|
Fæðing Jesú Krists
Fæðing Jesú Krists varð með þessum
atburðum: María, móðir hans, var föstnuð
Jósef. En áður en þau komu saman,
reyndist hún þunguð af heilögum anda.
Jósef, festarmaður hennar, sem var
grandvar, vildi ekki gjöra henni
opinbera minnkun og hugðist skilja við
hana í kyrrþey.
Hann hafði ráðið þetta með sér, en þá
vitraðist honum engill Drottins í draumi
og sagði:
Jósef, sonur Davíðs, óttastu ekki að
taka til þín Maríu, heitkonu þína.
Barnið, sem hún gengur með, er af
heilögum anda.
Hún mun son ala, og hann skaltu láta heita
Jesú, því að hann mun frelsa lýð sinn
frá syndum þeirra.
Allt varð þetta til þess, að rætast skyldu
orð Drottins fyrir munn spámannsins:
Sjá, mærin mun þunguð verða og son ala.
Nafn hans mun vera Immanúel, það þýðir:
Guð með oss.
Þegar Jósef vaknaði, gjörði hann eins og
engill Drottins hafði boðið honum og tók
konu sína til sín.
Hann kenndi hennar ekki fyrr en hún hafði
alið son. Og hann gaf honum nafnið
JESÚS
|