Jólasíða

Grýlu þulur og kvæði á Gamanogalvara

SigfúsSig. Iceland@Internet.is


Brennu og flugeldaleyfi:

 

Sækja þarf um leyfi fyrir brennu og flugeldasýningu

 

Þeir sem hafa í hyggju að hlaða bálkesti til þess að kveikja í þeim á gamlárskvöld eða á þrettándanum, eða ætla að sækja um leyfi til sölu flugelda og til flugeldasýninga yfir hátíðarnar, skulu sækja um slík leyfi fyrir 6. desember. Vegna umsóknar um brennu, flugeldasýningu eða sölu flugelda skal tilgreina lögráða ábyrgðarmann og leggja fram vottorð frá vátryggingafélagi um ábyrgðartryggingu. Með umsókn um stóra brennu (sjá neðar) og sölu flugelda skal fylgja skriflegt starfsleyfi heilbrigðiseftirlits.

 

Þetta kemur fram í tilk. frá lögreglustjóranum á Vestfjörðum, Kristínu Völundardóttur.

 

Umsóknareyðublöð og reglur um bálkesti og brennur, flugeldasýningar og sölu á flugeldum liggja frammi hjá sýslumönnum og jafnframt á vef lögreglunnar á Vestfjörðum.

 

Leyfisgjöld eru þessi:

- Brennuleyfi kr. 5.500

- Skoteldasýning kr. 5.500

- Sala skotelda kr. 3.300

 

Þegar Reykhólavefurinn spurðist fyrir um það hjá embætti lögreglustjóra, í ljósi þess að í Reykhólahreppi er margt sveitabýla, hvort eða að hvaða leyti leyfisskylda þessi gildi um brennur við sveitabæi, voru svörin á þessa leið:

 

Í 1. tölulið leiðbeininga sem ríkislögreglustjóri, Hollustuvernd ríkisins og Brunamálastofnun ríkisins hafa útbúið segir m.a.: „Gildissvið. Leiðbeiningar þessar eiga við um allt land. Þær gilda um alla bálkesti og brennur, hvort sem þær eru á vegum einka- eða opinberra aðila, þar sem fólk safnast saman sér til skemmtunar ..."

 

Þá segir í 2. tl. [sbr. innganginn varðandi starfsleyfi heilbrigðiseftirlits]: „Átt er við stóra brennu þegar bálköstur verður stærri en 100 fermetrar eða 450 rúmmetrar og ætla má að brennutími sbr. skýringar í 7. gr. vari í allt að 4 klst. Við litla brennu er átt þegar bálköstur nær ekki þessari stærð og brennutími er áætlaður 2 klst."

 

Skoteldaleyfi (5.1.2005)

... hlotið viðurkenningu sem skotstjórar. Smásala skotelda Óheimilt er að selja skotelda í smásölu nema með leyfi lögreglustjóra í viðkomandi umdæmi. Aðeins er heimilt að selja skotelda frá þeim er hafa leyfi til framleiðslu eða innflutnings skotelda frá Ríkislögreglustjóra. Leyfi til smásölu er aðeins gefið út til fyrirtækja eða félagasamtaka sem hafa staðfest virðisaukaskattsnúmer ...

Leyfi og skírteini (23.12.2008)

... eru gefin út af ríkislögreglustjóra. Leyfi til sölu í smásölu og leyfi til skoteldasýninga eru gefin út af lögreglustjórum. Um sprengiefni Leyfi til innflutnings og sölu eru gefin út af ríkislögreglustjóra. Leyfi til kaupa á sprengiefni og ýmis leyfi er varða notkun eru gefin út af lögreglustjórum. Brennuleyfi Lögreglustjórar gefa út brennuleyfi. Leyfi er varðar veitinga- og gistihús ...

Veitingaleyfi (23.12.2008)

... til áfengisveitinga samkvæmt áfengislögum nr. 75/1998. Leyfi til áfengisveitinga verður aðeins veitt þeim sem lögreglustjóri hefur veitt veitingaleyfi. Áfengislög nr. 75/1998 Reglugerð um smásölu og veitingar áfengis nr. 177/1999     Leit á vefsvæðinu Leitarorð:   Flýtival Veftré - Hafa samband Útlit síðu: Stærra letur Minna letur .

 
Share on Facebook

 Deila á Facebook.

  

 Deila á Twitter

© SigfúsSig. Iceland@Internet.is