|
|
|
|
|
Súpur, salat, sósur, meðlæti, forréttir, eftirréttir, bökur krem, ídýfur, ís, ofl.
|
Veldu flokk. |
|
|
Aðalréttir |
Smáréttir |
Fiskréttir |
Grillið |
Bakstur |
Súpur - salat |
Villibráð |
Engl.trancription |
|
Þessum uppskriftum hefur pabbi viðað að sér héðan og þaðan, aðallega af vefnum og úr matreiðslubókum, eins frá vinum, vandamönnum og öðru góðu fólki. Öllum er velkomið að senda inn uppskrift ef þú villt miðla henni til annarra. Hér má finna "venjulegan" mat, snilld frá kokkum, húsmæðrum, aðalrétti, fisk, kjöt og allt þar á milli. Á síðunum hér má finna vel á annað þúsund uppskriftir.
Veldu máltíð til að reikna næringarefnin í einni máltíð Hvernig er þitt mataræði?
ATH: mikið af uppskriftum mun bætast hér við einhvern tíman á næstunni.
|
|
Hátt í 200 uppskriftir af: Súpur, salat, sósur, meðlæti, , forréttir, eftirréttir, bökur, krem, ídýfur, ís, ofl. |
Týtuberjasósa3 dl týtuberjasulta 1 tsk engifer, fínt saxað ½ tsk korianderfræ 2-3 msk rauðvínsedik 1 dl púrtvín eða appelsínusafi Blandið öllu saman í pott og sjóðið við vægan hita í 2-3 mín og kælið.
|
|
|||
|
Tómatsúpa með brauðteningum Sígild
5 hálfdósir (425 g ) niðursoðnir tómatar 2 laukar 4 stórar kartöflur 200 g blaðlaukur 150 g sellerírót 4 msk tómatkraftur 2 kjötkraftsteningar 1/2 - 1 tsk pipar 1 tsk oreganó salt soðnir gulrótarteningar eða núðlur brauð
1. Grófskerið laukinn. Afhýðið kartöflurnar og skerið í sneiðar. sneiðið blaðlaukinn og sellerírótina. Merjið tómatana 2. setjið allt hráefni og krydd í stórann pott(nema gulrætur) og sjóðið við vægann hita í 1-1 1/2 klst 3. hellið súpunni í súpuskál í gegnum sigti og merjið grænmetið í gegnum það 4. látið gulrótarteningana eða soðnar núðlur út í súpuna rétt áður en hún er borin fram
Brauðteningar
skerið brauðið í litla teninga, setjið á bökunarplötu og bakið í 180°c heitum ofni í 3-5 mínutur.
berið fram með brauðteningum, léttþeyttum rjóma og e.t.v. rifnum permasanosti
|
|
|||
Tómatsúpa 2
2-3 gulrætur Grænmetið og beikonið er tvíhakkað eða sett í ½ blaðlaukur mixara. Smjörlíki, grænmeti og beikon sett á 2 stk laukur pönnu og látið krauma smá stund. Sett í pott 3 sneiðar beikon vatni og tómatpúrre bætt saman við ásamt 300 gr tómatpúrre kryddi og látið sjóða í 40-50 mín.súpan sigtuð 20 gr smjörlíki og grænmetið marið í gegnum sigti, rjóma 2 l vatn bætt saman við ef vill. Ef súpan er of þunn má kjötkraftur þykkja hana með ljósum sósujafnara. Sojasósa Borið fram með soðnum eggjum þeyttum timian rjóma og brauði oregano hunang rjómi til að bragðbæta.
|
|
|||
|
Tómat- og mozzarellasalat með basilolíu
|
|
|||
|
6 egg 1 bolli ljós púðursykur þeytt saman 1 tsk. Vanilla ½ L. Rjómi 100gr. Toblerone
|
|
|||
|
(börnum finnst þessi sósa yfirleitt ekki góð)
3 msk sesamsmjör (ljóst) 1-2 hvítlauksgeirar safi úr einni sítrónu cummin á hnífsoddi salt örlítið af steinselju, gjarnan ferskri
Öllu nema saltinu blandað saman, gott er að nota til þess matvinnsluvél. Smakkið til með salti og e.t.v. meiri hvítlauk. Sósan á að vera þykk, en ef hún er of þykk, má þynna hana með örlitlu vatni.
|
|
|||
Sveppasúpa
Sveppir Smjörbollan löguð. Sveppirnir skolaðir úr Smjör köldu vatni, skornir í sneiðar og svissaðir í 1 ½ dl rjómi smjöri á pönnu. Rjómanum hellt út á og 1 ½ l vatn eða soð soðið smá stund. Þeim síðan bætt út í súpuna 100 gr hveiti og hún soðin smá stund. Bæta má vatni í 100 gr smjör súpuna ef hún verður of þykk. kjötkraftur grænmetiskraftur
|
|
|||
|
Sveppasúpa bragðbætt með rækjum Fyrir 4
250 gr ferskir sveppir 1. Hreinsið sveppi og skerið í sneiðar. Saxið 1 lítill laukur laukinn. Steikið laukinn og sveppina. 50 gr smjör/smjörlíki 2. Stráið hveitinu yfir og hellið kjötsoðinu 3 msk hveiti saman við í smáskömmtum, hrærið vel í á 1l kjötsoð (vatn+teningar) meðan. Kryddið með salt og pipar. Látið 1 tsk salt súpuna krauma í 3-4 mín. ½ tsk pipar 3. Hellið rjóma saman við og bragðbætið 2dl rjómi með koníaki. Hleypið upp suðu. smávegis koníak eða sérrí 4. Hrærið eggjarauðurnar með dálitlu af 2 eggjarauður heitri súpunni. Hellið þeim varlega út í 150 gr rækjur súpuna og hrærið vel í. Súpan má ekki sjóða kryddsalt (season all) eftir að eggjarauðurnar eru komnar út í. steinselja til skrauts 5. Saxið steinselju og stráið yfir súpuna.
|
|
|||
|
Sveppasúpa - eða önnur grænmetissúpa Fyrir: 8-10 pers.
Innihald. Sveppir eða annað grænmeti: 200-300 gr. (skolaðir og sneiddir) Gulur laukur: 1 stk. (fínt saxaður) Vatn: 1,5 l. Rjómi: 2 dl. Soya-sósa: 1-2 msk. (ef vill) Kjötkraftur: eftir smekk. (ljós) Grænmetiskraftur: eftir smekk. Smjör: 100 gr. Smjörlíki: 100 gr. Hveiti: 150 gr. Pipar: milli fingra.
Aðferð. 1. Sveppirnir og laukurinn eru svissað í smjöri á vel heitri pönnu.
2. Vatninu bætt út í ásamt kraftinum og soja-sósunni, látið sjóða rólega í nokkrar mín.
3. Á meðan er smjörlíkið brætt í potti og hveitinu bætt út í og látið krauma smá stund á vægum hita, þetta heitir smjörbolla.
4. Þá er potturinn með sveppasoðinu tekinn af hitanum og rjómanum bætt út í. Sveppasoðið er síðan bakað upp (þykkt) með smjörbollunni, og þeytt í á meðan með pískara. Smjörbollunni er bætt í smátt og smátt eftir þörfum eða þar til súpan er orðin mátulega þykk.
5. Súpan er látin sjóða í nokkrar mín. og hún síðan smökkuð til með kjötkrafti og pipar eftir smekk.
Súpuna er gott að smakka til með ca. 0,5 dl. af sérríi. Gott er að bera fram með súpunni nýbakað brauð og smjör.
|
|
|||
|
1/2 l vatn 100 g sykur 9 msk vínedik 1 mtsk tómatkraftur 3 mtsk sojasósa maizena-sósujafnari 100 g sveppir 1 græn paprika 1 rauð paprika 100 g blaðlaukur 100 g ananasbitar
1. setjið vatn, sykur, edik, tómatkraft, og sojasósu í pott hleypið upp suðu og þykkið með maizena-sósujafnara 2. skerið sveppi, lauk og blaðlauk í sneiðar og papriku í strimla (ekki of fínt) 3. brúnið sveppi,lauk,blaðlauk,papriku og ananasbita í matarolíu og bætið út í sósuna sósan þarf ekki að sjóða mikið.
|
|
|||
Súkkulaðimússterta
125 gr hveiti 155 gr sykur
125 gr smjör 1 1/2 tsk lyftiduft 1 msk kakó
3 msk heitt vatn ( meira ef þér finnst þurfa)
Bræðið 200 gr af súkkulaði e. smekk í 1/2 l af rjóma við vægan hita. Kælið vel, gjarnan yfir nótt í ísskáp, þá er þetta stífþeytt eins og rjómi og sett á milli botnanna.
|
|
|||
Íssósa
100 gr suðusúkkulaði
Bræddu súkkulaðið í vatnsbaði (settu súkkulaðið í pott og pottinn ofan í annan pott fullan af vatni og þann á helluna) og blandaðu svo rjómanum saman við.
|
|
|||
Súrsæt rjómasósa2 msk ólífuolía 1 geiri hvítlaukur 1 tsk engifer (saxaður) 4 dl tómatsósa 4 dl vatn 2 msk borðedik 3 msk sykur 1 tsk soyasósa 1 msk kartöflumjöl 1 dl rjómi
Saxið hvítlauk og engifer smátt, hitið olíu á pönnu. Hitið hvítlaukinn og engiferið í olíunni. Hrærið saman tómatsósu, vatni, sykri, ediki og kartöflumjöli, hellið þessu á pönnuna og látið suðuna koma upp. Bætið þá rjómanum saman við og berið fram
|
|
|||
|
½ msk púðursykur 3 dl vatn eða soð 1 msk edik 15 gr tómatkraftur ½ dós ananas og helmingurinn af safanum örlítið af blaðlauk (eftir smekk) ½ msk maisinamjöli og 1 tsk vatn til að jafna sósuna
Púðursykur, vatn eða soð, edik, tómatkraftur, ananas, safi og blaðlaukur sett í pott og látið malla vel saman. Þykkt með maisinamjöli og kryddað. Gott er að krydda sósuna með grænmetiskryddi (pikanta), grænum pipar, soyasósu, sítrónusafa, salti og pipar allt eftir smekk.
|
|
|||
|
25 gr smjörlíki 1 laukur 7 dl vatn eða soð 1 tsk tómatkraftur 1 tsk sinnep 1 tsk edik eða hvítvín hveiti grænn pipar, salt og kjötkraftur
Laukurinn saxaður, smjörlíkið brætt í potti og laukurinn settur út í og látinn krauma. Hveitinu bætt út í og smjörbolla jöfnuð. Vatnið hitað í öðrum potti með kjötkraftinum og jafnað saman við smjörbolluna. Látið sósuna sjóða í um 30 mín. Í lokin er tómatkraftinum, sinnepi og ediki bætt út í ásamt kryddi.
|
|
|||
|
6 dl soð af viðkomandi kjöti 4 msk rifin piparrót ½ tsk pipar ½ tsk salt 1 dl rjómi smjörbolla úr 50 gr hveiti og 60 gr smjörlíki
Soðið sett í pott og hitað að suðu, jafnað með smjörbollunni og soðið smá stund. Piparrótinni bætt út í ásamt kryddi. Að lokum er rjómanum bætt út í.
|
|
|||
|
1 rauð paprika 1 græn paprika 1 lítill púrrulaukur sveppir olía til steikingar maisinamjöl og vatn til að jafna sósuna ½ l rjómabland salt, pipar og kjötkraftur
Grænmetið skorið og létt steikt í potti, rjómanum bætt saman við og sósan látin krauma. Kryddið sósuna og jafnið.
|
|
|||
|
1 l soð eins og viðkomandi rétti tilheyrir 50 gr kapers, ásamt safa smjörbolla salt og pipar sykur ef vill
Sigtið soðið og bragðbætið með salti og pipar, jafnið með smjörbollu. Bætið kapersinu saman við. Gott er að bæta sósuna með eggjarauðu og rjóma en eftir að eggjarauðu hefur verið jafnað í sósuna má hún ekki sjóða.
|
|
|||
|
5 msk smjörlíki 1 tsk lítill laukur fínsaxaður 1 stk græn paprika fínskorin 5 sn beikon, skorið í ræmur paprikuduft 5 msk hveiti 8 dl lamba-, grænmetis- eða annað soð 2 dl rjómi eða mjólk salt og pipar
Smjörlíkið brætt í potti, grænmetið kraumað í 2 mín kryddað með paprikudufti, hveitinu stráð yfir og látið bakast aðeins, án þess að brúnast. Hrærið vel í á meðan, bætið soði og mjólk/rjóma út í. Hrærið vel saman og látið sósuna sjóða í 5 mín. Bragðbætt með salti og pipar.
|
|
|||
|
Sama sósa og hér að ofan að viðbættum osti td. 100 gr tilsitter eða annar bragðmikill ostur, ásamt 50-100 gr af köldu smjöri, sem bætt er út í sósuna í lokin. Hrærið vel saman.
|
|
|||
|
1 l mjólk 1 stk lítill laukur gróftsaxaður ½ tsk grófmulinn hvítur pipar 1 stk negulnagli smjörbolla salt
Mjólkin sett í pott ásamt lauk, pipar og negulnagla. Suðan látin koma upp potturinn settur til hliðar. Á meðan er smjörbollan löguð og látin krauma í 2 mín. Mjólkin sigtuð út í smjörbolluna og hrært vel saman, látið sjóða smá stund eða þar til sósan er orðin jöfn. Bragðbætið með salti og pipar. Gott er að nota rjóma að hluta til í staðinn fyrir mjólkina.
|
|
|||
|
7 dl dökkt kjötsoð 1 dl rauðvín 30 gr smjör 25 gr hveiti sósulitur salt og pipar
Smjörbollan löguð og jafnað út í heitt soðið. Bragðbætið með rauðvíni, salti og pipar. Litið sósuna. Gott er að bragðbæta sósuna með lauk og eða sveppum.
|
|
|||
|
½ l kjötsoð 150 gr sveppir 200 gr döðlur 150 gr skinka maisinamjöl ca.2-3 msk salt og pipar vatn
Döðlurnar soðnar í vatni þannig að fljóti yfir þær. Sveppirnir þvegnir og saxaðir smátt, þeir brúnaðir í smjöri í potti, kjötsoðinu bætt út í ásamt skinkunni, þetta soðið smá stund. Soðinu af döðlunum bætt saman við soðið. Döðlurnar marðar gegnum sigti og 1-2 msk af maukinu bætt saman við sósuna hún krydduð með salti og pipar, að lokum jöfnuð með maisinamjöli sem hrært er út í vatni.
|
|
|||
|
Bláberjasósa 1 2 dl frosin bláber 1 tsk estragon 1 tsk merian 1 tsk timian 1 tsk basilkum salt og pipar sósulitur 1 100 gr lauf gráðostur 2-3 dl rjómi vatn matarolía sykur
2-3 msk matarolía sett á heita pönnu, bláber og jurtakrydd hitað á pönnunni gráðosti og rjóma bætt út á. Osturinn leystur upp og sósan látin sjóða niður ef hún er of þykk má bæta vatni í hana. Sósan lituð og krydduð með salti, pipar og sykri. A.t.h. ef nota á sósuna með villibráð getur verið gott að nota mysuost í staðin fyrir gráðost.
Bláberjasósa 2
2 dl bláber 3 dl rjómi smjörbolla salt og pipar 3 dl vatn sósulitur
Rjómi og vatn hitað og jafnað með smjörbollu. Látið sjóða smá stund bláberjum bætt saman við, sósan krydduð, lituð ef vill og borin fram.
Bláberjasósa 3
2 dl bláber 3 dl rjómi 3-4 dl vatn smjörbolla salt og pipar
Vatn og rjómi sett í pott og suðan látin koma upp. Bláberin marin í gegn um sigti og þeim bætt út í pottinn. Sósan jöfnuð með smjörbollu, krydduð og látin krauma smá stund.
|
|
|||
|
250 gr sveppir 4-5 dl rjómi soð, salt og pipar sósulitur og kjötkraftur smjör smjörbolla
Sveppirnir eru þvegnir og skornir í sneiðar. Steiktir í smjöri í potti og látnir malla smá stund. Rjóma og soði bætt út í og hitað. Sósan jöfnuð með smjörbollu látin sjóða áfram við vægan hita, krydduð og sósulit bætt saman við ef vill.
|
|
|||
|
1 l svínakjötssoð 2 lárviðarlauf 1 laukur 1 púrrulaukur 1 rauð paprika salt og pipar kjötkraftur maisinamjöl og vatn
Laukur, púrrulaukur og paprika saxað og svissað í potti. Soði lárviðarlaufi og kryddi bætt út í og soðið smá stund. Jafnað með maisinamjöli sem hrært er út í vatni
|
|
|||
|
½ l kjötsoð 1 tsk estragon 1 tsk merian 1 tsk timian 1 tsk basilkum 2 msk maisenamjöl salt pipar sósulitur
Kjötsoðið sett í pott ásamt kryddjurtum og látið krauma smá stund. Hrærið 2 msk maisenamjöl út í ½ dl af vatni og jafnið saman við sósuna. Bragðbætið með salti og pipar. Að síðustu er sósulit bætt út í eftir smekk.
|
|
|||
Heitt brauð í eldföstu móti
1 fransbrauð 250-300 gr skinka 1 dós aspas 1 dós sveppir 200 gr majones 3 eggjarauður 3 eggjahvítur þeyttar salt og pipar rifinn ostur
Smyrjið eldfast mót, takið skorpuna af fransbrauðinu og rífið það niður í botninn á mótinu. Hellið aspasnum yfir (safinn líka), hellið sveppasafanum yfir Hrærið majonesið út með eggjarauðunum, kryddið með salti og pipar. Saxið skinkuna og blandið saman við ásamt sveppunum. Hellið blöndunni yfir brauðið. Í lokin er eggjahvítunum dreift yfir, rifnum osti stráð ofan á og bakað í 30 mín við 180-200°C. ATH. Það má líka nota ananas í staðinn fyrir aspas og gott getur verið að nota hvítlaukssalt. Það má líka hræra eggjahvítunum saman við alla blönduna í lokin en passa að hræra ekki of mikið.
|
|
|||
Heitt rúllubrauð
1 rúllutertubrauð 1 dós sveppaostur ½ dós aspas 250 gr skinka 2 eggjahvítur þeyttar 2 msk majones rifinn ostur
Velgið sveppaostinn og þynnið með aspassafanum, kælið blönduna. Skerið skinku og aspas í bita og blandið saman við ostinn. Smyrjið blöndunni á rúllutertubrauðið og rúllið því upp, látið samskeytin snúa niður, smyrjið þeyttu eggjahvítunni yfir og bakið brauðið í 15 mín við 180°1C. Berið fram.
|
|
|||
Innbökunar og Bökudeig margskonarInnbökunardeig 1
1 kg hveiti 500 gr smjörlíki/smjör 20 gr salt 2 ½ dl vatn
Hnoðið allt saman og kælið hnoðið saman aftur og haldið köldu.
Innbökunardeig 2
1 kg hveiti 5-600 gr smjörlíki 4 dl vatn salt og ögn af sykri
Öllu hnoðað saman og kælt. Deigið er unnið eins kalt og hægt er.
Innbökunardeig 3
250 gr hveiti ½ tsk gróft salt 1 tsk lyftiduft 150 gr kalt smjör ½ dl köld mjólk
Allt hnoðað aðeins saman og kælt í um það bil eina klukkustund.
Bökudeig 1
200 gr hveiti 150 gr smjör 2 msk rjómi
Myljið saman hveiti og smjör. Bætið vökvanum saman við smátt og smátt, það er ekki víst að þurfi að nota allan vökvann.Látið deigið standa á köldum stað í smá stund áður enn það er unnið. Bökur úr þessu deigi eru oftast bakaðar við 200°C í 25-30 mín.
Bökudeig 2
3 dl hveiti 75 gr smjör 2 msk vatn
Myljið hveiti og smjör saman bætið vatninu saman við og hnoðið vel, kælið deigið í 30 mín áður enn það er unnið, bakið við 200-225°C í 15-20 mín.
|
|
|||
Blaðlauksbaka með möndlumBotn: 100 gr hveiti 50 gr heilhveiti 4 msk vatn 2 msk smjörlíki ½ tsk salt Fylling: 200 gr blaðlaukur 2 msk matarolía 1 dl vatn 1 tsk salt ¼ tsk pipar 40 gr möndlur afhýddar ca ¾ dl Ostasósa: 100 gr mildur ostur 1 dl mjólk 2 egg Blandið saman hveiti, heilhveiti, vatni, smjörlíki og salti og hnoðið. Fletjið deigið út og setjið í bökuform um 22-25 cm í þvermál, og bakið í 10 mín við 200°C. Sneiðið blaðlaukinn þunnt og léttsteikið á pönnu í olíu. Bætið vatni, salti og pipar út í og látið sjóða við vægan hita undir loki í fimm mínútur. Saxið möndlurnar og blandið þeim saman við. Dreifið blaðlauksfyllingunni yfir botninn. Rífið ostinn og setjið í skál hrærið saman við eggjum og mjólk, hellið blöndunni yfir fyllinguna og bakið við 200°C í 30 mín, neðarlega í ofninum.
|
|
|||
Smurt brauð m. margskonar áleggi
Rækjur. Fransbrauð skorið undan hringlaga móti, smurt með smjöri eða majones. Rækjum raðað á brauðið (það á ekki að sjást í brauðið). Skreytt með majones, sítrónu, kavíar, tómötum og steinselju.
Reyktur lax. Fransbrauð skorið undan hringlaga móti, smurt með smjöri eða majones. Laxinn skorinn í þunnar sneiðar og settur þannig á sneiðina að hann rísi upp í miðjunni og passað að hann hylji brauðið. Skreytt með hrærðu eggi, aspas, tómötum, ólífum, steinselju, dilli og papriku.
HangikjötHeilhveiti- eða maltbrauð sem búið er að fjarlægja skorpuna af er smurt, kjötsneiðum er raðað ofan á og skorið í ferning, síðan í tvennt þannig að myndi þríhyrning. Skreytt með ítölskusalati, ca. 1 tsk. á hverja sneið, gúrkusneiðum, gulrótum, tómötum, sveskjum, vínberjum, aspas, mandarínubátum, harðsoðnu eggi og steinselju.
SkinkaHeilhveiti- eða maltbrauð sem búið er að fjarlægja skorpuna af er smurt, kjötsneiðum er raðað ofan á og skorið í ferninga, síðan í tvennt þannig að myndi þríhyrning. Skreytt með ávaxtasalati, ítölskusalati, ananas, koktelberjum, smáttskornum ávöxtum, gúrku, steinselju og sveskju
RoastbeefMaltbrauð er smurt, kjötsneiðum er raðað ofan á og skorið í ferninga, síðan í tvennt þannig að myndi þríhyrning. Skreytt með remolaði, steiktum lauk, tómat, ferskju, sýrðri agúrku, papriku, sveskjum, svörtum ólífum og steinselju.
SíldHveiti- heilhveiti- eða maltbrauð, er smurt eggjasneiðum raðað ofan á, skreytt með síld (marenaðri- eða kryddsíld), agúrku, tómötum, ólífum, steinselju og dilli.
|
|
|||
Lasagne Verdi
2 msk ólífuolía 50 gr beikon án pöru skorið í litla bita 1 laukur saxaður 1 hvítlauksgeiri saxaður 1 leggur sellerí í litlum bitum 1 gulrót í litlum teningum 200 gr sveppir skornir í sneiðar 2-3 stórir þroskaðir tómatar afhýddir og kjarnaðir (eða tómatar úr dós) 200 gr nautahakk 1 dl kjötkraftur (blandaður) ½ dl rauðvín 1 msk tómatpurre salt, nýmulinn svartur pipar örlítill sykur 1 tsk oregano 2 leggir söxuð steinselja (gott að nota ítalska-kryddblöndu)
Mjólkursósa: 65 gr smjör 65 gr hveiti 2 ½-3 dl heit mjólk örlítið múskat salt og pipar 300 gr rifinn ostur
2-3 glös pasta- skrúfur eða slaufur
Olían er hituð í potti, beikonið brúnað í henni, lauknum og hvítlauknum bætt saman við og brúnað þar til laukurinn verður glær. Þá er sveppunum, gulrótunum og selleríinu bætt saman við og því næst kjötinu, gætið þess að merja það vel í sundur. Bætið vökvanum saman við ásamt tómötum og tómatpurre og kryddið. Hrærið vel saman og látið malla við vægan hita í 30 mín. Á meðan er mjólkursósan löguð. Og pastað soðið í 5 mín og skolað úr köldu vatni. Smyrjið eldfast mót setjið pastað í botninn því næst hakkblöndu, hellið mjólkursósunni yfir og stráið rifna ostinum yfir. Bakið í 20-30 mín við 200°C. Berið fram með brauði og grófu salati. ATH. Það má líka nota lasagneblöð og setja hakkblöndu og mjólkursósu í lögum á milli lagsagneblaða.
|
|
|||
Kalt pastasalat með rækjum
500 gr rækjur 6 dl soðið pasta (slaufur eða skrúfur) 4 sneiðar ananas saxaður 1 blaðlaukur saxaður (lítill) 1 paprika söxuð 6 msk söxuð vínber 2 msk steinselja söxuð 60 gr valhnetukjarnar 3 tegundir ostur skorinn í teninga Icebergsalat rifið Sósa: 1 dl majonese örlítið karrí 3 msk sítrónusafi 1 stk hvítlauksrif saxað ½ dl ólífuolía öllu blandað saman.
|
|
|||
Torrelini
1 poki torrelini, past með kjötfyllingu 200 gr sveppir 2 stk paprika 1 dós ananas 200 gr skinka 1 stk púrrulaukur 2 stk piparostur Pasta soðið eftir leiðbeiningum á pakka. Sveppir, paprika, ananas, púrrulaukur og skinka steikt á pönnu. Piparosturinn bræddur í stórum potti og rjóma bætt saman við, þegar sósan er til er öllu blandað saman og borið fram.
|
|
|||
Spaghetti Carabonara
500 gr spaghetti 5 stk egg 1 dl rjómi salt og svartur pipar úr kvörn 1-2 msk olífuolía 25 gr smjör 200 gr beikon skorið í teninga 100 gr parmeseanostur Þeytið egg og rjóma saman ásamt ögn af salti. Hitið smjör og olíu í stórum potti. Setjið beikonið út í pottinn og látið malla við vægan hita þar til fitan er orðin glær. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakkanum, látið renna af því og setjið í pottinn með beikoninu hrærið vel saman, takið pottinn af hitanum og hrærið eggjablöndunni saman við ásamt dálitlu af ostinum. Eggin hlaupa við hitann af pastanu svo að það þarf að vera handfljótur. Hrærið þar til hver ræma af pastanu er þakin þykkri gulri sósu. Bætið nú afganginum af ostinum saman við og piprið eftir smekk.
|
|
|||
Spaghetti Bolognese
600 gr nautahakk 2 stk laukur saxaður 2 stk hvítlauksgeirar pressaðir eða fíntsaxaðir 3 msk olía eða smjör 1 stk gulrót hökkuð eða fíntsöxuð 1 stk sellerí fíntsaxað eða hakkað 500 gr dósatómatar með safa, grófsaxaðir 2-3 dl kjötsoð salt, pipar, timian, oregano og steinselja. Kraumið lauk og hvítlauk í olíu eða smjöri smástund ásamt kjöthakkinu. Kjötið á að brúnast og losna vel í sundur. Bætið grænmeti, tómötum og kjötsoði saman við. Kryddið hæfilega og látið sjóða loklaust þar til sósan fer að þykkna. Hrærið af og til í sósunni.
|
|
|||
Lasagne með kotasælu
12 stk lasagneplötur 3 stk laukur saxaður 2 stk hvítlauksgeirar pressaðir eða fínsaxaðir 1 msk matarolía 500 gr dósatómatar ½ dl tómatmauk salt, pipar, oregano, timian, basilkum. 3-400 gr kotasæla 100 gr rifin ostur Kraumið lauk og hvítlauk í olíunni smá stund. Bætið tómötum og tómatmauki saman við og kryddið hæfilega, sjóðið í 10 mín. Takið af hitanum og hrærið kotasælunni saman við. Leggið lasagneplöturnar og sósu í lögum í eldfast mót. Stráið osti yfir hvert lag. ATH. Lagsangeplöturnar eiga að vera neðstar síðan þykkt lag af sósu með rifnum osti. Bakið í 20-25 mín við 200-225°C.
|
|
|||
Pizza
2 ½ dl vatn 30 gr pressuger eða 1 msk þurrger 2 msk matarolía 6 dl hveiti 1 tsk salt
Ef notað er pressuger er það hrært út í volgu vatni (37°C) eða stráið þurrgerinu yfir vökvann og látið bíða í nokkrar mín. Hrærið matarolíu, hveiti og salti saman við og hnoðið deigið þar til það er sprungulaust og gljáandi. Fletjið deigið út á bökunarplötu í eina stóra eða átta litlar kökur, jafnið tómatsósunni yfir og setjið fyllingu á ásamt osti. Látið pizzuna lyfta sér í 10-15 mín, bakið við 200°C í 15-20 mín.
Tómatsósa á pizzur: 1 lítil dós tómatpurre 1 msk oregano 1 msk timian 1 msk basil 1 msk merjam 1 tsk sykur 2-3 msk vatn
Allt sett í pott og hitað, kælið aðeins áður en smurt er á pizzuna.
Fylling á pizzur: 1 200 gr skinka skorin í bita Smyrjið tómatsósunni á pizzuna setið síðan 200 gr ananasbitar skinkukurlið, ananasinn og aspasinn yfir ½ ds aspas og að lokum ostinn. 3-400 gr rifinn ostur Fylling á pizzur: 2 400 gr hakkað nautakjöt Steikið hakkið og brúnið laukinn í olíunni. 2-3 laukar Kryddið með salti og pipar saxið laukinn 200 gr speppir steikið með. Jafnið fyllingunni á pizzuna 1-2 paprikur setjið papriku og sveppi yfir ásamt osti. 3 msk matarolía 2-300 gr rifinn ostur Fylling á pizzur: 3 200 gr pepperoni Smyrjið tómatsósunni á pizzuna og jafnið 200 gr sveppir fyllingunni yfir stráið ostinum yfir í lokin. 1-2 paprikur 10-12 ólífur sólþurrkaðir tómatar 2-300 gr rifinn ostur
|
|
|||
|
fyrir sex.
2½ dl rjómi 3 eggjarauður 50 gr flórsykur ½ tsk vanilludropar 250 gr bláberjaskyr 75 gr bláber, ný eða niðursoðin safi úr ½ sítrjónu Þeytið rjómann létt. Þeytið saman eggja-rauður og flórsykur þar til það er létt og stíft. Blandið vanilludropunum saman við. Hrærið síðan rjómann og eggja- blönduna út í skyrið. Bætið við bláberjum og sítrónusafa. Setjið ísblönduna í sykri stráð mót, eitt stórt eða sex minni. Frystið ísinn. Losið ísinn úr mótinu og berið hann fram með þeyttum rjóma og bláberjum.
|
|
|||
Skinku- og blaðlauksbaka
|
|
|||
Sinnep-limesósa1 ds. sýrður rjómi 1 msk. hunang 1 msk. Dijon sinnep safi úr ½ - 1 lime
Öllu hrært vel saman og kælt.
|
|
|||
Sesar-salatmeð steiktum risarækjumFyrir 6
½ stk meðalstór haus jöklasalat 18 stk risarækjur, hráar 2 dl brauðteningar 2 msk olía salt og pipar 1 stk rauð paprika í teningum
Salatsósa: 2 stk ansjósuflök 4 stk fersk basillauf 1msk kapers 1 tsk dijon sinnep ½ tsk salt 1msk balsamedik 1 stk hvítlauksgeiri 1 msk rifinn parmesanostur 1 dl ólífuolía 1 stk eggjarauða
Rífið salatið niður, skolið og skiptið á sex forréttadiska. Steikið rækjurnar í olíunni á pönnu, kryddið með salti og pipar. Leggið rækjurnar á salatið og stráið brauðteningum yfir. Hellið síðan sósunni yfir og stráið papriku- teningunum yfir allt saman.
Salatsósan: Allt er maukað saman í matvinnsluvél. Olíunni er að síðustu bætt varlega út í maukið.
Brauðteningar: Skerið skorpulausar brauðsneiðar í litla teninga, steikið þá síðan í hvítlaukssmjöri á meðalheitri pönnu og veltið vel þannig að allar hliðar brúnist. Sett á eldhúspappír og látið þorna.
|
|
|||
|
Hráefni:
1 stk. púðursykur marengs Leiðbeiningar:
Leggið makkarónukökurnar í skálina heilar eða brotnar, hellið víni yfir (má líka vera ávaxtasafi).
|
|
|||
Saumaklúbbsréttur
1.pk. Golden hrísgrjón frá Batchelors
|
|
|||
|
4 appelsínur 1 dl vatn 3-4 msk sykur Börkur af einni appelsínu Börkur af einni sítrónu Grand Marnier líkjör (appelsínu þykkni) Vatn,sykur og börkur settur í pott og Grand Marnier hitað. Appelsínubátar skornir innan úr appelsínunum og settir út í pottinn. Skerið kökuna í sneiðar setjið á disk ásamt appelsínusalati og rjómatopp.
|
|
|||
|
Brauðsúpa með þeyttum rjóma Sígild
200 g seytt rúgbrauð 4 dl vatn 1 flaska pilsner börkur af 1 sítrónu 1/2 - 1 dl maltöl sykur eftir smekk
1. skerið rúgbrauðið í litla bita og leggið í bleyti í vatninu í einn sólarhring 2. setjið rúgbrauðið í pott ásamt rifnum sítrónuberki og pilsner. sjóðið vel í um hálftíma 3. hellið súpunni í gegnum sigti og aftur í pottinn 4. hitið og bragðbætið súpuna með sykri og maltöli
|
|
|||
|
Rjómalöguð súpa með heilum blómkálsbitum
1 blómkálshöfuð 6-700g 1 1/4 vatn salt pipar 75 g smjör 3 eggjarauður kjötkraftur 1 dl rjómi ljós sósujafnari (ef vill)
1. Skolið blómkálið í köldu vatni og rífið í bita. sjóðið í saltvatni þar til blómkálið er meyrt(um 8-10 min) Takið frá sex til átta fallega bita 2. merjið blómkálið í gegnum sigti ofan í grænmetissoðið bætið síðan smjöri, rjóma og kjötkrafti út í soðið jafnið súpuna með ljósum sósujafnara ef vill 3. setjið eggjarauðurnar í skál og hrærið saman með örlitlu salti 4. hleypið upp góðri suðu á súpunni, bætið nokkrum matskeiðum af henni út i eggjahræruna takið súpuna af hellunni og hellið síðan eggjahrærunni út í athugið að súpan má ekki sjóða eftir að egjjarauðum hefur verið bætt við, því þær halupa við of mikinn hita 5. setjið heilu blómkálsbitana oný súpuna
gott er að setja eitt lárviðarlauf í suðuvatnið til að minnka römmu lktina af blómkálinu.
berið fram með grófu brauði, ristuðum brauðteningum, ristuðu beikoni eða fínsaxaðri steinselju.
|
|
|||
Rjómarönd½ l rjómi 2 eggjarauður 2 egg 70 gr sykur 5 blöð matarlím (minna eða meira eftir smekk) ½ ds jarðarber eða aðrir niðursoðnir ávextir rifið súkkulaði eftir smekk Rjóminn þeyttur (ekki stífþeyttur). Matarlímið sett í bleyti í 5-10 mín. Vökvinn af ávöxtunum soðinn niður svo verði 1 dl. Sykurinn settur út í vökvann. Eggin og eggjarauðurnar stífþeyttar í heitri hrærivélarskál, 2 msk af heita vökvanum bætt út í og hrært áfram. Matarlímið kreist og sett út í heitan vökvann, ef hann er of heitur má kæla hann með maukuðum ávöxtum. Eggin og rjóminn eru hrærð saman með sleikju, afganginum af ávöxtunum, rifnu súkkulaði og matarlími hrært saman við, sett í skál og kælt.
|
|
|||
|
Fyrir: 4
Innihald. Bökunar kartöflur = 2 stk. (rifnar í rifjárni og steiktar jafn óðum) Ólífuolía = 1/2 dl. Salt og pipar.
Aðferð. 1. Kartöflurna rifnar í rifjárni og steiktar í olíu í mátulegum lummum, skammtað með matskeið og flattar úr á pönnunni.
2. Kartöflurnar steiktar gullin brúnar og kryddaðar með salti og pipar.
3. þegar búið er að steikja kartöflurnar á pönnu eru þær settar í ofn og bakaðar þar á ca. 150 °C. í nokkrar mín.
|
|
|||
Rifsberjasósa3 dl rifsberjahlaup 2 msk rifinn appelsínubörkur (ysta lagið) 1 msk rifinn sítrónubörkur (ysta lagið) 1 dl appelsínusafi 2 msk sítrónusafi 2 msk rauðvínsedik 1 dl púrtvín Blandið öllu í pott og sjóðið rólega í 3-4 mín og kælið.
|
|
|||
|
200 g majonés 4 tsk karrí 2 tsk edik 1 laukur (50 g ) 2 epli 1 dl rjómi 2 msk steinselja
1. rífið laukinn á rifjárni, fínsaxið eplin 2. blandið saman majonesi, karríi, ediki, lauk og epli 3. stífþeytið rjómann og blandið varlega saman við majonesblönduna 4. fínsaxið steinseljuna og bætið út í að lokum.
|
|
|||
|
1 laukur 1 msk matarolía 2 dl rauðvín 2 1/2 dl rjómi 1 kjötteningur (1 fiskteningur) sl. ef sósan á ekki að vera með fiski salt og pipar
Saxið laukinn og léttsteikið í matarolíu. Hellið rauðvíni saman við og sjóðið saman. Kryddið með kjöt- og fiskteningum, salti og pipar. Sigtið sósuna og bætið rjóma út í.
|
|
|||
|
Fyrir: 6-8 pers.
Innihald. Sýrður rjómi: 200 gr. Rauðrófur: 4 stk. (meðal stórar) Vatn: 1, 5 líter. Epli: 1 stk. (jonagold) Gulrót: 1 stk. (meðalstór) Kartafla: 1 stk. (meðalstór) Laukur: 1 stk. (meðalstór) Mysa: 1 dl. Grænmetiskraftur: eftir smekk. Salt og svartur pipar: eftir semkk. Olía til steikingar
Aðferð. 1. Flysjið grænmetið, skerið í teninga og snöggsteikið í vel heitri olíu í potti. Hellið vatninu út í og sjóðið í 30 – 40 mínútur.
2. Maukið grænmetið í matvinnsluvél. Bragðbætið með mysu, pipar, grænmetiskrafti og örlitlu salti.
Borin fram með 1 msk af sýrðum rjóma sem settur er á miðjan diskinn og stráið saxaðri ferskri steinselju yfir.
|
|
|||
|
Ratatuille. Fyrir 4-6.
Eggaldin = 1 stk. Skotið í kubba eða í báta. Súkkini = 1 stk. -“- -“- -“- Gulur laukur = 1 stk. -“- -“- -“- Hvítlauksrif = 3-4 stk. Pressuð. Niðursoðnir tómatar = 200 gr. gróft skornir. Tómatsafi = 2 dl. Tómatpurré = 1 msk. Ólífuolía = 1 dl. Smjör = 1 msk. Steinselja = 1 msk. Fín söxuð. Salt og pipar
1. Olían er hituð í potti eða pönnu og eggaldin, súkkini og laukur steikt gullinbrúnt. 2. Tómatar, hvítlaukur, tómatsafi og tómatpurré bætt út og hrært í af og til á meðan að sýður rólega í pottinum í 3-4 mín. Smakkað til með salti, pipar og smjöri
|
|
|||
|
Botn 3 dl hveiti 120 gr smjör 2 msk mjólk 1 eggjarauða Fylling 3 sneiðar beikon 2 stk laukur 200 gr sveppir 150 gr rifinn ostur 3 stk egg 2 dl rjómi 50 gr smjör salt og pipar
Setjið hveitið á borð og myljið smjörið saman við, bætið eggjarauðu og mjólk saman við og hnoðið deigið þangað til það verður þjált. Pakkið því inn í plastfilmu og geymið í kæli um 60 mín. Fletjið deigið síðan út og setjið í bökunarform, þrýstið vel upp að köntunum, pikkið í botninn með gaffli, leggið smurða örk af álpappír yfir og bakið í 10-15 mín við 200°C. Takið álpappírinn af þegar búið er að baka. Saxið laukinn og sveppina og skerið beikonið í bita og steikið allt saman á pönnu og hellið yfir botninn. Hrærið saman rjóma, eggjum og rifna ostinum saman í skál og kryddið með salti og pipar. Hellið yfir botninn og bakið við 180°C í 35-40 mín. Berið fram volgt með salati.
|
|
|||
Piparrótar-rjómasósa
1 dós sýrður rjómi 1 msk piparrót safi úr hálfri sítrónu
Öllu hrært vel saman og kælt.
|
|
|||
|
Fyrir: ca. 30 pers.
Innihald. Ferskt basil = 100 gr. Fersk steinselja = 50 gr. Hvítlaukur = 25 gr. Smá-hnetur = 75 gr. (Pine nuts, án skeljar og í lagi að nota saltaðar) Parmesanostur = 125 gr. (ekki úr dós, heldur heilann ost) Ólífuolía = 150 ml. Salt og pipar = eftir smekk.
Aðferð. 1. Skolaðu basilið og steinseljuna, þerraðu síðan vel í þurrum klút. 2. Afhýddu hvítlaukinn og saxaðu gróflega. 3. Saxaðu steinseljuna og basilið frekar smátt. Rífðu parmesanostinn í rifjárni. 4. Maukaðu síðan steinseljuna, basilið, hvítlaukinn, ostinn og smáhneturnar í matvinnsluvél og helltu ólífuolíunni út í maukið smátt og smátt á meðan að vélinn gengur. 5. Sakkaðu til með salti og pipar eftir smekk.
ATH. nota má meira af olíunni en uppskriftinn gefur til kynna, til að fá maukið þynnra. Einnig má nota steinselju og basil til helminga eða 75 gr. af hvoru.
Þetta mauk passar mjög vel með gröfnu kjöti. Einnig er gott að bera maukið fram með góðu brauði, t.d. með rauðvíni og á undan mat. Þessi uppskrift passar einnig frábærlega til að fylla með Tortellini eða jafnvel að bera fram með soðnu pasta. Pestóið er sérstaklega gott með sultuðum engifer, en hann er hægt að kaupa í litlum krukkum í t.d. Nýkaup eða í Heilsuhúsinu. Þá er engiferinn maukaður í matvinnsluvél með hluta af sírópinu sem er í krukkunni. Einnig má blanda saman maukuðum eingifer og pestói en þá verður að þynna maukið örlítið með hvítvíni eða með vatni, annars verður maukið of þykkt og leðjulegt.
|
|
|||
Peru rétturBelle Helene½ bolli sykur 2 bollar vatn rifið hýði og safi úr 1 sítrónu 2 vanillustangir 6 perur vel þroskaðar
Sósa: 120 gr suðusúkkulaði ½ bolli rjómi 2 msk smjör 1 msk romm
|
|
|||
Pekanhnetubaka
Sætt bökudeig
250 gr hveiti 100 gr skorið í bita 50 gr sykur 1 egg
Setjið allt í matvinnsluvél og látið hana ganga í 1-2 mín, eða þangað til deigið er vel samlagað og e.t.v. farið að hnoðast saman í kúlu. Takið smábita og athugið hvernig deigið er, ef það er of blautt og klessist við hendurnar má bæta við svolitlu hveiti, ef það er þurrt og molnar má bæta við 1-2 msk. af köldu vatni. Hnoðið deigið í kúlu, kælið það e.t.v. í smá stund og fletjið það síðan þunnt út á hveitistráðu borði. Leggið það yfir bökunarform, helst lausbotna (einnig má nota springform), þrýstið því létt niður svo að það falli alveg að forminu og snyrtið deigbrúnina með hníf. Ef hún er mjög þykk er gott að skera hana ekki, heldur brjóta hana inn á við þannig að brotið nemi við efri kantinn á forminu og deigkanturinn verði tvöfaldur að þykkt. Einfaldara getur það ekki verið. Best er svo að kæla bökuskelina vel. Breiðið yfir hana plast og setjið hana í ísskáp í a.m.k. hálftíma. Hitið þá ofninn, takið bökuskelina úr kæli og pikkið botninn með gaffli.
Fylling
80 gr smör 1½ dl kornsíróp eða 1 dl ljóst síróp og ½ dl hlynsíróp 1 tsk sítrónusafi 1 tsk vanilluessens 125 gr púðursykur 3 egg 80 gr smjör 125-150 gr pekanhnetukjarnar
Hitið ofninnn í 180°C. Setjið farg í bökuskelina og bakið hana í um 12 mín. en fjarlægið þá fargið og bakið áfram í um 5 mín. Setjið á meðan smjör og síróp í pott og hitið þar til smjörið er bráðið. Hrærið sítrónusafa og vanilluessens saman við og takið af hitanum. Þeytið púðursykur og egg saman í skál og hrærið sírópsblöndunni saman við. Hellið blöndunni í bökuskelina og raðið pekanhnetukjörnunum ofan á. Hækkið ofnhitann í 200°C. Setjið bökuna í ofninn og bakið í um 25 mín., eða þar til fyllingin er farin að stífna en dúar enn töluvert í miðju. Ef barmarnir á bökuskelinni virðast ætla að dökkna um of má hlífa þeim með álpappír. Látið kökuna kólna og berið hana fram við stofuhita, gjarnan með vanilluís.
|
|
|||
|
PASTASALLAT. ÆÐISLEGT
|
|
|||
Pasta- og grænmetissúpaStutt lýsing: Ótrúlega einföld og góð súpa. Tekur u.þ.b. 20 mínútur að útbúa Efni: 1 líter vatn Meðhöndlun: Sjóðið vatnið og setjið grænmetiskraftinn í vatnið rétt áður en það byrjar að sjóða. Bíðið þangað til grænmetiskrafturinn er búninn að leysast upp og hellið þá grænmetinu og pastanum út í. Látið sjóða undir loki þangað til pastað er tilbúið.
|
|
|||
Ólívu ostakúlur 1 til 3
Ólívu ostakúlur 1(c.a. 24 stk)2 1/2 dl rifinn Gouda ostur (sterkur) 60 gr smjör 1/4 tsk Worchesterhire sósa 2 dl hveiti 1 krukka grænar ólífur Blanda saman osti, smjöri, sósu og hveiti - hnoðað. Þerra ólífurnar vel Fletja út ca. 1tsk af deigi út í lófanum, setja 1 ólífu inni og búin til kúla (deigið utanum ólífuna) Setja bökunarpappír á ofnplötu og raða kúlunum á. Bakað við 200° C hita í ca. 15 mín.eða þar til þær eru gullinbrúnar. Ostakúlurnar er gott að frysta og hita síðan í ofni áður en þær eru bornar fram. Mjög gott sem smáréttur, td. með bjór.
Ólífu ostakúlur 2 (úr Ostalyst - 30-36 stykki) 350 gr bragðmikill ostur, rifinn 300 gr hveiti 1/2- 1 tsk rauðar piparflögur 1 tsk hvítlaukssalt 300 gr smjör 1 tsk. worchestershire sósa 30 - 36 grænar fylltar ólífur Blandið saman osti, hveiti og kryddi. Blandið smjörinu saman við og hnoðið vel saman. Setjið deig utanum hverja ólífu og mótið kúlu. Raðið á plötu klædda bökunarpappír. Bakið vði 200°C í u.þ.b. 10 mín Berið fram volgt Hægt að búa til með fyrirvara og hita upp áður en borið fram.
Ólívu ostakúlur 3 (úr Ostalyst - 30-36 stykki) 350 gr bragðmikill ostur, rifinn 300 gr hveiti 1/2- 1 tsk rauðar piparflögur 1 tsk hvítlaukssalt 300 gr smjör 1 tsk. worchestershire sósa 30 - 36 grænar fylltar ólífur Blandið saman osti, hveiti og kryddi. Blandið smjörinu saman við og hnoðið vel saman. Setjið deig utanum hverja ólífu og mótið kúlu. Raðið á plötu klædda bökunarpappír. Bakið vði 200°C í u.þ.b. 10 mín Berið fram volgt Hægt að búa til með fyrirvara og hita upp áður en borið fram.
|
|
|||
|
Fyrir 4-6
250 gr kínverskar eggjanúðlur vatn og kjúklingateningur 1 ham og beinlaus kjúklingabringa 1 msk olía 1-2 hvítlauksgeirar, pressaðir 1 lítil dós bambussprotar 6 kínverskir sveppir, útvatnaðir og skornir í sneiðar 150 gr grænmetsstrimlar, s,s sellerí blaðlaukur, snjóbaunir eða annað 1 dl kjúklingakraftur(teningur og vatn) 1 tsk maizenamjöl, hrært út í 2 msk af vatni 150 gr rækjur 50 gr kasíuhnetur (má sleppa) sojasósa og fimmkryddaduft (five spice powder) eftir smekk Sjóðið núðlunar í vatninu sem bragðbætt hefur verið með kjúklingateningi, Skerið kjúklingabringuna í strimla, hitið olíuna á wok pönnu eða annarri djúpri pönnu og snöggsteikið kjúklingabitana. Bætið hvítlauknum, bambussprotunum, sveppunum og grænmetisstrimlunum saman við og steikið í 5 mínútur. Lækkið hitann og hellið kjúklingakraftinum saman við . Látið suðuna koma upp, bætið maizenamjölinu út í og hrærið. Setjið rækjurnar og hneturnar út í og bragðbætið með kryddinu og sojasósunni eftir smekk.
|
|
|||
|
Mjög ódýrt og saðsamt
1 Núðlupakki (3 mín. núðlur)
Sjóðið núðlurnar í 3 mín. sigtið.
|
|
|||
|
Núðluréttur frá Tælandi
Núðlur soðnar í (1 ½) mínútur í miklu saltvatni. Vatninu strax hellt af og núðlurnar settar í kallt vatn á meðan og látnar vera þar þar til maður steikir þær.
|
|
|||
|
Góður, hollur og fljótlegur réttur, fyrir alla, konur og karla og krakka með!
|
|
|||
|
|
|
|||
Hasselback-kartöflur
800 gr kartöflur (stórar) eða 1 stór kartafla á mann 2-3 msk þurr brauðmylsna 50 gr smjör pamesanostur salt Kartöflurnar eru afhýddar, skornar í tvennt eftir endilöngu og djúpar skorur gerðar í kúptu hliðina með 2-3 mm millibili, kartöflunum raðað í smurt eldfast fat þannig að skurðirnir snúi upp, saltinu og brauðraspinu stráð yfir og smjörinu dreift yfir að lokum. Kartöflurnar bakaðar í 225°C heitum ofni í 30-40 mín. þegar 20 mín eru liðnar af bökunartímanum er ostinum dreift yfir og kartöflurnar bakaðar áfram.
|
|
|||
Pilaw hrísgrjón
3 msk smjör 3 msk fíntsaxaður laukur 200 gr löng hrísgrjón 4 dl kjötsoð eða vatn 3 msk salat olía salt
Hitið pott og þar .i laukinn í smjörinu þar til hann verður glær, bætið þá hrísgrjónunum saman við og hrærið þar til þau hafa drukkið smjörið í sig. Hellið kjötsoðinu í pottinn, látið suðuna koma upp, hrærið í pottinum, setjið lok á og sjóðið við vægan hita í 20 mín. Hrærið smjöri saman við grjónin þegar þau eru soðin og kryddið með salti. ATH. Gott er að bæta rifnum osti saman við grjónin til tilbreytingar.
|
|
|||
Suðrænt salat
1 haus lambhagasalat 1 haus eikarlaufasalat 2-3 stk tómatar 1 græn paprika 150 gr fetaostur
Hreinsið salatið og rífið niður, tómatarnir eru skornir í báta og paprikan í strimla öllu grænmetinu blandað saman og að lokum er fetaostinum blandað saman við. Borið fram með grófu brauði.
|
|
|||
Pönnusteiktir kartöflubátar
8-9 meðalstórar kartöflur 2-3 msk olía salt og pipar
Kartöflurnar eru þvegnar vel og þerraðar. Skornar í tvennt og síðan í báta, steiktar á heitri pönnu, passið að þær séu steiktar á öllum hliðum. Kryddaðar rétt áður en þær eru bornar fram.
|
|
|||
Ponn Önnu kartöflur
6-800 gr afhýddar kartöflur 1-2 hvítlauksgeiri pressaður 4 msk smjör nýmalaður pipar salt
Ofninn hitaður í 200°C. kartöflurnar skornar í 1mm þykkar sneiðar (má nota matvinnsluvél). Pressuðum hvítlauksgeirum hrært saman við smjörið ásamt salti og pipar. Eldfast fat smurt með smjöri og kartöflunum raðað í formið í lögum. Smjöri dreypt hvert lag, sett í ofn og bakað í 40-50 mín.
|
|
|||
Rösty-kartöflur
6 stk. rifnar bökunarkartöflur matarolía til steikingar salt og pipar
Rifnar kartöflurnar eru mótaðar í mátulegar lummur og steiktar gullinbrúnar á pönnu, þrýst ofan á þær á meðan þær steikjast, kryddið kartöflurnar með salti og pipar. Setið kartöflurnar á ofnplötu og bakið áfram í 120°C heitum ofni í ca 30 mín. Gott er að setja fyllingu ofan á kartöflurnar.
Fylling: 2 bakaðar kartöflur steinselja ½ dl rjómi sítrónusafi salt og pipar
Maukið kartöflurnar og blandið steinselju, rjóma, sítrónusafa, salti og pipar saman við í mixara. Sprautið fyllingunni ofan á steiktar kartöflurnar áður en þær fara inn í ofninn.
|
|
|||
Veislusalat
½ haus icebersalat 2 stilkar sellerí 300 gr græn vínber 2 græn epli 50 gr valhnetukjarnar 200 gr majonese 200 gr sýrður rjómi salt sítrónusafi eftir smekk
Hrærið saman majones og sýrðan rjóma, kryddið með salti og sítrónusafa. Rífið icebergsalatið frekar smátt, skerið vínberin í tvennt, saxið eplið, skerið selleríið frekar smátt og saxið valhnetukjarnana. Blandið öllu saman og kælið.
|
|
|||
Sveppir í smjördeigshúsi með hvítlauk
Smjördeig 6 dl rjómi 600 gr sveppir salt og pipar eitt egg hvítlaukssmurostur 3-4 hvítlauksrif 3 msk sherry 3 msk söxuð steinselja smjör til steikingar
Smjördeigið skorið í ferninga 7x7 cm. Sett á bökunarplötu og penslað með eggi, bakað við 180°C. sveppirnir hreinsaðir og skornir í fjóra helminga. Brúnið sveppina í smjörinu og bætið fínt söxuðum hvítlauk út í ásamt sherryinu og sjóðið niður. Bætið rjómanum ásamt rjómaosti saman við og sjóðið þar til hæfileg þykkt er komin, kryddið með salti og pipar ásamt saxaðri steinselju og fyllið smjördeigsferningana. Berið strax fram.
|
|
|||
Sveppir í smjördeigshúsi
Smjördeig 6 dl rjómi 600 gr sveppir 3 msk sherry salt og pipar eitt egg smjör til steikingar
Smjördeigið skorið í ferninga 7x7 cm. Sett á bökunarplötu og penslað með eggi, bakað við 180°C. Sveppirnir hreinsaðir og skornir í fjóra helminga. Brúnið sveppina í smjörinu sherryið sett út á og soðið niður, þá er rjómanum bætt út í og soðið þar til fer að þykkna. Kryddað með salti og pipar. Fyllið smjördeigsferningana og berið strax fram.
|
|
|||
Djúpsteiktir laukhringir
2 stórir laukar orlý-deig olía til steikingar hveiti
Orlýdeig 3 dl pilsner eða vatn 2 msk sykur 1 msk salt 1 tsk olía 1 eggjarauða hveiti 1 eggjahvíta
Pilsner (vatn) sykur, salt, olía og eggjarauða sett í skál og blandað saman, þykkt með hveiti. Blandan á að vera álíka þykk og pönnukökudeig. Blandan látin standa í 1 kls. Eggjahvítan stífþeytt og henni blandað saman við rétt fyrir steikingu. Áður en laukhringirnir eru steiktir er þeim velt upp úr hveiti og síðan upp úr orlýdeiginu. Gott er að nota kjötgaffal þegar hringirnir eru settir út í heita feitina.
|
|
|||
Ofnbakaður laukur
Stór laukur um ½ laukur á mann Álpappír
Lauknum pakkað inn í álpappír, hann bakaður í ca. 1 kls. í 200 °C heitum ofni. Þá er hann tekinn úr álpappírnum ysta lagið tekið utan af honum og hann borinn fram.
|
|
|||
Sykurgljáður laukur
2 stórir laukar eða 4 litlir 4-5 msk sykur 1-2 tsk smjör
laukurinn flysjaður og skorinn í 4 parta ystu lögin aftur í tvennt. Sykur og vatn sett í pott og hitað þar til sykurinn fer að leysast upp, þá er lauknum bætt út í. Þetta er soðið saman smá stund eða þar til laukurinn fer að mýkjast. Þá er laukurinn tekinn upp úr og sykurlögurinn soðinn niður þar til hann er orðinn að sírópi þá er smjörið sett út í ásamt lauknum og hann brúnaður.
|
|
|||
Mascarponebaka
10 heilhveitikexkökur (t.d. Haust) 75 gr smjör 75 gr sykur ½ vanillustöng 2 snickers stykki 250 gr mascarpone ostur 1 dós sýrður rjómi 36% ber eða ávextir til skreytingar
Hitið ofninn í 180°C. Myljið kexkökurnar fint, gjarnan í matvinnsluvél, og hrærið smjöri og 2 msk. af sykri saman við. Hellið blöndunni í bökuform eða kringlótt, eldfast mót og þrýstið henni niður á botninn og dálítið upp með börmunum. Setjið í ofninn og bakið 8-10 mín., eða þar til bökuskelin er svolítið byrjuð að taka lit en ekki farin að brenna. Takið hana þá út og látið hana kólna vel. Skerið vanillustöngina í litla bita, setjið í matvinnsluvél eða blandara, ásamt afganginum af sykrinum, og látið ganga þar til vanillustöngin er fínmöluð. Skerið Snickers stykkin í þunnar sneiðar og dreifið þeim á botninn á bökunni. Hrærið saman mascarpone ost, sýrðan rjóma og vanillusykur og dreifið yfir Snickers bitana. Skreytið með berjum eða ávöxtum, t.d. bláberjum, jarðaberjum, nektarínubátum, kívísneiðum eða öðru. Kælið vel.
|
|
|||
|
||||
Kjúklinga súpa
Fyrir 4-6
250 gr bein- og hamlaus kjúklingabringa 4 kínverskir, þurrkaðir sveppir 2 msk sérrí 1,5 l grænmetiskraftur ½ sellerístilkur, skorinn í þunnar sneiðar 1 gulrót skorin í mjóar lengjur 1 tsk maizenamjöl, hrært úr í 1 msk af vatni 1 msk söxuð kóriander lauf, vorlaukur eða graslaukur
Skerið kjúklingabringuna í mjóar ræmur og hellið sjóðandi vatni yfir þær. Látið standa í 2-3 mínútur, hellið þá vatninu af og endurtakið (þetta er gert til að fjarlægja alla fitu sem kann að leynast á kjúklingabringunum. Leggið sveppina í bleyti í 20 mínútur, sigtið vatnið frá og skerið þá í sneiðar eða bita. Dreypið sérríinu yfir sveppina og látið standa. Látið suðuna koma upp á grænmetiskraftinum og setjið sveppina, selleríið og gulrótina. Látið krauma í 5 mínútur. Hrærið maizenablöndunni varlega út í á meðan súpan síður. Setjið súpuna á diska og stráið kóríander eða öðru yfir.
|
|
|||
Kartöflusúpa
1,5 kg. Mjölmiklar Kartöflurnar og blaðlaukurinn eru skorin kartöflur smátt og sett í mixara. Látið krauma í potti 2-3 blaðlaukar í smjörinu í 10 mín, kjötsoði og kryddi bætt kryddpoki með út í og soðið þar til kartöflurnar og laukurinn lárviðarlaufi og eru mauksoðið. Maukið með töfrasprota, nokkrum piparkornum rjóma og smjöri bætt út í. 2 ½ l kálfakjötsoð 2 ½ dl rjómi 100 gr smjör
|
|
|||
Kartöflustappa
750-1000 gr kartöflur 1-2 dl mjólk 2 msk smjör salt og pipar
Flysjið kartöflurnar og sjóðið í vatni eða gufuofni. Eða á hefðbundinn hátt en alltaf án salts. Þegar kartöflurnar eru soðnar eru þær marðar í gegnum sigti eða pressaðar í kartöflupressu. Hitið mjólkina með smjörinu og hrærið saman við kartöflurnar og kryddið í lokin.
|
|
|||
Kartöflusalat 1 og 2
Kartöflusalat 1 1 kg kaldar soðnar kartöflur 1 stk sellerí saxað 1 stk rauðlaukur skorinn í strimla 1 stk skalottulaukur saxaður 2 tsk karrí 3 tsk dijon sinnep 1 dós sýrður rjómi 100 gr majones salt og pipar 2 msk steinselja söxuð eða dill saxað 3 stk harðsoðin egg skorin í báta ef vill.
Hrærið saman majones og sýrðan rjóma, kryddið með sinnepi, karrí, salti og pipar. Blandið saman við rauðlauk, skalottulauk og steinselju. Skerið kartöflurnar í teninga og blandið saman við, rétt áður en salatið er borið fram er soðnu eggjunum bætt út í.
Kartöflusalat 21 kg kaldar soðnar kartöflur 1 stk rauðlaukur 1 stk laukur 1 búnt radísur 1 stk púrrulaukur ½ dl ólífuolía salt og nýmalaður pipar 1 msk dijon sinnep 10 ólífur skornar í sneiðar
Hrærið saman ólífuolíu, sinnep og kryddið með salti og pipar. Skerið radísurnar í sneiðar og púrrulaukinn í sneiðar, saxið lauk og rauðlauk. Blandið saman lauk, radísum og olíublöndu, skerið kartöflurnar í teninga og hellið olíublöndunni yfir kartöflurnar, látið salatið standa smá stund áður en það er borið fram.
|
|
|||
|
Kartöflugratein. Fyrir 4-6.
Bökunarkartöflur = 500 gr. Rjómi = ½ lit. Hvítlaukur = 3-4 rif. Pressaður. Salt og pipar
1. Afhýðið og sneiðið kartöflurnar í frekar þunnar sneiðar 2. Setjið kartöflurnar í pott og hellið rjómanum yfir, bætið í hvítlauk, salti og pipar, látið sjóða rólega þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar, hræra skal í af og til á meðan. 3. Kartöflurétturinn settur í eldfast mót og bakað við háan yfirhita þar til rétturinn hefur fengið gullinbrúnan lit.
|
|
|||
Kartöflubátar
4 stórar bökunarkartöflur 4 msk ólífuolía 4 msk smjör bráðið 2 tsk sjávarsalt ½ tsk nýmalaður pipar ½ tsk paprikuduft ½ tsk hvítlauksduft
Hitið bakarofn í 225°C. Skerið kartöflurnar eftir endilöngu í báta, það eiga að fást átta bátar úr hverri kartöflu. Blandið saman smjöri og ólífuolíu. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu og penslið pappírinn með smjörblöndunni, leggið kartöflubátana á ofnskúffuna og penslið þá með blöndunni, bakið kartöflurnar þar til þær eru fallega brúnar ca 10 mín. Blandið saman kryddinu og stráið því yfir kartöflurnar og bakið áfram í 15 mín. Berið fram strax.
|
|
|||
|
2 msk sykur 2 msk kakó 1 dl vatn 1 msk maísenamjöl eða 2 tsk kartöflumjöl ½ dl kalt vatn
hrærið sykur og kakó saman í potti, blandið vatni saman við og hitið að suðu. Hrærið mjólkinni saman við og hitið. Hrærið maísenamjölinu/kartöflumjölinu út í köldu vatni og jafnið súpuna. Bragðbæta má súpuna með Vanilludropum, salti og smjöri.
|
|
|||
|
1/2 l jógurt/súrmjólk/ab mjólk 1-2 hvítlauksrif salt jurtakrydd (má sleppa)
Í þessa sósu má nota hreina jógurt, súrmjólk eða ab mjólk. AB mjólkin og súrmjólkin eru ekki síðra hráefni, en mun ódýrari. Hellið 1/2 l af jógurt/súrmjólk/AB mjólk i kaffisíu eða grisju og látið ,,renna af henni" i 1-2 klukkutíma. Hellið mysunni (eða geymið í brauðbakstur) og hrærið upp í sósunni. Kryddið eftir smekk með smáræði af salti eða jurtasalti, hvítlauk og jurtakryddi, t.d. myndtu eða steinselju (má sleppa).
|
|
|||
Ítölsk grænmetissúpa (Minestra)
½ dl olía 100 gr beikon fínskorið 1 stk laukur 2 stk blaðlaukur (hvíti hlutinn) 1 stk stór gulrót 1 stk stór kartafla ¼ hluti seljurót 100 gr hvítkál 2 stk tómatar afhýddir, kjarnaðir og skornir 3 l kjötsoð 100 gr spakhetti eða hrísgrjón 1-2 hvítlauksgeirar
Beikonið er látið krauma í olíunni ásamt fínskornu grænmetinu, nema hvítlauk, þetta látið krauma smá stund. Kjötsoðinu hellt yfir ásamt spakhetti eða hrísgrjónum og súpan soðin við vægan hita þar til allt er meyrt. Ef hvítlaukur er notaður í súpuna er hann marinn eða pressaður og bætt í súpuna í lokin. ATH. það má nota allt mögulegt ferskt grænmeti í þessa súpu.
|
|
|||
Ítalskt rísottó
1 stk laukur saxaður 1 rauð paprika söxuð 1 græn paprika söxuð 125 gr sveppir sneiddir 1 lítið zucchini (grasker) sneitt 2 msk matarolía 5 dl löng hrísgrjón 1 l vatn 2 stk kjúklingateningar 2 dl frosnar grænar baunir salt og pipar 1 dl parmesanostur eða annar rifinn ostur
Saxið laukinn og paprikuna, sneiðið sveppina og zucchini. Hitið olíu í stórum potti eða pönnu og léttsteikið sveppina, takið þá frá. Bætið olíu á pönnuna og setjið ósoðin hrísgrjón og saxaðan lauk á pönnuna og hitið í tvær mín. Hellið vatninu á pönnuna yfir hrísgrjónin og myljið teningana út í, sjóðið undir loki í 15 mín. Bætið sveppum og grænum baunum, papriku og zucchini út í og sjóðið þar til grjónin hafa drukkið í sig allan vökvann. Kryddið eftir smekk og blandið ostinum saman við í lokin.
|
|
|||
Ísterta
Irish-Mist
Fyrir 6-8 Fyrir 12-16
½ l rjómi 1 l rjómi 4 egg 8 egg ¾ bolli sykur 1½ bolli sykur 50 gr gróft saxað súkkulaði 75 gr gróft saxað súkkulaði 200 gr makkarónukökur 400 gr makkarónukökur ½ dl Irish Mist. ½ - 1 dl Irish Mist
Þeytið rjómann og setjið í skál, geymið í ísskáp. Þeytið eggin með sykrinum og blandið varlega saman við rjómann. Myljið makkarónukökurnar og setjið helminginn af þeim á botninn á u.þ.b. 28 cm stóru formi. Blandið súkkulaðinu og líkjörnum saman við rjómablönduna og setjið helminginn af henni ofan á kökurnar á botninum. Dreifið afgangnum af makkarónukökunum ofan á og síðan afgangnum af rjómablöndunni. Sléttið með spaða eða hníf og frystið. Skreytið eftir smekk með þeyttum rjóma blönduðum nokkrum dropum af vanillu, kiwi-sneiðum, sultudropum, súkkulaðikringlum og karamellubráð.
|
|
|||
Innbakað grísapaté með skinkubitum
Deig: 450 gr hveiti 225 gr smjör 1 tsk salt 1 egg 5 msk volgt vatn Fars: lagað á sama hátt og grunndeig villibráðarpaté nema notað 1 kg grísahakk í staðinn fyrir villibráðarhakk. Blandið öllu saman nema vatninu og nuddið vel á milli handanna, bætið því næst vatninu smátt og smátt út í deigið og hnoðið vel saman. Rúllið deiginu út með kökukefli þannig að það verði u.þ.b. 3-4 mm að þykkt. Klippið smjörpappír þannig til að hann passi sem klæðning innan í mótið sem baka á í. Leggið smjörpappírinn síðan ofan á deigið og skerið það jafnstórt smjörpappírnum, leggið síðan smjörpappírinn og deigið í formið þannig að smjörpappírinn snúi að forminu, fyllið formið með grísapaté og bakið við 220°C í 10 mín, lækkið þá hitann í 190°C og bakið áfram í 45 mín, eða þangað til kjöthitamælir sýnir 70°C. Skerið patéið í sneiðar og berið fram með salati og týtuberjasósu
|
|
|||
|
|
|||
|
Ferskju ídýfa
|
|
|||
|
Hvítlauksídýfa
|
|
|||
|
Stutt lýsing: Ómissandi fyrir hvítlauksaðdáendur. Efni: UPPSKRIFT FYRIR 4/8 Meðhöndlun: Hrærið saman sýrða rjóman, maionesið, sinnepið og sykurinn.
|
|
|||
|
1-2 hvítlaukar 1 lítill blaðlaukur vatn eða kjötsoð hvítlauksduft 2 ½ dl rjómi hunang soyasósa maisinamjöl og vatn til að jafna með Hvítlauksrifin eru tekin og skorin í tvennt þversum og brúnuð í sárinu. Blaðlaukurinn hreinsaður og skorinn, honum bætt saman við og aðeins brúnaður. Sett í pott og vatni eða kjötsoði bætt út í. Þetta er látið sjóða saman smá stund. ½ -1 tsk hvítlauksdufti bætt út í ásamt rjómanum og sósan jöfnuð. Bragðbætið í lokin með hunangi og soyasósu.
|
|
|||
Hvítkálajafningur
½-1 kg hvítkál 2 ½ dl soð eða vatn 2 ½ dl mjólk 30 gr smjör 30 gr hveiti salt og pipar kjötkraftur ef vill
Hvítkálið er skorið í strimla, soðið í soðinu í 2-3 mín mjólkinni bætt saman við og hitað að suðu. Jafnið með smjörbollu, kryddið jafninginn og berið fram. ATH. Gott er að nota soð af kjötinu sem jafningurinn er borinn fram með til að sjóða kálið í.
|
|
|||
|
175 g kjúklingabaunir 1-4 hvít auksgeirar 2-4 msk tahini safi úr 1/2-1 1/2 sítrónu cayenne pipar á hnífsoddi salt og pipar
tahini(sesamsmjör), eins er oft notað malað cummin.
Kjúklingabaunirnar lagaðr í bleyti og soðnar u.þ.b. 1 og 1/2 klst. Setjið baunirnar i matvinnsluvél með dálitlu af soðinu og maukið vel. Kryddið með hvítlauk, pipar, salti og sítrónu. Ef vill má nota cummin í staðinn fyrir sesamsmjör og einnig getur verið gott að bragðbæta með skvettu af sojasósu. Setjið í skál og skreytið með svörtum ólífum. Hummus er best við stofuhita.
|
|
|||
Hindberjasósa 1 og 2
Hindberjasósa 1 200 gr fersk eða frosin hindber 2-3 msk flórsykur
Hindberin eru maukuð í matvinnsluvél, sykrinum bætt saman við og maukað í létt og mjúkt purré. Sósan er borin fram með ís og jafnvel ferskum ávöxtum.
Hindberjasósa 2
200 gr hindber 50 gr sykur sítrónusafi
Allt sett í pott hitað að suðu og haldið þannig í nokkrar mín. Sett í fínt sigti og sigtað passið að pressa ekki berin.
|
|
|||
|
Innihald fyrir: 8-10 pers. Hindber = 200 gr. (fersk eða frosin) Flórsykur = 2-4 msk. (eftir smekk)
Aðferð: 1. Hindberin eru maukuð í matvinnsluvél og sykrinum bætt út. Maukað í mjúkt og létt purré.
2. Sósan er borin fram með hinum ýmsu ístegundum eða parfait, jafnvel með ferskum ávöxtum.
|
|
|||
|
250 gr sveppasmurostur
|
|
|||
|
1 dós Campell´s súpa sveppa
|
|
|||
|
1 stóri Dimon
|
|
|||
Heitt gráðostapie
200 gr hveiti 1 eggjarauða 100 gr smjör 2-3 msk kalt vatn ½ tsk salt Gráðostafylling4 stk laukur (ca.500 gr) 1 tsk timjan 30 gr smjör 200 gr gráðostur salt og nýmalaður pipar Eggjahræra2 egg og 3 eggjarauður 3 dl rjómi 1 dl mjólk rifinn ostur
Myljið saman smjör og hveiti og hnoðið vel. Blandið eggjarauðu og salti saman við og hnoðið. Blandið vatninu saman við litlu í einu, þar sem ekki er víst að nota þurfi það allt.Látið deigið standa í kæli í 30-60 mín. Skerið laukinn í þunnar sneiðar. Bræðið smjörið og látið laukinn krauma í því án þess að brúnast og kryddið með salti pipar og timjan. Setjið lok á pönnuna og látið laukinn krauma í u.þ.b. 30 mín, hrærið í öðru hverju. Myljið ostinn og setjið á pönnuna, hrærið í þangað til hann bráðnar. Hitið ofninn í 225°C. Fletjið deigið út og setjið í eldfast fat, látið deigið ná alveg upp á brúnir fatsins, stingið með gaffli í deigið í botninum, látið mótið í kæli í 10 mín. Bakið piskelina í 12-15 mín. Takið hana úr ofninum og kælið áður en fyllingin er sett í. Þeytið egg, eggjarauður, mjólk, rjóma og rifna ostinn, kryddið með salti og pipar. Setjið gráðostafyllinguna í skelina og hellið ¾ af eggjahrærunni yfir, bakið í 15 mín, hellið nú því sem eftir er af eggjahrærunni yfir og bakið áfram í 10 mín, fyllingin rís í ofninum en fellur aðeins þegar hún er tekin út úr honum. Berið fram með grænu salati.
|
|
|||
|
50 gr smjörlíki 2 saxaðir laukar 2 saxaðar gulrætur 2 saxaðar beikonsneiðar hveiti 1 ½ l vatn 250 gr tómatpurre pipar timian basilkum 3-4 hvítlauksgeirar sojasósa 2-3 msk sykur kjötkraftur Smjörlíkið látið í pott og brætt við vægan hita. Grænmetið og beikonið svissað í smá tíma, hveitinu hrært út í svo verði úr smjörbolla. Vatninu bætt út í og hrært vel saman. Vatnið verður að vera 80°C heitt. Tómatpurre bætt saman við og soðið í 40-60 mín. Kryddað á meðan. Sigtið sósuna og berið fram.
|
|
|||
Heit Ostaveisla
Einfaldur og góður saumaklúbbsréttur
Efni:
Aðferð
|
|
|||
Hátíðar triffli
með jarðarberjum Fyrir 4
10 makkarónukökur 1. Myljið makkarónukökur og setjið í eina 6 msk portvín, sérrí, appelsínusafi stóra skál eða fjórar litlar. Hellið víni eða eða jarðaberjasafi safa yfir. hálfdós niðursoðin jarðarber 2. Dreifið berjunum yfir makkarónurnar.
Krem: 3. Þeytið saman eggjarauðu, sykur og2 eggjarauður vanillusykur þar til blandan verður létt 1-2 msk sykur og ljós 1-2 tsk vanillusykur 4. Stífþeytið rjómann og blandið honum 2 ½ dl rjómi saman við eggjarauðurnar.
Tilllaga að skrauti: 5. Setjið kremið ofan á botninn rétt áður en Rifið súkkulaði trifflið er borið fram. Skreytið með þeyttum Ferskir ávextir rjóma, söxuðu súkkulaði eða ferskum ávöxtum.
|
|
|||
Grænmetisbaka
Botn: 1 dl haframjöl 2 dl hveiti 100 gr smjörlíki 100 gr skyr 2 msk kalt vatn Grænmeti: 250 gr spergilkál 250 gr blómkál 50 gr sveppir 1 lítil græn paprika 1 lítil rauð paprika olía til steikingar Sósa: 2 stk egg 2 ½ dl rjómi 4 dl rifinn ostur Blandið saman haframjöli og hveiti, brytjið smjörlíkið út í, hrærið sykri saman við og vætið í með vatni. Hrærið vel saman og geymið deigið í ísskáp í 30-40 mín. Sjóðið spergilkál og blómkál í léttsöltu vatni í 10 mín. Sneiðið sveppina og skerið paprikurnar í bita, léttsteikið sveppi og paprikur í olíu. Fletjið deigið út og setjið í eldfast mót, sem er um 25-28 cm í þvermál, raðið grænmetinu ofan á deigskelina. Þeytið saman egg og rjóma, blandið rifna ostinum saman við, hellið blöndunni yfir grænmetið. Bakið við 180-200°C í 30 mín og berið fram.
|
|
|||
|
Fyrir 6-8 manns.
Innihald: Graslaukur: 10 gr. Steinselja: 20 gr. Ferskt basil: 5 gr. Ferskur kervill: 5 gr. Ferskt tarragon: 10 gr. gulur laukur: 70 gr. (fínt saxaður) Kryddedik: 100 ml. Ólífuolía: 200 ml. Salt og pipar: eftir smekk.
Aðferð: 1. Allar kryddjurtir eru skolaðar í köldu vatni og grófsaxaðar. 2. Allt hráefnið er sett í matvinnsluvél og blandað í nokkrar sek. 3. Kryddað til eftir smekk.
|
|
|||
Grísk spínatbaka.
Fyrir 6-8 manns.
Deig. Hveiti: 300 gr. Heilhveiti: 150 gr. Ferskt ger: 25 gr. (þurrger = 4 gr.) Volgt varn: 200 ml. Egg: 1 stk. Ólífuolía: 4 msk. Salt: 1 tsk.
Fylling. Ferskt spínat: 1 kg. Ólífuolía: 1 dl. Gulur laukur: 2 stk. (fíntsaxaður) Hvítlaukur: 1-2 rif. (maukaður) Pipar: á milli fingra. Múskat: á milli fingra. Ferskt dill: 2 kvistir. (fínt söxuð) Fetaostur: 300 gr. Eggjarauða: 1 stk. (til að pensla yfir brauðið) Bökunarform: 1 stk. ca. 30 cm. í þvermál og ca. 4 cm. djúpt. (paiform úr eldföstum leir)
Aðferð: 1. Blandaðu vandlega saman hveitinu og heilhveitinu og gerinu. Blandaðu vatninu út í og hnoðaðu deigið saman og láttu það standa í 10 mín. 2. Bættu síðan egginu, ólífuolíunni og saltinu saman við hveitiblönduna, hnoðaðu deigið saman þar til það er orðið mjúkt. 3. Hreinsaðu stilkinn frá spínatinu, skolaðu spínatið, þerraðu og saxaðu það niður frekar gróft. 4. Hitaðu pönnu með olíu. Kraumaðu laukinn í olíunni, bættu hvítlauknum út í og að síðustu spínatinu. Gufusteiktu blönduna í nokkrar mínútur eða þar til spínatið er orðið vel mjúkt. Saltaðu varlega því osturinn getur verið vel saltur. Kryddaðu með múskati og pipar. 5. Hrærðu saman við fetaostinum og láttu hann bráðna vel saman við spínatið. Að siðustu er dillinu bætt út í. 6. Rúllaðu 2/3 af deiginu út í ca. 1 cm. þykkt og leggðu deigið í formið. settu síðan kælda spínatblönduna yfir deigið. Passa verður að 1-2 cm. deigrönd sé auð. Deigröndin er pensluð með eggjarauðu. 7. Restinni af deiginu er rúllað út og lagt yfir formið með spínatinu. þrístu deigröndunum vel saman, skerðu burtu allt auka deig og pennslaðu deiglokið með eggjarauðu. það sem eftir er af deiginu má nota til þess að skreyta með. 8. Í miðju deigsins er gert gat til þess að gufa sem kemur frá fyllingunni sleppi út og bleiti ekki deigið. Látið bökuna standa í 15-20 mín. áður en hún er bökuð. 9. Bakan er bökuð við 170 °C. í 40 mín.
|
|
|||
Gratinerað grænmeti
1 góður blómkálshaus 500 gr broccolí 1 góður púrrulaukur 1 rauð paprika 500 gr forsoðnar gulrætur 50 gr smjör rifinn ostur
Grænmetið er þvegið og snyrt, skorið í hæfilega bita og raðað í eldfast mót, smjör og ostur sett yfir og gratinerað í ofni við 180-200°C.
|
|
|||
Graflaxsósa 1 og 2
200 gr majones 1 msk sinnep 2-3 msk sýrður rjómi 1-2 tsk dill 2 msk síróp salt og pipar eftir smekk Hrærið saman majonesi og sýrðum rjóma, blandið sinnepi, sírópi og dilli saman við. Kryddið eftir smekk. Graflaxsósa 2
250 gr majones 1 msk sinnep 1 msk hunang 1 tsk dill salt og pipar sósulitur ef vill 2-3 msk þeyttur rjómi Sama aðferð og að ofan.
|
|
|||
|
Fyrir: 8-10 pers.
Innihald. Kartöflur: 300 gr. (afhýddar og skornar í teninga) Gulur laukur: 1 stk. (smátt saxaður) Rjómi: 4 dl. Smjör: 100 gr. Vatn: 1,5 l. (eða eftir þörfum) Pipar: milli fingra. Salt: eftir smekk. Strásykur: 1 msk. Grænmetiskraftur: eftir smekk. Ferskt grænmeti: 300 gr. (hreinsað og smátt skorið) (má vera afskurður)
Hægt er að nota nánast hvaða grænmeti sem er t.d. gulrætur, sellerírót, spergilkál, gulrófur, aspas. Best er að nota frekar sterkjuríkt grænmeti eða grænmeti sem maukast auðveldlega við suðu.
Aðferð. 1. Kartöflur, laukur og grænmeti er sett í pott ásamt vatni. Látið skjóða í nokkrar mín. eða þar til grænmetið er orðið mjúkt.
2. Þá er grænmetið veitt upp úr pottinum og það maukað í matvinnsluvél og það marið í gegn um netsigti til þess að fá burt allar trefjar.
3. Grænmetið er síðan sett aftur í pottinn með vatninu, rjómanum bætt út í ásamt slati, pipar, sykri og grænmetiskrafti. Súpan er látin sjóða rólega í nokkrar mín.
4. Mjúku smjörinu er síðan bætt í súpuna smátt og smátt og hrært í á meðan, (montera). Súpan má ekki sjóða eftir að smjörið er komið í súpuna.
Súpan er síðan smökkuð til með salti, pipar og smjöri eftir smekk. Gott er að þynna súpuna með vatni eða rjóma ef hún er of þykk. Gott er að bera fram með súpunni nýbakað brauð og smjör.
|
|
|||
Grænmetishrísgrjón
3 dl löng hrísgrjón 8 dl vatn 2 msk olía salt og pipar 200 gr gulrætur ½ rauð paprika ½ græn paprika 1 lítill púrrulaukur olía til steikingar
Hrísgrjónin soðin í vatninu eftir leiðbeiningum á pakkanum, þegar suðan er komin upp er olíunni bætt út í suðuvatnið. Grænmetið er skorið smátt og létt steikt á pönnu. Ef mikið vatn er enn á hrísgrjónunum, þegar þau eru soðin er því hellt frá og grænmetinu bætt saman við grjónin, þau krydduð og látin standa smá stund. ATH. Í þennan rétt má líka nota maísbaunir og eða sveppi.
|
|
|||
Gamaldags trifli
12 makkarónukökur 4 msk hindberjasulta 4 msk sherrí (sætt) 450 gr niðursoðnar ferskjur
Vanillukrem: 2 egg 50 gr sykur 1 msk maísinamjöl ½ Vanillustöng 3 ½ dl mjólk skraut 2 dl þeyttur rjómi jarðarber
Brjótið makkarónukökurnar niður og setið í glerskál. Setjið hindberjasultuna yfir og bleytið í með sherríinu. Vanillukrem: Þeytið egg, sykur og maísinamjöl saman í þykkbotna potti, kljúfið Vanillustöngina, takið kornin úr og þeytið saman við eggjahræruna. Þeytið mjólkinni saman við og látið kremið sjóða, þeytið áfram og látið kremið sjóða í nokkrar mín. Takið pottinn af hellunni og kælið, hrærið af og til í kreminu svo ekki myndist skán. Skerið ferskjurnar niður og leggið yfir makkarónurnar, hellið kreminu því næst yfir og skreytið með þeyttum rjóma og jarðarberjum. A.T.H. í trifli má nota grand mariner í staðin fyrir sherrí og eplamauk eða jarðarber í staðin fyrir hindberjasultu.
|
|
|||
|
5 stórir tómatar 1 lauf gráðostur 100 gr 1 dl rjómi salt og pipar 2 msk smjör brauðmylsna tabaskósósa ef vill
Tómatarnir teknir skorinn í hýðið kross og þeim dýft í heitt vatn, hýðið fjarlægt, lok skorið á þá, þeir fræhreinsaðir og settir á steikingar plötu. Fyllingin löguð osturinn bræddur í rjómanum, brauðmylsnu og kryddi bætt saman við og tómatarnir fylltir, þeir settir í heitan ofn og hitaðir. Gott er að nota sveppi eða annað grænmeti í fyllta tómata.
|
|
|||
Fylltir sveppir
20 stórir sveppir 1 100 gr lauf gráðostur 1 dl rjómi
Sveppirnir þvegnir og leggurinn tekinn af þeim. Gráðosturinn hrærður út með rjómanum og sveppirnir fylltir með blöndunni. Þeir bakaðir við 200°C í ca 5 mín.
|
|
|||
|
6 stk bökunarkartöflur 2 stk vorlaukur ¼ agúrka ½ búnt dill 2 msk matarolía 3 msk sítrónusafi salt og pipar 125 gr rækjur 90 gr hrein jógúrt Bakið kartöflurnar í miðjum ofni í 60 mín við 200°C. Skerið agúrkuna eftir endilöngu og fjarlægið kjarnann með skeið. Skerið vorlauk og agúrku í litla bita eða þunnar sneiðar og klippið niður dillið. Blandið saman sítrónusafa, olíu og kryddi og hellið yfir rækjurnar og grænmetið. Skerið lok af kartöflunum þegar þær eru bakaðar og holið þær aðeins að innan með teskeið. Stappið jógúrtinni saman við ¾ hluta þess sem skafið var innan úr kartöflunum. Blandið því saman við grænmetið og rækjurnar, kryddið efir smekk, setjið fyllinguna í kartöflurnar og rétturinn er tilbúinn
|
|
|||
Fylltar kartöflur
5 stórar bökunarkartöflur 125 gr beikon ¼ laukur ½ blaðlaukur 150 gr sveppir 100 gr rifinn ostur ef vill Kartöflurnar þvegnar og bakaðar í 1 kls við 200°C. Þær teknar út úr ofninum og skorið ofan af þeim lok og þær holaðar að innan með skeið. Beikonið harðsteikt á pönnu, það tekið af pönnunni og laukur og blaðlaukur látnir malla í beikonfeitinni. Sveppunum fínt söxuðum bætt út á pönnuna og þeir brúnaðir í nokkrar mín. Ofninn hitaður í 230°C. Kartöflumaukið innan úr kartöflunum marið í gegn um sigti og blandað saman við beikonið, laukinn og sveppina, fyllingin sett ofna í kartöflurnar osti stráð yfir og þær bakaðar í ofni þar til osturinn er vel bráðinn.
|
|
|||
|
6 stk bökunarkartöflur 2 stk vorlaukur ¼ agúrka ½ búnt dill 2 msk matarolía 3 msk sítrónusafi salt og pipar 125 gr rækjur 90 gr hrein jógúrt Bakið kartöflurnar í miðjum ofni í 60 mín við 200°C. Skerið agúrkuna eftir endilöngu og fjarlægið kjarnann með skeið. Skerið vorlauk og agúrku í litla bita eða þunnar sneiðar og klippið niður dillið. Blandið saman sítrónusafa, olíu og kryddi og hellið yfir rækjurnar og grænmetið. Skerið lok af kartöflunum þegar þær eru bakaðar og holið þær aðeins að innan með teskeið. Stappið jógúrtinni saman við ¾ hluta þess sem skafið var innan úr kartöflunum. Blandið því saman við grænmetið og rækjurnar, kryddið efir smekk, setjið fyllinguna í kartöflurnar og rétturinn er tilbúinn
|
|
|||
Frönsk lauksúpa 2
2 l vatn Laukurinn skorinn í tvennt og síðan í sneiðar. 4 laukar Olían hituð í potti og laukurinn brúnaður í 2 msk olía henni ath. olían þarf að vera vel heit. Vatninu pipar,kjötkraftur bætt út í og soðið í 10-15 mín. Soranum af sojasósa yfirborðinu fleytt af, kryddað og sett í eldfastar ristað brauð skálar, brauðið skorið í teninga og sett ofan á ostur súpuna, rifnum osti stráð yfir og gratinerað.
|
|
|||
|
Fyrir: 10-12 pers.
Innihald. Vatn: 2 l. Gulur laukur: 2-4 st. (eftir stærð, í hálfum sneiðum) Ólífuolía: 2-3 msk. Kjötkraftur: eftir smekk. (dökkur) Grænmetiekrafrur: eftir smekk. Hvítlaukur: 2-3 rif. (maukaður) Timían: 1 grein. Tómatar: 1 ds. (ca. 300 gr. gróf-skornir) Smjör: 100 gr. (ef steikja á brauðið á pönnu) Brauð: 10-12 sneiðar. (ristaðar eða steiktar) Ostur: 10-12 sneiðar, eða ca.: 100-150 gr. rifinn. (Gouta eða annar feitur brauðostur)
Aðferð. 1. Olían er sett í pott og hituð þar til að byrjar að rjúka úr henni. Þá er laukurinn settur út í olíuna og hann brúnaður gullinbrúnn,
2. Vatninu er bætt út í ásamt kjötkrafti, timían, hvítlauk og tómötum. Þegar suðan kemur upp er allur sori fleyttur ofan af. Súpan er látin sjóða rólega í 10-15 mín.
3. Brauðið er skorið til svo það passi ofan í súpuskálar, eða það skorið í teninga og það ristað eða steikt í smjöri.
4. Súpan er sett í eldfastar skálar, brauðið ofan á og osturinn þar ofan á. Súpan er síðan bökuð á yfirhita þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn, (gratínerað).
Einnig er hægt að rista brauðið í sneiðum, leggja ostinn þar ofan á og gratínera ostinn síðan á yfirhita. Eftir það er btauðið og osturinn lagt ofan á súpuna í skálunum.
|
|
|||
|
Stutt lýsing: þetta er súpan sem er alltaf hægt að bjóða fjölskyldunni eða gestum uppá með Efni: 3 meðalstórar gulrætur Meðhöndlun: Gulrætur laukur purra og fennikel skorið í bita og sett út í vatnið með fiskiteningunum.
|
|
|||
Eplakaka 2
½ bolli sykur 1 tsk kanill 1 bolli vatn 6 epli af hýdd og skorin í sneiðar þetta er soðið saman þar til eplin eru meir.
Deig: 2 bollar hveiti 1 bolli púðursykur 2 tsk lyftiduft 120 gr smjörlíki heslihnetukjarnar muldir og súkkulaðispænir ofan á.
Hveiti, púðursykur, lyftiduft og smjörlíki hnoðað saman, fyllingin sett í eldfast mót (paie disk) og deigið sett ofan á stráið muldum hnetukjörnum og súkkulaði ofan á og bakið í 35 mín við 175°C.
|
|
|||
Eplabaka
4-5 epli afhýdd og skorin í bita. Lögð í eldfast mót.
|
|
|||
|
Tómatsúpa frá Englandi Matarmikil |
|
|||
Súkkulaðimús með sósu
250 gr suðusúkkulaði saxað 4 egg aðskilin 150 gr smjör mjúkt ¼ bolli rjómi 45 gr sykur Sósa: 1 dl rjómi 1 msk skyndikaffi 2 msk vatn 1 msk kakó
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hrærið eggjarauðunum saman við einni í einu, þá rjómanum. Hrærið smjörinu saman við smátt og smátt. Þeytið hvíturnar, bætið sykrinum saman við og stífþeytið. Blandið hvítunum varlega í súkkulaðihræruna. Skiptið hrærunni í skálar, kælið hægt er að laga músina með dags fyrirvara, en þá þarf að láta músina standa við stofuhita í ca 30 mín áður en hún er borin fram. Sósan: leysið skyndikaffið upp í vatninu, þeytið rjómann örlítið upp með þeytara þannig að froða myndist. Blandið kaffinu saman við, hellið yfir músina rétt áður en borið er fram. Stráið kakói yfir ef vill.
|
|
|||
Gamaldags trifli
12 makkarónukökur 4 msk hindberjasulta 4 msk sherrí (sætt) 450 gr niðursoðnar ferskjur
Vanillukrem: 2 egg 50 gr sykur 1 msk maísinamjöl ½ Vanillustöng 3 ½ dl mjólk skraut 2 dl þeyttur rjómi jarðarber
Brjótið makkarónukökurnar niður og setið í glerskál. Setjið hindberjasultuna yfir og bleytið í með sherríinu. Vanillukrem: Þeytið egg, sykur og maísinamjöl saman í þykkbotna potti, kljúfið Vanillustöngina, takið kornin úr og þeytið saman við eggjahræruna. Þeytið mjólkinni saman við og látið kremið sjóða, þeytið áfram og látið kremið sjóða í nokkrar mín. Takið pottinn af hellunni og kælið, hrærið af og til í kreminu svo ekki myndist skán. Skerið ferskjurnar niður og leggið yfir makkarónurnar, hellið kreminu því næst yfir og skreytið með þeyttum rjóma og jarðarberjum. A.T.H. í trifli má nota grand mariner í staðin fyrir sherrí og eplamauk eða jarðarber í staðin fyrir hindberjasultu.
|
|
|||
KaramellubúðingurCréme caramel
Karamella úr ½ dl af vatni og 100 gr sykri 5 dl mjólk 1 Vanillustöng klofin langsum eða 1 ½ tsk vanilludropar 60 gr sykur 2 egg 2 eggjarauður 1 l frauðskál eða hitaþolið form
Lagið karamelluna og húðið skálina með henni. Hitið ofninn í 175°C og undirbúið vatnsbað. Setjið mjólkina í pott og látið suðuna koma upp (ef Vanillustöng er notuð er hún höfð með). Takið pottinn af hellunni og setjið lok yfir og látið standa í 10-15 mín. Bætið sykrinum saman við og hrærið í. Þeytið egg og eggjarauður, hellið mjólkinni út í og kælið svolítið. Ef notaðir eru Vanilludropar er þeim bætt saman við núna. Síið búninginn og hellið honum í hjúpaða skálina. Bakið búðinginn í heitu vatnsbaði í 40-50 mín. Eða þar til að hann er hlaupinn og loðir ekki við hníf sem stungið er í miðjuna. Rennið hníf meðfram búðingsbrúninni og hvolvið honum á disk, karamellan er þá búin að mynda sósu með búðingnum.
|
|
|||
Hrísgrjónabúðingur með ávöxtum(hrísgrjón keisaraynjunnar)
Hrísgrjón 75 gr skoluð hrísgrjón 5 dl mjólk 2 gr salt
Skoluð hrísgrjón eru sett yfir til suðu í vatni, þegar þau sjóða er þeim hellt á sigti. Suðan látin koma upp á mjólkinni, hún söltuð og hrísgrjónunum bætt út í. Grjónin soðin þar til þau eru meyr og hafa soð | ||||