|
Við þökkum þér fyrir innlitið á Jólasíðuna okkar, og sendum þér og þínum bestu jóla, áramóta og nýárs kveðjur.
Hér fyrir
neðan og niður þessa miðju koma smá
vangaveltur hjá honum pabba:
Jæja,
Jú jú, það er nú þannig að trúin og biblíulestur er í hávegum haft,,, ja, allavega svona rétt fyrir og yfir hátíð ljóss og friðar, meira að segja drattast sumir í kirkju, sumir sem annars aldrei það gera, en ok, gott mál. |
![]()
|
Börn og fullorðnir gera óskalista, já LAAANGA lista.
|
Nú, auðvitað
vonum við öll að Jólasveinninn og Rudolf séu að undirbúa sig,
þeir eiga jú að hamast við að búa til pakkana og Jóli
karlinn á fyrir höndum laaanga ferð, já eða flug á
hreindýrasleðanum sínum með alla pakkana sem börnin hafa
óskað sér og bíða eftir með eftirvæntingu.
Jóli og hreindýrið með rauða nefið klikka nú ekki, ekki frekar en fyrri daginn.![]()


![]()

![]()
Álfarnir eru sveittir við að smíða
jólagjafirnar og pakka þeim inn.
(Manni skilst nú að
þessi verksmiðja þeirra sé nú alltaf í einhverju skralli.)
![]()

![]()
|
Fólk fer að skreyta hús sín og garða eins og það eigi lífið að leysa.
Og aldrei þessu vant,,, njótum við nú þess að eyða rafmagni. |
Skórinn er að sjálfsögðu settur út í glugga eða yfir arininn,
helst stór skór, eða sokkur, helst ekki mjög
illa lyktandi.
Og nú hlíða
sko öll börn, beint í rúmmið, en misjafnlega gengur nú að
sofna.
Einn og
einn í einu tínist þeir ofanúr fjöllunum, vonandi í fínu
fötunum sínum, og gefa eitthvað
fallegt, eða gott í skóinn
EF???
(Hver skildi hafa fundið upp á þessu trixi með
kartöfluna, til að fá börnin
til að hlýða???)![]()



![]()
![]()
Á endanum eru allir þessir þrjótar og þjófar komnir til byggða.
Þetta eru
sko bö$%&$%&
hrappar, stela skyri, bjúgum og öðru góðgæti, meyra að segja
stela þeir kertum af blessuðum börnunum, eða hvað?.![]()
![]()

Og aðfaranótt 24
Desember leggur aðal kappinn af stað.
Og það er
sko eins gott.
Þetta er
klárlega fljótasi sendill í gjörvallri veröldinni.
![]()


Sveinki
karlinn kemur með pakkana á stórum sleða, sem 12 hreindýr
fljúga með og draga, og fremstur í flokki er auðvitað hann
Rudólf með rauða nefið,
(hva?? af hverju er þetta hreindýr með
RAUTT nef????, skil ekki)
Karlinn hann
Jóli æðir
hús úr húsi, eða úr einum skorsteini í annan., eins gott að
hann festist ekki elsku karlinn, það yrði nú ekki góð lyktin
í húsinu þarnæstu jól.
Og nú er
komið upp alvarlegt vandamál, gjafaflóðið er alltaf að
þyngjast hjá Sveinka kallinum, hann hlýtur að vera ofsalega
ríkur kallinn, að geta gefið svona margar gjafir, og dýrar,
kannski á hann mörg mörg kreditkort, og með ótakmarkað lán í
bönkum,,,, kannski er hann íslendingur, eins gott að
bankarnir hans hrynji ekki.
en allt
hefst þetta hjá honum
kall greyinu.
![]()



![]()
Allir eru
börn á jólunum, eða flestir allavega.
Dansað og
sungið er í kringum jólatré, og mikið gaman hjá öllum.
Góður og velheppnaður
matur er eitt af skilyrðum jólanna, og kokkarnir þurfa sko
að kunna SHITT fag, já það klikkar sko ekkert.
Smelltu á mynd.
Mikil
hamingja er hjá öllum þegar pakkarnir eru komnir undir tréð,
og spenna hjá sumum, "börnin" geta vart beðið eftir
matnum, svo hægt sé að vinda sér í að slíta og tæta utan af
pökkunum.
Öll börn
sækjast eftir sem flestum og helst sórum pökkum, það er bara
eðlilegt, OG fullorðna
fólkið keppist um að gefa dýrari gjöf en aðrir, stærri pakka
en nágrannarnir gefa, Fartölva, Ipot sími, eða bíll þykir
ekkert tiltöku mál, já svona
eru jólin,,, á íslandi.
Og
þá er bara að tæta utan af öllum pökkunum, og nú þýðir ekkert droll.
Smelltu á mynd:
Þetta gengur
ágætlega, EF pakkalesarinn er ekki alltaf eitthvað að drolla,
fullorðna fólkið hefur samt mestar áhyggjur af að það muni ekki hvað
stóð á merkimiðunum,,, hver gaf hvað, og hverjum,,, og fussar og
sveiar yfir sumum gjöfunum,,,,,, nei úppsss úppss,, bakka aðeins,,
fullorðna fólkið gleðst yfir hverri gjöf, og gleðst innilega með
börnunum, og ánægjan leynir sér ekki hjá englunum okkar,,
allavega yfir hörðu pökkunum.
Jólasveinninn fer svo aftur á norðurpólinn til að hvíla sig,
borðar góðan mat og lesa í bók fyrir álfana, já eða bara
horfa á DVD með þeim,
maður sér hann alveg fyrir sér, þurrka sveitt ennið sitt og halla
sér afturábak í djúpum hægindastól, og stynja.
En lífið heldur áfram, og alvaran tekur við,, eftir jólin er buddan
gjörsamlega tóm, kortin í bullandi mínus,,,
langt fram á næsta ár,
og heilsufarið komið í rúst af áhyggjum.
En svo lagast þetta ástand, svona í mars apríl,,, eða allavega fyrir næstu jól.
Og
ÞETTA
lag segir það einmitt, taktu bara eftir textanum,
ég er svo innilega sammála Björgvini Halldórssyni í þessu lagi.
(ATH:
Slökkva fyrst á jólasyrpunni, síðulaginu, (efst vinstra megin)
![]()
![]()
![]()



![]()
![]()


![]()
![]()
![]()

|
Þá eru þessum vangaveltum pabba míns lokið, EN:
annað segir Námsgagnastofnun um Desember.
|

Uppskriftir af laufabrauði og öðru jóla.

![]() |
ATH: > INNSKOT <
|
![]() |
Efst á síðu:
©
2001-2011-SigfúsSig.
Iceland@Internet.is
