Þjóðsöngur íslendinga og fl..

 

 

 

Skjaldarmerki Íslands

 

 

 

 

 

 

Hlusta á þjóðsönginn

 

 

 

 

 

Saga þjóðsöngsins.

 

Fánadagar íslands.

 

Lög um þjóðfánann

 

Lög Þjóðsönginn

 

Lög Þjóðsönginn

 

Landmyndun

 

 

Þjóðsöngur íslendinga

Ó, guð vors lands

Ljóðið er eftir Matthías Jochumsson

Þjóðsöngurinn:

 

Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð!
Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn!
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans
þínir herskarar, tímanna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár
og þúsund ár dagur, ei meir:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.
:,: Íslands þúsund ár, :,:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.

Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð!
Vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá.
Vér deyjum, ef þú ert ei ljós það og líf,
sem að lyftir oss duftinu frá.
Ó, vert þú hvern morgun vort ljúfasta líf,
vor leiðtogi í daganna þraut
og á kvöldin vor himneska hvíld og vor hlíf
og vor hertogi á þjóðlífsins braut.
:,: Íslands þúsund ár, :,:
verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár,
sem þroskast á guðsríkis braut.

Ó, guð, ó, guð! Vér föllum fram
og fórnum þér brennandi, brennandi sál,
guð faðir, vor drottinn frá kyni til kyns,
og vér kvökum vort helgasta mál.
Vér kvökum og þökkum í þúsund ár,
því þú ert vort einasta skjól.
Vér kvökum og þökkum með titrandi tár,
því þú tilbjóst vort forlagahjól.
:,: Íslands þúsund ár, :,:
voru morgunsins húmköldu, hrynjandi tár,
sem hitna við skínandi sól

Share on Facebook

 Deila á Facebook.

 

 

 Deila á Twitter

 

©SigfúsSig.Iceland@Internet.is