Rakel Andrea og Robin í heimsókn

3 janúar 2009

  

Rakel og Robin voru á íslandi yfir jólin, þau ásamt Sigurþóri, Ester og Anton Breki kíktu í heimsókn.

 

 

 

Share on Facebook

 Deila á Facebook.

 

 

 Deila á Tweet
 

 

 

Andrea Gylfa

Litla jólabarn.

 

Jólaklukkur klingja,
kalda vetrarnótt.
Börnin sálma syngja
sætt og ofurhljótt.
Englaraddir óma
yfir freðna jörð.
Jólaljósin ljóma
lýsa upp myrkan svörð.

Litla jólabarn, litla jólabarn
ljómi þinn stafar geislum
um ís og hjarn.
Indæl ásýnd þín
yfir heimi skín,
litla saklausa jólabarn.

Ljúft við vöggu lága
lofum við þig nú.
Undrið ofursmáa
eflir von og trú.
Veikt og vesælt alið
varnarlaust og smátt,
en fjöregg er þér falið
framtíð heims þú átt.

Litla jólabarn.........

Er þú hlærð og hjalar,
hrærist sála mín.
Helga tungu tala
tærblá augu þín.
Litla brosið bjarta
boðskap flytur enn.
Sigrar myrkrið svarta
sættir alla menn.

Litla jólabarn........... 

©2009_SigfúsSig. Iceland@Internet.is