Einu sinn var karl og kerling í
koti. Þau áttu ekkert barn. Þótti þeim það mjög
leiðinlegt, en gátu ekki að gert. Þeim varð oft
sundurorða út af þessu og kenndu hvort öðru um. Að
lokum varð fullkomið ósamlyndi á milli þeirra og
rifrildi, því að hvorugt vildi meðkenna, að það væri
sér að kenna, að þau gátu ekki eignazt krakka.
Karlinn fór þá í burtu í reiði sinni og kvaðst
skyldu ganga næst lífi hennar, ef hún yrði ekki
komin í burtu, þegar hann kæmi heim aftur.
Þegar
hann var farinn, lagðist kerling upp í rúm og grét
beisklega, því að henni þótti vænt um bónda sinn.
Þegar hún hugði, að tími væri til kominn til þess að
sjá fyrir miðdegismatnum, reis hún á fætur og fór að
sækja vatn í á, sem rann nálægt kotinu. Þegar hún
kemur að ánni, sér hún lágan mann, rauðskeggjaðan,
sitja á steini í miðri ánni. Hann kastar kveðju á
kerlingu og spyr: "Hvers vegna liggur svo illa á
þér?"
Hún
svarar: "Bóndi minn er svo vondur við mig, af því
við eigum ekkert barn, og nú hefur hann skipað mér í
burtu. Þetta hryggir mig mjög mikið."
"Viltu,
að ég hjálpi þér?" segir hann. -
"Ég held
ég verði fegin," segir kerling, "en ekki hafði ég
ætlað að hafa fram hjá karli mínum." -
"Ekki
muntu þess þurfa, þó að ég hjálpi þér," segir
Rauðskeggur og glottir við. Seildist hann þá ofan í
ána og tók þar silung og fékk henni. Síðan sagði
hann: "Þú skalt sjóða silunginn og éta, en þú mátt
hvorki drekka soðið af honum né éta beinin. Þegar þú
hefur étið silunginn, munt þú verða barnshafandi og
eignast son. Hann verður þú að gefa mér, þegar hann
er sjö ára, og mun ég þá vitja hans."
Kerling
lofaði að gera allt, eins og hann vildi, og með það
skildu þau. Kerling fór svo heim með silunginn, sauð
hann og át síðan, Henni þótti hann góður og langaði
í beinin og soðið. "Það getur ekki gert neitt til,
þó ég smakki á soðinu og bíti í beinin," hugsaði
hún, "þetta hefur náttúrlega verið eintóm vitleysa
úr honum Rauðskegg mínum." Og með það át hún hvort
tveggja.
Þegar
þessu var lokið, lagðist hún upp í rúm og lá þar,
þar til karl hennar kom heim. Þegar hann sá hana,
varð hann afar reiður og segir: "Þú ert þá hér enn,
ólukku dækjan!" -
"Vertu
góður við mig, karlinn minn, því að nú finnst mér
vera skipt um hagi mína," segir hún. -
"Vertu
mér þá velkomin," segir hann.
Nú líður
að þeim tíma, að kerling verður léttari, og fæðir
sveinbarn frítt og efnilegt. - Þetta varð til
mikillar gleði fyrir karl og kerlingu, og kom þeim
nú mjög vel saman, eftir að barnið kom til sögunnar.
Það var mjög frábært og hét Báráður eftir vilja
foreldranna. Var hann yndi þeirra og augasteinn.
Segir nú ekki af þeim, fyrr en drengurinn var nærri
því sjö ára. Þá tekur móðir hans ógleði mikla. Þeir
feðgar spyrja, hvað valdi hryggð hennar. Hún var
lengi treg til að segja, en þó fór svo, að hún sagði
þeim frá rauðskeggjaða manninum og kaupum þeirra.
Báráður hló að þessu og sagði, að þau mættu verða
fegin að losast við sig, því að hann væri þeim
aðeins til þyngsla. - Karl og kerling eru nú mjög
hnuggin og sorgbitin út af því, ef þau þurfi nú að
sjá á bak syni sínum, sem þeim þótti svo vænt um. -
Nú líður, þar til afmælisdagurinn kemur. Þá segir
Báráður, að það sé bezt fyrir þau karl og kerlingu
að fara út í skóg í dag, því þeim þyki líklega ekki
svo skemmtilegt að sjá, þegar Rauðskeggur fari með
sig í burtu. En til þess að þau geti eitthvað gert,
sagði hann þeim að fara með rekkjuvoðirnar úr
rekkjum sínum og tína úr þeim flær og lýs. Þau
kvöddu þá son sinn með miklum harmi og lögðu af stað
með rekkjuvoðirnar.
Þegar þau
voru farin, fór Báráður inn, settist á pallinn og
var alls ókvíðinn. Að stundu liðinni var drepið á
dyr, og gekk Báráður til dyra. Sá hann þá, að lágur
maður rauðskeggjaður stóð við bæjardyrnar. Hann
kastar kveðju á Báráð og segir: "Heill sértu, sonur
góður." -
"Svo
sértu líka. En ég er ekki þinn sonur, heldur karls
og kerlingar," segir Báráður. -
"Já, svei
kerlingunni, sem soðið drakk og beinin át, því að
hvorki ætlaðist ég til, að yrði í þér aflið né
vitið," segir Rauðskeggur.
"Blessuð
veri móðir mín fyrir það," segir strákur.
"Eru karl
og kerling heima núna?" spyr Rauðskeggur.
"Nei,"
svarar Báráður.
"Hvar eru
þau?" -
"Þau eru
út í skógi," segir strákur.
"Hvað eru
þau þar að gera?"
"Þau
ætluðu að skilja eftir það, sem þau fyndu, en koma
með það, sem þau fyndu ekki," sagði strákur.
"Að koma
með það, sem þau finna ekki, en skilja það eftir,
sem þau finna? Það skil ég ekki eða hvernig getur þú
heimfært mér það, sonur góður?" segir karl.
"Ekki er
ég þinn son, og ekki segi ég þér neitt um þetta,
nema þú lofir mér að vera sjö ár hjá móður minni enn
þá," segir Báráður.
"Það má
ég ekki," segir karl.
"Jæja þá,
þú færð þá ekkert að vita," segir strákur. Þeir
þráttuðu dálítið um þetta, en svo lauk, að
Rauðskeggur lofaði Báráði að vera sjö ár hjá móður
sinni enn þá, ef hann fengi að vita það, sem hann
spurði um. "Jæja þá," segir Báráður. "Þau fóru með
rekkjuvoðirnar sínar út í skóg og ætluðu að tína úr
þeim flærnar og lýsnar. Og eins og þú getur skilið,
skilja þau eftir það, sem þau finna, en koma heim
með það, sem þau finna ekki í rekkjuvoðunum." -
"Ó, svei
kerlingunni, sem soðið drakk og beinin át. Hvorki
ætlaðist ég til þess, að í þér yrði aflið né vitið,"
segir karl, um leið og hann fór.
Um
kvöldið komu karl og kerling heim. Urðu þau glaðari
en frá megi segja, þegar þau sjá son sinn kyrran
heima. Spurðu þau hann, hvort enginn hefði komið.
"Jú," segir hann. "Hann kom, þessi rauðskeggjaði
maður, sem þú sagðir okkur frá, en hann ætlar að
lofa mér að vera sjö ár enn þá hjá ykkur." Þau urðu
mjög glöð af þessum tíðindum og óskuðu, að þau
þyrftu aldrei að sjá af honum. -
Nú liðu
árin, tíðindalítið, þar til Báráður er langt kominn
á fjórtánda árið, þá taka þau karl og kerling ógleði
mikla og kvíða því, ef þau þurfi nú að missa Báráð.
Hann hughreysti þau eftir mætti og sagði, að þau
mættu verða því fegin, að hann færi frá þeim, en þau
tóku því allfjarri.
Nú kemur
afmælisdagurinn, þegar Báráður er fjórtán vetra
gamall. Var hann nú talinn afbragð allra annarra
ungra manna bæði að líkamlegu atgervi og vitsmunum.
Má því nærri geta, að þau karl og kerling unnu honum
hugástum. Segir þá Báráður við foreldra sína, að það
sé bezt fyrir þau að fara út í skóg og vera þar um
daginn, því að þeim þyki að líkindum lítil skemmtun,
þegar Rauðskeggur fari með hann. Enn fremur sagði
hann þeim að fara með svínin þeirra með sér. Þau
voru ellefu að tölu og voru höfð í stíu undir
baðstofupalli. "Ekki þurfið þið samt að hleypa þeim
út, því að það geri ég sjálfur."
Þegar
hann hafði þetta mælt, skundaði hann til stíunnar og
tók öxi mikla í hönd sér. Hjó hann þá eitt svínið
sundur í miðju og batt annan helminginn á bakið á
öðru svíni, en hinum helmingnum kastaði hann í
stíuna. Síðan héldu karl og kerling af stað með
svínin, en Báráður settist í mestu makindum inn á
pall.
Eigi leið
langt áður drepið var á dyr. Báráður gengur út, og
sér hann þá, hvar Rauðskeggur er kominn, sem hann
átti tal við fyrir sjö árum. Hann kastar kveðju á
Báráð og segir: "Heill sértu, sonur góður." -
"Það sért
þú líka, en ekki er ég þinn son, ég er sonur karls
og kerlingar." -
"Já, svei
kerlingunni, sem soðið drakk og beinin át. Hvorki
ætlaðist ég til, að í þér yrði aflið eða vitið,"
segir Rauðskeggur.
"Blessuð
veri móðir mín fyrir það," segir Báráður.
"Ósköp
ert þú orðinn stór, sonur góður," mælti Rauðskeggur.
"O, ekki
held ég það geti nú heitið," segir Báráður.
"Eru þau
heima, karl og kerling?" spyr Rauðskeggur.
"Nei." -
"Hvar eru
þau nú?" -
"Þau fóru
út í skóg í morgun." -
"Hvað
starfa þau þar?" -
"Þau fóru
með hálft ellefta svín þangað og ætluðu að gæta
þeirra." -
"Með
hálft ellefta svín," segir Rauðskeggur, "það er
ómögulegt. Annaðhvort hafa þau hlotið að vera tíu
eða ellefu. Eða hvernig getur þú fullvissað mig um
það, sonur góður, að það hafi verið hálft ellefta
svín, sem þau fóru með?" -
"Ég segi
þér það ekki, nema þú lofir mér að vera í sjö ár enn
hjá móður minni," segir Báráður.
"Það má
ég alls ekki," mælti Rauðskeggur, "því að þá verður
þú orðinn mitt ofurefli."
Hvort sem
þeir þráttuðu lengur eða skemur um þetta, þá fór svo
að lokum, að Rauðskeggur lofaði Báráði að vera sjö
ár enn hjá móður sinni, ef hann segði sér, hvernig
það væri lagað með svínin. Báráður er þá ekki seinn
á sér, hleypur inn í svínastíuna, tekur hálfa
svínið, fleygir því í Rauðskegg og segir: "Þarna er
hálft svín, hinn helminginn batt ég á bak á einu
lifandi svíni, svo að þau fóru með hálft ellefta
svín út í skóginn." -
"Ó, svei
kerlingunni, sem soðið drakk og beinin át. Hvorki
ætlaðist ég til, að í þér yrði aflið né vitið,"
segir Rauðskeggur og rýkur af stað.
"Blessuð
veri móðir mín fyrir það," segir Báráður og sat nú
inni, þar til karl og kerling komu heim. Urðu þau
mjög glöð, þegar þau sáu Báráð og spurðu, hvort
enginn hefði komið. Hann sagði þeim sem var og það
með, að Rauðskeggur ætlaði að lofa honum að vera hjá
þeim sjö ár enn. Gleði þeirra karls og kerlingar var
ósegjanlega mikil yfir þessu óvænta láni.
Skammt
frá kotinu var kóngsríki. Þangað gekk Báráður oft,
því að honum þótti dauflegt heima. Bar þar margt
fyrir augu, sem honum þótti gaman að sjá, en
sérstaklega hafði hann gaman af að líta eftir öllu
smíði, einkum húsasmíði.
Einu
sinni fór hann til kóngsins og bað hann að gefa sér
spýtur. Kóngur spurði, hvað hann ætlaði að gera með
þær. Báráður kvaðst ætla að reyna að smíða hús úr
þeim. Konungur gaf honum þá eins mikinn við og hann
vildi í húsið og smíðatól. Tekur Báráður þá að
flytja viðinn heim að kotinu og byrjar á
hússmíðinni. Er hann að þessu smíði í sjö ár. Húsið
var fremur óbrotið og lítið, með einum glugga, og
lágu stigar tveir upp í hann, annar inni í húsinu,
en hinn úti, og náðu þeir saman uppi í glugghúsinu.
Þegar
þessi sjö ár eru liðin og afmælisdagurinn kemur,
þegar Báráður er #21 árs, segir hann við karl og
kerlingu: "Nú verður sjálfsagt ekkert undanfæri. Ég
verð að fara með Rauðskegg, þegar hann kemur. Ég
held, að það sé bezt, að þið séuð heima í dag, því
að í sjálfu sér gildir það einu, hvort þið sjáið mig
fara eða ekki."
Þau
kváðust það gera mundu fyrir hans orð og óskuðu nú
af heilum hug, að hann þyrfti ekki að fara frá þeim.
Þau sitja nú öll inni og bíða átekta.
Áður
langt er liðið á daginn, er barið. Báráður fer til
dyra og sér, að Rauðskeggur er kominn. "Heill sértu,
sonur góður," segir hann.
"Það
sértu einnig, en ég er ekki þinn son, því að ég er
sonur karls og kerlingar," segir Báráður.
"Já, svei
kerlingunni, sem soðið drakk og beinin át. Hvorki
ætlaðist ég til, að yrði í þér aflið né vitið." -
"Blessuð
veri móðir mín fyrir það," segir Báráður.
"Ósköp
ertu búinn að smíða þarna fallegt hús, sonur góður,"
segir Rauðskeggur.
"Og ekki
held ég það geti nú heitið," segir Báráður. "Ég hef
verið að dunda við þetta að gamni mínu." -
"Hvað
ætlarðu annars að gera með húsið?" segir
Rauðskeggur.
"Ég ætla
að hafa það til þess að tala við hálfan inni og
hálfan úti," segir Báráður.
"Tala við
hálfan inni og hálfan úti. Hvernig ferðu að því,
sonur góður?" -
"Það skal
ég sýna þér. Gáttu hérna upp stigann," segir Báráður
við Rauðskegg, en hljóp sjálfur inn í húsið og upp
stigann, sem inni var, og var fljótari upp en karl.
Þegar karl kemur upp í gluggann, beygir hann sig inn
í húsið. En þá höggur Báráður með öxi þvert um
bakið, svo að sundur tók manninn í miðju, en sinn
veg féll hvor hlutinn. "Svona er nú farið að tala
við hálfan inni og hálfan úti," segir Báráður.
Eftir það
fór hann inn og sagði karli og kerlingu, hvernig
komið var, og bað þau að hjálpa sér að brenna
karlinn. Þau urðu glöð við þetta og þökkuðu Báráði
mjög vel fyrir verkið. Var síðan gert bál mikið og
Rauðskeggur á það lagður og brenndur upp til kaldra
kola. Síðan fréttist þetta um kóngsríkið og kom til
eyrna konungi. Honum þótti þetta svo snjallt af
strák, að hann býður honum heim til sín og lætur
kenna honum allt það, sem þá þótti fróðleikur í.
Gekk það allt vel. Féll konungi mjög vel við Báráð,
og svo fór, að hann gaf honum dóttur sína. Báráður
tók svo við ríkisstjórn eftir tengdaföður sinn og
ríkti vel og lengi. Þau kóngshjónin unnust hugástum,
áttu börn og buru, og svo kann ég ekki þessa sögu
lengri.