|
Forsíðan. |
|
|
Hrár laukur getur varið okkur frá flensu, en getur verið baneitraður? Höfundur þessarar greinar er Heiða Þórðardóttir, uppl. á bleikt.is |
|
Sagan segir að árið 1919 þegar
skæð flensa drap um 40 milljón manns, hafi læknir einn
heimsótti fjöldann allan af bóndabýlum til að athuga hvort
hann gæti hjálpað til og linað þjáningar. En fjöldinn allur
af bændum og fjölskyldum þeirra hafði þá þegar háð harða
baráttu við flensuna og borgað með lífi sínu.
Læknirinn hitti einn tiltekinn
bónda og kom honum á óvart að allir á bænum voru mjög
heilbrigðir og hressir. Þegar læknirinn spurði bóndinn hvað
hann var að gera öðruvísi en aðrir bændur, sagði
hann konu sína hafa sett skrældan lauk á disk inn i hvert
herbergi (sem sjálfsagt voru bara tvo á þessum tíma).
Læknirinn ætlaði ekki að trúa
þessu í fyrstu og
fékk leyfi til að rannsaka einn laukinn sem var á heimilinu
undir smásjá. Honum til furðu sá hann að flensubakterían var
í lauknum. Laukurinn hafði greinilega sogið í sig
bakteríuna, sem útskýrði
hestaheilsu allra heimilismanna.
Sú sem þessa grein skrifar (Marcia)
segist hafa heyrt söguna frá hárgreiðsludömunni sinni. Sú
sagðist hafa heyrt þetta fyrir nokkrum árum, þegar margir af
starfsmönnum hennar fengu flensu sem og viðskiptavinir.
Árið eftir prófaði hún að
setja skálar með lauk um alla hárgreiðslustofuna og fullyrti
hún í framhaldi að enginn starfmaður hafa veikst af flensu
það árið.
Einnig fullyrðir Marcia að
hafa prófað sjálf í fyrra að setja lauk inn í hvert herbergi
á sínu heimili -og engin heimilismeðlimur hafi veikst.
Þegar Marcia sendi söguna af
bóndanum til vinkonu sinnar, svaraði hún:
"Takk fyrir þetta. Ég veit
ekki hvað skal segja um sögu bóndans...en ég hef þjáðst
undanfarið af lungnabólgu og því verið mjög veik...
Ég rakst á grein í blaði sem
sagði að gott væri að klippa báða enda af lauk og setja
laukinn því næst í tóma krukku og leggja krukkuna sem næst
sjúklingi yfir eina nótt. Í greininni kom fram að næsta
morgun, yrði laukurinn svartur af bakteríum...og það
gerðist. Laukurinn var illa útlítandi, en mér var hinsvegar
farið að líða mun betur.
Í annarri grein rakst ég á að
laukur og hvítlaukur hefðu bjargað fjölda manns frá
svartadauða hér áður fyrr. En báðir laukarnir búa yfir afar
öflugu bakteríu eyðandi og sótthreinsandi eiginleikum.
En að öðru: Oft fáum við
magaverki og vitum ekki hversvegna. Kannski að ástæðan sé
laukurinn? Laukur sýgur jú í sig bakteríur -og losar okkur
þannig viðkvef og flensur. Ættum við því aldrei að borða
lauk sem hefur setið á eldhúsbekknum, eftir að það er búið
að skera hann." Sagði
vinkonan.
Laukur sem búið er að skera í, er
einfaldlega eitraður.
Marcia fékk tækifæri til að
ferðast með Mullins Food Products, ásamt hóp af fólki, en
þeir framleiða majónes.
Spurningar varðandi
matareitrun komu upp í hópnum og langar hana
ennfremur að deila með ykkur
hvað hún lærði af efnafræðingi að nafni Ed.
Vægast sagt forvitnilegt.
Ed fullyrti að framleitt
majónes væri alveg öruggt og það þyrfti ekki einu sinni að
geyma það í ísskáp. Ekkert
verra samt -en engin þörf á.
Hann útskýrði fyrir hópnum að
pH gildið í majónesi væri þannig að engin baktería gæti
mögulega lifað af í slíku
umhverfi. Hann talaði í framhaldi um lautarferðir, -með skál
af kartöflusalati sem situr á borði, og hvernig allir kenna
alltaf majónesinu um ef einhver verður veikur.
Ed
fullyrti að þegar matareitrun kæmi upp í fólki þá er það
fyrsta sem heilbrigðisstarfsmenn kanna, er hvort
"fórnalambið" hafi nýlega borðað LAUK og í framhaldi hvaðan
sá laukur kom.
Var það kartöflusaltið?
Samkvæmt Ed, segir hann að það sé ekki majónesið (nema það
sé heimagert kannski...) frekar laukurinn eða
kartöflurnar...
Hann útskýrði hvernig laukur
virkar sem gríðarstór segull á allar bakteríur og þá
sérstaklega hrár laukur. Því skaltu því ekki einu sinni
hugleiða að geyma sneiðar aflauk. Það er ekki einu sinni
öruggt í lokuðum lofttæmdum umbúður í ísskáp. Laukurinn
er strax opin fyrir bakterýum um leið og er búið að skera af
honum.
Samkvæmt Ed er laukurinn
hugsanlega í lagi ef hann er eldaður mjög lengi. Ef þú
hinsvegar skerð hann niður og setur í t.d. kartöflusalat,
ertu að bjóða hættunni heim.
Bæði laukur og kartafla í
kartöflusalatin munu laða að sér bakteríur sem vaxa og dafna
hratt.
Munið að það er hættulegt að
nota lauk sem búið að er að skera, jafnvel næsta dag. Það
getur valdið allskyns óþægindum í maga -jafnvel matareitrun.
Vinsamlegast deilið þessum
boðskap til allra sem þið elskið og þykið vænt um.
Kærar þakkir,
|
©SigfúsSig. Iceland@Internet.is