Þegar ég var hvolpur, skemmti ég þér með skrípalátum og fékk þig til að hlæja. Þú kallaðir mig barnið þitt, og þrátt fyrir nokkra nagaða skó og ónýta púða, varð ég besti vinur þinn.Í hvert skipti sem ég var "óþekk", hristir þú höfuðið og spurðir: hvernig gastu gert þetta? - en svo brostir þú og veltir mér á bakið til að klóra mér á maganum. Að gera mig húsvana tók aðeins lengri tíma en það átti að gera, þú varst svo upptekinn, en við unnum að því saman.ce="Book Antiqua">
Ég man
þær nætur þegar ég kúrði hjá þér uppi í rúmi og hlustaði á játningar
þínar og leynda drauma, og ég hélt að lífið gæti ekki verið
fullkomnara. Við fórum í langa göngutúra og skokkuðum í
almenningsgarðinum, bílferðir, keyptum ís (ég fékk bara að borða
brauðformið því þú sagðir að ís væri ekki góður fyrir hunda), og ég
lagði mig í sólinni og beið eftir því að þú kæmir heim í lok
dagsins. .
Svo
komu börnin og ég var alveg jafn spennt og þú. Ég var agndofa yfir
því hvað þau voru bleik, hvernig þau lyktuðu, og ég vildi hugsa um
þau eins og þau væru mín eigin. En hún og þú höfðu áhyggjur af að ég
gæti meitt þau, og ég eyddi mest öllum mínum tíma lokuð inni í öðru
herbergi eða í hundabúri. Mikið langaði mig til að elska þau en ég
varð fangi ástarinnar, Þegar þau stækkuðu varð ég vinkona þeirra.
Þau héngu í feldinum mínum og toguðu sig upp á völtum fótum, potuðu
í augun á mér, grandskoðuðu eyrun mín, og kysstu mig á trýnið. Ég
elskaði allt í sambandi við þau og snertingu þeirra, því þín
snerting var svo sjaldgæf núorðið, og ég hefði varið þau með lífi
mínu ef ég hefði þurft þess. Ég laumaðist upp í rúmið þeirra og
hlustaði á áhyggjur þeirra og leynda drauma, og við biðum saman
eftir að heyra í bílnum þínum í innkeyrslunni. Svo fórst þú loks með bara mér og syni þínum í bíltúr, ég var yfirspennt yfir bíltúrnum þangað til við komum að dýra-skýlinu. Það lyktaði af hundum og köttum, af ótta og vonleysi. Þú fylltir út eyðublöð og sagðir: Ég veit að þið finnið gott heimili fyrir hana. Þau andvörpuðu og gáfu þér vonleysislegt augnaráð. Þau vita hvað bíður miðaldra hunds, jafnvel þó hann sé með ættbók.
Þú
varðst af rífa son þinn lausan frá hálsólinni minni á meðan hann
hrópaði: nei pabbi, gerðu það! Ekki láta þau taka hundinn minn! og
ég hafði áhyggjur af honum, og hvaða lexíur þú hafðir kennt honum um
vináttu og tryggð, um ást og ábyrgð, og um virðingu fyrir öllu lífi.
Þú kvaddir mig með klappi á kollinn, forðaðist að horfa í augun á
mér, og kurteisilega afþakkaðir að taka hálsólina mína og tauminn
með þér. Þú hafðir takmarkaðan tíma og það átti einnig við um mig
núna. Eftir að þú fórst sögðu konurnar tvær að þú hefðir líklega
vitað fyrir nokkrum mánuðum að þú þyrftir að flytja en reyndir
ekkert til að finna gott heimili handa mér. Þær hristu höfuðið og
sögðu hvernig gat hann gert þetta?.
Hvernig gastu gert þetta?. Dýralæknirinn sagði, mér þykir þetta svo leitt, kannski vegna þess að hún skyldi hundamálið mitt. Hún faðmaði mig og útskýrði í fljótu bragði að það væri hennar vinna að sjá til þess að ég færi á betri stað, á stað þar sem ég væri ekki hunsuð, misþyrmt eða yfirgefin, eða þyrfti að verja mig, stað þar sem er ást og ljós, staður sem er svo mikið frábrugðinn þessari jörð. Með síðustu orku minni reyndi ég að dilla skottinu mínu og láta hana sjá að þegar ég sagði,, hvernig gastu gert þetta, þá var ég ekki að beina því að henni. Það varst þú, minn ástkæri húsbóndi, sem ég var að hugsa um. Ég mun hugsa til þín og bíða eftir þér að eilífu. Ég vona að allir sem þú kynnist í þínu lífi muni sýna þér jafn mikla tryggð og ég.
Og nú eftir þennan lestur:: vertu þá 100% viss um að þú viljir og getir sinnt því og getir gefið því allan þann tíma sem það þarf,,,,, út ævi dýrsins, dýr eru EKKI leikföng.
|
©SigfúsSig. Iceland@Internet.is |