Svína smásaga ofl.
KARLSSONUR OG YFIRHIRÐIR
KÓNGS
Einu sinni var karl og kerling í
koti sínu, nálægt þeim stað hvar kóngur og drottning sátu.
Karl og kerling áttu sér einn son barna og unnu honum mjög,
en hann var svo óþægur og latur að hann vildi ekkert verk
vinna. Þau áttu eina kú og skyldi hann gæta hennar, en svo
fór að hann hætti að gæta kýrinnar; þá urðu þau svo reið að
þau ráku hann burt.
Nú er hann var farinn af stað
gekk hann lengi lengi uns hann kom að einum bæ, þar barði
hann að dyrum. Þar kom út maður og spurði hvað hann væri að
ferðast. Hann kvaðst hafa verið rekinn burt af foreldrum
sínum vegna óþægðar og leti.
"Nú ætla ég að biðja þig
gistingar," segir drengur.
"Það skaltu fá," segir hinn, "en
skipa mun ég þér verk á morgun; því vita skaltu að ég er
æðsti hjarðumsjónarmaður konungs."
Drengur hljóðnar við, en jánkar
eftir lítinn tíma. Síðan leiðir húsráðandinn dreng inn. Þar
sér drengur tvær stúlkur og konu húsráðandans. Drengur situr
litla hríð uns matur er honum færður, kjöt og brauð með sméri
og mjólkursufl.
Fátt er um viðræður um kveldið
og ekkert verk er fyrir hann lagt. Síðan fer hann að sofa og
sefur til morguns.
Þá hann er klæddur kemur
húsráðandi til hans og segir: "Verk hef ég þér ætlað."
"Hvurt er það?" segir drengur.
"Að gæta hundrað svína," segir
húsráðandi.
"Því er ég óvanur," segir
drengur.
"Það hlýtur þú þó að hafa,"
segir húsbóndi.
Síðan tekur drengur við svínunum
og rekur þau í haga, en þegar hann hefur litla hríð verið með
þau í haganum gjörast þau svo ólmleg og ókyrr að hann ræður
engu við og ætluðu þau að fljúga til fjalls, en hann sætir
lagi þar sem fyrir þeim verða þrengsli nokkur; þar hnappar
hann þau og keyrir þau viðstöðulaust heim að koti karls og
kerlingar.
Karl verður forviða og spyr hann
hvar hann hafi fengið hjörð þessa.
Drengur segir: "Hinn æðsti
hjarðvaktari konungs á svín þessi og fékk mér þau til
geymslu, en þau urðu mér svo erfið í geymslunni að ég tók það
ráð að reka þau heim til þín og skaltu nú nota þér veiðina og
skera þau öll strax í stað."
"Það gjöri ég ei," segir karl,
"því það verður þinn bani."
"Nei," segir drengur, "gjörðu
sem ég segi, ég skal vita ráð að komast út af þessu."
Síðan skar karl öll svínin og
komu þau þeim sem fljótast undan. Síðan biður drengur karl að
fá sér duglegan spotta; karl gjörir svo. Síðan tekur drengur
spottann og allar rófur svínanna og festir þær upp á
spottann, fer svo af stað þar til hann kemur þar sem er stórt
dý nálægt þeim stað hvar hann vaktaði svínin.
Þar hleypir hann niður
rófnakippunni í dýið og lætur alla rófnabroddana standa upp
úr með litlu millibili. Þar var steinn stór á dýbakkanum;
drengur streitist við og færir stein þennan að dýinu og
veltir í dýið, svo hann lendir ofan á taugina milli rófnanna
svo hann sást ei og eigi gengu upp rófurnar þó í væri togað.
Eftir þennan umbúnað hleypur
drengur heim til húsráðanda og er mikið hryggur í bragði.
Þegar hann kemur spyr
húsráðandi: "Hvurnig stendur á þessu? Hvar eru svínin,
drengur?"
"Æ, herra minn, minnist þér ekki
á það; það er saga að segja yður af því. Þegar ég var kominn
með þau í hagann urðu þau svo ólm að þau flugu sitt í hvurja
áttina, en ég hljóp fyrir alla brodda og lá við spreng, en
þegar ég var búinn að hringhlaupa þau kom það undur fyrir er
ég hélt aldrei mundi verða. Sjá, þau þyrluðust saman og að
einu dýi og stukku öll út á og á kaf svo ég sá ekki nema á
sjálfar rófurnar."
"Þessu lýgur þú," segir
húsráðandi.
"Nei, ég segi það gullsatt,"
segir drengur.
"Þú skalt mega sýna mér merki
þess svo ég trúi," segir húsráðandi.
"Já, komið sjálfir og sjáið,"
segir drengur.
Síðan hlupu þeir báðir til
dýsins og sá þá húsráðandi að allt var sem drengur hafði
sagt; tekur hann þá til að toga í rófurnar, en hvergi gekk.
"Taktu á með mér líka," segir
húsráðandi.
Síðan tekur drengur á líka og
toguðu þeir báðir, en eigi gekk að heldur.
"Þetta er mikil undratilviljun,"
segir húsráðandi, "og sé ég þú getur eigi að gjört og því vil
ég ekki átelja þig, en hlýt að hafa skaða minn óbættan."
Síðan ganga þeir heimleiðis og
lætur húsráðandi dreng sofa af um nóttina.
Um morguninn kemur hann til
drengs og segir: "Verk hef ég þér ætlað enn; ég á hundrað
sauði, þeirra skaltu gæta í dag og láta engan tapast."
"Ég vil reyna það," segir
drengur.
Því næst tekur drengur við
sauðunum og rekur þá í haga, stendur þétt fyrir og ætlar að
verja þeim að dreifa sér, en eftir litla hríð gjörast þeir
svo óspakir að þeir hlaupa út úr greipum honum; þá verður
hann hryggur og reiður og mælir við sjálfan sig:
"Þetta kemur mér maklega því ég
var svo ótrúr þegar ég átti að vakta kú föður míns og vildi
ekkert vinna fyrir hann."
Síðan tekur hann til fóta og
hleypur kringum alla sauðina, keyrir þá saman í
harðahnapp og drífur heim að koti karls föður síns.
Karl stansar allan þegar
hann sér sauðabreiðuna og spyr dreng hvurju þetta sæti
eða hvar hann hafi fundið og hvur eigi.
Drengur segir honum allt sem
orðið hafði.
Karl segir: "Gjör ei slíka
fíflsku, far heldur strax heim með sauðina til húsbóndans."
"Nei," segir drengur, "við
skulum skera þá og skaltu hafa í bú þitt slátur þeirra."
"Nei," segir karl, "það verður
bráður bani þinn."
"Ekki er það víst," segir
drengur, "en hvurnin sem fer skal ég nú einn um ráða og fyrir
sjá."
Síðan verður það fyrir fortölur
drengs að þeir skera sauðina og koma undan slátri þeirra,
gærum og höfðum, en drengur biður karl að gefa sér höfuðið af
forustusauðnum; það hafði bjöllur í hornum. Með það hleypur
drengur til skógar og allt þar til hann kemur í þann stað
hvar hann átti að gæta sauðanna.
Þar var hár hóll; upp á þeim hól
var drangi, en efst á dranganum var grastó; á þeirri tó stóð
hrísla hávaxin með viðarlimi sem sló sér víðs vegar út.
Upp á þennan dranga klifrar
drengur með höfuðið, les sig upp eftir kvistum og öngum á
hríslunni þar til hann nær til miðgreinarinnar; við hana
festir drengur höfuðið svoleiðis um búið að hann hafði dregið
taug gegnum það, en hornin voru laus við greinina með
bjöllunum og hringlaði í bjöllunum því að vindur var hvass á
kominn. Síðan gekk hann niður af dranganum, en gat eigi séð
höfuðið að neðan fyrir hæð drangans og þéttleika brums
hríslunnar.
Nú skundar drengur heimleiðis
til húsbónda; er hann bæði sveittur, þrunginn og sorglegur í
útliti nær hann kemur.
Húsráðandi spyr hvað valdi
ógleði hans, "eða hvar eru sauðirnir?"
"Ó, minnist þér ekki á það,"
segir drengur, "ég veit ekki hvur undur fyrir mig ætla að
koma."
"Nú,"segir húsráðandi, "segðu
fljótt, hvar eru sauðirnir?"
Þá segir drengur með grátstaf í
kverkum sér: "ég, ég - get ekki sagt yður frá því; þeir létu
svo illa að ég réði engu við; ég hljóp og hljóp þar til ég
var nær því sprunginn og með mestu þrautum komst ég fyrir þá;
en, en - ég gat varla trúað mínum eigin augum; allt í einu
heyrði ég mikinn þyt og hugsaði vindbylur væri í nánd, en
sjá, sauðirnir liðu allir upp í loftið frá augum mér. Ég varð
frá mér numinn, stóð og horfði á eftir þeim langa stund og
alltaf heyrði ég hringlið í bjöllunum í hornum
forustusauðarins. Þeir hafa orðið uppnumdir til himna; já, ég
heyrði bjölluglamrið upp yfir skýjunum."
"Hvílíka feiknalygi fer þú með,
strákur," segir húsráðandi.
"Nei, ég segi þetta dagsanna,"
segir drengur og grét mjög.
"Þú verður að sýna mér merki til
ef ég skal trúa," segir húsráðandi.
"Já, komið og sjáið," segir
drengur.
Síðan fara þeir báðir af stað,
en dagur var að kvöldi kominn og orðið skuggsýnt. Drengur fer
á undan þar til þeir koma að dranganum er hríslan stóð á og
sást hann varla því óðum dimmdi af nótt. Nú heyrði húsbóndi
bjölluglamrið upp yfir sér í loftinu.
Þá segir drengur: "Herra minn
sæll, heyrið þér nú hvar hringlar í hornum á forustusauðnum
yðar?"
"Já," segir húsráðandi og lítur
upp í loftið, "ég heyri þú segir þetta satt; þeir eru
uppnumdir og get ég ekki gefið þér þetta að sök og skaltu
vera af mér óásakaður, en ég hlýt að gista með skaða minn."
Síðan gengu þeir heimleiðis og
sváfu af um nóttina.
Um morguninn kemur húsráðandi
til drengs og segir: "Það er von þó þú sért orðinn þreyttur á
þessu starfi, en nú hef ég enn einu sinni fyrirhugað þér verk
í dag, og hygg ég þér verði léttbærast það af hendi að leysa:
Þú skalt geyma 40 nauta sem ég á eður réttara konungur, og
sjá vel til að ekkert tapist því einn uxinn er með
gullrenndum hornum og klaufum, mesta gersemi konungs."
Drengur lætur lítið yfir, tekur
þó við nautunum og fer á stað með þau hálfnauðugur. En þá
hann kemur með þau í hagann gjörast þau brátt ókyrr og
hleypur hinn konunglegi uxi öskrandi á undan þeim.
Dreng var vel kunnugt hvar karl
faðir hans var vanur að halda kú sinni; gjörir hann nú hark
að nautunum svo þau hrökkva í þá átt er kýr karls var. Þá
rekur hinn konunglegi uxi upp öskur mikið við hvað kýr karls
tekur undir svo allt nálgast hvað öðru, nautin og hún.
Drengur herðir á eftir þar til öllu slær saman.
Nú hleypur drengur að kú föður
síns og teymir heim á stöðul. Karl er þá heim við bæjargarð
og sér hvar nautaflokkur mikill steðjar heim á stöðul, en son
sinn teymandi kú sína í bandi á undan.
Karl verður hálfskelkaður, arkar
þó upp á stöðul og spyr dreng: "Hvurju veldur þetta?"
Drengur segir sem var.
Karl segir: "Far sem bráðast með
nautin aftur til húsráðanda."
"Nei," segir drengur, "þú skalt
hafa þau og færðu stóra steik því í þeim er gott sláturtak."
Karl færist á allar lundir
undan, en drengur sækir fast á uns hann fær talið karl til að
leggja hönd á þau. Síðan taka þeir til og múla þau og fjötra
hvurt að öðru og slátra þeim; var karl mikilvirkur enda
þurfti hann nú á karlmennsku að halda. Þeir hættu ei fyrr en
þeir höfðu lagt öll að velli og afhöfðað.
Nú kemur að hinum konunglega
uxa; þeir færa á hann bönd og gátu jarðvarpað. Drengur skal
halda í taugina sem vant er, en uxinn gjörir þá svo mikinn
rykk að af honum spretta böndin, hann sprettur á fætur,
skimar sig yfir blóðvöllinn, verður ærr og hleypur af stað,
drengur á eftir til skógar; hlupu þeir yfir holt og hæðir, en
hvurki dró sundur né saman þar til uxinn kemur að einu
klettagili í landi húsráðanda; í því gili voru margar gjár og
sprungur og myrkt í. Ofan í eina þessa gjá hljóp uxinn, og
var lengi áður drengur heyrði hann kom niður og heyrði eiminn
af öskri hans nær hann nístist við gjáarbotninn.
Drengur hafði á sér
brennisteinskyndla. Hann hugsar það ráð að hann kveikir í
þessum kyndlum og lætur þá síga niður á gjáarbotninn; síðan
finnur hann viðarolíu og lætur síga niður í næfurberki; í
þetta les eldurinn sig á gjáarbotninum. Síðan verður drengur
þess var að tekur að kvikna í hári uxans.
Nú hleypur drengur heim allt
hvað af tekur til húsráðanda.
"Nú hefur þú lengi verið," segir
húsráðandi, "eður hvar eru nautin?"
Drengur gat varla komið upp orði
fyrir ekka, en síðan segir hann: "Allt, allt fer á sömu
leiðina, nautin eru farin."
"Hvað?" segir húsráðandi,
"farin? Þú skrökvar, þrællinn þinn."
"Ég segi satt," segir drengur.
"Þegar ég hafði rekið þau í hagann urðu þau svo vitlaus að ég
réði engu við; hinn mikli uxi hljóp á undan og öll nautin á
eftir þar til þau hvurfu niður; ó herra minn, þau hafa víst
sokkið því ég kom að einni gljúfraholu; þar virtist mér ég
heyra óminn af öskri þeirra niður í, sér í lagi hins
horngyllta uxa; svo sýndist mér þar eldur brenna undir og
hygg ég það hafa verið af völdum gamla karlsins, því
brennusteinsfýluna lagði upp í móti mér. ég varð skelkaður og
hljóp heim."
"Þó þú hafir aldrei logið, þá
lýgurðu nú," segir húsráðandi.
"Nei," segir drengur, "þér
skuluð bráðum fá að sjá merki þess."
"Þér er það gagn þú segir satt,"
segir hinn, "því annars skal það verða þinn bani."
Síðan hlaupa þeir á stað og
drengur á undan þar til þeir komu að hinni áður um getnu
holu.
"Sjáið þér nú til," segir
drengur.
Húsráðandi skyggndist ofan í
holuna, sá mikinn eld brenna þar niðrí og fann megna
brennisteinsfýlu leggja upp úr.
"Hvílík býsn,"segir húsráðandi;
"ég sé þú segir satt og get ég því ekki átalið þig, en ég má
sitja með skaða minn óbættan; nú hef ég þannig þennan skaða
beðið. Nú skulum við heim ganga og skaltu nú ekki framar
hjarða gæta, heldur vinna það starf sem náðugra er."
Síðan ganga þeir heim. Þá kemur
húsráðandi að máli við dreng og segir: "Nú hef ég að vísu
hugað þér verk að morgni og skaltu smíða tíu ljái, sinn handa
hvurjum húskarla minna, er ég ætla að því búnu að láta taka
til sláttar á engi."
Dreng brá mjög við þetta þar
hann vissi sig eigi neitt til smíða kunna, en þorði þó eigi
undan að teljast.
Síðan leggst hann niður um
kvöldið, en um nóttina þegar allir eru í svefn komnir rís
drengur á fætur og leitar til dyra og tekst honum að komast
út. Síðan hleypur hann heim til karls og kerlingar og segir
þeim upp alla sögu. Þau tóku við honum og héldu hann á laun;
leitaði húsbóndi hans víða að honum, en fann ekki. Gjörist
hann nú trúr og þægur hjá karli og kerlingu.
Liðu svo fram langar stundir.
Einu sinni kemur hann að máli
við karl föður sinn og kveðst vilja fá sér kvonfang.
"Ekki líst mér það gjörlegt,"
segir karl.
"Jú," segir drengur, "þegar ég
var hjá húsráðanda átti hann tvær dætur og lék mér strax
hugur á hinni yngri og vil ég nú til freista að fá hennar."
"Ver ei svo fífldjarfur," mælti
karl, "að ganga í greipar húsráðanda, því það verður þinn
bráður bani."
"Á það mun þó hætta verða,"
mælti drengur, "en þú gef mér sverð gott til fararinnar."
Karl telst undan því, en svo fer
um síðir að karl verður til að láta sverðið.
Síðan skundar drengur á stað og
kemur síð dags að bæ húsráðanda. Þar ber hann strax að dyrum,
þar kemur út piltur einn lítill. Drengur biður hann segja
húsráðanda að hann girnist hans fund.
Piltur hleypur inn og segir
húsráðanda; hann kemur út og segir: "Ertu nú kominn? Þú fórst
skyndilega burt seinast. Skaltu nú samt vera hér í nótt."
"Annað er nú reyndar erindi mitt
fyrst." Síðan bregður hann sverðinu og segir: "Með þessu
sverði skaltu nú strax höggvinn verða utan þú gefir mér yngri
dóttur þína."
Bóndi þorir ei annað en sverja
honum þetta strax í stað. Því næst fer hann þessa á leit við
meyjuna og fer svo að hún lofast honum.
Síðan fer hann heim, sækir karl
og kerlingu; fara þau með honum til húsráðanda. Síðan er
drukkið brúðkaupið og að því enduðu segir drengur húsráðanda
upp alla sögu; hún berst síðan fyrir kóng og drottningu.
Kóngur kallar hinn nýgifta mann
fyrir sig; fréttir hann allt það sem skeð var, en þá hann
hafði heyrt alla þessa sögu gjörir hann hann að einum æðsta
ráðgjafa sínum og fær honum mikið fé.
Fóru karl og kerling síðan í
horn til hans, en hann lifði með konu sinni til ellidaga,
hafði mikla velsælu og auðsafn.
- Endum vér svo þessa sögu.
(Þjóðsagnasafn Jóns Árnasonar -
Textasafn Orðabókar Háskóla Íslands)
| | | |
|