Sykurflóð í Boston
Með miklum hvelli springur gríðarstór tankur við höfnina í Boston fyrirvaralaust. Út úr þessum 15 metra háa geymi þeytast 9 milljón lítrar af þykkfljótandi og límkenndri sykurlausn af svo miklum krafti að hún myndar fjögurra og hálfs metra flóðbylgju sem veldur eyðileggingu og dauða. Heilu húsin lyftast af undirstöðum sínum og lest á upplyftri braut fer út af sporinu þegar stálsúlurnar gefa sig vegna þrýstingsins.

Hestar og vagnar sogast inn í flóðbylgjuna og hún kippir fótunum undan mörgum þeim sem reyna að forða sér á hlaupum og gleypir þá líka.

Lík og slasað fólk liggja eins og hráviði út um allt þegar flóðbylgjan hefur runnið sitt skeið. Alls er 21 lík grafið upp úr sykureðjunnig og 150 slasaðir fluttir á bráðabirgðasjúkrahús sem í skyndingu er komið upp í lagerbyggingu skammt frá.

Sprengingin stafar sennilega af því að fyrir örfáum dögum var hér 17 stiga frost en nú er kominn 7 stiga hiti. Hitabreytingin hefur valdið gerjun og um leið þrýstingi í tankinum uns veggirnir brustu að lokum.

Margar heimildir segja að eigandi tanksins, U.S. Industrial Alcohol Company, hafi fyrir slysið reynt að dylja leka með því að mála tankinn brúnan.

Geinina má sjá í Lifandi Vísindum.

©SigfúsSig.Iceland@Internet.is