Svo skaðar ekki
að hella góðu hvítvíni í staup og drekka með.
|
|
 |
Bleikar Ora fiskibollur |
|
|
Ora fiskibollur í dós
Sósa:
Soðið úr dósinni
50gr smjörlíki
Tómatsósa (smakka sig áfram)
Hálfur súputeningur
1 bolli vatn
1msk hveiti
2-3dl mjólk
Smjörlíkið, soðið, tómatsósan, súputeningurinn og vatnið sett í pott og
látið malla.
Hveitið og mjólkin hrist saman og blandað saman við restina af sósunni til
að þykkja hana.
Fiskibollurnar settar út í og látnar hitna í gegn.
|
|
 |
Rækju/karrýréttur a la páskapartý Ísafjarðar |
|
|
500 gr. rækjur
1 pk. hörpudiskur
1 dós sveppir
1-2 bréf karrý hrísgrjón eða Golden rice
3-4 msk majónes (ég nota létt majónes)
1 peli rjómi
Grjónin soðin eins og lýst er á pakkanum. Hörpudiskurinn skorinn í bita.
Majónesið sett í skál og rækjunum, hörpudisknum, sveppunum og grjónunum
blandað út í, rjóma skellt í líka (þarf kannski ekki alveg heilan pela),
allt sett í eldfast mót og ostur yfir, ekki verra að hafa nóg af honum.
Bakað í ofninum þar til fer að bulla í þessu öllu saman og osturinn vel
bráðinn, þá er það orðið nógu heitt.
Borið fram með ristuðu brauði.
Athugið með hörpudiskinn að á honum er oft vöðvi sem þarf að taka af (hann
er hvítari en hörpudiskurinn sjálfur og auðvelt að plokka hann af).
|
|
 |
Fiskur með kókos og karrý |
|
|
Þessi réttur er alveg rosalega
fljótlegur, þarf lítið magn af fiski í helling af klöttum og er
afsaplega vinsæll á mínu heimili. Mæli eindregið með honum.
Fiskur með kókos og karrý
1 dl hveiti
2 msk kókosmjöl
1 egg
1 tsk karrý
1 dl mjólk
salt, pipar
timian ef vill
Öllu hrært saman, fiskur skorinn í litla fingurþykka bita og velt upp úr
deiginu, teknir með skeið þannig að svolítið af deigi komi með og steikt
á pönnu eins og litlir klattar, hafa góðan hita á feitinni. Borið fram
með hrísgrjónum og súrsætri sósu, t.d. úr krukku.
|
|
 |
Kornflögufiskur m/kaldri sósu |
|
|
Æði gott
2 bollar muldar kornflögur
3 tsk.rifinn sítrónubörkur
salt og pipar
3 tsk. sítrónusafi
4 msk. smjör
700-800 g ýsu- eða þorskflök (roðflett)
Setjið kornflögumylsnuna í skál og bætið sítrónuberkinum, salti og pipar
út í. Setjið sítrónusafnn í skál, bræðið smjörið og blandið saman við
sítrónusafann. Skerið fiskinn í 5 sm strimla (fingur) og penslið með
smjörblöndunni. Veltið fiskbitunum síðan upp úr.
|
|
 |
Frábæri fiskrétturinn |
|
|
1 poki hrísgrjón
2 fiskflök
1 paprika
1 laukur
sveppir eftir smekk
1 dós ananasbitar
SÓSA
ca 3-4 msk maionase
safi af ananas
rjómi ca 1/2 peli
karrý ca 1 tsk
1/4 tsk paprikuduft
Hrísgrjónin eru soðin og sett í botninn á eldföstu móti.Fiskurinn skorinn
í bita og settur ofan á hrísgrjónin,kryddaður með
sítrónupipar+aromat+karrý.
Grænmeti steikt og kryddað aðeins með seasonall og sett yfir fiskinn,síðan
er ananasinn settur þar ofaná.
Sósan er löguð og sett yfir þetta og svo er þetta látið inn í ofn í ca 2o
mín þá er rifinn ostur settur yfir og haft inni í um 10 mín í
viðbót.Hiti er um 180°c.Gott er að bera þetta fram með hvítlauksbrauði.
|
|
 |
Fiskibollur m/karrýsósu |
|
|
Ora fiskibollur skornar í
eggjaskera sett í eldfast mót, sósa og ostur yfir.
1. stór dós Ora fiskibollur.
Matvinnlsurjómi
Aromat eða Picanta
karrý
(salt/pipar).
Ostur
Þykkja með maisenamjöli ljósu ef þarf.
Meðlæti :
Kartöflumús með icebergsalati.
Tómata og gúrkur ef vill.
Fiskibollur án safa skornar í eggjaskera og settar í eldfast mót.( skera
má bollur í helm.ef vill).
Matvinnslurjómi settur í pott og bragðbættur með salti,pipar, karrý og
Arómati/picanta. (smakka)
Ath. ekki nauðsynlegt að nota allan rjómann.
Þykkja með maisenamjöli ljósu ef vill og síðan hellt á bollurnar.
Ostur skorinn í sneiðar eða rifinn yfir.
Hitað í ofni á ca. 200° þar til ostur er bráðinn/gylltur og heitt í gegn.
Sæt Kartöflumús með icebergsalati:
Soðnar kartöflur,maukaðar með þar til gerðu áhaldi, smá smjör, salt, sykur
og smá mjólk. Smakka til. Rífa síðan niður icebergsalat og bæta út í
kartöflumúsina.
Ódýrt og gott.
Verði ykkur að góðu.
|
|
 |
Forsetafiskur |
|
|
3 græn epli
1 græn paprika
6-7 sneiðar bacon
smjör
ýsuflak
hveiti
pipar
salt
1 stk Camembert-ostur
rifinn ostur
Afhýðið eplin og skerið í bita. Skerið einnig paprikuna í bita.
Baconið er skorið í 3-4 bita (hver sneið) og steikt í smjöri þar til það
er glært.
Skerið ýsuflakið í litla bita og veltið því upp úr hveiti, pipar og salti.
Steikið við vægan hita.
Allt er síðan látið í eldfast mót og Camembert-ostur er látinn í litlum
bitum hér og þar ofan á.
Yfir allt er síðan dreift rifnum osti.
Hitið í 20-30 mínútur við 180°c
|
|
 |
Fiskréttur Maríu |
|
|
Alveg frábær... karry og svona
sull...einfaldur og fljótlegur
2-3 flök af ýsu eða þorsk
Hrísgrjón 2-3 pokar
1 peli rjómi
2-3 msk mayones
Sítrónupipar
Karrý
Aromat
Season All
Sjóða fiskinn og hrísgrjón. Hræra saman 1 pela af rjóma og 2-3 stórum msk
af mayonesi, setja örlítið af karrý og season all útí.
Hrísgrjón í botn á eldföstu móti,síðan fiskinn og svo rest af grjónum.
Hella sósunni yfir og ostur fer síðast yfir.
Bakist í 20 – 30 mín. á 175°.
|
|
 |
Orly deig fyrir rækjur og fisk |
|
|
Frábært og stökkt fyirr
djúpsteikingu á fiski eða rækjum
1 bolli hveiti
1/2 tsk salt
1/2 tsk lyftiduft
1/4 tsk matarsóti
1 tsk edik
3/4 - 1 bolli vatn
allt hrært saman og rækjur eða fiskur velt vel í hrærunni og síðan
djúpsteikt.
Látið drjúpa af þessu á eldhúsrúllu pappír eftir steikingu.
Betra ef feitin er vel heit.
|
|
 |
Grænmetisfiskur |
|
|
Bakaður fiskur í ofni með
grænmeti
Fiskur skorinn í teninga
Knorr fiskikrydd
Olía
ferskir sveppir
gulrætur
brokkolí
grænmetisteningur
Léttur sveppasmurostur
mjólk
kjötteningur
Eldfastform er smurt með olíu
Fiskur skorinn í teninga, kryddaður með Knorr fiskikryddi og settur í
eldfasta formið.
Ferskir sveppir og gulrót skornið í sneiðar og brokkolí bitað niður.
Grænmetið er síðan steikt í olíu á pönnu og grænmetisteningi bætt út í.
Grænmetið er síðan látið krauma í eigin safa í smá stund undir loki.
Sveppasmurostur er bræddur í mjólk og kjötkrafti bætt út í.
Grænmetið er síðan sett yfir fiskinn og sósan þar yfir. Þetta er síðan
bakað í ofninum þar til vel er farið að krauma í fiskinum og er þá ostur
settur yfir réttinn.
Gott er að hafa Hatting brauðbollur með þessu, kartöflur eða hrísgrjón.
|
|
 |
Plokkfiskur á nýjan hátt |
|
|
Plokkfiskur með kartöflumús
f. 4
600 gr. ýsa
1 poki tilbúin kartöflumús
1 gulur laukur
1 msk. smjör
1/2 bolli vatn
vatn eða mjólk til að þynna ef þarf.
Salt og svartur pipar eftir smekk.
Ýsan soðin í saltvatni
Laukurinn saxaður og soðinn í smá smjöri og vatni og gerður mjúkur.
Kartöflumúsin gerð skv. leiðbeiningum á pakkanum.
Fiskurinn tættur í sundur og hrærður saman við.
Saltað og piprað eftir smekk. Gott að setja mikið af svörtum pipar.
Borið fram með rúgbrauði og smjöri.
|
|
 |
Fiskur og pasta |
|
|
Rosa gott og einfalt !!
1.Fiskur
2.Pasta (slaufur,skrúfur..)
3.Hvítsósa:
Smjörlíki,hveiti, mjólk,smá sykur.
4.Ost
Sjóða fiskinn
Sjóða pasta
Búa til sósu (eða pakkasósu;)
Láta fiskinn í djúpt eldfastmót
Pasta ofan á
Hella sósuna ofan á allt
Strá ost ofan á
Láta inn í ofn við 200c,þangað til osturinn bráðnar.
Gott að borða með hvítlauks/ostabrauð
Nammi namm gott :0Þ
|
|
 |
Humar og salat |
|
|
Humar með salati, sósu og ristuðu
brauði
1 kassi humar, fiskbúðin Vör (1,5 kg).
Marinering:
100 gr. brætt smjör
2 tsk. Gevalia sítrónupipar
1 tsk. Sítrónuduft
1/2 tsk. salt
Safi úr einni sítrónu
Salat:
Klettasalat
jöklasalat
paprika
agúrka
rauðlaukur
fetaostur
og það sem þú vilt
Sósa
1 dós sýrður rjómi
2 msk. majónes
1 msk. sætt sinnep
1 msk. sítrónusafi
4-5 marin hvítlauksrif
Ristað brauð með smjöri.
Humar: Klippa skelina að ofanverðu, losa um að neðanverðu og hreinsa
svörtu görnina í burtu. Ýta svo humrinum upp úr skelinni að ofanverðu
(eins og gert er á Humarhúsinu). Pensla svo með marineringu (öllu
blandað saman) og grilla augnablik í ofni eða á grilli (þá á bakka)(þar
til humarinn verður hvítur en ekki glær).
Sósa:
Sýrði rjóminn hrærður upp fyrst, öllu bætt útí.
|
|
 |
Rækjufiskur |
|
|
Gómsætur fiskur með osti og
rækjum.
Fiskur ýsa eða þoskur (ca. 1 lítið flak á mann)
Hveiti í skál + nýmalaður pipar + salt
sítrónupipar
Rifinn Ostur
Rækjur..
Sósa:
1 eggjarauða á móti 100g smjör (2 eggjarauður .. ætti að vera nóg fyrir 3)
... Bræðið smjörið og látið kólna. Þeyta skal eggin þangað til þau hafa
lyft sér og eru orðin frauðkennd. (gott er að velgja eggjarauðurnar með
því að setja skálina í heitt vatn, þá lyftast eggin betur )
Hræra smjör og egg rólega saman. Kryddið með nýmöluðum pipar og sítrónusaf
Skerið fiskinn í hæfilega bita og berjið bitana til að þynna þá. (fínt er
að setja plastpoka yfir fiskinn þegar hann er barinn upp á þrif og
subbuskap:) kryddið yfir annan helminginn á flakinu með sítrónupipar og
setjið rækjur og rifinn-ost ofan á og brjótið flakið saman í samloku
(rækjur, ostur og sítrónupipar lokað inní). Síðan er samlokunni dýft í
hveiti sem búið er að salta og pipra. Steikið í ca. 2-3 mín við háan
hita á hvorri hlið (ágætt að hafa lokið á pönnunni til að osturinn
bráðni betur.)
Meðlæti:
Ferskt salat
Kartöflur eða hrísgrjón
|
|
 |
Fiskbollur |
|
|
400 gr fiskur
2 tsk salt
1 laukur
2 msk hveiti
2 msk kartöflumjöl
pipar
1 egg
3 dl mjólk
allt hráefnið sett saman í mat-
vinnsluvélina nema laukurinn er
saxaður og settur útí síðastur.
steikt í feiti fallega brúnar bollur sem mótaðar eru með matskeið. setjið
2 dl vatni að
lokum og sjóðið í 5-10mín.
gott með salati og kartöflum.
|
|
 |
Ofnbakaður Lax |
|
|
Laxaflak,salsa sósa (strykleiki eftir smekk),niðurrifinn ostur (að eigin
vali)
Takið laxaflakið og setjið inn í álpappír,dreifið salsa sósunni ofan á og
stráið svo ostinum yfir.
Lokið flakið inn í álpappírnum og bakið í ofni í 10-20 mínútur,(fer eftir
stærð flaksinns).
Gott að bera fram með salati og ólívubrauði
|
|
 |
lax með mango cutney og pekanhnetum |
|
|
f. 4
4 bitar lax 1/2 poki pecanhnetur, mangocutney kartöflur
,salat
setjið laxabitana í eldfast mót smyrjið yfir mangocutney afhýðið
hneturnar og saxið dreyfið ofan á inn í ofn ca 30 - 40 mín sjóðið
kartöflur , búið til ykkar salat eða kaupið blandað ferskt í poka verði
ykkur að góðu
|
|
 |
Humarpottréttur |
|
|
Fljótlegur veisluréttur
20-30 humarhalar
smá olía eða smjör til steikingar.
1 tsk. karrý
1 tsk.hvítlauksduft
salt pipar
1/4 l rjómi
1 gul paprika
1 rauð papfrka
1/4 lítill hvítkálshaus
6-8 tómatar
Humarinn er svissaður í feitinni,
kryddaður, og rjómanum hellt yfir.Grænmetið skorið frekar smátt
(smekksatriði)
Látið malla í 2-3 mínútur.
Má setja smá sósujafnara.
Borið fram með hrísgrjónum og ristuðu brauði
|
|
 |
Saltfisk Draumur |
|
|
Salt fiskur Sækerans, með lauk og
baconi.
400 GR útvatnaður saltfiskur.
3 Ms Ólífu olía.
5 St Bacon
2 Laukar
5 Rif Hvítlaukur.
1 Ds Hakkaðir Tómatar.
1 Ds Tómata Mauk (Paste)
Malaður Pipar Eft Smekk
Hitið ólífu olíu, skerið Backon í Smátt og steikið með ásamt lauk.
þegar laukurinn og Baconið er hálf steikt, þá er hvítlaukur settur saman
við. og steikt áfram í 3-4 mínútur.
Saltfiskurinn er nú smátt skorin Ca 2-3 Sm bita og settur saman við og
steiktur í 5-6 mínútur.Bætið síðan tómatnum út í bæði hökkuðum og
(Paste)
Sjóðist í 10 mín, sett í ofn.Bakað í ca 15 Mín stráið osti yfir. Gott með
Grjónum.
|
|
 |
Humar í koníkssósu |
|
|
magn af humri og grænmeti er bara smekksatriði.
Humar
Paprika bæði rauð og græn.
Blaðlaukur,nota hluta bæði af græna og hvíta.
Rauðlaukur.
Sveppir.
Smjör til steikingar.
1pk blaðlauksostur
1 grænmetisteningur.
1/2 l matreiðslurjómi
Humarinn tekinn úr skelinni og létt steiktur.Tekinn af pönnunni.
Grænmetið skorið gróft niður og steikt,bætt osti og teningi út í,
svo rjóma má krydda með pipar og hvítlaukssalti ef vill.
Humarinn settur út og blandað vel.
Borið fram með góðu brauði og salati,og drukkið rósavín með.
|
|
 |
Fiskur í gráðostasósu |
|
|
t.d.
Skötuselur, Steinbítur eða Rauðspretta
1/4 l. Rjómi
100 gr. Gráðostur
1 blaðlaukur
Sveppir
Sletta af hvítvíni
Dill, aromat og svartur pipar
Hreinsið
fiskinn og skerið í litlar sneiðar, veltið upp úr krydduðu hveiti.
Byrjið á að rista sveppi og lauk á pönnunni. Takið þá síðan af og setjið
fiskinn á sjóðheita pönnuna og steikið í ca. 3-4 mínútur á hvorri hlið
(fer eftir þykkt sneiðanna). Bætið út í gráðosti, rjóma og hvítvíni.
Setjið laukinn oppina yfir og berið fram
|
|
 |
Rækja í stórþara |
|
|
Fljótlegur
rækjuréttur með sjávarkryddi
200 g rækjur
5 gulrætur
3 piparávextir
2 tsk stórþarakrydd
½ dl vatn
Olía til steikingar
Skerið gulrætur og pipar og látið mýkjast í olíu. Setjið þarakryddið í
sjóðandi vatn í nokkrar mínútur. Bætt út í grænmetið. Látið sjóða í 7 –
10 mínútur. Bætið rækjunni út í og látið malla smástund, eða þar til
rækjan er soðin. Borið fram með hrísgrjónum og þara- eða sölvasósu.
Þarakrydd og þara/sölvasósa fæst í Heilsuhúsinu og í flestum
heilsuvöruverslunum
|
|
 |
Tandoori fiskur |
|
|
Uppskrift fyrir fjóra
1 kg. ýsa eða þorskur (heill)
4 msk. Patak´s Tandoori Paste
1½ dl.hrein jógúrt
5 tsk. smjör,bráðið
Sítróna og gott hvítvín.
Hreinsið roðið af fiskinum og skerið hausinn af. Hreinsið fiskinn vel og
þerrið. Útbúið marineringu með því að blanda saman Patak´s Tandoori
kryddmauki og jógúrt. Skerið fjóra djúpa skurði á sitt hvora hlið
fisksins (inn að beini) og setjið hann í marineringuna og gangið úr
skugga um að hún fari inn í skurðina. Látið liggja í 20 mínútur. Takið
fiskinn úr marineringunni og setjið á heita pönnu og hellið afgangnum af
marineringunni yfir fiskinn. Steikið uppúr smjörinu þar til fiskurinn er
tilbúinn. Hendið síðan fisknum og drekkið hvítvínið. Fiskur er fullur af
beinum og bragðast hvort sem er eins og mold
|
|
 |
Laxasæla Lax með mango chutney |
|
|
1 laxarflak
1 krukka mango chutney
1 krukka sweet mangu chutney
½ sítróna
Maldon salt
Svartur pipar
|
Flakið er sett á álpappír og brett uppá
kanntana.
Kryddað með Maldon salti, svörtum pipar og smá sítrónusafi kreystur
yfir. Chutneyinu er blandað saman og hellt yfir laxinn.
Smellt í ofn 180° og bakað í 10 – 18 mín (fer eftir stærð)
Ferskt sallat með og sneiddar karftöflur (venjulegar og sætar) í ofn með
olíu og kryddi
Bara gott
|
|
|
 |
Paprikufiskréttur frá mömmu |
|
|
|
ofnbakaður
með steiktum kartöflum og snöggsteiktu grænmeti í paprikurjómasósu |
|
3-500 gr. ýsa, fer eftir stærð eldfast móts
c.a. 10 kartöflur
einn poki af forsoðnu, frosnu grænmeti, helst blandað brokkoli, blómkál
og gulrætur, baunir virka ekki vel með þessum rétt.
1 dós paprikusmurostur
1-2dl rjómi.
hvítlaukssalt
sítrónupipar
smá ostur |
skrælið kartöflur, ekki sjóða,
sneiðið niður og steikið á pönnu með örlítilli olíu og kryddið með
hvítlaukssalti(má vera hvítlauksduft eða hvítlaukspipar)
raðið í botn á eldföstu móti.
steikið næst grænmetið, passið að þýða það og EKKI þvo pönnuna, til að
geyma bragðið frá öllu í sósuna. kryddið með sítrónupipar og raðið ofan
á kartöflurnar.
setjið næst paprikuostinn og rjómann á pönnuna og bræðið saman. raðið
fiskinum ofaná grænmetið og hellið sósunni yfir allt saman. stráið
ostinum yfir og bakið við 200° þar tilað osturinn er orðinn gullinn.
athugið hvort fiskurinn er bakaður í gegn áður en þið framreiðið.
borðið með hrísgrjónum.
|
|
|
 |
Gufusoðin ýsa á kínverskan máta |
|
|
fyrir fjóra
800 g ýsuflök, roðflett og tilhreinsuð
kryddlögur:
3 msk sojasósa
1 msk sesamolía
1/2 msk hökkuð engiferrót
4 vorlaukar, skornir í bita
1/2 -1 chilipipar (eftir smekk), kjarnhreinsaður og skorinn smátt
svartur pipar úr kvörn.
Meðlæti: hrísgrjón, sítrónusneiðar og kóríander.
Ofnbakaður þorskur í "umslagi"
fyrir fjóra
1-2 gulrætur, fínt skornar
1 sellerístöngull, fínt skorinn
2-3 skallotlaukar, fínt skornir
1 msk jómfrúrólífuolía
sletta af hvítvíni (má sleppa)
Kryddolía:
graslaukur
basilíka
steinselja
jómfrúrólífuolía
safi úr sítrónu
Öllu blandað saman í litlu handkvörninni.
|
|
 |
Bakaður lax á grænmeti |
|
|
fyrir fjóra
800 g laxaflök, skorin í sneiðar
1/4 blaðlaukur, skorin í bita
2-4 gulrætur, flysjaðar og skornar í bita
1/2 - 1 fenníka, skorin í bita
1 msk ólífuolía
2 dl grænmetis- eða fiskisoð
1 dl hvítvín (má sleppa)
1 tsk kryddjurtasalt (má sleppa)
hvítur pipar úr kvörn
nokkrir rósmarínkvistir
Salat
Blönduð, fersk salatblöð, rifinn niður
þunnar sneiðar af rauðlauk.
Vínargretta:
1 dl ólífuolía
2 msk gott edik
1 tsk sinnepsfræ, ristuð á pönnu
1/2 tsk sinnepsduft, enskt
1/2 tsk hlynsíróp
kryddsalt (má sleppa)
|
|
 |
Ýsurjómahlaup |
|
|
700-800 gr soðin ýsa
5 dl rjómi
400 gr sýrður rjómi
2 bréf ljóst soðhlaup
½ sjóðandi vatn eða hvítvín
rækjur eftir smekk
Ýsan sett í matvinnsluvél og maukuð, leysið
hlaupið upp í sjóðandi vatninu og kælið. Þeytið rjómann og blandið honum
saman við sýrða rjómann. Bætið kældu hlaupinu saman við maukaða ýsuna og
síðan rjómanum. Setjið í form og kælið í minnst 6 kls. Takið úr forminu
og skreytið með rækjum, tómatbátum, sítrónu og agúrkum.
Sósa
200 gr sýrður rjómi
1 msk majonese
1-1
½ msk sweet relish
1 skvetta tabaskósósa
½ msk tómatsósa
½ tsk sykur
½ dl þeyttur rjómi
Öllu hrært vel saman
|
|
 |
Rækjur Súrsætar með hrísgrjónum
|
|
|
fyrir 4
400 g rækjur
4 dl óáfengt hvítvín
4 tsk sykur
4 dl Uncle Ben´s hrísgrjón
2 stk rauð paprika
1 stk lítill púrrulaukur
nýmulinn, svartur pipar eftir smekk
Matreiðsla
Saxið paprikuna og púrrulaukinn smátt. Setjið hrísgrjónin í pott ásamt 8
dl af vatni ásamt paprikunni og púrrulauknum. Sjóðið við vægan hita
undir loki þar til hrísgrjónin eru soðin og hrærið í öðru hvoru á meðan.
Bætið hvítvíninu og rækjunum ásamt sykrinum út í og látið sjóða
augnablik án loks. Piprið eftir smekk.
Hollráð
Gott er að bera þennan rétt fram með sojasósu.
|
|
 |
Djúpsteiktar rækjur með
beikoni |
|
|
beikon
rækjur
orly-deig:
3 dl. pilsner (má vera vatn)
2 msk sykur
hveiti til að þykkja með
salt & pipar
eggjarauða
eggjahvíta
öllu blandað saman nema eggjahvítunni. á að vera álíka þykkt og
vöffludeig. látið standa í 1 klst. eggjahvítan er stífþeytt rétt áður en
farið er að steikja. beikonsneiðarnar eru skornar í tvennt á ská.
nokkrar rækjur settar á sneiðarnar og rúllað upp. velt upp úr hveiti og
sett í deigið og djúpsteikt.
gott er að bera fram með þessu hrísgrjón og súrsætasósu.
það er hægt að djúpsteikja í djúpri pönnu eða venjulegum potti. ef það
steikist hægt er um að gera að setja lok á í smá stund og leyfa feitinni
að hitna betur.
|
|
 |
Reyktur lax með Makkarónur |
|
|
400 g makkarónur, Barilla
200 g lax, reyktur
10 stk sveppir
2½ dl rjómi
2 msk ólífuolía, góð
1¼ dl hvítvín
1 stk laukur
1 msk steinselja
pipar
salt
Undirbúningur
Skerið laxinn í bita, saxið síðan laukinn, sveppina og steinseljuna.
Matreiðsla
Sjóðið pastað eftir leiðbeiningunum. Hitið olíuna og steikið lauk og
sveppi létt. Hellið hvítvíninu út í og sjóðið þar til helmingur er
eftir. Bætið þá rjómanum við ásamt steinselju, salti og pipar. Setjið
makkarónurnar og laxinn út í heita sósuna. Blandið vel og berið réttinn
fram strax.
Hollráð
Einnig má skera laxinn í þunnar sneiðar, blanda pastanu saman við sósuna
og setjið það ofan á sneiðarnar.
|
|
 |
Æðislegur fiskréttur |
|
|
Efni:
Fiskur
Banani
Kokteilávextir
Champellssúpa (sveppa)
Majones
Ostur
Fiskikraftur
Meðhöndlun:
Fiskurinn
soðin í vatni með smá fiskikrafti. Suðu hleypt upp og þá er fiskurinn
tekinn upp úr. Hann settur í eldfast mót kryddaður með smá salti og
pipar, svo er bananinn settur ofaná. Súpunni og majonesinu er hrært
saman og kokteilsávöxtunum er blandað saman við og öllu hellt yfir
fiskinn.
Osti er stráð yfir og bakað í ofni við 175° þangað til osturinn er orðinn
bráðinn.
Gott að hafa hrísgrjón með (má setja þau í botninn undan fisknum)og
brauð.
|
|
 |
Þorskur í tómatsósu |
|
|
Efni:
2-3 þorskflök
eða 4 sneiðar af þverskornum þorski
TÓMATSÓSA:
4 msk ólívuolía
500 g tómatar, afhýddir og saxaðir
1 marið hvítlauksrif
1 msk söxuð steinselja
4 msk hvítvín (ég nota nú bara mysu í staðinn!!)
salt og pipar
Meðhöndlun:
Byrjið á að
laga sósuna. Hitið olíuna á pönnu, bætið tómötum og hvítlauk, steinselju
og víni eða mysu á pönnuna. Saltið og piprið eftir smekk. Látið malla í
7-10 mínútur og hrærið í öðru hvoru.
Setjið helminginn af sósunni í eldfast fat, raðið fiskstykkjunum ofan á
og hellið því sem eftir er af sósunni yfir. Setjið lok eða álpappír yfir
fatið og bakið í 190 C heitum ofni í 20-25 mínútur.
Berið fram með grófu brauði og salati.
|
|
 |
Skötustappa |
|
|
Efni:
1 kg. vel
kæst tindabikkjubörð
200 gr hnoðmör
1 bolli haframjöl
4 matskeiðar þorskalýsi
400 gr. soðnar kartöflur.
Meðhöndlun:
Börðin sett í
sjóðandi vatn slökkt á suðunni eftir eina mínutu látið liggja í 5 - 7
mín. skatan síðan hreinsuð af brjóskinu.
Hnoðmörinn bræddur í vatnsbaði, hroðinn veiddur ofan af jafnóðum.
síðan er allt hrært saman, eða sett í mixara sem er enn betra.
Þrumari með smjöri og staup af köldu brennivíni skemmir ekki.
Til að eyða lyktinni á eftir, er upplagt að sjóða jólahangiketið á eftir.
|
|
 |
Rækjuréttur |
|
Frábær réttur ef óvænta gesti ber að garði.
Fljótlegur og hráefnið yfirleitt til á hverju heimili
Efni:
Uppistaðan í
þessum rétti er ca 1 ltr af MJÖG góðri karrýsósu,
svona 2 bollar soðin hrísgrjon annað eins af úthafsrækju frá Meleyri
á Hvammstanga (hún er mjög góð) þessu er öllu blandað saman.Sett í
eldfast mót og osti stráð yfir bakað við 200 gr hita þar til osturinn
er orðinn gullinn borið fram með hvítlauksbrauði.
Til tilbreytingar er gott að setja svolítinn ananas í og síðan svo sem
hvað annað sem okkur þykir gott með rækjunum.
Eins er magnið af rækjunum og grjónunum það er eitthvað sem við gerum
upp við okkur hvert og eitt fyrir sig.
Verði ykkur að góðu
|
|
 |
Púrrufiskur |
|
|
Efni:
600-800 g
ýsu- eða smálúðuflök
1 góður blaðlaukur
1 bolli rifinn ostur
1 peli rjómi
2 msk sveppasmurostur
hálf til ein sítróna
ein til ein og hálf tsk aromat
nýir sveppir eða ein lítil dós.
Meðhöndlun:
Kreistið
sítrónuna yfir fiskflökin og kryddið með aromatinu.
Látið síðan bíða um stund. Skerið fiskinn í bita og raðið í
eldfast mót. Sneiðið blaðlaukinn, líka græna hlutann, og
mýkið í olíu á pönnu. Takið af og steikið sveppina smástund.
Hellið þá rjómanum yfir, setjið rifna ostinn út í ásamt sveppasmurostinum
látið sjóða þar til hann er bráðinn. Bætið loks blaðlauknum á pönnuna og
kryddið með aromati eftir smekk. Hellið þessu síðan yfir fiskinn og bakið
í 190°C heitum ofni í 15-20 mín. Rétturinn er borinn fram með hrísgrjónum
heitu smábrauði.
|
|
 |
Saltfiskur
Orly-steiktur |
|
|
Með súrsætir sósu
800 gr útvatnaður saltfiskur, roð og
beinhreinsaður
hveiti
Orly-deig:
3 dl hveiti
1 egg
2 msk vatn
½ tsk sykur
½ tsk salt
½ tsk
paprikuduft
1 msk rifinn
ostur
½ dl bjór
1 stífþeytt
eggjahvíta
Súrsæt sósa:
2 dl sykur
2 dl vatn
2 dl vínedik
1 msk
tómatkraftur
½ laukur
fíntsaxaður
1 gulrót
fínsöxuð
1 msk japönsk
sojasósa
½ tsk saxaður
hvítlaukur
maísenamjöl og
vatn
Skerið saltfiskinn í ræmur 1x3 sm. Hrærið saman
hveiti, eggi, olíu, vatni, sykri, salti, paprikudufti, rifnum osti og
bjór. Hrærið eggjahvítunni varlega saman við deigið.
Setjið í pottt
sykur, vatn, vínedik, tómatkraft, lauk, gulrót, hvítlauk og sojasósu.
Sjóðið sósuna þar til gulrótin er orðin mjúk. Hrærið þá maísenamjöl út í
vatni og jafnið sósuna með því.
Veltið
saltfiskræmunum upp úr hveitinu og hristið allt laust hveiti af þeim.
Dýfið saltfiskræmunum í orly-deigið og djúpsteikið þær í 170°C heitri
olíu.
|
|
 |
Ofn - fiskur |
|
|
Efni:
2 roðflett
fiskflök
250 gr. majones
250 gr rækjuostur
1 dós sýrður rjómi
Meðhöndlun:
Smyrjið
eldfast mót og leggið fiskinn í fatið. Hrærið saman majonesinu,
rjómanum og ostinum og hellið/smyrjið yfir fiskinn. Bakið við 150 gráður
í
ca. 60 mín.eða þar til osturinn er orðinn ljós brúnn. Berið fram með
soðnum
kartöflum,tómötum og gúrkum.
|
|
 |
Nasafavorite |
|
|
Stutt lýsing:
Sjodid fisk
og kartoflur i thægilega langan tima.....
Brædid smjor og stappid allt gomsid saman...
Klikkar ekki...
Efni:
Ysa
Kartoflur
islenskt smjor
|
|
 |
Fiskur m/grjónum og karrý
|
|
|
Stutt lýsing:
Mjög
auðveldur og fljótlegur réttur, vinsæll hjá börnum og fullorðnum.
Efni:
3. ýsuflök
grjón ( helst basmati )
sósa:
ca. 50. gr. smjör
hveiti
Madras karry milt ( eftir smekk )
1/2 tsk. garam masala ( má sleppa )
1/2 cumin ( má sleppa )
2.dl. kókosmjólk
mjólk
1/2 teningur grænmetiskraftur
Meðhöndlun:
ýsan roðflett
og skorin í bita.
Grjónin soðin samkvæmt leiðb. á pakka.
Grjónin sett í eldfast mót sem er búið að smyrja með smjöri (lítið)
Ýsan sett ofan á grjónin og sósunni hellt yfir.
Búa til mikla sósu þannig að grjónin nái að blotna alveg í gegn.
Setja inn í ofn á 200 gráður í 20. mín. ca.
Sósan:
Smjörið brætt og hveitið sett í, búin til smjörbolla.
Karrý, garam masala og cumin sett saman við smjörbolluna ( taka pottinn
af hellunni á meðan )
Kókosmjól og mjólk smá saman bætt út í.
|
|
 |
Karrýfiskur |
|
|
Stutt lýsing:
Góður
fiskréttur fyrir fjóra.
Efni:
500 gr
fiskflök (ýsa, karfi eða silungur)
1/2 msk smjörlýki
1/2 tsk salt
1/2 tsk karrý
1/2 tsk dill
Meðhöndlun:
Roðflettu
flakið og skerðu það í hæfilega stóra bita.
Smyrðu pönnuna með smjörlíkinu og raðaðu fiskbitunum á hana.
Blandaðu salti, karrýi og dilli saman og stráðu því jafnt yfir fiskinn.
Settu lok á pönnuna. Það á að falla þétt að börmunum.
Láttu fiskinn vera á pönnunni í 15-20 mín á minnsta straum eða þar til
hann er hvítur í gegn.
Berðu fiskinn fram með grænmetissalati og soðnum kartöflum.
|
|
 |
Ýsa með hamsatólg. |
|
|
Efni:
Ýsa - flökuð
eða þverskorin, magn fer eftir hvað margir ætla að borða.
Kartöflur - magn í hlutfalli við magn ýsunnar.
Hamsatólg.
Meðhöndlun:
Kartöflurnar
eru settar í pott og soðnar í u.þ.b. 20 mín.
Ýsan er sett í annan pott, söltuð lítillega og soðin í u.þ.b. 15-20 mín.
Hamsatólgin er sett í lítinn skaftpott og hituð þangað til hún er
fljótandi.
Svo er þetta borið fram heitt. Einnig er mjög gott að hafa tómatsósu með.
|
|
 |
Ýsa í hátíðar búningi |
|
|
Efni:
Ýsuflök (1
stórt, eða 2 lítil)
1 banani
2 dl. rjómi
2 egg
100 g rækjur
1 paprika
ostur
hveiti
salt og pipar
kjöt og grill krydd
rasp
Meðhöndlun:
Eggin eru
þeytt með 1/2 dl af rjóma og hveitið hrært út í.
Fiskurinn er kryddaður beggja megin með salti, pipar og kjöt og
grillkryddi.
Fiskinu er dýft í þessa sósu og steiktur við hagan hita á pönnu örlitla
stund.
Hann er síðan lagður í eldfast fat. Rækjurnar, bananinn og paprikan eru
steikt í smjöri og lögð ofan á fiskinn. Afgangurinn af rjómanum er settur
yfir
og síðan rifinn ostur og rastp. Bakað við 200 gráður í ca 20 mín.
Gott að leggja álpappír yfir til að byrja með.
|
|
 |
Ísa - Bakaður fiskur |
|
|
7-800 gr ýsuflök roðrifin (eða smálúða,
rauðspretta)
4 stk laukur
1 stk sítróna
1 biti ferskur engifer
1 msk sojasósa
50 gr smjör
Skerið fiskinn í smáar sneiðar. Rífið börkinn af sítrónunni
og pressið safann úr henni, rífið engiferinn. Blandið saman
sítrónuberki, safa, rifnu engifer og sojasósu. Látið fiskinn
marenerast í leginum í 20-30 mín. Hreinsið laukinn og skerið í þykkar
sneiðar, hitið laukinn í smjöri á pönnu þar til hann er orðinn mjúkur.
Leggið laukinn í smurt eldfast fat, setjið fiskinn yfir og kryddið með
salti og pipar. Bakið í ofni við 200°C í 25-30 mín. Borið fram með
súrsætri sósu.
|
|
 |
Ísa - Fljótlegur fiskréttur f/4 |
|
|
500 g ýsa
250 g Uncle Ben´s hrísgrjón (boil in bag)
220 g niðursoðnir sveppir, án safa
4 msk majones
2½ dl rjómi
2 tsk karrí
1 stk rauð paprika
1 stk sellerístilkur
ostur
smávegis blaðlaukur
Matreiðsla
Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka; setjið í eldfast mót.
Látið ýsuna í smábitum ofan á grjónin. Hrærið rjóma, majonesi og karrí
saman og látið smátt brytjað grænmetið út í. Hellið hrærunni yfir
fiskinn og þekið með rifnum osti. Bakið í ofni við 200°C þar til
osturinn er gulbrúnn.
Framreiðsla
Berið fram með soðnum kartöflum og hrásalati
|
|
 |
Ýsa í karrí |
|
|
Efni:
2 ýsuflök
paprika
ananas(litil dós)kurl
rjómi
hveiti
salt
karrý
Meðhöndlun:
hreinsa
fiskinn
blanda saman hveiti karrý og salt
velta fiskinum upp úr hveiti blöndunni
steikja fiskinn og setja í eldfast mót
brytja paprikuna og mýkja í afgangs feitinni
bæta ananas kurli á pönnuna
hræra restinni af karrý hveitinu út á pönnuna
hella ananas safanum útí
hella rjóma útá og láta krauma smá stund
hella sósunni yfir fiskinn í mótinu
strá osti yfir
setja í heitan ofn þar til osturinn er gullinn
bera fram með hrísgrjónum og fersku salati
|
|
 |
Túnfiskur frá Japan f. 4. |
|
|
Fyrir: 4 pers.
Innihald.
Ferskur túnfiskur:
400 gr.
Hrísgrjóna núðlur:
250 gr.
Smjör:
50 gr.
Hunang:
4 msk.
Salatblöð:
1-2 höfuð.
Sesamfræ:
2 msk.
Sojasósa:
2 msk.
Engifer-rót:
1 msk. (fínt söxuð)
Gulrót:
1 stk. (meðalstór)
Olía til djúpsteikingar
Aðferð.
1.
Rífið salatblöðin og
skerið gultótina í ræmur. Djúpsteikið núðlurnar í heitri olíu og leggið
þær á eldhúsrúllupappír.
2.
Blandið saman hunangi,
sojasósu og engifer.
3.
Skerið túnfiskinn í litla
bita. Steikið fiskinn við háan hita á pönnu í olíu í ca. 1 mínútu. (Ath.
fiskurinn á að vera hrár í miðju) Setjið sesamfræin á pönnuna með
fiskinum ásamt smjörinu og engiferblöndunni, hrærið rólega og hitið í
smá stund.
4.
Takið réttinn af pönnuni
og blandið saman við salatið, leggið réttin upp á fat og núðlurnar ofan
á.
|
|
 |
Súrsætar fiskibollur |
|
|
Stutt lýsing:
Fínar
fiskibollur
Efni:
200 gr.
rækjur
250 gr. fiskhakk
4 msk valhnetur
1 msk sítrónusafi
1 tsk soya
1/2 tsk sesamolía
1/2 tsk hvítlaukur
1 1/4 tsk salt
hnífsoddi pipar
2 msk kartöflumjöl
2-3 msk ananassafi
Hakkaður fiskurinn, rækjurnar og valhneturnar. Öllu blandað saman í fars.
Búnar til litlar bollur sem eru steiktar í matarolíu.
|
|
 |
Suðrænn fiskréttur
með hrísgrjónum og ananas |
|
|
2 bollar hrisgrjón (4 skammtar)
600 g ýsuflök
100 g hveiti
salt
pipar
matarolía til steikingar
200 g sveppir
1/2 dós ananasbitar
8 msk majones eða léttmajones
3 tsk karrí
2 dl ananassafi
rifinn ostur 26%
1. sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pk
2. roðflettið ýsuna og skerið í hæfinlega bita.
blandið saman hveiti, salti og
pipar og veltið fiskinum upp úr
því. Léttsteikið fiskinn í
matarolíu.
3. smyrjið eldfast mót með smjöri, setjið hrísgrjónin
í botninn og raðið
fiskinum þar ofan á.
4. skerið sveppina í sneiðar og raðið þeim og
anansbitunum
ofan á fiskinn.
5. kryddið majonesið með karríi og blandið ananssafa
varlega út í
hellið sósunni yfir réttinn
6. rífið ostinn og stráið yfir réttinn
7. bakið í 175°c heitum ofni i 20-30 mín
sósan á fiskinum
raðið fiskbitunum nokkuð þétt saman þannig að sósan haldist
ofan á fiskinum
og blandist ekki um of saman við hrísgrjónin
berið fram með hrásalati og ef til vill brauði
|
|
 |
Sjávarréttarkaka: |
|
|
200 g flökuð
ýsa
100 g humar
100 g
léttsoðin hrísgrjón
1 ½ tsk.salt
¼ tsk hvítur
pipar
1 msk. Ferskur
sítrónusafi
2 eggjahvítur
3 dl rjómi
2 msk. Smjör
Ýsuflakið er roðflett og hreinsa. Það er skorið í litla bita og sett í
matvinnskuvél, ásamt salti, pipar, sítrónusafa og eggjahvítum og
maukað. Síðan er rjómanum blandað varlega saman við og að lokum
léttsoðnum hrísgrjónunum.
Smyrjið 6 lítil bökunarmót með smjörinu. Takið u.þ.b. 2/3
hluta af deiginu og klæðið formið að innan með því. Takið humarinn
úr skelinni ef hann er ekki keyptur án hennar og skerið í bita.
Skiptið humarbitunum á milli formanna og lokið þeim síðan með afganginum
af deiginu.
Raðið formunum í eldfast mmót sem hefur verið fyllt til hálfs með vatni.
Bakist við
200°C í 15-20 mínútur
|
|
 |
Rækjuréttur í karrísósu |
|
Frábær réttur ef óvænta gesti ber að garði.
Fljótlegur og hráefnið yfirleitt til á hverju heimili
Efni:
Uppistaðan í
þessum rétti er ca 1 ltr af MJÖG góðri karrýsósu,
svona 2 bollar soðin hrísgrjon annað eins af úthafsrækju frá Meleyri
á Hvammstanga (hún er mjög góð) þessu er öllu blandað saman.Sett í
eldfast mót og osti stráð yfir bakað við 200 gr hita þar til osturinn
er orðinn gullinn borið fram með hvítlauksbrauði.
Til tilbreytingar er gott að setja svolítinn ananas í og síðan svo sem
hvað annað sem okkur þykir gott með rækjunum.
Eins er magnið af rækjunum og grjónunum það er eitthvað sem við gerum
upp við okkur hvert og eitt fyrir sig.
Verði ykkur að góðu
|
|
 |
Rauðsprettuflök
Steikt með rækjum og camerbert |
|
|
8 stk rauðsprettuflök
1 stk camerbertostur
2 dl fisksoð
|