Lítil gömul kona kom í Hagkaup og
setti 2 dósir af dýrasta kattarmatnum sem til var í
innkaupakörfuna. Síðan fór hún að kassanum til að borga
og sagði við kassadömuna ""ekkert nema það besta handa
litla kettlingnum mínum"". Kassadaman sagði þá ""því
miður get ég ekki selt þér kattarmat nema að þú getir
sannað það að þú eigir kettling, það er svo mikið af
gömlu fólki sem kaupir kattarmat til að borða sjálft,
verslunarstjórinn vill fá sönnun þess að þú eigir
kött."" Litla gamla konan fór heim og náði í kettlinginn
sinn og sýndi kassadömunni og fékk þá kattarmatinn
keyptan. Næsta dag fór litla gamla konan aftur í Hagkaup
og í þetta skiptið setti hún pakka af hundakexi í
innkaupakörfuna, sem hún ætlaði að gefa hundinum sínum
yfir Jólin. Kassadaman sagði þá ""því
miður get ég ekki selt þér hundakex nema að þú getir
sannað það að þú eigir hund, það er svo mikið af gömlu
fólki sem kaupir hundakex til að borða sjálft,
verslunarstjórinn vill fá sönnun þess að þú eigir
hund."" Vonsvikinn og svekkt fór litla gamla konan heim
og náði í hundinn sinn og sýndi kassadömunni og fékk þá
hundakexið keypt. Daginn eftir kom litla gamla konan
aftur í Hagkaup og hélt á dollu sem var með gati á
lokinu. Litla gamla konan bað kassadömuna að stinga
puttanum í gatið, ""nei ég geri það ekki því þú gætir
verið með snák í dollunni."" Litla gamla konan
fullvissaði kassadömuna um að svo væri ekki. Þá stakk
kassadaman puttanum í gatið á dollunni og tók hann út og
sagði við litlu gömlu konuna ""þetta lyktar eins og
mannaskítur."" Litla gamla konan brosti út að eyrum og
spurði, ""vina mín get ég núna fengið að kaupa nokkrar
klósettrúllur?""
Siggi, pabbi vinar míns, sá
sumarbústað auglýstan til sölu og sá sem veitti
upplýsingar í síma sagði að þetta væri ágætis bústaður.
Málið vandaðist hins vegar þegar Siggi spurði hvort það
væri verönd við bústaðinn.
-Verönd, hvað er það?
Það er svona pallur þar sem
maður getur setið úti og borðað.
-Nei, það er ekkert svoleiðis.
En salernisaðstaða?
-Það er fínasti kamar rétt
hjá.
En ekkert klósett inni?
-Nei.
Þá heyrðist húsfreyjan
spyrja í bakgrunni hver væri í símanum.
-Æ, þetta er einhver kall að
sunnan sem vill éta úti en kúka inni.
Eftir nótt þar sem sem ástarloturnar voru orðnar þó
nokkrar, sér hann mynd af karlmanni á náttborðinu hennar
“Er þetta maðurinn þinn? spyr
hann, Nei ástarpungurinn minn”
segir hún.“Kærastinn þinn þá?” heldur
hann áfram. “Nei alls ekki,”
segir hún og nartar í eyrað á honum. “Er
...þetta þá pabbi þinn eða
bróðir?” segir hann. “Nei, nei” segir hún.
Ok, hver er hann þá spyr hann?
Þetta er ég fyrir aðgerðina......:)
Um daginn varð ég 67 ára og hætti
þá að vinna. Ég fór til að ganga frá öllu í sambandi við
ellilífeyrinn minn. Konan á
skrifstofunni bað um að sjá
ökuskírteinið mitt til að staðfesta aldurinn og
þá uppgötvaði ég að veskið mitt hafði orðið eftir heima.
Konan sagði að þetta væri í lagi, bað mig að hneppa frá
þremur efstu tölunum á skyrtunni minn. Ég gerði það og
er hún sá silfurgráa englahárið á bringunni á mér sagði
hún að þetta væri nóg staðfesting fyrir hana.
Þegar heim kom sagði ég
konunni minni frá þessu. Hún varð hálf örg. “ Bölvaður
endemis asni ertu maður, þú hefðir átt að láta buxurnar
falla líka . Ég er viss um að þá hefðir þú fengið
örorkubætur út á þennan ræfil þarna niðri”.
Og þá fór allt í bál og brand….
Síðasta
laugardag vaknaði ég snemma. Ég klæddi mig hljóðlega,
útbjó nesti, kallaði í hundinn og læddist út í bílskúr.
Ég húkkaði bátinn aftan í bílinn, opnaði bílskúrshurðina
og var kominn hálfur út þegar ég sá að úti var brjálað
rok og rigning. Ég bakkaði aftur inn í skúrinn og
kveikti á útvarpinu, aðeins til að uppgötva að svona
átti veðrið að vera alla helgina. Ég fór því aftur inn,
klæddi mig hljóðlega úr og læddi mé upp í rúm. Ég kúrði
mig upp við konuna mína. Ákveðinn í að fá mér gott í
kroppinn hvíslaði ég að henni,
“ Það er brjálað veður úti”. Elskuleg konan mín til 10
ára svaraði strax,” Hugsaðu þér hvað maðurinn minn er
heimskur að vera úti að veiða í þessu veðri”
Og þá fór allt í bál og brand…..
Til elskulegrar eiginkonu minnar:
Þar sem þú ert 54 ára og
skilur væntanlega, eftir 30 ár í hjónabandi, þá eru
ákveðnar þarfir sem þú getur ekki lengur uppfyllt. Ég er
mjög hamingjusamur með þér og virði þig sem góða
eiginkonu. Þess vegna vona ég að eftir að hafa lesið
þessi skilaboð, munir þú ekki gera mikið úr þeirri
staðreynd að ég mun eyða kvöldinu með 18 ára gömlum
ritara mínum á Hótel Borg. Góða mín farðu nú ekki í
uppnám yfir þessu. Ég mun verða kominn heim fyrir
miðnætti”.
Þegar maðurinn kom heim, fann
hann eftirfarandi skilaboð:
“Minn kæri eiginmaður :
Ég hef móttekið skilaboðin
frá þér og þakka hreinskilnina. Ég vil nota tækifærið og
minna þig á að þú ert líka 54 ára. Í leiðinni langar mig
að segja þér að þegar þú lest þetta verð ég á Hótel
Holti með tenniskennaranum mínum, sem eins og ritarinn
þinn er líka 18 ára. Við erum því í samskonar málum … þó
með einum smá mun:18 gengur oftar upp í 54 heldur en 54
í 18 …. og því verð ég ekki komin heim fyrr en um hádegi
á morgun!”

Verkstjóri einn var í vandræðum
með stóran hluta af starfsfólki sínu. Þau tóku honum
ekki alvarlega og hlógu að honum þegar að hann var að
reyna að fá þau til að vinna vinnuna sína. Áttu það til
að hangsa í kaffipásum í tíma og ótíma og koma litlu í
verk. Kona hans þoldi ekki hvað hann lét þau vaða yfir
sig og sagði honum að nú yrði hann bara að sýna þeim
hver réði ríkjum þarna. Hann réði ríkjum og þau ættu
bara að skilja það. Sagði að hann yrði bara að vera
ákveðinn við þau. Daginn eftir ákveður hann að mana sig
upp í að sýna meiri ákveðni. Sér hópinn hangsa og
spjalla saman. Sumir glottu við honum þegar að hann
birtist. Hann fann hvernig reiðin byrjaði að aukast og
hann fór að segja í huganum við sjálfan sig "Hér ræð ég
ríkjum, hér ræð ég ríkjum, hér ræð ég
ríkjum" Tekur á sig rögg,
gengur ákveðnum skrefum að hópunum, slær
hnúanum í borð og segir hátt
yfir hópinn : "Nú er nóg komið, HÉR RÍÐ ÉG RÆKJUM"!
Hjón nokkur fóru á fæðingardeild
til að fæða barn sitt. Þegar þau komu þangað sagði
læknirinn að hann hefði fundið upp tæki sem færði hluta
af verkjum frá móður til föður.
Hann spurði hvort þau væru
tilbúin að prufa tækið. Þau voru bæði spennt fyrir því.
Læknirinn byrjaði á 10% þar
sem þar væri líklega meiri verkur en eiginmaðurinn hefði
áður upplifað.
Eftir því sem lengra leið á
fæðinguna bar maðurinn sig vel og sagði lækninum að
hækka í tækinu. Læknirinn hækkaði í 20% og síðan í 50%.
Enn var eiginmaðurinn
stálsleginn og bað lækninn að færa alla verkina yfir á
sig.
Fæðingin gekk mjög vel og
móðirin fann ekkert fyrir öllu saman. Eiginmaðurinn var
stálsleginn.
Þegar þau komu heim lá
bréfberinn dauður á tröppunum fyrir framan húsið.
=:-) Eigum góðan dag
Gamall indíána höfðingi sat og
reykti pípuna sína þegar tveir alþingismenn koma og ræða
við hann.
"Höfðingi Tveir Ernir," segir
annar þeirra, "nú ert þú búinn að fylgjast með hvíta
manninum í næstum 90 ár. Þú hefur séð stríðin sem hann
hefur háð, séð tækni framfarirnar og tjónið sem hann
hefur valdið."
Höfðinginn kinkaði kolli.
Alþingismaðurinn heldur
áfram: "Með þetta að leiðarljósi, hvar heldurðu að hvíti
maðurinn hafi farið út af leið? Hvar liggja mistökin?"
Höfðinginn starði á
alþingismennina í rúma mínútu og sagði svo rólega:
"Þegar hvíti maðurinn kom til
Norður Ameríku, þá stjórnuðu indíánar því. Engir
skattar, engar skuldir, fullt af buffalóum, fullt af
bjórum, konurnar unnu alla vinnuna, töfralæknirinn var
ókeypis og við eyddum öllum deginum í að veiða fisk og
buffalóa - og allri nóttunni í að ríða."
Svo hallaði hann sér aftur og
sagði: "Aðeins hvíti maðurinn er svo vitlaus að halda að
hann gæti betrumbætt kerfi eins og þetta."
Bóndi var nýgiftur og var á
leiðinni heim í hestvagninum sem var dreginn af nokkrum
hestum. Þegar einn af hestunum hrasaði sagði hann: "Einu
sinni".
Þegar hann hrasaði aftur sagði
hann: "Tvisvar"
Seinna, þegar hesturinn
hrasaði í þriðja sinn, sagði hann ekki neitt, heldur
sótti haglabyssuna og skaut hestinn.
Nýja konan hans varð brjáluð og gargaði á hann. Bóndinn
snéri sér að henni og sagði: "Einu sinni".
Tveir Hafnfirðingar sátu að
spjalli heldurðu að það sé
ekki svertingi farinn að vinna í smiðjunni hjá okkur.
Hvað segirðu og hvaðan er
hann ?
Frá Angola
held ég . Er það ekki langt í burtu ?
Það held ég varla hann kemur á
reiðhjóli í vinnuna.:)
Jónas var að vinna á bar þegar
handalaus maður kom inn og bað um bjór. Jónas hellti í
glas fyrir hann og setti það á borðið.
"Heyrðu, barþjónn," sagði
maðurinn. "Ég er handalaus -- heldurðu að þú gætir
haldið glasinu upp að munninum á mér?"
"Auðvitað," sagði Jónas.
"Ég er með vasaklút í vasanum,
heldurðu að þú gætir tekið hann og þurrkað mér um
munninn?"
"Nema hvað sagði Jónas." "Ef
þú ferð í hægri buxnavasann minn," sagði sá handalausi,
"þá finnur þú þar pening fyrir bjórnum."
Jónas sótti peninginn.
"Þú ert búinn að vera mjög
almennilegur," sagði sá handalausi. "Það er bara eitt
enn. Hvar er karlaklósettið?"
"Hann var fljótur að svara. Þú
ferð út um dyrnar," sagði Jónas, "upp eftir götunni um
hálfan kílómeter og þar er
bensínstöð á horninu með almenningssalerni."
Mark Twain
sem er og var virtur rithöfundur, fékk bréf á sínum tíma
frá ungum rithöfundi sem var að stíga sín fyrstu skref
og vildi hann að þeir skrifuðu bók samann.
Mark sendi honum bréf þess efnis að ef Hestur og Asni
ættu afkvæmi þá væri það ekki gott sem kæmi útúr því
sambandi. Mark fékk svo bréf frá unga manninum en í því
stóð "Hvernig dirfist þú að
kalla mig Hest"
“Hvernig væri að prófa nýja
stellingu í kvöld” sagði eiginmaðurinn við
eiginkonuna. “Endilega”
svaraði hún. “Þú stendur við
strauborðið
og straujar og ég sit í sófanum og rek við.”
Sturla litli er sá klárasti í
bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin og
spurningarblöðin. Svo að hann hafi nú eitthvað að gera,
eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði
kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann
aukaspurningar. " Sturla minn, þú ert nú svo klár, að ég
ætla að spyrja þig einnar aukaspurningar. Það
eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn
fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?" "Enginn",
svarar Sturla. "Hvað meinar þú... enginn?", spyr
kennslukonan? " Já, einn drepst og
dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu" segir Sturla.
Kennslukonan kinkar kolli og segir "svarið átti nú að
vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar" Örstuttu seinna
réttir Sturla litli upp hendi. "Já Sturla " "Má ég
spyrja þig einnar spurningar?" "Endilega" segir
kennslukonan. "Ókei, 3 konur
standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís,
ein af þeim sleikir ísinn, - ein af þeim bítur í ísinn -
og ein af þeim sýgur ísinn.
- Hver þeirra er gift?" spyr Sturla.
Kennslukonan
roðnar og segir, "Eee....ég
veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur
ísinn?....eða eitthvað" "Neeiiii"
segir Sturla litli, "það er sú sem er með
giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar"
Ljóskan fór á hárgreiðslustofu í
klippingu. Hún settist í stólinn og svo kom klipparinn
og sá að hún var með heyrnartól á hausnum. Hann gat ekki
klippt hana svoleiðis svo hann tók af henni heyrnartólin
og þá hneig hún niður á gólfið. Klipparinn varð voða
hissa og setti heyrnartólin á sig og heyrði "Anda inn,
anda út, anda inn, anda út, .
Steini og Olli sátu að sumbli á
barnum. Eftir nokkur glös þoldi Steini ekki meira, ældi
yfir sig allan og hrópaði síðan hálfvælandi:
„Konan mín á eftir að drepa
mig fyrir þetta!“
Olli reyndi að stappa stálinu
í Steina og sagði:
„Hafðu engar áhyggjur af
þessu. Stingdu bara tvö þúsund kalli í brjóstvasann á
skyrtunni og segðu konunni þinni að einhver hafi ælt á
þig og látið þig síðan fá peninga fyrir hreinsuninni.“
Þetta fannst Steina
þjóðráð svo hann tók gleði sína að nýju og hélt áfram að
þjóra, þar til komið var undir morgun. Þá ákvað hann að
drattast heim. Þar beið kona hans fremur óblíð á manninn
og sagði:
„Það er brennivínsstybba
af þér og þú ert búinn að æla yfir þig. Mikið svakalega
ertu ógeðslegur!“
Steini umlaði á móti:
„Sjáðu til, kona. Ég drakk
bara eitt glas, en þarna var einhver gaur sem bara ældi
yfir mig. Hann var greinilega búinn að drekka alltof
mikið, en honum þótti þetta svo leiðinlegt að hann lét
mig fá tvö þúsund kall fyrir hreinsuninni. Peningurinn
er hérna í brjóstvasanum á skyrtunni.“
Konan leit ofan í vasann,
tók þar upp peninga og sagði:
„Já, en þetta eru fjögur
þúsund.“
„Það er alveg rétt,“ valt út úr
Steina. „Hann pissaði líka í buxurnar mínar!“
Konni
var rétt rúmlega sjötugur þegar hann eignaðist kærustu
af yngri kantinum. Það voru rétt níu mánuðir liðnir
þegar hann renndi með stúlkuna á fæðingadeildina. Allt
gekk vel myndarbarn kom í heiminn og ljósmóðirin sagði
fáa hafa staðið betur að verki. Það er vélin sagði
Konni hún snarvirkar. Það
var svo 11 mánuðum seinna sem Konni
birtist á ný allt gekk að óskum og enn hrósaði
Konni vélinni. Varla var
árið liðið þegar Konni
birtist aftur með konuna, allt gekk vel og myndarbarn
kom í heiminn. Það er vélin sagði
Konni þegar hann heyrði að enn væri myndarbarn
fætt hún er í toppstandi. Þú verður samt að fara að
skipta um olíu Konni minn
sagði ljósmóðirin barnið sem þið áttuð er svart.
Í þorpi einu birtist einu sinni
maður og kvaðst vilja kaupa apa af þorpsbúum á 1000
krónur stykkið.
Þar sem mikið var um apa í
nágrenni þorpsins, fóru
þorpsbúar að veiða apana og
selja manninum þá.
Maðurinn keypti þúsundir
apa af þorpsbúum á 1000 krónur, en þegar framboðið fór
að minnka, bauðst maðurinn til að borga 2000 krónur
fyrir apann.
Aftur jókst framboðið um
tíma, en síðan minnkaði það enn frekar og hætti síðan
alveg þar sem erfiðara var fyrir þorpsbúa að finna
fleiri apa til að selja.
Maðurinn tilkynnti þá að
hann mundi borga 5000 krónur fyrir hvern apa sem hann
fengi, en hann þyrfti að skreppa frá í smá tíma og
aðstoðarmaður hans mundi sjá um kaupin á meðan.
Eftir að maðurinn var
farinn, hóaði aðstoðarmaðurinn þorpsbúum saman og bauðst
til að selja því apana, sem voru geymdir í búrum, á 3500
krónur stykkið.
Fólkið gæti svo þegar
maðurinn kæmi aftur selt honum apana á 5000 krónur.
Þorpsbúar söfnuðu því saman öllu sínu sparifé og keyptu
apana af aðstoðarmanninum. Síðan hefur ekkert spurst til
mannsins eða aðstoðarmannsins.
Núna veistu allt um hvernig
hlutabréfamarkaðurinn virkar.
Á salernisaðstöðu á fínum
veitingastað standa viðskiptafræðingur, lögfræðingur og
bóndi hlið við hlið og nota
pissuskálarnar.Viðskiptafræðingurinn klárar,
rennir upp og byrjar að þvo, eða bókstaflega skrúbba á
sér hendurnar....alveg upp að olnbogum. Notaði síðan um
það bil 20 bréf til að þurrka sér. Hann snýr sér að
hinum og segir: " Ég gekk í Harvard,
þar kenndu þeir okkur að vera hreinlegir."
Lögfræðingurinn kláraði og bleytti fingurgómana, greip
eitt bréf og sagði:" Ég lærði í
Princeton, þar kenndu þeir okkur að vera
umhverfisvænir." Bóndinn renndi upp og á leiðinni út
segir hann:"Ég lærði á Hvanneyri, þar var okkur kennt að
pissa ekki á puttana á okkur"!
Giftur maður átti í leynilegu
ástarsambandi með einkaritaranum sínum. Dag einn þegar
ástríðan tók völdin ákváðu þau að fara heim til hennar
þar sem þau áttu villta eftirmiðdagsstund. Eftir öll
lætin voru þau orðin dauð þreytt
og sofnuðu. Klukkan 20:00 vöknuðu þau og þegar maðurinn
byrjar að klæða sig á fullu, segir hann einkaritaranum
sínum að fara með skóna hans út og nudda þeim í grasið
og moldina.... Furðu lostin konan skilur ekki alveg
hvers vegna hann biður um þennan greiða, en hlýðir engu
að síður.
Hann skellti sér svo í skóna
og keyrði heim.,, Hvar hefurðu
eiginlega verið maður ?” spurði konan eiginmanninn þegar
hann kom inn um dyrnar.,, Elskan ég get ekki logið að
þér, ég á í leynilegu ástarsambandi við
einkaritarann minn og við
erum búin að vera á fullu í bólinu allan dag, svo
sofnuðum við og ég vaknaði ekki fyrr en klukkan 8.”
Konunni varð litið á skónna hans og sagði:,,
Helvítis lygarinn þinn, þú ert búinn að vera að spila
golf í allan dag !!!”
Gamall kúreki í fullum skrúða kom
inn á kránna sína og fór beint á barinn og pantaði sér
viský. Þar sem hann situr og
dreypir á drykknum sínum kemur ung og glæsileg kona og
pantar sér drykk og spyr gamla kúrekan hvort hann sé
alvöru kúreki? Hann segir, já það er ég og það hef ég
verið alla mína ævi. Ég hef verið alla mína tíð á
búgarðinum mínum, rekið kúahjarðir, verið á hestbaki,
reist girðingar, já ég er alvöru kúreki segir hann.
Eftir smá stund segir kúrekin
við dömuna: Hvað ert þú? Ég hef aldrei verið á búgarði,
svo ég er ekki kúreki sagði unga konan, en ég er lesbía.
Ég eiði öllum mínum tíma að hugsa um
kvennmenn, alveg frá því ég
vakna á morgnanna, þegar ég fer í sturtu, þegar ég
borða, þegar ég horfi á sjónvarpið og þegar ég er kominn
í rúmið á kvöldin, hvað sem ég geri þá hugsa ég stöðugt
um konur. Stutt seinna fer unga konan og kúrekinn pantar
sér annan drykk.
Nokkru síðar kemur par og
sest við barinn og maðurinn spyr gamla kúrekann hvort
hann sé virkilega alvöru kúreki? Það hef ég alltaf
haldið, þangað til rétt áðan að ég komst að því að ég er
LESBÍA...
Tvær konur eru á gangi í skógi
þegar þær hitta frosk. Froskurinn kallar á þær og
segir:"Ég er verðbréfasali, en ill álög breyttu mér í
frosk. Ef þið kyssið mig breytist ég til baka".
Önnur konan grípur froskinn og
treður honum í töskuna sína. Hin konan horfir undrandi á
aðgerðir konunnar og spyr:"Af hverju ertu að troða honum
í töskuna þína, heyrðurðu
ekki hvað hann sagði, hann er verðbréfasali"
"Jú, jú" segir hin, "ég heyrði alveg í honum, en eins og
markaðir eru núna er bara miklu gróðavænna að eiga
talandi frosk."
|
Maður nokkur þurfti að komast á
karlaklósettið, en það var upptekið. Kona, sem þarna var
stödd, tók eftir því að maðurinn gekk með stuttum
skrefum og var með örvæntingarsvip á andlitinu.
'Herra minn,' sagði hún,
'kvennaklósettið er laust og þú mátt nota það ef þú
lofar að snerta engan takkanna sem eru á veggnum'.
Maðurinn var alveg kominn í
spreng og tilbúinn að lofa hverju sem var til að leysa
málið.
Þar sem hann sat - og leið
nú svo miklu betur - fór hann að horfa á takkana sem
hann hafði lofað að snerta ekki.
Það voru 3 hvítir takkar
merktir VV, HL og
PP og svo var einn rauður
sem merktur var STT.
Hver myndi svosem vita það
þó hann snerti þessa takka? Hann stóðst ekki
freistinguna.
Fyrst ýtti hann á
VV. Volgt vatn úðaði
mjúklega undirvagninn. Manninum leið voða vel. Svona
lúxus var sko ekki á karlaklósettum. Í von um
áframhaldandi sælu ýtti hann á HL takkann.
Hlýtt loft lék nú um neðri
hæðina, honum til ómældrar ánægju. Nú gat ekkert stoppað
manninn.
Hann ýtti á takkann
merktan PP og nú birtist
púðurkvasti sem púðraði allt
fíniríið. Þvílíkur unaður!
Maðurinn gat varla beðið
eftir því að ýta á rauða takkann. Hann hafði grun um að
þar væri ekkert minna en alsælan.
------- Hann vissi að hann
var á spítala strax og hann opnaði augun. Hjúkrunarkona
var yfir honum, með glott á andlitinu.
'Hvað skeði? Af hverju er
ég hérna? Það síðasta sem ég man er að ég var á
kvennaklósetti!'
'Þú ýttir á einum of marga
takka' svaraði hjúkrunarkonan brosandi.
'Rauði takkinn, sem merktur er
STT, er sjálfvirkur
túr-tappatogari. Tippið af þér er undir koddanum þínum'.

90 ára gamall maður var í árlegri
læknisskoðun og læknirinn spurði hann hvernig hann hefði
það.
Mér hefur aldrei liðið betur.
Nýja konan mín er 18 ára og hún gengur með fyrsta barnið
okkar!
Læknirinn hugsaði um þetta
eitt augnablik og sagði svo: Einu sinni var maður sem
var mjög ákafur skotveiðimaður, hann sleppti aldrei
neinu veiðitímabili. Dag einn var hann á mikilli
hraðferð og hann greip með sér regnhlíf í staðin fyrir
riffilinn sinn.
Þegar hann var kominn langt
inn í skóginn þá gengur hann fram á stóran og grimman
skógarbjörn. Hann miðar á hann með regnhlífinni og
bang, björninn dettur niður
dauður!
Það er óhugsandi, sagði gamli
maðurinn, einhver annar hlýtur að hafa skotið hann.
Já..........það er nú
eiginlega það sem ég var að reyna að segja, svaraði
læknirinn
Tveir veiðimenn eru á veiðum í
skógi þegar annar fellur niður og virðist hætta að anda.
Félagi hans grípur farsímann og hringir í neyðarlínuna.
"Félagi minn er dauður. Hvað á ég að gera?" æpir hann í
símann. Viðmælandinn biður hann að róa sig niður.
"Gakktu fyrst úr skugga um að hann sé örugglega látinn."
Þá kemur þögn og svo skothvellur. "Og hvað svo," segir
maðurinn svo í símann."
Fyrir nokkrum árum hélt læknir
fram hjá konu sinni með hjúkrunarfræðingi. Ekki leið á
löngu þar til hjúkkan varð ófrísk.Læknirinn gat ekki
hugsað sér að upp kæmist um framhjáhaldið, lét hann því
viðhaldið hafa fjárfúlgu og bað hana að fara til
meginlands Evrópu og eiga barnið þar. Hvernig get ég
látið þig vita,þegar barnið fæðist?” spurði hjúkkan.
Sendu mér bara póstkort og skrifaðu “spaghetti” á það.
Ég skal svo borga allan brúsann.” Konan flaug til Ítalíu
og segir ekki frekar af ferðum hennar. En sex
mánuðum seinna hringir
eiginkona læknisins á stofuna til maka síns og segir:
“Elskan, þú fékkst svo skrítið póstkort í dag. Það kemur
frá Ítalíu, en ég fæ engan botn í það sem í því
stendur.” “Hafðu engar áhyggjur af því, ástin mín. Ég
skoða kortið þegar ég kem heim.” Læknirinn kom heim um
kvöldmataleitið, las kortið og féll að því búnu í gólfið
með hjartaslag. Sjúkrabíll kom á staðinn og flutti
lækninn með forgangi á spítala.Eiginkonunni varð að
sjálfsögu mjög brugðið og einn úr áhöfn bílsins varð
eftir til að hugga hana. Hann spurði hana hvað gæti hafa
orðið manni hennar um megn. Konan tók upp póstkortið og
las: “Spaghetti, spaghetti, spaghetti. Tvö með pylsu og
kjötbollum og eitt án.”
Krumpaður og eldgamall karl gengur
inn í Aðalkirkjuna og segir við einkaritara prestsins:
Ég vil ganga í þessa helvítis kirkju. Einkaritarinn sem
er kona er bæði forviða og hneyksluð á orðbragði
mannsins: Fyrirgefðu herra, ég hlýt að hafa misskilið
þig. Hvað sagðirðu? Hlustaðu á mig andskotinn hafi það,
gólar karlinn. Ég sagði að ég vildi ganga í þessa
helvítis kirkju.Mér þykir það leitt maður minn, en svona
orðbragð er ekki liðið hér í þessari kirkju.
Einkaritarinn rauk inn á skrifstofu prestsins til að
láta hann vita af ástandinu.Presturinn er sammála
einkaritaranum sínum um að ekki sé rétt að sitja undir
svona hræðilegu orðbragði. Þau ganga saman fram aftur og
presturinn spyr þann gamla ,er eitthvað vandamál gamli
minn ?Það er ekkert helvítis vandamál, segir karlinn,
sýnu skapverri en áður. Ég bara vann 200 milljónir í
helvítis lottóinu í gær og ég vil ganga í þessa helvítis
kirkju og losa mig við eitthvað af þessum helvítis
peningum.Ég skil sagði presturinn rólega. Vonandi var
kerlingartíkin ekki til neinna leiðinda?
Gaui
frændi var að leita sér að skóm og á
Laugaveginum sá hann búð sem
honum leist vel á. Þegar hann kom inn tók Indverji á
móti honum,klæddur að hætti þarlendra. Indverjinn segir:
"Góður dagur. Góðan dag segir Gaui
frændi ég er að leita mér að kuldaskóm. Nei, nei, þú
kaupa sandalur sagði indverjinn. Nei,nei segir
Gaui
frændi, það er að koma vetur, ég hef ekkert
við sandala að gera, mig
vantar kuldaskó Þú vantar sandalur, sandalur gera þig
graður" segir Indverjinn og hneigir sig.Gera sandalar
mig graðan?" Spurði Gau
frændi undrandi. Já" segir Indverjinn og
réttir honum sandala.
Gaui frændi hugsar með sér
að hann geti nú alveg eins prófað
sandalana Illa gekk honum að koma sér í skóna,
enda aldrei áður farið í sandala, en um leið
og þeir voru komnir á fætur
hans finnur hann þessa líka svakalegu þörf koma yfirsig
og hann bara ræður ekki við þörfina.
Hann rýkur á Indverjann, kippir
kuflinum upp og ætlar að fá sér einn stuttan.Þá argar
Indverjinn, nei, nei, nei, þú vera í krummafótur!"
Séra ólafur, Séra Friðþjófur og
Séra Svavar fóru í gönguferð upp á heiði einn góðan
veðurdag. Veðrið var með eindæmum gott og hitinn alveg
að kæfa þá. Þeir voru allir orðnir sveittir og útkeyrðir
þegar þeir komu að lítilli tjörn á miðri heiðinni. Þar
sem þetta var nokkuð úr leið, þá fóru þeir úr öllum
fötunum og skelltu sér í sund. Eftir sundið voru þeir
nokkuð hressir og ákváðu að njóta "frelsisins" örlítið,
láta sólina
þurrka sig og jafnvel ná upp
smá brúnku. Þeir voru því algerlega
fatalausir,prestarnir, þegar nokkrar konur úr sveitinni
komu allt í einu að tjörninni. Þeir gátu augljóslega
ekki komist í fötin í tíma, svo að Friðþjófur og Ólafur
gripu um kynfæri sín til að
leyna þeim, en Svavar tók fyrir andlitið. Síðan hlupu
þeir allir í skjól bak við stóran drang sem þarna var
nálægur.. Eftir að konurnar voru komnar framhjá fóru
prestarnir og náðu í fötin sín. Ólafur og Friðþjófur
vildu vita hvers vegna Svavar hefði tekið fyrir andlit
sér, en ekki skýlt "slátrinu". Séra Svavar svaraði "Ég
veit ekki með ykkur, en í MÍNUM söfnuði er það andlitið
á mér sem sóknarbörnin þekkja."
Af hverju eru giftar konur þyngri
en ógiftar ?
Ógiftar konur koma heim úr
vinnunni, sjá hvað er
í
ísskápnum, og fara í rúmið.
Giftar
konur koma heim
Gamall kúreki kemur ríðandi inn á
Skagaströnd á heitum þurrum leiðindadegi. Hallbjörn
situr í hægindastól fyrir utan Kántríbæ og kúrekinn
kemur að, fer af hestinum, bindur hann við grindverkið á
Kántríbæ, labbar aftur fyrir hestinn og gefur honum
rembingskoss á staðinn þar sem sólin aldrei skín.
"Bíddu
nú hægur," segir Hallbjörn. "Sá ég virkilega það sem ég
held að ég hafi séð?"
"Býst við því," segir
kúrekinn. "Ég er bara með svo hræðilegan varaþurrk."
"Og þetta læknar þær?"
spyr Hallbjörn undrandi.
"Nei, en þetta kemur í veg
fyrir að ég sleiki þær."
úr vinnunni, sjá hvað er í rúminu og fara í ísskápinn !
Bóndi situr á þorpsbarnum og er
frekar fullur, þegar maður kemur inn og spyr bóndann; “Hei,
af hverju situr þú hérna á þessum fallega degi
útúrdrukkinn?”
Bóndinn: “Suma hluti er bara
ekki hægt að útskýra”
Maðurinn: “Nú hvað gerðist
svona rosalegt?”
Bóndinn:”Nú ef þú þarft að
vita það… Í dag var ég að mjólka kúnna mína og sat við
hliðina á henni. Um leið og fatan varð full, sparkaði
beljan fötunni niður með vinstri fætinum.
Maðurinn: “Nú það er ekki svo
rosalegt, hvað er svona mikið mál við það?
Bóndinn: “Suma hluti er
bara ekki hægt að útskýra”
Maðurinn: “Nú hvað gerðist
næst?”
Bóndinn: “Ég tók
vinstri fót hennar og batt
hann við stólpann á básnum með reipi. Svo settist ég
niður og mjólkaði. Um leið og fatan var að verða full.
Sparkaði beljan í hana með hægri fætinum og velti henni
líka.
Maðurinn: “Aftur?”
Bóndinn: “Suma hluti er
bara ekki hægt að útskýra”
Maðurinn: “Hvað gerðirðu
þá?”
Bóndinn: “Ég tók þá hægri
fótinn og batt hann líka við stólpa á básnum.”
Maðurinn: “Og hvað
gerðirðu þá?”
Bóndinn: “Ég settist niður
og hélt áfram að mjólka hana, og um leið og fatan var að
verða full þá velti helvítis beljan fötunni niður með
halanum…”
Maðurinn: “Vá þú hlýtur að
hafa verið orðið pirraður þá?”
Bóndinn: “Suma hluti er
bara ekki hægt að útskýra”
Maðurinn: “Og hvað
gerðirðu næst?”
Bóndinn: “Sko…ég hafði ekki meira
reipi svo ég tók af mér beltið og batt þannig halann á
henni upp. Akkúrat þá, duttu niður buxurnar mínar niður
og konan mín gekk inn.”
Hjón
nokkur eru á mjög fínu veitingahúsi að borða þegar allt
í einu
birtist gullfalleg stúlka við
borðið þeirra og gefur manninum
svakalegan
koss, beint á munninn,
segist ætla að hitta hann seinna og hverfur jafn
skyndilega og hún birtist.
Konan hans starir á hann
og segir: “Hver í veröldinni var þetta??”
“Ó, þessi ? Þetta var
viðhaldið mitt, ” segir hann rólegur.
“Jæja já !! Þetta fyllir
mælinn. Ég heimta skilnað.”
“Ég get skilið það,” svara
eiginmaðurinn, “en mundu eitt, ef við
skiljum
þá þýðir það að þú ferð
ekki fleiri verslunarferðir til Parísar, ekki
fleiri vetrarferðir til
Barbados, ekki fleiri
sumarferðir til Toscana
og það verða ekki lengur
BMW og
Porsche í bílskúrnum þínum.
Þú missir klúbbskírteinið
í skútuklúbbnum og þú þarft ekki mæta meira í
golf,
en ákvörðunin er þín.”
Einmitt þá kemur inn
sameiginlegur vinur þeirra inn á
veitingahúsið
með rosa gellu uppá
arminn.
“Hver er þessi kona með
Svenna?” spyr konan.
“Þetta er viðhaldið hans,
” svarar eiginmaðurinn.
Þá segir konan: “Okkar er sætari!”
Kallinn var að reyna að fá konuna
í ástarleik, Hún, ekki núna þarf að fara til læknis á
morgun í skoðun, eftir smá þögn segir hann,
hmmmm, ertu nokkuð að fara
til tannlæknis.
Hjón voru að versla þegar bóndinn
tekur upp bjórkassa og leggur í körfuna.
-Hvað heldurðu að þú sért að
gera? spyr frúin.
-Þetta er á útsölu, 24 baukar
á 3600 kall.
-Láttu kassann aftur á sinn
stað, við höfum ekki efni á þessu, segir frúin með
þjósti og þau halda áfram að versla.
Nokkru síðar tekur konan upp
andlitskrem á 7200 kr. og
setur í körfuna.
... ... -Hvað heldurðu að
þú sért að gera? spyr bóndinn.
-Þetta er andlitskremið
mitt. Það gerir mig fallega.
-Það gera nú líka 24 baukar af
bjór og þeir kosta helmingi minna!
Tveir náungar stóðu og klóruðu
sér í hausnum fyrir framan flaggstöng þegar
konu eina bar að.
Hún spurði þá hverju þeir væru
að velta vöngum yfir.
Jaaa,
við eigum að finna hæðina á stönginni, en við erum ekki
með neinn stiga.
Ok, heyrðist frá konunni, hún
opnaði töskuna sína, tók upp skiptilykil og losaði
stöngina upp.
Þvínæst lagði hún hana
niður, tók nú upp málband og mældi stöngina: 5 metrar og
65 cm.
... síðan hélt hún á
braut.
Eftir stóðu þeir félagar
skellihlæjandi...
Er þetta ekki dæmigert
fyrir konur?...
okkur vantaði hæðina en
hún sagði okkur lengdina.
Þessir félagar eru
háttsettir í fjármálageirunum á Íslandi og starfa báðir
hjá
Landsbankanum við að reikna út
erlendu lánin.
Maður nokkur er úti að versla og
uppgötvar að það er komin ný tegund af smokkum,
ólympíusmokkar. Honum líst ansi vel á það og kaupir einn
pakka. Þegar hann kemur heim, sýnir hann konunni sinni
það sem hann hafði keypt..
"Ólympíu smokkar?" segir hún
með vanþóknun. "Og hvað er svona sérstakt við þá?"
"Þeir eru í þremur litum,"
svarar hann, "gull, silfur og brons."
"Og hvaða lit á að nota í
kvöld?" spyr hún, aðeins spenntari.
"Auðvitað gull," segir
hann stoltur, "litur sigurvegarans."
"Í alvöru," segir hún. "af hverju
ekki silfrið? Það væri ágætis tilbreyting ef þú yrðir
annar í mark svona einu sinni."

Eldri kona kom inn í strætó, sem
sem var troðinn og ekkert sæti laust. Hún labbar að
ungum manni og segir ætlarðu ekki að standa upp?
Maðurinn stendur upp en sest strax aftur niður og segir,
neihei þá tekurðu sætið
mitt.
Maður rennir bíl sínum að
bílalúgu á sjoppu og er mikið að flýta sér. Stúlka opnar
lúguna og spyr hvernig hún megi aðstoða. "Ég ætla að fá
sundsmokka" segir maðurinn. Stúlkan sem var nýbyrjuð
verður ögn vandræðaleg og biður hann um að doka
augnablik. Spyr samstarfskonu sína hvort að það eru
seldir sundsmokkar í þessari sjoppu. Hin horfir forviða
á hana og segist ekkert kannast við það. Sagði henni að
sýna honum bara úrvalið þeirra. Stúlkan gerir það og
maður horfir á hana stórum augum og spyr "Af hverju ertu
að sýna mér smokka!" Stúlkan roðnar og segir "Nú, varstu
ekki að biðja um smokka... sundsmokka?" Hann varð reiður
og horfði á hana eins og hún
væri eitthvað skrítin. "Ég ætlaði ekki að fá neina
helv... smokka! Ég bað um
SUNNUDAGSMOGGANN!!"
"Konur vilja hafa síðasta orðið"
Mállaus hjón voru að fara að hátta og konan var eitthvað
örg og hellti sér yfir kallin á fingramáli og
húðskammaði hann og svo slökkti hún ljósið.
Erla sem var sérvit húsfreyja með
meiru, að vestan, missti bónda sinn hann Gísla á
dögunum. Erla hringdi suður í Fréttablaðið í þeim
erindagjörðum að setja dánartilkynningu í blaðið eins og
gengur. Þegar hún hafði náð sambandi við réttu deildina
og var spurð að því hvaða texta mætti bjóða henni að
setja í greinina sagði hún: GÍSLI ER DAUÐUR. Maðurinn í
símanum varð svolítið vandræðalegur en sagði svo eftir
smá hik, sko hérna, þú borgar nú hvort eð er fyrir sex
orð svo má ekki bjóða þér að notafæra þér það? Erla
hugsaði sig um í smá tíma og sagði svo: jú, skrifaðu
GÍSLI ER DAUÐUR, TOYOTA TIL
SÖLU.
Maður nokkur situr við barinn og
horfir á glasið sitt.
Hann hefur ekki hreyft sig í
tvo og hálfan tíma. Þá kemur að honum
trukkabílstjóri, hrifsar af
honum glasið og drekkur í botn.
Aumingja maðurinn byrjar að
háskæla og trukkabílstjórinn
verður vandræðalegur og
segir: "Æ, fyrirgefðu, þetta var bara smá grín. Ég skal
kaupa handa þér annað glas."
"Það er ekki það," vælir
maðurinn. "Dagurinn í dag er versti
dagurinn í lífi mínu.
Fyrst svaf ég yfir mig og missti af mikilvægum fundi.
Yfirmaðurinn varð
brjálaður og rak mig. Þegar ég kem út úr fyrirtækinu,
þá var búið að stela
bílnum mínum. Löggan sagði að hún gæti ekkert gert, svo
ég þurfti að taka leigubíl heim. Þegar leigubíllinn var
farinn tók ég eftir því að ég hafði gleym veskinu í
bílnum.
Og þegar ég kem inn, þá
kem ég að konunni minni í rúminu með póstberanum.
Og núna, þegar ég var að hugsa um
að binda endi á þjáningar mínar, þá kemur ÞÚ og drekkur
eitrið mitt."
|