Bindindispostuli var að predika
yfir lýðnum og sagði: "Ef asni mætti velja um það, hvort
hann vildi heldur drekka úr fötu fullri af vatni eða
fötu fullri af vodka - hvort haldið þið, að hann myndi
velja?!" Rödd úr hópnum: "Auðvitað vatnið!"
Bindindispostulinn: "Já, og hvers vegna haldið þið, að
hann gerði það!!!" - Röddin: "Af því að hann er asni!!
Í gamla daga voru böll haldin upp
til sveita 2-3 á ári og komu sumir á hestum en aðrir
löbbuðu þetta í ca
klukkutíma. Eitt sinn voru þrenn hjón að fara heim eftir
ball fótgangandi og voru kallarnir vel í því, einum var
mál og tók hann þann stutta bara út og pissaði þarna
hálf skjögrandi en örlítið fyrir aftan hin en ekki vildi
betur til en hann datt. Fólkið stoppaði og fóru að
athuga hvort ekki væri allt í lagi en hann var þá á
fjórum fótum og strauk hendinni eftir jörðinni eins og
hann væri að leita að einhverju. Konan hans kallaði,
Siggi týndirðu einhverju elskan mín,,,,, ég er ekki viss
en þegar ég datt þá held ég að ég hafi verið með
eitthvað í hendinni.
Maður og kona sem höfðu aldrei
hist áður, en voru bæði gift öðrum aðilum, höfðu verið
bókuð í sama lestarklefann á ferðalagi.
Eftir frekar vandræðalega
stund og óþægilegar mínútur yfir því að þurfa að deila
klefa, voru þau bæði orðin mjög þreytt og sofnuðu
fljótlega. Hann í efri koju og hún í neðri kojunni.
Um kl 1.00 um nóttina hallaði
maðurinn sér yfir kojuna og vakti konuna blíðlega.
Pst...pst....
sagði hann. Fyrirgefðu frú að ég sé að trufla þig en
viltu vera svo væn að opna skápinn fyrir mig og rétta
mér annað teppi, mér er svo kalt.
Ég hef betri hugmynd,
sagði hún. Hvernig líst þér á að við látum eins og við
séum gift - Bara í nótt ?
VÁÁ - það er frábær
hugmynd! Svaraði hann.
Gott sagði hún: "Farðu þá
og náðu í þitt andsk...
teppi sjálfur"
Eftir augnabliksþögn - þá rak hann við
Starfsmannastjórinn þurfti að ráða
í eina stöðu og eftir að hafa farið yfir umsóknirnar
stóðu eftir fjórir umsækjendur sem allir voru jafn
hæfir. Hann ákvað að boða alla á sinn fund og spyrja
einnar spurningar. Svörin myndu ákvarða hver fengi
vinnuna.
Dagurinn rennur upp og allir
fjórir umsækjendurnir eru saman komnir í fundarherbergi
fyrirtækisins og starfsmannastjórinn spyr: "Hvað er það
hraðasta sem þið vitið um?"
Sá fyrsti svarar: "Hugsun.
Mannshugurinn virkar ótrúlega hratt og maður getur
fengið ótrúlegustu hugmyndir á nokkrum sekúndum."
"Mjög gott!" segir
starfsmannastjórinn. "Og þú?" spyr hann umsækjanda númer
tvö. "Hmm...
látum okkur sjá. Blikk augans. Það kemur og fer án þess
að þú þurfir að hugsa um það."
"Frábært!" segir
starfsmannastjórinn. "Augnablik er einmitt mjög oft
notað sem mælikvarði á eitthvað sem gerist mjög hratt."
Hann snýr sér svo að þeim
þriðja sem er tilbúinn með svar:
"Það hlýtur að vera hraði
ljóssins," segir hann, "til dæmis, þegar ég er að fara
út í bílskúr, þá nota ég kveikjarann sem er við
útidyrnar og áður en ég get blikkað augunum, þá er
ljósið komið á úti í bílskúr. Hraði ljóssins er það
hraðasta sem ég þekki."
Starfsmannastjórinn var
yfir sig hrifinn og hélt hann hefði fundið sinn mann.
"Það er erfitt að slá út hraða ljóssins." Þessu næst
snýr hann sér að fjórða og síðasta umsækjandanum.
"Það er augljóst fyrir mér
að það hraðasta í heimi er niðurgangur."
"Ha?" spyr
starfsmannastjórinn, steinhissa á svarinu.
"Bíddu,
leyfðu mér að útskýra. Sjáðu til, um daginn leið mér
ekki vel og dreif mig á klósettið. En áður en ég gat
hugsað, blikkað eða kveikt ljósin, þá var ég búinn að
drulla í buxurnar."
Hann
var ráðinn
Þegar amma mín var 65 ara ákvað
hún að labba 250m á dag.. núna er hún 83 ára og hún veit
ekkert hvar hún er....
“Kæri læknir.. Þegar kærastinn
minn þrýstir á brjóstin á mér blotna ég alltaf í
klofinu. Getur verið að ég sé með vatn í lungunum?
Hann sagði:Ég skil ekki af hverju
þú ert í brjóstahaldara, það er ekkert til að halda.
Hún
svarar - Þú ert í nærbuxum, er það ekki?
Gigtarsjúklingurinn fór til
læknisins sem spurði hann "Hvað amar að þér vinur?"
Sjúklingurinn svarar: Bara fastir liðir eins og
venjulega... :-)
Stúlka kemur hlaupandi heim úr
skólanum og kallar á mömmu sína: Mamma, mamma, í dag
lærðum við að telja og allir hinir krakkarnir kunnu bara
að telja upp í fimm.Ég kunni að telja upp í tíu. Er ég
ekki dugleg, mamma? Jú, segir mamman: er það af því að
ég er ljóska? Já, segir mamman. Daginn eftir kemur
stúlkan aftur heim úr skólanum og segir: Í dag lærðum
við stafrófið. Ég kunni að stafa að H, en hinir
krakkarnir náðu bara að stafa að E. Er ég ekki dugleg?
Jú, segir mamman. Er það af því að ég er ljóska? Já,
segir mamman. Þriðja daginn kemur stúlkan hlaupandi heim
úr skólanum og segir: Í dag fórum við í leikfimi. Allar
stelpurnar voru með lítil brjóst nema ég. Er það af því
að ég er ljóska, mamma? Nei, það er af því að þú ert 25
ára!!
Einn daginn hitti
Jane
Tarzan í frumskóginum. Henni
fanst
Tarzan vera mjög flottur og á meðan
Tarzan
spurði hana um lífið, hún spurði hvernig hann stundar
mök. “Hvað er það?” spyr hann. Hún útskýrir hvað kynlíf
er og hann sagði, “Óh,
Tarzan notar holu í tré.”
Fyllt hryllingi segir hún, “Tarzan
það er vitlaust! Ég skal sýna þér hvernig á að gera
þetta.. almennilega!” Hún fór úr fötunum, lagðist á
jörðuna og færði fæturna
langt frá hvor öðrum. “Hérna,” sagði hún og benti, “Þú
átt að setja það þangað.”
Tarzan
fór úr skinn-fötunum sínum, labbaði nær og sparkaði
guðdómlega fast í klofið. Jane
lá á gólfinu og engdist. Loksins náði hún að tala, “Af
hverju í andskotanum gerðir
þú þetta?”
“Tarzan
tékka á geitungum!”
Ungur maður úr Hafnarfirði var að
innrita sig í háskólann. Kennarinn tók niður nafn og
fl, og sagði við hann, þetta
verður í lagi en þú verður að velja þér einhverja grein.
Má ég spurði ungi maðurinn, ekki sitja í stól eins og
aðrir ?
Maður kom inná
pöbb og fékk sér
öllara og tekur þá eftir Apa
sem situr á barborðinu. Maðurinn spyr þjóninn út í Apann
og segir þá þjónninn að þetta sé sniðugur Api, !sko
taktu nú eftir! þjónninn tekur kylfu undan barborðinu og
lemur Apann í hausinn en hann stekkur þá niður og fer
til þjónsins og rennir buxnaklaufinni hans niður og
byrjar að totta. Já segir maðurinn, þetta er sniðugur
Api, já finnst þér ekki, viltu prufa spyr þjónninn, ok,
en ekki lemja mig eins fast og þú lamdir Apann.
Á spítalanum voru ættingjarnir
saman komnir á biðstofunni þar sem einn
fjölskyldumeðlimur lá mjög
veikur. Loksins kom læknirinn þreytulegur og
dapur. "Ég er hræddur um að ég
færi ykkur slæm tíðindi" sagði hann og
horfði upp á áhyggjufull
andlit ættingjanna. "Eina von ástvinar ykkar er sú
að hann fái heilaígræðslu.
Þessi aðgerð hefur ekki ennþá verið prófuð til
hlítar og er mjög
áhættusöm en er jafnframt eina vonin í þessari stöðu.
Tryggingarnar greiða allan
kostnað af aðgerðinni en þið þurfið að greiða
sjálf fyrir heilann".
Ættingjarnir sátu hljóðir og meltu með sér þessar
fréttir. Eftir dálítinn
tíma spurði einn þeirra. "Hvað kostar heili?"
Læknirinn svaraði strax.
"Karlmannsheili kostar eina milljón en
kvenmannsheili kostar
hundrað og fimmtíu þúsund". Allir ættingjarnir urðu
frekar vandræðalegir en
karlmennirnir forðuðust að horfast í augu við
konurnar. Nokkrir gátu
ekki á sér setið og glottu og jafnvel flissuðu. Einn
þeirra gat þó ekki hamið
forvitni sína og spurði þeirrar spurningar sem
öllum langaði að spyrja
að. "Af hverju er karlmannsheilinn svona mikið
dýrari"? Læknirinn brosti
umburðarlyndur af einfeldni mannsins og útskýrði
þetta fyrir öllum hópnum.
"Þetta er bara þetta venjulega verð sem sett er
upp, við getum ekki selt
kvenmannsheila dýrari en þetta því þeir eru
notaðir"!!!
Gamall maður bjó einn í
Þykkvabænum.
Hann langaði til þess að
stinga upp kartöflugarðinn sinn, en það var
mikil erfiðisvinna. Bubbi
sonur hans, var sá eini sem hann hafði
getað fengið til að hjálpa
sér. En Bubbi var
lokaður inni á Hrauninu.
Gamli skrifaði honum bréf og sagði honum frá vandræðum
sínum:
Elsku Bubbi minn,
Æ, mér líður hálf-illa,
því það lítur út fyrir að ég geti ekki sett neinar
kartöflur niður í garðinn
þetta árið. Ég er bara að verða of gamall til
þess að vera að stinga upp
beðin. Ef þú værir hérna, ætti ég ekki í neinum
vandræðum, því ég veit að
þú mundir stinga upp beðin fyrir mig.
Kær kveðja til þín, elsku
sonur Pabbi
Eftir örfáa daga, fékk
hann bréf frá syni sínum :
Elsku Pabbi
Í GUÐANNA BÆNUM, ekki
stinga upp garðinn !
Ég gróf ránsfenginn og
byssurnar þar !
Þinn
Bubbi
Í birtingu morguninn eftir
komu hópar lögregluþjóna frá embætti
Ríkislögreglustjóra og
Selfosslögreglunni og umbyltu öllum beðunum, en
fundu hvorki þýfi né
byssur. Þeir báðu gamla manninn afsökunar og hurfu á
braut.
Sama
daginn fékk hann annað bréf frá syninum :
Elsku pabbi
Drífðu nú í því að setja
niður kartöflurnar.
Við núverandi aðstæður get
ég ekki gert betur.
Þinn elskandi sonur
Bubbi
Einu sinni var gömul kona að ganga
niður götu með tvo troðfulla ruslapoka.
Lögreglumaður stóð þarna rétt
hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og
5000 kr seðlar flugu úr
pokanum endrum og eins. Eitthvað fannst honum þetta
dularfullt og gekk upp að konunni 'Góðan daginn væna
mín' sagði hann 'Hefur þú tekið eftir því að það eru
5.000 kr seðlar fjúkandi úr
pokanum þínum?' Konan stoppar og lítur bak við sig og
sér seðlana á víð og dreif um götuna 'Æ þakka þér fyrir
væni minn' stundi í konunni 'Ég ætti nú að drífa mig í
að taka þá upp' En
þegar hún ætlar að leggja af stað að týna upp seðlana
stöðvar lögregluþjónninn hana 'Engan asa væna mín,
hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann
ruslapoka af fimm þúsund köllum? Varstu að ræna banka?'
Gamla konan brosti 'nei það
gerði ég nú ekki en það vill svo til að bak við garðinn
minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót
eru í gangi að þá koma oft ungir menn og míga í
blómabeðin hjá mér svo ég tók upp á því að standa þarna
með garðklippurnar og segja '5.000
kr. eða ég klippi hann af'
'jahá..
þetta er áhugaverð hugmynd' sagði lögregluþjóninn hugsi
'..en hvað ertu með í hinum pokanum?'
'Það eru ekki allir sem borga...
Maður nokkur kom inn á
veitingastað og með honum stór strútur.
Hann pantaði samloku og sódavatn.
Gengilbeinan varð að vonum
undrandi að sjá strútinn, en lét sem ekkert væri og
spurði hann hvað hann ætlaði að fá. „
Það sama", sagði strúturinn.
Gengilbeinan kom með matinn og bar
fyrir þá félagana. „Þetta kostar 1.763 krónur, borgið
þið saman eða sinn í hvoru lagi?" spurði gengilbeinan.
Maðurinn sagði ekkert, en tíndi
upp úr vasa sínum, án þess að telja, nákvæmlega upphæðin
sem gefin var upp.
Daginn eftir komu maðurinn og
strúturinn aftur. „Samloku og sódavatn fyrir mig" sagði
maðurinn. „Sama fyrir mig" sagði strúturinn.
Aftur tók maðurinn nákvæmlega
rétta upphæð úr vasa sínum.
Þegar sagan hafði endurtekið sig
alla vikuna, var gengilbeinan hætt að vera hissa, en
forvitnin var að gera út af við
hana.
Á áttunda degi beið hún
eftirvæntingarfull eftir þeim félögum og þegar þeir komu
inn á veitingastaðinn tók hún á móti þeim og spurði
hvort hún ætti að bera þeim samlokur og sódavatn í dag??
„
Nei, ég er að hugsa um að breyta
aðeins til og fá mér T-bone
steik, franskar og bjórglas" sagði maðurinn. „
Ég ætla að fá eins og hann" sagði
strúturinn. „
Það verða 3.810 krónur", sagði
gengilbeinan.
Og enn einu sinni tíndi maðurinn
upp úr vasa sínum nákvæmlega fyrir veitingunum án þess
að telja, þó upphæðin hefði auðvitað breyst.
Nú bara gat gengilbeinan ekki
hamið forvitni sína lengur og spurði manninn hvernig
stæði á því að hann þyrfti aldrei að telja upp úr vasa
sínum, heldur legði hann alltaf fram nákvæmlega rétta
upphæð. „
Sko", sagði maðurinn, „ég var að
taka til á háaloftinu hjá mér þegar ég rakst á eldgamlan
lampa.
Þegar ég ætlaði að strjúka af
honum rykið leið upp úr honum andi sem bauð mér tvær
óskir.
Ég óskaði mér auðvitað þess að
eiga alltaf næga peninga í vasa mínum þegar ég þyrfti að
borga eitthvað".
En þú hógvær og vitur", sagði
gengilbeinan. „
Flestir hefðu nú óskað eftir
himinhárri fúlgu fjár, spilar rassinn úr buxunum og
verið svo staurblankir fyrir rest, en þú munt alltaf
eiga nákvæmlega þá peninga sem þú þarft á að halda"
Maðurinn sagði henni ánægður, að
hann færi í búðina eftir einum lítra af mjólk eða á
bílasölu að kaupa sér Rolls
Royce og ætti alltaf akkúrat
fyrir því sem hann bæði um. „
En segðu mér" spurði þá
gengilbeinan, „hvernig stendur á því að þú ert alltaf
með þennan strút í eftirdragi??".
Maðurinn varð vandræðalegur og
roðnaði svolítið, en ákvað þó eftir nokkurt hik að segja
gengilbeinunni frá. „
Jú, sjáðu til, ég átti hina óskina
eftir og bað andann að færa mér leggjalangan
lífsförunaut með stór, brún
augu og dillibossa, sem væri mér alltaf sammála og væri
ekki gáfaðri en ég....
Jóhannes kom hlaupandi heim til
sín og brosandi út að eyrum. Pabbi, pabbi ég fæ að leika
í skólaleikritinu fyrir
árshátíðina, hrópar hann himinlifandi. Flott hjá þér Jói
minn og hvaða hlutverk færðu svo?, spurði pabbinn
stoltur af stráknum. Ég á að leika mann sem hefur verið
giftur í 25. ár. Jæja það er þá ekki langur texti sem þú
þarft að læra.
Eldgömul hjón voru að keyra á
þjóvegi eitt þegar að löggan stoppar þau.
Löggan kemur að bílnum og
segir við gamla manninn sem situr undir stýri;
Þú keyrðir ansi hratt
herraminn!!
Þá hálf öskrar gamla
kellingin í farþegasætinu: HVAÐ
SAGÐ'ANN??
HANN SAGÐI AÐ VIÐ HÖFUM
KEYRT OF HRATT: öskrar gamli kallinn á móti til hálf
heyrnalausrar konu sinnar.
Löggan: Ég verð því miður
að sekta ykkur!
Kéllingin:
HVAÐ SAGÐ'ANN??
Kallinn: HANN SAGÐIST
ÞURFA AÐ SEKTA OKKUR!!!
Löggan tekur upp
sektarmiðana og spyr svo hjónin: Á hvaða leið eruð þið?
Kjéllingin:
HVAÐ SAGÐ'ANNN???
Kallinn: HANN SPURÐI Á
HVAÐA FERÐ VIÐ VÆRUM!! Segir svo við lögguna; við erum á
leið norður, á Akureyri.
Akureyri, ha; segir löggan
og bætir við úff versti
dráttur sem ég hef fengið á æfinni
var þar!!!
Kéllinginn:
HVAÐ SAGÐANN!!!!!
Kallinn lítur á konu sína
kvikindislegur á svip og öskrar á hana: HANN ÞEKKIR
ÞIG!!!
Hrólfur og Erla voru vistmenn á
geðsjúkrahúsi. Dag einn, er þau voru á gangi við
sundlaugina kastaði Hrólfur sér útí og sökk til botns.
Erla stakk sér útí laugina og bjargaði Hrólfi frá
drukknun.
Þegar yfirlæknirinn frétti af
björgunarafreki Erlu ákvað hann að útskrifa hana af
sjúkrahúsinu, þar sem hún væri greinilega búin að ná
snerpu og andlegu jafnvægi á ný.
Daginn eftir fór hann til
fundar við Erlu til að boða henni fréttirnar og sagði
þá; " Erla mín, ég hef bæði góðar og slæmar fréttir að
færa þér! Góða fréttin er að ég ætla að útskrifa þig af
spítalanum þar sem þú hefur sýnt merki um bata, sem
sýnir sig í því að þú bjargaðir honum Hrólfi frá
drukknun. Slæma fréttin er hins vegar sú að hann Hrólfur
er dáinn. Karlgreyið hengdi sig í beltinu sínu í
gærkvöldi eftir að þú hafðir bjargað honum.?
Þá sagði Erla; "Hrólfur hengdi sig ekki. Ég festi hann
upp til þerris í gærkvöldi. En hvenær má ég fara heim
sagðirðu ??
Nonni litli fylgdist spenntur með
þar sem mamma hans makaði á sig einhverju fegurðar kremi
úr dollu.
"Af hverju ertu að setja þetta
krem framan í þig mamma?" spurði hann.
"Til að ég verði fallegri,"
segir mamma hans.
...
Nokkrum mínútum
seinna byrjar hún að þurrka kremið framan úr sér með
bómull.
"Hvað er að?" spyr Nonni. "Gafstu upp?"
Einu sinni fóru hjón til læknis
vegna þess að þau gátu ekki stundað kynlíf. Læknirinn
sagðist vera með nýja leið, sem hann skyldi prófa á
þeim. Að setja segul í typpið á kallinum og stál í
konuna, þannig að þau myndu bara smella saman.
Allt þetta gekk vel, og
svo var komið að endurkomu, en þá kemur konan bara ein
og greinilega í uppnámi. “Hvar er eiginlega maðurinn
þinn?”, spurði læknirinn. “Honum var stungið í
fangelsi!” svarar konan. “Ha, hvers vegna?”, spyr
læknirinn
“já, við
fórum í sund og þar var strákur með spangir…” svarar
konan
Jón kom hlaupandi til mömmu
sinnar: Mamma, barnapían mín er engill!
Nú, af hverju heldurðu það?
Af því að hún er á hnjánum inní herbergi og kallar: Guð,
ég er að koma!! En þetta er allt í lagi, pabbi heldur
henni fast og passar að hún fljúgi ekki burt.
Sverrir fékk páfagauk í
afmælisgjöf og komst fljótt að því að sá var
meðafbrigðum skapvondur og orðljótur. Sverrir gerði allt
sem honum datt í hug til að venja fuglinn af þessum
ósið, hann notaði sjálfur eintóm kurteisisorð, spilaði
hugljúfar ballöður fyrir hann og reyndi með því að sýna
honum gott fordæmi. Ekkert gekk upp.
Hann prófaði að skamma fuglinn
sem svaraði honum fullum hálsi. Hann hristi búrið en
gaukurinn varð bara enn
skapverri og dónalegri við það. Sverrir vissi nú ekki
sitt rjúkandi ráð og í
örvæntingu sinni tók hann fuglinn og setti hann í
frystikistuna. Um stundarsakir heyrðust ógurleg læti úr
kistunni, fuglinn sparkaði og öskraði og bölvaði -- en
skyndilega datt allt í dúna logn
og ekki eitt einasta hljóð heyrðist í langan tíma.
Sverrir fór nú að óttast að hann hefði meitt fuglinn
og flýtti sér að opna kistuna. Páfagaukurinn var hins
vegar hinn rólegasti, steig upp á útrétta hönd Sverris
og sagði: ""Að undanförnu hefur hegðun mín og orðbragð
ekki verið til eftirbreytni og sennilegast orðið til að
móðga þig. Ég mun þegar í stað taka mig rækilega á og
breyta þessari hegðun minni. Mér þykir verulega leitt
hvernig ég hef látið og mig langar til að biðja þig
innilega fyrirgefningar."" Sverrir varð orðlaus af
undrun og var um það bil að fara að stama upp spurningu
um hvað hefði valdið breytingunni þegar páfagaukurinn
hélt áfram: ""Bara svona fyrir forvitnis sakir, hvað
gerði kjúklingurinn í kistunni eiginlega?""
|
Þórður fór með konunni sinni til læknis.
Þegar inn var komið tók læknirinn
hitamælir og settí í munn hennar og sagði henni að hafa
munninn lokaðan í þrjár mínútur.
Þórður fylgdist dáleiddur með og þegar
konan losnaði við mælirinn spurði Þórður: Hvað kostar
svona tæki?
Hjónin sátu og ræddu um lífið og
dauðann. Þar kom að í samtalinu að eiginmaðurinn sagði
að hann vildi ekki að sér væri haldið lifandi með tækjum
og fljótandi næringu. Eiginkonan brást skjótt við,
slökkti á sjónvarpinu og hellti niður bjórnum hans......
Strákurinnandyrinu
heima hjá stelpunni þá styður strákurinn annarri
hendinni við vegginn og hallar sér að henni og
segir“Viltu nú ekki totta mig?”
Stúlkan var ekki til og segir
við hann að fjölskyldan sé nú sofandi, svo geti
nágrannarnir séð til þeirra.Strákurinn gefst ekki upp og
heldur áfram að röfla, enda engar líkur á að einhver sé
á fótum á þessum tíma. Stúlkan heldur áfram að neita.
Allt í einu opnast hurðin, og systur stelpunnar kemur
út, með stýrurnar í
augunum.“Pabbi segir að þú eigir að totta hann, ef þú
gerir það ekki eigi ég að gera það, ef ég geri það ekki
muni hann koma sjálfur og geri það. En segðu svo
kærastanum þínum að taka hendinni af dyrasímanum!”
Skjaldbaka er á ferðinni í
New
York þegar gengi að sniglum kemur og rænir hana.
Lögreglan mætir á staðin til
að rannsaka þetta og spyr skjaldbökuna hvað hafi gerst.
“Ég veit það ekki”, svarar skjaldbakan, “þetta gerðist
allt svo hratt”.
Þekki mann
seem getur ekki spilað GOLV
. Sko hann er of feitur,, semsagt ef að hann sér kúluna
þá nær hann ekki til hennar og ef að hann nær til
kúlunnar þá sér hann hana ekki,, jæja ok alltaf í
boltanum :-)
Fimm mannætur voru ráðnar hjá
Bankanum og Mannauðsstjórinn upplýsir þær:
Nú hafið þið fasta vinnu,
þénið vel og getið borðað í mötuneytinu, svo látið aðra
í friði. Því lofuðu mannæturnar, en eftir fjórar vikur
kemur sjeffinn aftur og
segir: Það vantar einn þjónustufulltrúa. Veit einhver
ykkar hvað hefur orðið af henni? Allar mannæturnar
hristu höfuðið og sóru, að þær hefðu ekki neitt með
málið að gera.......
Þegar
sjeffinn var farinn, spyr ein mannætan hinar:
Hver ykkar hefur étið þjónustufulltrúann? Það var ég,
hvíslar ein þeirra.
Fíflið þitt. Nú höfum við síðustu 4 vikur étið
Útibússtjóra, aðstoðarútibússtjóra, 2 sérfræðinga og
þjónustustjóra, án þess að neinn tæki eftir því - og þá
þurftir þú af öllu að éta einhvern sem gerir eitthvað!!!
Ljóskan leit furðu lostin á
vinkonu sína og spurði: “Finnst þér ekki gaman að fá
blóm?” Sú rauðhærða svaraði: “Jú, jú… en kallinn er
alltaf með væntingar þegar hann gefur mér blóm, ég bara
nenni ekki að eyða næstu þremur dögum liggjandi á bakinu
með fæturnar upp í loft.
”Ljóskan horfði ráðvillt á hana en spurði svo “Áttu ekki
blómavasa?
=:-) Eigum góðan dag í þessu fallega veðri
Gummi var með 2 í takinu á
elliheimilinu, Siggu og Jónu. Eitt kvöldið sem hann var
hjá Siggu sagði hann að hann vildi hætta með henni.
Hvers vegna ertu að segja mér upp, spurði Sigga. Sko hún
Jóna heldur svo vel umm'ann
á nóttinni. En það geri ég líka hrópaði Sigga. Já ég
veit en Jóna er með PARKISON.
Golfkennarinn var að segja
byrjanda til. Hann lagði kúluna ofan á
tíið benti á veifuna út á
vellinum og sagði. Þú átt að slá eins nálægt veifunni og
þú getur! Byrjandinn sló og kúlan staðnæmdist tæpu feti
frá holunni. Kennarinn var undrandi, en nemandinn spurði
kæruleysislega: Hvað á ég að gera næst? Þú átt að reyna
að slá kúluna ofan í holuna! Ofan í holuna! hrópaði
nemandinn. Af hverju sagðirðu það ekki strax? :o/
Hann Jón gamli fór á hverju kvöldi
í heimsókn til hennar Gunnu gömlu. Hann var eitt sinn
spurður hvort hann vildi ekki bara giftast henni, úr því
að hann væri svona mikið hjá henni? Jú það kæmi
náttúrulega vel til greina, svaraði karlinn. En hvert
get ég þá farið á kvöldin? :)
Gömul kona stóð í stefni
skemmtiferðarskipsins.
Hún hélt fast í hatt sinn svo
hann
fyki ekki brott með vindinum.
Herramaður gekk til hennar og
sagði
“Fyrirgefðu frú,
... en vissir þú að kjóll
þinn blæs upp í
þessum vindi?
“Já ég veit það”, sagði
konan,
“Ég þarf að nota báðar
hendurnar til þess að
halda hattinum á sínum
stað.”
“En frú mín,
þú hlýtur að átta þig á
því að hið allra helgasta
blasir við þeim fjölmörgu
sem standa hér”,
sagði herramaðurinn
kurteislega.
Gamla frúin leit niður,
og síðan á herramanninn og
svaraði;
“Góði minn, allt sem þú
sérð þarna niðri er 85 ára gamalt.
En ég keypti þennan hatt í gær.”
Eldri hjón komu nýlega inn á
McDonalds og pöntuðu
BigMac með gosi á tilboði.
Þau skiptu öllu í tvennt, fengu aukaglas og skiptu
gosinu á milli sín. Maðurinn byrjaði að borða en konan
sat og horfði á. Stúlka sem var að þrífa stóðst þetta
ekki og spurði hvort hún mætti ekki gefa þeim annan
skammt svo þau þyrftu ekki að skipta þessu á milli sín.
Gamli maðurinn svaraði: ?Við erum búin að vera gift í 50
ár og við höfum alltaf deilt öllu á milli okkar. Við
breytumst ekki úr þessu.? Stúlkan spurði konuna næst
hvers vegna hún borði ekki og gamla konan svaraði: ?Hann
er að nota tennurnar, það kemur að mér þegar hann er
búinn.?
Ungur maður sem réð sig sem
leiðbeinanda í gagnfræðaskóla var orðinn ansi þreyttur á
nemendum sínum eftir fyrstu vikuna. Í einum tímanum,
þegar honum þótti börnin sína takmarkaða færni, sagði
hann: ?Mig langar að biðja alla þá sem eru heimskir að
standa upp.? Enginn stóð upp og eftir mínútu þögn sagði
leiðbeinandinn: ?Hvað er að ske, eruð þið öll
vitringar?? Þá stóð einn ungur piltur upp og kennarinn
spurði: ?Svo þú telur þig heimskan?? Drengurinn svaraði:
?Nei, ég bara vorkenndi þér að standa þarna einn.?
Hafnfirðingur sótti um starf í
lögreglunni en þurfti fyrst að gangast undir hæfnispróf.
Hann var til dæmis spurður hvernig Jesús hefði dáið.
Umsækjandinn horfði skilningsvana á spyrjandann en brá
að það ráð að svara engu. "Jæja, hafðu engar áhyggjur af
þessu,"sagði spyrjandinn, "en pældu samt í því." Þegar
Hafnfirðingurinn kom heim spurði konan hans hvort hann
hefði fengið stöðuna."Jahá,
og ég er meira að segja búinn að fá mál til að rannsaka
!"
Bóndinn var í kaupstað á
kaffihúsi, þegar hann heyrði á tal ungra elskenda, þar
sem strákurinn sagði við stelpuna: Ég elska þig svo
mikið að ég gleymi að borða! Þetta fannst karli fallega
sagt og ákvað að nota það við konuna þegar heim í
sveitina kæmi. Daginn eftir sitja þau hjón í eldhúsinu
heima og hann ákveður að sjarmera hana með þessum frasa
sem hann minnti að væri
einhvernveginn svona: Þegar ég horfi á þig elskan
mín missi ég matarlystina!
Jói og Stína skruppu í viku frí
til Texas á sextugsafmælinu.
Dag einn er Jói að rölta í
bænum þegar hann sér í verslunarglugga einum,
þessi líka glæsilegu
kúrekastígvél á niðursettu verði
Jói hafði alltaf þráð að eiga
kúrekastígvél og sér þarna tækifærið. Hann kaupir
stígvélin, skellir sér strax í þau og spígsporar
hróðugur heim á hótel, þar sem Stína situr við að klippa
táneglurnar.
Stoltur stillir hann sér upp
fyrir framan Stínu og segir "Hvernig líst þér á, Stína?"
Stína gýtur augunum í átt til hans "Á hvað? "Sérðu
ekkert sérstakt?" segir Jói spenntur. Stína mænir á hann
"Neibb" Sár og reiður
strunsar Jói inn á baðherbergi, rífur sig úr fötunum og
rigsar síðan aftur fram til
Stínu, allsnakinn fyrir utan nýju stígvélin. "Tekurðu þá
eftir einhverju NÚNA?" segir hann og er fastmæltur.
Stína lítur upp "Hvað
hefur svo sem breyst, Jói minn? Hann lafir niður í
dag, hann lafði niður í
gær og hann mun lafa niður á morgun, ef ég reynist
sannspá"
Og Jói stappar niður fæti
í bræði sinni "Veistu AF HVERJU hann lafir niður, ha?
Það er vegna þess, Stína
að hann er að dást að nýju kúrekastígvélunum mínum !!
Það rennur upp ljós fyrir
Stínu en síðan hristir hún höfuðið og segir full samúðar
"Þú hefðir frekar átt að
kaupa þér hatt, Jói minn.
Miklu frekar átt að kaupa þér
hatt"
Þegar ungur eiginmaður kemur heim
eitt kvöldið tekur konan á móti honum með því að hlaupa
upp um háls honum og segja; Ástin ég er kominn einn
mánuð fram yfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk,
heimilislæknirinn okkar sagði að hann gæti ekki
fullvissað mig um fyrr en hann fengi niðurstöðu úr
rannsókninni á morgun og við skyldum þegja yfir þessu
þangað til.
Að morgni næsta dags kom maður
frá Orkuveitunni til þess að loka fyrir rafmagnið, þar
sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta reikning. Hann
hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra
sagði hann; "Þú ert kominn mánuð fram yfir". "Hvernig í
ósköpunum veist þú það?" spurði unga frúin. "Nú það er
allt svona skráð kyrfilega í tölvukerfi Orkuveitunnar"
var svarið. "Heyrðu þetta sætti ég mig sko ekki við og
ég ætla að tala við manninn
minn í kvöld og hann mun örugglega hafa samband við
ykkur á morgun" sagði unga frúin og skellti hurðinni.
Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um
persónunjósnir Orkuveitunnar og hann fór vitanlega
öskuvondur á fund Alfreðs Þorsteinssonar morguninn
eftir. "Heyrðu Alfreð þetta er nú algjörlega út í hött.
Hvað eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur, þið eruð með
það í skrám ykkar að við séum komin mánuð fram yfir,
hvern andskotann kemur ykkur
það við?". "Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu
okkur bara og þá tökum við þetta úr skránni
okkar."svaraði Alfreð. "Borga ykkur, ertu ekki í lagi,
nú ef ég hafna því hvað þá?" "Nú þá klippum við bara á
og tökum þig úr sambandi." "Og hvað á konan mín þá að
gera?" "Nú hún verður þá bara að nota kerti." Svaraði
Alfreð.
Það stoppaði stór trukkur á rauðu
ljósi í Reykjavík. Ljóshærð kona stekkur
út úr bílnum sínum, hleypur að
trukknum og bankar á dyrnar. Bílstjórinn
skrúfar niður rúðuna og
hlustar á hvað hún hefur að segja. "Hæ ég heiti
Lísa og þú ert að missa hluta
af hlassinu þínu.
Bílstjórinn gerði ekkert með
þetta og hélt bara áfram. Þegar trukkurinn
stoppaði aftur annars
staðar á rauðu ljósi, stoppaði stúlkan hann aftur.
Hún stökk út úr bílnum
sínum og bankaði á dyrnar hjá bílstjóranum. Aftur
skrúfaði hann niður
rúðuna. Eins og þau hefðu aldrei talað saman, sagði sú
ljóshærða skýrt og
greinilega: "Hæ, ég heiti Lísa og þú ert að missa
hluta af hlassinu þínu.
Hristandi hausinn, hunsaði bílstjórinn hana aftur
og hélt áfram niður
götuna.
Á þriðja rauða ljósinu, þá
gerðist það sama. Eins og stormsveipur stökk sú
ljóshærða út úr bílnum, hljóp að dyrum bílsins og
bankaði. Bílstjórinn
skrúfar niður rúðuna. Enn
og aftur segir sú ljóshærða: "Hæ, ég heiti Lísa
og þú ert að missa hluta
af hlassinu þínu."
Þegar það var komið grænt
ljós, keyrði trukkurinn af stað með það sama að
næsta ljósi. En þegar hann
stoppaði í þetta skiptið, dreif hann sig út úr
trukknum og hljóp aftur að bíl
ljóshærðu konunnar. Hann bankaði á bílrúðuna
og þegar hún skrúfaði hana
niður, sagði hann: "Hæ, ég heiti Birgir, það er vetur í
Reykjavík og ég er að keyra SALTBÍLINN."
Sko við kallarnir reynum allavega
að bjarga málunum.....
Við morgunverðarborðið einn
daginn sagði Magga „Ég þori að veðja að þú veist ekki
hvaða dagur er í dag.“
„Jú, auðvitað veit ég það!“
sagði Jónas og fór í vinnuna.
Klukkan 10 fyrir hádegi
hringdi dyrabjallan og Magga opnaði. Þar var stúlkan úr
Blómabúðinni og hún rétti Möggu tólf gullfallegar rauðar
rósir með ástarkveðju frá Jónasi.
Klukkan eitt eftir hádegið
kom sendill úr Súkkulaðibúðinni með eitt kíló af
uppáhaldskonfektinu hennar Möggu og ástarkveðjur frá
Jónasi.
Seinna um daginn kom konan
í Kjólabúðinni með nýtísku ballkjól frá einu stóru
tískuhúsanna í París og ástarkveðjur frá Jónasi.
Þegar Jónas kom heim beið Magga
eftir honum með óþreyju. „Veistu hvað, Jónas? Fyrst
blóm, svo konfekt og síðan þessi frábæri kjóll -- ég
held að þetta sé besti Fyrsti vetrardagur sem ég hef
upplifað!“
Maður kemur inn á bar og pantar
drykk. Stuttu seinna heyrir barþjónninn síma hringja og
sér að maðurinn lyftir hendinni upp að andlitinu og
byrjar að tala. Þegar hann hefur lokið við að tala spyr
þjónninn hvað sé í gangi. Maðurinn segir að hann noti
símann það mikið að hann hafi látið græða
GSM síma í hönd sína svo
hann þurfi ekki alltaf að muna að hafa hann með. Þjóninn
trúir þessu ekki svo maðurinn hringir í númer, setur
höndina á eyra þjónsins og leyfir honum að heyra þegar
síminn hringir hinum megin. Næst spyr maðurinn hvar
klósettið sé og fer þangað eftir að hafa sagt þjóninum
að hann verði enga stund að þessu. Þjónninn fyllti
glasið hjá manninum og beið. Þegar hálftími er liðinn og
maðurinn kemur ekki út af klósettinu fór þjóninn að
undrast og að lokum fór hann inn á klósett að gá hvort
allt væri í lagi. Þegar hann kemur inn sér hann manninn
liggjandi á gólfinu, buxnalaus, með
fæturnar upp á vegg og salernispappír rúllandi út
úr afturendanum. "Hvað er um að vera?" spurði þjónninn.
Maðurinn brosti kindarlega og sagði, "bíddu
aðeins, ég er að fá fax."
Hafið þið heyrt um öndina sem gekk
inn á bar og spurði barþjóninn: Áttu brauð? Nei svaraði
barþjóninn. Aftur spurði öndin með sinni nefmæltu rödd:
áttu brauð? Nei var svarað aftur. Enn spurði öndin: Áttu
brauð? Nú var farið að fjúka í barþjóninn og hann hvæsti
á öndina: Þú ert inni á bar, hér er ekkert brauð og ef
þú hættir þessu ekki þá negli ég aftur á þér gogginn við
borðið. Öndin hallaði undir flatt, leit á barþjóninn og
spurði: áttu nagla? NEI! hvæsti barþjónninn.
Þá brosti öndin og sagði: Áttu brauð?
Einn daginn fór gömul kona með
fulla tösku af peningum í banka.
Við afgreiðsluborðið sagði hún
að hún vildi bara tala við bankastjórann, um að opna
sparireikning:
''þetta eru miklir peningar,
þú skilur.''
Eftir langar rökræður var
konunni fylgt til bankastjórans -viðskiptavinurinn er
konungur!!!
Bankastjórinn spurði um
upphæðina sem konan vildi leggja inn.
Hún sagði honum að það
væri um 50 milljón evrur að ræða. Hún tæmdi töskuna
fyrir hann. Auðvitað varð bankastjórinn forvitin um
hvaðan allir þessir peningar kæmu.
"Kæra frú, það kemur mér á
óvart hversu mikla peninga þú hefur - hvernig stendur á
því?´"
Gamla konan svaraði honum:
"Mjög einfalt. Ég veðja!''
"Veðjar?'' spurði
bankastjórinn, "hvers konar veðmál?''
Gamla konan svaraði:
Jah, allt mögulegt.
"Til dæmis, veðja ég við
þig, uppá 25.000 evrur að eistun á þér séu ferköntuð!"
Bankastjórinn fór að hlæja
og sagði:
2Það er fáránlegt! Á
þennan hátt getur þú aldrei unnið svona mikla peninga."
Jæja, eins og ég sagði
áðan, þá er það á þennan hátt sem ég vinn mér inn
peningana.
Ert þú tilbúin til að taka
þátt í þessu veðmáli?´´
"Auðvitað!" svaraði hann.
Það voru jú miklir peningar í húfi.
"Ég veðja semsagt 25.000
evrum uppá að eistun á mér séu ekki ferköntuð."
Gamla konan svaraði: "
Samþykkt, en þar sem þetta eru miklir peningar, má ég þá
koma við á morgunn, klk
10:00 með lögfræðinginn minn, svo að við höfum líka
vitni?"
"Auðvitað!" Bankastjórinn
samþykkti.
Um nóttina var
bankastjórinn frekar taugaóstyrkur og skoðaði ýtarlega á
sér eistun, tímunum saman.
Fyrst öðrumegin svo
hinumegin.
Að lokum með hjálp
einfalds prófs varð hann 100% öruggur. Hann myndi vinna
veðmálið, alveg viss!
Morguninn eftir kom gamla
konan, klk 10:00 í bankann
með lögfræðinginn sinn.
Hún kynnti mennina tvo
hvor fyrir öðrum og endurtók veðmálið uppá 25.000 evrur.
Og uppá nýtt samþykkti
bankastjórinn veðmálið að eistun á sér væru ekki
ferköntuð.
Eftir það bað hún hann um
að taka niður um sig buxurnar til að skoða málið
(punginn) einu sinni.
Bankastjórinn tók niður um
sig buxurnar, gamla konan kom nær, skoðaði punginn í
rólegheitum og spurði hann varlega hvort hún mætti koma
við eistun.
Mundu eftir að það eru
miklir peningar í húfi.
"O.K." sagði bankastjórinn
öruggur.
Þetta er 25.000 evra virði
og ég skil vel að þú viljir vera viss.
Þá kom konan enn nær og
hélt eistum mannsins í lófa sér.
Þá tók bankastjórinn eftir
því að lögfræðingurinn var farinn að berja hausnum á sér
við vegginn.
Bankastjórinn spurði
konuna:´´ Hvað er að lögfræðingnum þínum?´´
Hún svaraði: "Ekkert, ég veðjaði
við hann, uppá 100.000 evrur að ég skildi í dag kl.
10:00 hafa eistu á bankastjóra í hendi mér. :)
Þegar ég var á leið upp
Ártúnsbrekkuna í morgun leit til hliðar og sá þar konu á
splunkunýjum BMW. Hún var á
svona 120 km hraða með andlitið upp í baksýnisspeglinum
og var á fullu að sminka sig með
meikup-græjurnar í sitt hvorri hendi og annan
olnbogan á stýrinu. Ég leit
fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á
hana var bíllinn hennar á leiðinni yfir á mína akrein og
samt hélt hún áfram að mála sig eins og ekkert
sjálfsagðara.
Mér brá svo mikið að ég missti
ferðarakvélina mína á
roastbeefsamlokuna sem ég hélt á í vinstri
hendinni.
Í panikkinu
við að afstýra árekstri við konuhelvítið og ná stjórn á
bílnum sem ég stýrði með hnjánum, datt gemsinn minn úr
hálsgrófinni og ofan í kaffibollann sem ég var með á
milli fótanna.
Það varð til þess að brennheitt
kaffið sullaðist á jafnaldrann.
Ég rak upp öskur og missti
sígarettuna úr munninum og brenndi gat á
jakkann og ég missti af mjög
mikilvægu símtali!
Hvað er að þessum
helv. kellingum?
Og svo var það konan sem
árangurslaust bað mann sinn að laga það sem aflaga fór.
Hún bað hann að lagfæra eldhúsið, sem var ómálað og
skellótt. ""Hvað heldurðu að ég sé einhver málari ?""
sagði hann. Svo bilaði eldavélin. ""Heldurðu að ég sé
einhver rafvirki eða hvað?"" svaraði hann. Þegar hann
kom svo heim einn daginn var búið að mála eldhúsið og
laga eldavélina. ""Ég fékk kunningja minn í lið með
mér"" sagði konan ánægð í bragði. ""Gastu borgað
honum""? spurði hann . ""Ja hann vildi annað hvort að ég
bakaði handa honum köku eða borgaði honum í blíðu""
sagði konan. ""Og hvaða köku bakaðirðu"" spurði hann.
""Hvað heldurðu að ég sé einhver helvítis bakari eða
hvað"" ? svaraði hún.
Ljóskan er mætt í sónar alein og
döpur að sjá. Læknirinn spyr hana hvort henni líði ekki
vel og tjáir hún honum þá að sér sé ekki kunnugt um
faðerni barnisins. Hann
útskýrir þá fyrir henni, að úr því verði hægt að fá
skorið með auðveldum hætti um leið og barnið komi í
heiminn. Þegar að ómunin hefst sér læknirinn strax að
ljóskan er með tvíbura og tilkynnir henni það glaður í
bragði. Brestur þá stúlkan í grát og læknirinn segir
huggandi við hana að þetta blessist nú örugglega allt
saman, og að þetta sé stórkostleg guðsgjöf. Segir þá
ljóskan jájá alveg örugglega en ég veit ekki heldur hver
hinn pabbinn er:/
|