Á síðunum hér eru hátt í 2000
uppskriftir.
Hér má finna
mikið úrval af uppskriftum, snilld frá húsmæðrum og öðrum kokkum, ís,
villibráð, fiskur, grillmatur, kjöt, kökur, nammi, sósur, ídýfur,
þorramatur. svo eitthvað sé nefnt.
Þessum uppskriftum hefur
pabbi viðað að sér héðan og þaðan, aðallega af vefnum og úr
matreiðslubókum, eins frá vinum, vandamönnum og öðru góðu fólki sem sent
hafa inn uppskriftir.
Öllum er velkomið að
senda inn uppskriftir, tilvalið að geyma uppskriftina hér, eða á öðrum
uppskriftar vefum, þá eru hæg heimatökin að kíkja á uppskriftina sína,
og svo miðlar þú henni líka til annarra.
Það skal sérstaklega minnst á og þakka hve fólk er
viljugt að senda inn uppskriftir, dæmi::
Árið 2003 sendu 43 einstaklingar inn
uppskriftir, árið 2006 voru þeir 87, og 2010 112 einstaklingar, og hér
eftir mun nafn innsendanda verða skráð undir uppskriftinni, ásamt
höfundi, sé vitað hver hann er, innsendandi sleppir því að skrá nafn
sitt, óski hann þess að nafnið komi ekki fram.
Við þökkum bæði einstaklingum og
vefsíðueigendum fyrir uppskriftir sem hér eru hýstar.
Og ATH: að enga hættuleg uppskrift er hér að finna,
pabbi á nefnilega enga uppskrift á síðunum
Kveðja, og góðar stundir:
(English (NB Google translate)) |