Þegar Jesús var
fæddur í Betlehem í Júdeu á dögum
Heródesar konungs, komu
vitringar frá Austurlöndum til Jerúsalem
og sögðu: ,,Hvar er hinn nýfæddi
konungur Gyðinga? Vér sáum stjörnu hans
renna upp og erum komnir að veita honum
lotningu.``
Þegar Heródes heyrði
þetta, varð hann skelkaður og öll
Jerúsalem með honum.
Og hann stefndi
saman öllum æðstu prestum og fræðimönnum
lýðsins og spurði þá: ,,Hvar á Kristur
að fæðast?``
Þeir svöruðu honum:
,,Í Betlehem í Júdeu. En þannig er ritað
hjá spámanninum:
Þú Betlehem, í landi
Júda, ekki ertu síst meðal hefðarborga
Júda. Því að höfðingi mun frá þér koma,
sem verður hirðir lýðs míns, Ísraels.``
Þá kallaði Heródes
vitringana til sín á laun og grófst
eftir því hjá þeim, nær stjarnan hefði
birst.
Hann sendi þá síðan
til Betlehem og sagði: ,,Farið og
spyrjist vandlega fyrir um barnið,
og er þér finnið það látið mig vita, til
þess að ég geti einnig komið og veitt
því lotningu.``
þeir gengu inn í
húsið og sáu barnið og Maríu, móður
þess, féllu fram og veittu því lotningu.
Síðan luku þeir upp fjárhirslum sínum og
færðu því gjafir, gull, reykelsi og
myrru.
En þar sem þeir
fengu bendingu í draumi að snúa ekki
aftur til Heródesar, fóru þeir aðra leið
heim í land sitt.
Þegar þeir voru
farnir, þá vitrast engill Drottins Jósef
í draumi og segir: ,,Rís upp, tak barnið
og móður þess og flý til Egyptalands.
Þar skaltu vera, uns ég segi þér, því að
Heródes mun leita barnsins til að
fyrirfara því.``
Hann vaknaði, tók
barnið og móður þess um nóttina og fór
til Egyptalands.
Þar dvaldist hann
þangað til Heródes var allur. Það sem
Drottinn sagði fyrir munn spámannsins,
skyldi rætast: ,,Frá Egyptalandi kallaði
ég son minn.``
Þá sá Heródes, að
vitringarnir höfðu gabbað hann, og varð
afar reiður, sendi menn og lét myrða öll
sveinbörn í Betlehem og nágrenni hennar,
tvævetur og yngri, en það svaraði þeim
tíma, er hann hafði komist að hjá
vitringunum.
Nú rættist það, sem
sagt var fyrir munn Jeremía spámanns:
Rödd heyrðist í
Rama, grátur og kveinstafir miklir,
Rakel grætur börnin sín og vill ekki
huggast láta, því að þau eru ekki framar
lífs.
Þegar Heródes var
dáinn, þá vitrast engill Drottins Jósef
í draumi í Egyptalandi og segir: ,,Rís
upp, tak barnið og móður þess og far til
Ísraelslands. Nú eru þeir dánir, sem
sátu um líf barnsins.``
Hann tók sig upp og
fór til Ísraelslands með barnið og móður
þess.
En þá er hann
heyrði, að Arkelás réð ríkjum í Júdeu í
stað Heródesar föður síns, óttaðist hann
að fara þangað, og hélt til
Galíleubyggða eftir bendingu í draumi.
Þar settist hann að
í borg, sem heitir Nasaret, en það átti
að rætast, sem sagt var fyrir munn
spámannanna: ,,Nasarei skal hann
kallast.``