|
 |
Rúgbrauð
6 bollar rúgmjöl
2 bollar heilhveiti
1 msk. salt
1.5 bolli sykur
5 tsk. perluger (1 bréf)
Vætt í með 1,4 l. mysu (14 dl)
Þurrefnin eru sett í skál og mysan hituð og hrærð samanvið. Sett í
álformmeð álpappír yfir og bakað í eina klukkustund við 50C en þá er
hitinn hækkaður í 100-120C og bakað i 11-12 klukkustundir. Brauðið er
borðað nýtt með smjöri og heimareyktu hangikjöti.
Laufabrauð úr hveiti
1 kg hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
7-8 dl sjóðandi mjólk
jurtafeiti til steikingar
1. Setjið hveiti í skál ásamt salti og lyftidufti. Hrærið sjóðandi
mjólkina út í. Hnoðið deig þar til það er gljáandi og sprungulaust.
Haldið deiginu heitu meðan flatt er út. Gott getur verið að búa bara til
helminginn í einu. Hægt er að halda deiginu heitu með því að vefja það í
handklæði og teppi.
2. Fletjið örþunnt út, skerið undan diski, skerið síðan laufaskurð í
brauðið.
3. Hitið feitina, takið smábút af deigi og steikið til að aðgæta hitann.
Steikið síðan laufakökuna á báðum hliðum. Þrýstið hlemmi varlega ofan á
hana um leið og hún er tekin úr pottinum.
Kristín Gestsdóttir
Laufabrauð með rúgmjöli
(Kristín Gestsdóttir Mbl 29. nóvember 1994)
500 g hveiti
500 g rúgmjöl
2 tsk. lyftiduft
2 msk. sykur
2 tsk. salt
70 g smjörlíki
lítri sjóðandi mjólk
lítri sjóðandi vatn.
1. Blandið saman hveiti, rúgmjöli, lyftidfufti, salti og sykri.
2. Skerið smjörlíkið smátt og myljið út í mjölið.
3. Hitið vatn og mjólk og setjið út í. Hnoðið saman þar til þetta er
slétt og sprungulaust deig.
4. Farið að eins og segir hér að ofan.
Laufabrauð
(Mbl. 23. desember 1995)
900 g hveiti
100 g rúgmjöl
1 tsk Royal ger
5 dl mjólk
1 dl rjómi
0.5 dl sykur
25-30 g smjör
1 tsk. salt
1 tsk. hjartasalt
Rúgmjöli, hveiti og geri er blandað saman í skál. Mjólkin er sett í pott
ásamt smjöri, sykri og salti. Þetta er hitað að suðu og þá er rjóminn
settur út í, potturinn tekinn af og hjartasaltið sett í. Vætt í
þurrefnunum með mjólkinni sem freyðir og deigið síðan hnoðað.
Kleinur
(Mbl.13. mars 1994)
200 g smjörlíki
250 g sykur
2 egg
1 kg hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. hjartarsalt
5 dl mjólk
4 tsk. kardimommudropar
1 kg jurtafeiti
1. Blandið þurrefnunum saman á borði.
2. Myljið smjörlíkið saman við og vætið í með eggjum og mjólk.
3. Hnoðið deigið þannig að það verði samfellt og festist ekki við
borðið.
4. Skiptið deiginu í 8 hluta, fletjið það út og skerið með kleinujárni í
3 sm breiðar ræmur sem síðan eru skornar á ská í 5-10 sm langa bita.
Skerið litla rifu í miðju hverrar kleinu og snúið þeim við með því að
stinga öðrum endanum í gegnum rifuna.
5. Steikið 68 kleinur í einu í steikingarfeitinni þar til þær verða
gullbrúnar.
Pönnukökur með sykri
(Mbl.13. mars 1994)
6 bollar hveiti
67 msk. sykur
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
2 egg
80100 g smjörlíki, brætt
örl. sítrónudropar
1 l mjólk, u.þ.b.
1. Bræðið smjörlíkið og kælið aðeins.
2. Blandið saman hveiti, sykri, lyftidufti og matarsóda.
3. Vætið í með eggjum og smjörlíki.
4. Bætið mjólkinni smátt og smátt saman við þar til deigið verður þunnt
og rennur vel á pönnunni.
5. Steikið við frekar háan hita. Pönnukökurnar eiga að vera þunnar.
6. Stráið sykri á pönnukökurnar, vefjið þær þétt saman og raðið þeim á
disk.
Marmarakaka
(Mbl.13. mars 1994)
250 g smjörlíki
250 g sykur
5 egg
250 g hveiti
2 msk. kakó
örl. af möndludropum
1. Hrærið smjörlíki og sykur vel saman.
2. Bætið eggjunum í einu og einu í senn og hrærið vel á milli.
3. Blandið hveitinu saman við deigið og skiptið því í þrjá hluta.
Blandið kakóinu og möndludropunum saman við einn þeirra.
4. Setjið deigið í lögum í jólakökuform, fyrst hvítt, þá brúnt og að
síðustu hvítt. Takið oddmjóan hníf og dragið varlega bókstafinn S eftir
mótinu endilöngu, þannig myndast marmaramunstrið.
5. Bakið við 170 í 1 klst. eða þar til prjónn kemur þurr upp úr kökunni.
6. Marmaraköku má frysta.
Bessastaðakökur
rúml. 100 stk.
(Kristín Gestsdóttir Mbl. 3. mars 1996)
250 g smjör (ekki smjörlíki)
250 g (3 dl) flórsykur
250 g (5 dl) hveiti
1 eggjarauða
nokkrir val- eða pecanhnetukjarnar
1. Bræðið smjörið við hægan hita, látið síðan storkna. Takið
smjörskjöldinn ofan af en fleygið syrjunni (botnfallinu), skafið það af
sem er laust neðan á smjörskildinum.
2. Setjið hveiti og flórsykur í skál, hnoðið smjörið saman við.
3. Fletjið út sm á þykkt, skerið síðan undan kringlóttu litlu glasi,
þvermál um 4 sm. Einnig má búa til rúllu úr deiginu og skera í sm þykkar
sneiðar.
4. Setjið smádropa af eggjarauðu ofan á hverja köku, leggið bita af val-
eða pecanhnetukjarna á hann.
5. Hitið bakaraofn í 180 C, blástursofn í 170 C, setjið í miðjan ofninn
og bakið í um 15 mínútur. Kökurnar eiga ekki að taka lit, þær eiga að
vera alveg hvítar.
Gyðingakökur
150 stk. 6 sm í þvermál
(Kristín Gestsdóttir Mbl.13. mars 1996)
425 g (rúml. 8 dl) hveiti
tsk. hjartarsalt
150 g (rúml. 1 dl) sykur
200 g smjör (ekki smjörlíki)
2 lítil egg
10 steyttar kardimommur eða tsk. kardimommudropar
2 eggjahvítur ofan á
100-150 g afhýddar möndlur ofan á
1 1 dl sykur ofan á
1. Setjið hveiti, hjartarsalt og sykur í skál, myljið smjörið út í.
Setjið síðan eggin saman við ásamt steyttum kardimommum eða
kardimommudropum. Hnoðið samfellt deig. Geymið á köldum stað í 1 - 2
klst.
2. Fletjið deigið mjög þunnt út, stingið út kringlóttar kökur með glasi.
Raðið á bökunarpappír á bökunarplötu.
3. Setjið eggjahvíturnar á disk og sláið sundur með gaffli svo að
örlítil froða myndist.
4. Saxið möndlurnar frekar smátt og setjið saman við sykurinn.
5. Penslið kökurnar með eggjahvítunni alveg út á brúnir, stráið síðan
möndlu/sykri ofan á alveg út á brúnina, gott er að hafa mikið af möndlum
á kökunum.
6. Hitið bakaraofn í 190 C, blástursofn í 180 C. Setjið í miðjan ofinn
og bakið í um 10 mínútur eða þar til kökurnar hafa aðeins tekið lit, en
þær eiga að vera ljósar.
Athugið: Ef kökurnar eru mjög þunnar verða um 150 stk. af þeirri stærð
sem upp er gefin úr þessu deigi, en ef þær eru þykkari verða þær að
sjálfsögðu færri.
Hálfmánar
(Uppskrift frá Önnu Snorradóttur Mbl. 1. desember 1994)
250 g hveiti
150 g smjörlíki
100 g sykur
1 egg
1 tsk. lyftiduft
tsk. hjartarsalt
vanilludropar
rabarbarasulta
Smjörlíki mulið saman við hveitið ásamt lyftiefnum. Sykri blandað saman
við og vætt í með eggi og vanilludropum. Deigið síðan hnoðað uns það er
slétt og sprungulaust. Síðan er gott að láta það bíða í kulda yfir nótt.
Deigið flatt út og mótað í kökur ca. 7 cm í þvermál. Sulta látin á
hverja köku og þær brotnar til helminga og brúnum þrýst létt saman.
Litlar jólakringlur
(Mbl. 1. desember 1994)
300 g hveiti
225 g smjör
1 msk. sykur
rifinn börkur af einni sítrónu
6 msk. þeyttur rjómi
vatn og sykur til penslunar
Smjör og hveiti hrært saman. Sykur og sítrónubörkur settur í og síðan
rjóminn. Hnoðað. Deigið rúllað í frekar þunnar lengjur sem úr eru
mótaðar kringlur. Penslað með vatni og perlusykri stráð yfir. Bakað við
225C í 810 mínútur. (Kringlurnar eiga að vera ljósar.)
Piparkökuhús
( Mbl.1. desember 1994)
3 dl síróp
800 g
sykur
500 g smjör
1 msk. engifer
2 msk. negull
2 msk. kanill
1 egg
1.800 g hveiti
1 tsk. natron
Hnoðið allt saman og kælið í ísskáp í 34 klukkustundir.
Fletjið út deigið og þykktin á að vera um hálfur sentimetri. Stækkið
teikningarnar tvisvar til þrisvar eða eftir vild.
Skerið út eftir teikningum og merkið í deigið fyrir bjálkum í veggi og
þakplötum.
Bakið á bökunarpappír við 175 C í um það bil 1216 mínútur eða þar til
fullbakað.
Skerið út glugga og hurðir að vild og bakið líka. Hurðina má hafa opna upp
á hálfa gátt og síðan eru þetta gluggahlerar sem geta skreytt húsið.
Milliloftið þarf að ná út fyrir húsið sjálft þannig að hægt sé með góðu
móti að gera svalir. Tröppur getur hver og einn gert með því að búa til
renning úr deiginu. Þrepin eru svo teiknuð á með sprautuðu súkkulaði.
Hliðar hússins eru settar saman með Mónu tertuhjúp.
Glassúrinn sem notaður er í snjó er búinn til úr tveimur eggjahvítum og
200400 g af flórsykri. Eftir að búið er að laga glassúrinn verður að
stífþeyta hann.
Handriði er sprautað á bökunarpappír. Í það er notaður Mónuhjúpur. Þegar
handriðið er síðan fest við húsið er Mónuhjúpurinn líka notaður til
þess.
Í lokin sé húsið skreytt með því að gera grýlukerti og svo er flórsykri
sigtað yfir í lokin.
Piparkökur
(Uppskrift Brynhildar Baldursdóttur Mbl. 1. desember 1994)
500 g hveiti
250 g sykur
180 g smjörlíki
4 tsk. kanill
2 tsk. negull
2 tsk. engifer
2 tsk. natron
tsk. pipar
8 msk. síróp
8 msk. mjólk
Allt hnoðað saman og rúllað í sívalninga, skorið í sneiðar og penslað
með vatni á hverja sneið. Bakað við 200C í 1520 mínútur.
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
|
 |
Jólaskonsur |
|
|
(ca. 12 skonsur)
Innihald
5 dl hveiti
2 msk sykur
1 msk Dr. Oetker Vanillusykur
1 msk Dr. Oetker Brun bagepulver (lyftiduft)
75 g smjör
1 egg
1 dl súrmjólk
50 gr súkkulaði
Framkvæmd
Blandið saman hveiti, sykri, vanillu og lyftidufti. Myljið smjörið út í og
bætið eggi og súrmjólk við. Setjið svo smátt skorið súkkulaðið út í.
Fletjið deigið út þar til það er um 1½-2 cm á þykkt. Skerið út 12 litlar
skonsur með glasi eða kökuformi og raðið þeim á bökunarplötu. Bakið í 10
mín við 220°C.
Sknosur eru bestar nýbakaðar með smjöri.
|
|
 |
Brúnkökur |
|
|
(ca. 200 stk)
Innihald
1 1/2 tsk Dr. Oetker Potaske
1/2 dl vatn
250 g smjörlíki
200 g síróp
200 g sykur
500 g hveiti
1 brev Dr. Oetker Brunkagekrydderi (brúnkökukryddblanda)
100 gr saxaðar möndlur
100g Dr. Oetker Súkkat
Framkvæmd
Leysið potaske upp í vatninu. Setjið smjörlíki, síróp og sykur í pott og
hitið upp að suðu. Hrærið uppleystu potaske út í. Látið kólna lítillega.
Setjið restina af innihaldsefnunum út í og hrærið þeim saman við
sykurmassann. Hnoðið deigið búið til lengjur, ca 4 cm í þvermál. Kælið
yfir nótt. Skerið deigið í þunnar sneiðar og raðið á bökunarplötu.
Bakið í miðjum ofni við 180ºC í 8-10 mín.
Skemmtilegt
Einnig er að hægt að búa til fígúrur úr deiginu, baka og skreyta með
glassúr.
|
|
 |
Bóndakökur 2 |
|
|
200 gr. smjörlíki
250 gr. sykur
1 stk. egg
300 gr. hveiti
75 gr. kókosmjöl
1 tsk. natron
2 msk. sýróp
Mónu súkkulaðidropar
Hrærið sykur og smjörlíki létt og ljóst og bætið svo egginu út í og
hrærið vel. Þá er þurrefnunum blandað saman við og hnoða aðeins upp í
deiginu, að lokum bætist sýrópið út í. Hnoðið degið saman, þá gæti þurft
að bæta við hveiti. Gerið litlar kúlur og einn súkkulaðidropi settur
ofan á og bakað við 200 ° c í 8-10 mín.
|
|
 |
Hnetusmjörskökur |
|
|
¼ bolli smjörlíki
¾ bolli sykur
¾ bolli dökkur púðursykur (þétt
troðinn)
1 teskeið vanillusykur
1 stórt egg
2 stórar eggjahvítur létt slegnar
3 bollar hveiti
2 teskeiðar matarsóti
ögn af salti
1 bolli gamaldags hnetusmjör
Blandið smjörlíkinu og sykrunum saman í
hrærivél eða mixara. Bætið vanillu, egginu og eggjahvítunum saman við,
hrærið vel. Blandið saman hveitinu, sótanum og salti og bætið út í
hræruna. Látið loks hnetusmjörið saman við og hrærið vel. Setjið á plötu
með teskeið og sléttið með gafli. Bakið í forhituðum ofni þar til
kökurnar eru ljós brúnar, um 10 mín.
|
|
 |
Vanillukransar |
|
|
500 g hveiti
400 g smjör
300 g strásykur
1 egg
vanilla
Hrærið öllu saman og hnoðið þar til degið verður mjúkt (ef það er of
þurrt má setja ögn af vatni). Rúllið upp í lengju ca 7 mm þykka. Skerið
lengjuna í ca 8 cm lengjur og gerið hring úr hverri. Raðið krönsunum á
smurða ofnplötu með svolitlu bili á milli. Bakið í miðjum ofni í u.þ.b.
6 mínútur.
|
|
 |
Sörur
4 |
|
|
400 g fínmalaðar möndlur
6 dl flórsykur
5 eggjahvítur
Blandið saman möndlum og flórsykri. Stýfþeytið eggjahvítuna og blandið
möndlu/sykrinum saman við. Bakið við 180°C í u.þ.b. 15 mín.
Krem:
1 dl sterkt kaffi
1 msk hveiti
1 eggjarauða
125 g mjúkt smjör
1/2 dl sykur
1/2 tsk vanillusykur
250 g hjúpsúkkulaði
Sjóðir saman kaffið og hveitið þar til það þykknar og kælið. Blandið
eggjarauðunni við kaffiþykknið. Hrærið saman smjör, sykur og
vanillusykur þar til blandan verður létt og ljós en þá er kaffikreminu
blandað saman við.
Smyrjið kreminu á sléttu hliðina á kökunum. Bræðið súkkulaðið yfir
vatnsbaði og látið kólna niður í u.þ.b. 40°C. Dýfið nú hverri köku í
súkkulaðið og látið það þekja kaffikremið.
|
|
 |
Hnetutoppar
|
|
|
Setjið allt hráefnið saman í
hræriskálina og vinnið rólega saman, rúllið út í pylsu og kælið, skerið
svo niður. Setjið á bökunarpappír, penslið yfir með hrærðu eggi, stráið
smá sykri yfir. Stingið heilli heslihnetu í miðjuna og bakið við 180° í
10-12 mín.
|
|
 |
Hálfmánar
2 |
|
|
500 gr hveiti
250 gr sykur
200 gr smjör
½ tsk hjartasalt
1 tsk lyftiduft
1 egg
1 dl mjólk
kardimommudropar
sveskjusulta
Hveiti, sykur, hjartasalt og lyftiduft sett saman. Myljið smjörið
útí. Vætið í með eggjunum og mjólkinni. Látið bíða á köldum
stað um stund.
Fletjið deigið út. Mótið kringlóttar kökur. Setjið 1 tsk af
sveskjusultunni á hverja þeirra og leggið kökurnar saman. Þrýstið
brúnunum saman með gaffli og bakið ljósbrúnar á 180°C
|
|
 |
Jólabrauð
(Sweden) |
|
|
50 gr.
ger
½ lítri mjólk
150-200 gr. bráðið smjör
1 gr. saffran
½ teskeið salt
¼ lítri sykur
1 egg
1 ½ lítri hveiti
1 desilítri möndlubitar
rúsínur
Blandið mjólkinni og smjörinu saman
og hitið að ca. 37°C, þannig að þú finnir hvorki heitt né kalt ef þú
stingur fingri í blönduna. Blandið gerinu saman við. Bætið saffran,
salti, sykri, eggi og möndlum við blönduna. Setjið nú hveitið smátt og
smátt útí þar til deigið er ekki klístrað, losnar auðveldlega frá
skálinni en er ekki of þurrt heldur, í einstaka tilfellum gæti þurft að
bæta meira hveiti en segir í uppskriftinni og stundum þarf minna. Látið
nú deigið hefast undir klút í 30 mínútur. Setjið nú svolítið hveiti á
borð og hnoðið deigið létt. Skiptið nú deiginu í 32 jafnstóra bita og
rúllið hverjum bita upp í ca 10 tommu langann orm. Byrjið nú á öðrum
enda ormsins og rúllið honum upp að miðju, byrjið svo eins frá hinum
endanum. Nú ætti ormurinn að vera eins og tveir samfastir snúðar eða
tölustafurinn 8. Settu nú rúsínu í miðju hvorns "snúðs". Látið nú hefast
aftur undir klút í aðrar 30 mínútur. Hitið ofninn að 225°C. Penslið
brauðið með eggi og bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 10 mínútur.
|
|
 |
Jólahnetuhleifur Margrétar |
|
|
Púrrulaukur ekki
mjög stór
cashew hnetur
rúml. 100 gr.
pine hnetur rúml.
100 gr.
lífrænar apríkósur
150 gr. ca
sveppir slatti
ghee (ósaltað
smjör)
fersk persilja,
helst flöt
eitt
hvítlauksbrauð t.d frá Hattings
svartur pipar
2
grænmetisteningar
1-2 egg
Smá rjómasletta
Rauðvínsskvetta
Bakað
hvítlauksbrauðið sett í matvinnsluvél og mulið. Tekið úr vélinni og sett
í skál.
Púrra, sveppir,
hnetur og apríkósur steikt upp úr gheeinu. Persilju og öðru kryddi bætt
saman við. Þegar þetta
er orðið mjúkt og
ljósbrúnt er það sett í matvinnsluvélina og hakkað, ekki of fínt. Síðan
er hnetublandan sett í
skál með
brauðmylsnunni, eggjunum, rjóma og rauðvíni, allt hrært vel saman.
Blandan svo sett í
bökunarform eða
eldfast mót og bakað við 200°C í ca 30 mínútur.
Úr þessu verður
einn hleifur ekki mjög stór.
Gott að hafa kalda
sósu með sem er búin til úr Sýrðum rjóma (36% eða þeim danska) chilli
sósu, hvítlauk og
svörtum pipar. Eins er alveg
örugglega gott að hafa rauðvínsvepparjómasósu með þessum hleif.
|
|
 |
Jólakaka (ítölsk ófitandi) |
|
|
ekkert hveiti,
engin fita, enginn sykur
500g hnetur og
möndlur Hnetur og börkur í matvinnsluvél og mulið. Hunang hitað aðeins
með
börkur af einni
appelsínu brytjuðum gráfíkjunum útí. Setjið bananann útí hunangsblönduna
½ tsk kanill og
svo öllum þurrefnunum ásamt berki og hnetum. Hrært og
½ tsk negull sett
í form. Bakað við ca 170°C. Má bræða 70 % súkkulaði og
½ tsk koriander
smyrja þunnt yfir. Þessi kaka er æðisleg og full af hollustu.
½ tsk engifer
2 msk spelt
100g hunang úr
heilsubúð, einn stappaður banani, 5 gráfíkjur
Það er einfalt að
gera baksturinn hollari með því að nota flókin kolvetni í stað þeirra
einföldu. Já, hvað er
flókið og einfalt?
Einföld kolvetni
eru: Hvítt hveiti, hvítur sykur, sykraðir drykkir, fljótandi sykur eins
og sýróp, hvítt pasta,
Hvít hrísgrjón.
Flókin kolvetni
eru: Spelt, heilhveiti og allt gróft korn, ávextir (ferskir og
þurrkaðir), brúnt pasta, brún grjón,
Svo er hægt að fá
náttúrulegt fljótandi hunang og hrásykur sem er betra í bakstur en
hvíti sykurinn.
Spelt og heilhveiti er svo hægt að nota í allan bakstur, pönnukökur og
svamptertubotna meira
að segja. Svo er
olían hollari fita en smjör og smjörlíki, tæpur desiliter í stað 100g af
smjöri. Einnig er hægt
að setja stappaða
banana eða maukuð epli í stað smjörs og sykurs. Döðlurnar eru sætar og
betri á bragðið en
hvíti sykurinn. Hnetur,
möndlur, gulrætur og kartöflur geta svo komið í staðinn fyrir mjöl.
|
|
 |
Besta
brauð í heimi |
|
|
800g mjöl frjálst
val Allt nema egg og sesamfræ er sett í skál og blandað saman með
100g sólblómafræ
sleif. Settí 3 jólakökuform, eggið pískað, smurt yfir og
4 tsk kúfaðar
lyftiduft sesamfræjunum stráð yfir.
1 tsk sléttfull
natron Bakað við 150°C í 15-20 mín og hækkað í 200°C og bakað áfram
1 tsk salt í allt
að 1 klst.
6 dl ab-mjólk
2 ½ dl vatn, 1 egg, 100g
sesamfræ
|
|
 |
Jólahjörtu Guðnýar |
|
|
2 ½ tsk þurrger
fylling: 75g gráfíkjur Ávextirnir er klipptir í smá
1 dl volgt vatn
25g döðlur stykki og safa og mjólk hellt
1 ½ msk hrásykur
25g aprikósur yfir og látið standa í minnst 30 mín.
25g heslihnetur
50g sveskjur
¼ tsk kanill 1 ½
msk hrásykur
¼ tsk engifer ½ dl
appelsínusafi
½ tsk salt 1 dl
mjólk
50g smjörlíki
425g hveiti (má
nota heilhveiti)
1 egg til að
pensla
Leysið gerið upp í
volgu vatninu, setjið saman við þurrefnin, síðan lint smjörlíkið og
ávaxtablandan, hnoðið
saman og látið
hefast í ca 1 klst. Mótið 16 hjörtu eða bollur og látið hefast í cs ½
klst, penslið með eggi og
bakið við 185°C í 18-20 mín.
Gott að frysta.
|
|
 |
Jólasmábrauð |
|
Hitið mjólk í 37°C og hrærið
geri saman við. Bætið salti, kardimommum og hveitiklíð út í og síðan
hveiti (u.þ.b. 2/3) ásamt mjúku smjörinu. Hrærið vel. Saxið hnetur gróft
og smækkið kokkteilber og appelsínubörk ef þarf. Blandið ávöxtum og
hnetum í hveitiblönduna. Hrærið vel. Látið deigið lyfta sér í 40-50 mín.
Hnoðið deigið og mótið bollur eða smábrauð, setjið á plötu og látið
lyfta sér í 15-20 mín. Penslið með eggjablöndu eða vatni og bakið í
miðjum ofni við 200-220°C í 10-15 mín.
|
|
|
5,00 |
dl mjólk |
|
4,00 |
tsk þurrger |
|
50,00 |
g smjör |
|
1,00 |
tsk salt |
|
1,50 |
tsk
kardimommur |
|
25,00 |
g
hveitiklíð |
|
360,00 |
g hveiti |
|
50,00 |
g hnetur |
|
50,00 |
g
kokkteilber |
|
50,00 |
g sultaður
appelsínubörkur |
|
|
 |
Aðventukringla |
|
Hrærið vel saman smjör, sykur og egg. Blandið rúsínunum,
söxuðu ávöxtunum og brytjuðu súkkkulaðinu saman við hveitið. Blandið
sýrða rjómanum og kardimommum (má nota vanilludropa) saman við
smjörhræruna og því næst hjartarsalti og hveitiblöndunni. Setjið deigið
í fallegan hring með matskeið á bökunarpappír á plötu. Bakið við 200°C í
20-25 mín. í miðjum ofni. Gott er að strá möndluflögum og perlusykri
yfir áður en bakað er. Látið kringluna bíða í u.þ.b. 1 klst. áður en hún
er borin fram.
|
100,00 |
g smjör |
|
130,00 |
g sykur |
|
1,00 |
egg |
|
1,00 |
ds sýrður
rjómi (10%) |
|
230,00 |
g hveiti |
|
1,50 |
tsk
hjartarsalt |
|
2,00 |
tsk
kardimommur |
|
36,00 |
g rúsínur |
|
2,00 |
msk
kokkteilber |
|
3,00 |
msk
þurrkaðar apríkósur |
|
50,00 |
g súkkulaði |
|
1,00 |
skm
möndluflögur og perlusykur (skreyting) |
|
|
 |
Piparkökur fyrir sykursjúka |
|
|
150 grömm hveiti
¼ teskeið kanil
¼ hnífsoddur negull
¼ hnífsoddur pipar
25 grömm smjörlíki
35 grömm atwel eða perfect fit, eða annað sætuefni
1 hnífsoddur hjartasalt
Aðferð fyrir Piparkökur fyrir sykursjúka:
Blandið hveiti, hjartasalti, kanil, negul og pipar saman. Klípið
smjörlíkið útí og blandið sætuefninu saman við. Þeytið eggið og hellið
útí, hrærið degið saman og setjið það svo í ískápinn í 15 mínútur.
Rúllið deginu í cirka 1 cm þykkar pylsur. Skerið pylsurnar í bita og
rúllið bitunum upp í kúlur. Setjið á plötu og ýtið aðeins á kúlurnar
þannig að þær verið flatar. Bakið við 200 gráður í 10 mínútur.
|
|
 |
Marengs terta |
|
|
Svampbotnar:
2 egg
1 desilítri sykur
1/2 desilítir hveiti
1/2 desilítri kartöflumjöl
Marengs:
3 eggjahvítur
2 desilítrar sykur
Krem:
3 eggjarauður
4 matskeiðar flórsykur
50 grömm Síríus suðusúkkulaði (konsum)
2 1/2 desilítrar rjómi, þeyttur
Aðferð fyrir Marengsterta:
Svampbotnar:
Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Sigtið þurrefin og blandið þeim
varlega saman við eggjahræruna. Bakið í lausbotna formi við 175-200
gráður í 12 mínútur.
Marengs:
Stífþeytið eggjahvíturnar, bætið sykrinum smám saman út í og þeytið vel.
Setjið marengsinn í lausbotna form (bökunarpappír í botninn) og inn í
150 gráðu heitan ofn. Lækkið hitann niður í 100 gráður og bakið í um það
bil 1 klukkustund. Látið marengsinn kólna í ofninum.
Krem:
Þeytið eggjarauðurna og flórsykurinn saman. Bræðið súkkulaðið yfir
vatnsbaði, kælið það örlítið og blandið því saman við eggjahræruna.
Smyrjið helmningnum af rjómanum á svampbotninn og helmingnum af kreminu
ofan á hann. Síðan er marengsbotninn settur ofan á og endað á kreminu.
Gott er að geyma tertuna í frysti í 6-8 klukkustundir áður en hún er
borin fram.
|
|
 |
Marengskaka |
|
|
200 grömm flórsykur (sigtaður)
4 eggjahvítur
100 grömm smátt brytjað súkkulaði
100 grömm saxaðar döðlur
Aðferð fyrir Marengskaka:
Stífþeytið eggjahvíturnar og 5 matskeiðar af flórsykrinum saman. Bætið
afganginum af flórsykrinum, súkkulaðinu og döðlunum varlega saman við.
Smyrjið ofnplötu vel og sáldrið hveiti yfir. Jafnið degið í tvo hringlótta
botna á plötuna og bakið í tvær klukkustundir við 100 gráður. Þeytið 1-2
pela rjóma og setjið á milli og ofan á. Setjið kökuna saman 4-6
klukkustundum áður en hún er borin fram.
|
|
 |
Súkkulaðismákökur |
|
|
250 grömm rjómaostur
200 grömm smjör
3/4 bollar sykur
1 egg
1 teskeið vanilludropar
2 1/2 bolli hveiti
1 teskeið lyftiduft
1/2 teskeið salt
1/2 bolli saxaðar hnetur
150 grömm saxað súkkulaði
Aðferð fyrir Súkkulaðismákökur:
Hitið ofninn í 200 gráður. Hrærið saman rjómaosti smjöri og sykri, þar til
hræran verður létt og ljós. Hrærið eggi og vanilludropum út í. Blandið
þurrefnunum saman við og síðan súkkulaði og hnetum. Setjið með teskeið á
plötu og bakið í 15-20 mínútur. Óhætt er að setja kökurnar nokkuð þétt
saman á plöturnar, þar sem þær renna nánast ekkert út. Geymið í
loftþéttu boxi á köldum stað.
|
|
 |
Kókostoppar |
|
|
200 grömm smjör
1 1/2 desilítri sykur
1 egg
1 teskeið vanilludropar
2 1/2 - 3 desilítrar kókosmjöl
2 teskeið hjartasalt
5 desilítrar hveiti
Aðferð fyrir Kókostoppar:
Hrærið smjör og sykur þar til það verður létt og ljóst. Hrærið eggin út í.
Blandið kókosmjöli og hjartasalti út í og að lokum hveitinu. Setjið
degið með teskeið á smurða plötu. Bakið við 150 gráður í u.þ.b. 20
mínútur. Geymið í loftþéttu boxi á köldum stað.
|
|
 |
Jólakringla |
|
Það er siður í Skandínavíu að bjóða upp á góða kringlu á
jólunum. Þennan sið hafa fleiri og fleiri tekið upp á Íslandi og borið
fram ljúffenga jólakringlu í fjölskylduboðum milli jóla og nýárs.
|
375 g |
Smjör
(kalt) |
|
500 g |
Hveiti |
|
1 dl |
Mjólk
(volg) |
|
1 bréf |
Þurrger (eða 50 g. pressuger) |
|
2 stk |
Egg |
|
1 tsk |
Kardimomma, mulin |
-
Myljið
smjörið í hveitinu.
Bætið við sykri og
kardimommudropum.
Leysið upp gerið í
volgri mjólkinni. Blandið því og eggjunum saman við deigið og hnoðið
vel.
Setjið í skál með
plastfilmu yfir og látið hefast í 30 mín.
Fylling:
|
125 g |
Smjör (lint) |
|
125 g |
Sykur |
|
125 g |
Marsípan |
|
1/2 dl |
Rúsínur |
Egg til
penslunar, möndluflögur og perlusykur til skrauts.
Rífið marsípanið gróft
og hrærið saman fyllingunni.
Fletjið deigið út svo
úr verði langur renningur.
Setjið fyllinguna í
miðju deigsins og rúllið því upp í "pylsu" (látið brotið snúa
niður). Látið á bökunarpappír og formið "pylsuna" í kringlu. Látið
kringluna hefast í 30 mín.
Penslið kringluna með
eggi og stráið möndluflögum og perlusykri yfir.
Bakið í uþb. 30 mín.
við 225°C.
|
|
 |
Emmur |
|
80 stk.
|
5 dl |
Púðursykur, þéttfullir |
|
450 g |
Mjúkt
smjör |
|
3 stk |
Egg |
|
2 tsk |
Vanillusykur |
|
2½ dl |
Haframjöl |
|
7½ dl |
Hveiti |
|
1 tsk |
Matarsódi |
|
1 tsk |
Lyftiduft |
|
1 tsk |
Salt |
|
1 pund |
M&M kúlur
= 1 poki 453,6 g |
|
2½ dl |
Ljósir
súkkulaðidropar |
-
Þeytið
saman púðursykur og smjör þar til það er létt.
Bætið eggjum, vanillu
og haframjöli út í og hrærið vel.
Blandið saman restinni
af þurrefnunum og hrærið smám saman útí deigið.
Bætið að lokum m&m og
súkkulaðidropum út í og blandið vel saman við. Kælið deigið
smástund.
Setjið með teskeið á
ósmurðar plötur og bakið við 200°C í um 8 mínútur. Látið standa í 2
mínútur áður en kökurnar eru teknar af plötunni.
|
|
 |
Snikkaraterta |
|
|
Þessi ísterta er ótrúlega einföld og bragðgóð en bragðið líkist
einna helst þekktu amerísku hnetusúkkulaði. Tertuna er gott að eiga í
frysti þegar gesti ber að garði eða sem eftirrétt á jólunum.
300 g súkkulaðibitaköur eða kex
50 g smjör
1 1/2 lítri vanilluís
1 1/2 bolli hnetusmjör með hnetubitum (Crunchy peanut butter)
Setjið kökurnar í matvinnsluvél
og hrærið þar til þær eru orðnar að mylsnu. Bræðið smjörið og hrærið því
út í mylsnuna. Þrýstið mylsnunni í botn og upp kantana á kökuformi.
Setjið ísinn í skál og hrærið varlega með gaffli. Bætið hnetusmjörinu út
í og blandið vel saman. Setjið ísblönduna í mylsnubotninn og frystið í
a.m.k. 3-4 tíma. Berið ístertuna fram með volgri súkkulaðisósu.
Súkkulaðisósa:
1/2 dl rjómi
100 g 70% Síríus súkkulaði eða Síríus Konsum
Hitið rjómann að suðumarki,
takið af hitanum og brytjið súkkulaðið út í. Hrærið á meðan súkkulaðið
bráðnar.
|
|
 |
Bounty kúlur |
|
|
4
dl kókosmjöl
2-3 dl flórsykur
2 msk mjúkt smjör
1 eggjahvíta
2 msk rjómi
súkkulaði til að hjúpa með
Aðferð:
1.
Blandið þurrefnunum saman.
2.
Bætið smjöri, eggjahvítu og rjóma saman við.
3.
Hnoðið deigið.
4.
Mótið litlar kúlur og setjið á plötu og frystið.
5.
Bræðið súkkulaðið t.d. í örbylgjuofni og hjúpið kúlurnar til hálfs.
|
|
 |
Möndlukúlur |
|
|
3 dl hveiti
1 dl sykur
1 tsk vanillusykur
½ tsk lyftiduft
100 g smjör
1 lítið egg
súkkulaðidropar
Aðferð:
1.
Blandið þurrefnunum saman í skál.
2.
Myljið smjörið
saman við þurrefnin með fingurgómunum.
3.
Bætið egginu í og hrærið deigið með sleif.
4.
Hnoðið deigið á borði og mótið litlar kúlur úr deiginu eða rúllið í
lengjur og skerið í sneiðar.
5.
Bakað við 175°C í 8-10 mín.
6.
Þegar kökurnar eru teknar út úr ofninum er einn súkkulaðidropi settur á
hverja köku.
|
|
 |
Jólakonfekt með döðlum |
|
|
300 gram síríus suðusúkkulaði
2 desilítrar kókosmjöl
1 desilítri saxaðar döðlur
1 desilítri saxaðar gráfíkjur
1 desilítri saxaðar rúsínur
Það má skipta einhverju af þessu út fyrir möndlur eða hnetur, eftir smekk.
Aðferð fyrir Jólakonfekt med döðlum:
Súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði. Allt hráefnið hrært saman við. Sett með
teskeið á pappírsklædda bökunarplötu og látið storkna.
Hversu mikið er haft í hverri teskeið fer bara eftir því hvað bitarnir
eiga að vera stórir.
Gott er að halda hrærunni heitri yfir vatnspottinum á meðan hræran er sett
á plötuna, annars á hún til að storkna áður en allt er komið á plötuna.
Gæta þarf þess að gufa komist ekki í súkkulaðið á meðan það er brætt, þá
hvítnar það.
|
|
 |
Rúlluterta 2 |
|
|
3 egg
125 grömm sykur
1 1/2 teskeið lyftiduft
2 matskeiðar kakó
50 grömm kartöflumjöl
Smjörkrem:
125 grömm smjör
125 grömm flórsykur
1 eggjarauða
Vanilludropar
Aðferð fyrir Drauma-rúlluterta:
Búið til smjörpappírsskúfu á bökunarplötu. Smyrjið hana með smjöri.
Þeytið egg og sykur þar til hræran verður létt og ljós. Blandið saman
þurrefnum og bætið þeim varlega í eggjahræruna. Hellið deginu í
pappírsskúffuna og bakið við 180-200 gráður, í 10-15 mínútur í miðjum
ofni. Hvolfið kökunni á sykurstráðan smjörpappír, leggið rakan klút yfir
og kælið. Smyrjið kreminu á kökuna. Rúllið kökunni upp og hafið
pappírinn utan um. Gætið þess að samskeytin snúi niður.
Krem:
Hrærið smjör og sykur þar til hræran verður létt og ljós og bætið svo
eggjarauðunni í. Smakkið til með vanilludropum.
|
|
 |
Gráfíkju terta |
|
|
150 grömm hveiti
1 teskeið matarsódi
100 grömm sykur
100 grömm smjörlíki
1 egg
150 grömm gráfíkjur
1-2 desilítrar vatn
Aðferð fyrir Gráfíkjuterta:
Hitið ofninn í 200 gráður. Saxið og sjóðið gráfíkjurnar í vatninu þar til
þær eru komnar í mauk. Sigtið þurrefnin þ.e hveiti, matarsóda og
lyftiduft í hrærivélaskálina. Blandið sykrinum saman við. Látið síðan
lint smjörlíki, egg, gráfíkjumauk og vatn í skálina. Hrærið degið í eina
mínútu á minnsta hraða og síðan í 3 mínútur á mesta hraða vélarinnar.
Takið tímann nákvæmlega. Bakið degið í tveim vel smurðum tertumótum í
30-40 mínútur. Leggið botnana saman með gráfíkjumauki eða þeyttum rjóma.
Skreytið að vild.
|
|
 |
Tertubotnar |
|
|
3 egg
225 grömm sykur
180 grömm hveiti
2 teskeiðar lyftiduft
1 desilítri heitt vatn
Aðferð fyrir Tertubotnar:
Egg og sykur þeytt vel saman. Hveiti og lyftidufti blandað saman og sett í
eggjahræruna til skiptis við vatnið. Bakið í tveimur tertumótum eða einu
stóru við 180 gráður þar til tertubotnarnir losna frá börmunum.
|
|
 |
Jarðaberjaterta |
|
|
4 eggjahvítur
1 bolli sykur
2 bollar kókosmjöl
100 grömm brytjað suðusúkkulaði
1 peli rjómi
1/2 dós jarðaber
Aðferð fyrir Jarðaberjaterta:
Eggjahvíturnar og sykurinn þeytt saman. Kókosmjöl og súkkulaði blandað
varlega saman við. Smyrjið ofnplötu vel og sáldrið hveiti yfir. Smyrjið
deigið út í tvo hringlótta botna á plötuna. Bakið við 150 gráður í cirka
30 mínútur. Botnarnir lagðir saman með pela af þeyttum rjóma og 1/2 dós
af jarðaberjum sem eru marin út í rjómann.
|
|
 |
Piparkökudropar |
|
|
500 grömm púðursykur
500-700 grömm hveiti
200 grömm smjörlíki
2 teskeiðar engifer
2 teskeiðar sódaduft
2 teskeiðar negull
2 teskeiðar kanill
1/2 teskeið pipar
1 desilíter síróp
2 desilíter mjólk
Aðferð fyrir Piparkökudropar:
Blandið öllum þurrefnunum saman. Myljið smjörlíkið út í og vætið í með
sírópi og mjólk. Hnoðið degið og hnoðið upp í það hveiti svo það verði
vel meðfærilegt. Búið til litlar kúlur og þrýstið örlítið á þær. Bakið
við 200 gráður í 3-5 mínútur.
|
|
 |
Peruterta |
|
|
3 egg brotin í glas
Sykur mældur í öðru glasi jafn hátt og eggin ná
Í þriðja glasið:
2 matskeiðar kartöflumjöl
2 teskeiðar lyftiduft
Hveiti það mikið að það verður jafn mikið og í glasinu með sykrinum.
Að sjálfsögðu verða öll glösin að vera jafn stór.
Döðlusulta:
1 pakki döðlur
Safi úr einni peru dós
Aðferð fyrir Pertuterta:
Egg og sykur þeytt saman. Þurrefnunum blandað varlega saman við
eggjahræruna. Deigið bakað í einu stóru djúpu formi. Það má líka skipta
því í tvennt.
Döðlusulta:
Döðlurnar eru soðnar í safanum úr einni perudós. Síðan er sultunni smurt
jafnt yfir kökuna og perunum raðað þar ofan á.
|
|
 |
Rjómatertu
botnar |
|
|
4 egg
200 grömm sykur
70 grömm hveiti
70 grömm kartöflumjöl
1 teskeið lyftiduft
Aðferð fyrir Rjómatertubotnar:
Egg og sykur þeytt vel saman. Þurrefnunum blandað saman og bætt út í
eggjahræruna smátt og smátt. Bakað í tveim vel smurðum tertumótum við
180 - 200 gráður þar til botnarnir losna frá börmunum.
|
|
 |
Hálfmánar |
|
|
500 grömm hveiti
200 grömm smjörlíki
200 grömm sykur
50 grömm egg
150 grömm mjólk
1/2 teskeið hjartasalt
1 teskeið lyftiduft
1/2 teskeið kardimommur
Aðferð fyrir Hálfmánar:
Þurrefnunum blandað saman. Vætið í með eggi, mjólk og dropum. Smjörlíkið
mulið saman við og hnoðað vel. Degið rúllað þunnt út á hveitistráðu
borði. Kringlóttar kökur skornar út með glasi eða móti. Sulta að eigin
vali sett á hverja köku, hún brotin saman og þrýst á brúnirnar með
gaffli.
Gæta þarf þess að setja ekki of mikið af sultu á kökurna þá hættir þeim
við að springa.
|
|
 |
Snittubrauð |
|
Einfalt og fljótlegt. Þó að
snittubrauðið sé ekki eins létt og loftkennt og út úr búð þá er það mun
hollara!
Gerir eitt langt brauð
5 dl spelti
1 dl hveitiklíð (má sleppa og nota meira spelti í staðinn)
1 tsk Himalaya eða sjávarsalt
1 msk agavesíróp
2 msk vínsteinslyftiduft
1-2 dl sojamjólk eða hrein jógúrt, súrmjólk eða AB mjólk
1/2-1 dl sjóðandi heitt vatn
Aðferð:
Blandið þurrefnunum
varlega saman.
Bætið vökvanum smátt og
smátt út í þangað til hægt er að hnoða deigið. Misjafnt er hversu
mikinn vökva þarf og gætið þess að deigið verði ekki of blautt, það
á sem sagt að vera hægt að hnoða það (en þó ekki mikið).
Hnoðið og búið til eina
lengju (eða tvær styttri) úr brauðinu (álíka þykka og venjulegt
snittubrauð). Gætið þess að séu ekki sprungur í deiginu.
Hitið í um 30 mínútur
við 180°C.
Látið kólna í 10
mínútur og skerið svo í sneiðar og berið fram.
Upplagt með súpum,
pottréttum, baunakássum og mörgu öðru.
|
|
 |
Jólaglögg
óáfengt |
|
Fyrir 2-3
1/2 lítri 100% hreinn
trönuberjasafi (enska: cranberry juice)
1/2 lítri 100% hreinn
eplasafi
1 lófafylli heilar
möndlur
1 lófafylli rúsínur
2 kanilstangir
4 negulnaglar
1 tsk ávaxtasykur eða hrásykur
Safi úr 1/2 sítrónu
Aðferð:
Sjóðið allt nema
sítrónu í potti í u.þ.b. 5-10 mín.
Takið þá negulnaglana
og kanelstangirnar úr og setja safann af sítrónunni út í.
Setjið möndlur og
rúsínur út í.
Berið fram í frekar
háum og mjóum bollum.
|
|
 |
Jólakonfekt 2 |
|
Gerir um 30 konfektbita
1 banani, vel þroskaður
1 dl haframjöl
1 dl kókosmjöl
1/4 dl carobduft (eða gott kakóduft með háu kakóinnihaldi)
25 gr döðlur, sem búnar eru að liggja í bleyti í
u.þ.b. 1 klst
25 gr gráfíkjur, sem búnar eru að liggja í bleyti í
u.þ.b. 1 klst
1 tsk vanilluduft eða vanilludropar
50 gr saxað, dökkt gæðasúkkulaði (með ávaxtasykri eða
hrásykri) eða carob
1 tsk kanill
Kókosmjöl til að velta
konfektinu upp úr, eða malaðar möndlur
Aðferð:
Setjið allt í
matvinnsluvél.
Kælið blönduna í nokkra
tíma.
Mótið litlar kúlur og
veltið upp úr kókosmjöli, carobdufti eða kakódufti eða möndlum.
Geymist best í frysti
en einnig í 1-2 vikur, innpakkað í plast í ísskáp.
Blandan getur verið
blaut eða þurr allt eftir því t.d. hvort bananinn er stór eða ekki.
Ef ykkur finnst blandan blaut skuluð þið setja hana inn í ísskáp og
eftir klukkutíma skoðið þá hvort hún er enn þá of blaut til að móta
úr henni kúlur. Ef hún er of blaut, bætið þá aðeins meira af
haframjöli við ásamt aðeins meira af carobi og kókosmjöli. Setjið
svo aftur inn í ísskápinn. Það er langbest að velta konfektinu upp
úr einhverju t.d. kókosmjöli eða muldum möndlum.
|
|
 |
Jólakonfekt |
|
Hollt og gott jólakonfekt,
fullt af próteinum, trefjum, C vítamínum og fleiru. Maður þarf ekki að
hafa samviskubit yfir þessum í kringum jólin. Svo hollt að maður getur
meira að segja fengið sér mola með morgunkaffinu.
Gerir um 40 konfektmola
Tæpur 1 bolli (2 dl)
cashewhnetur. Ég miða við 250
ml bolla
1/4 bolli möndluflögur
1/2 bolli kókosmjöl
15-20 gráfíkjur (um 250
gr), snúið litla stubbinn á endanum af, saxið gróft
8-10 döðlur, saxið
gróft
1/2 bolli rúsínur
1 bolli puffed rice
(sprengd hrísgrjón, fást t.d. í Heilsuhúsinu)
3-5 msk hreinn appelsínusafi
4 msk hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
3 msk carobduft (má nota kakóduft, notið þá lífrænt
framleitt og gott kakó)
100 gr carobstykki eða sykurlaust, lífrænt ræktað súkkulaði.
Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að lesa innihaldslýsingu
súkkulaðisins.
Aðferð:
Malið möndlur, puffed
rice og hnetur og kókos í matvinnsluvél.
Bætið carobdufti út í
og malið aðeins áfram.
Setjið í stóra skál.
Maukið döðlur,
gráfíkjur og rúsínur með smá appelsínusafa þangað til allt er orðið
að mauki.
Blandið öllu vel saman,
jafnvel í hrærivél (gott að vera í þunnum plasthönskum ef þið notið
hendurnar).
Áferðin á deiginu á að
vera nokkuð þétt, alls ekki blaut en allt á samt að festast vel
saman.
Gott að láta blönduna
bíða aðeins í kæli, betra að móta konfektið þannig.
Mótið litlar kúlur
(álíka stórar og vínber)
Bræðið carobið í potti
yfir lægsta hita. Fylgist vel með því og passið að það ofhitni ekki
því annars skemmist það. Um leið og það er farið að bráðna slökkvið
þá undir hitanum.
Gott er að slétta
botninn á hverju konfekti, það stendur betur á disknum þannig.
Notið kokteilpinna eða
tannstöngla til að dýfa kúlunum ofan í carobið (dýfa toppnum ofan
í). Veltið upp úr kókosmjöli eða einhverju öðru ef þið viljið.
Látið kólna.
Hægt er að frysta
molana en þeir geymast í margar vikur í lokuð íláti í ísskáp.
Gott er að setja rifinn
börk af einni appelsínu í hluta deigsins.
Til tilbreytingar er
gott að setja 1/2 tsk engifer og 1/2
tsk
kanil í hluta deigsins
Hægt er að velta
konfektinu upp úr kókosmjöli, sesamfræjum, möluðum möndlum,
carobdufti o.s.frv.
Einnig má nota
þurrkaðar aprikósur á móti döðlunum í uppskriftina.
Athugið að súkkulaði
getur innihaldið glútein.
|
|
 |
Jólakaka með ensku ívafi |
|
Gerir 1 kökubrauð
300 gr rúsínur (ljósar og dökkar)
290
ml apríkósusulta (hrein, án
viðbætts sykurs og aukaefna)
250 gr aprikósur, saxaðar í grófa bita
1 tsk agavesíróp eða hunang
250 gr soðið og maukað grasker (hægt að nota butternut squash
líka). Um 400 gramma grasker þarf fyrir uppskriftina).
1 tsk salt (til að sjóða graskerið upp úr)
120 gr þurrkaður ananas (án sykurs eða aukaefna), saxaður í
grófa bita. Einnig má nota ferskan ananas eða úr dós (án sykurs) en
þá þarf að sigta allan vökva mjög vel frá
280 gr spelti
80 gr döðlur, saxaðar í grófa bita
Börkur af einni lífrænt
ræktaðri appelsínu
Börkur af 1/2 lífrænt
ræktaðri sítrónu
1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
3 tsk kanill
2 tsk negull (enska: clove)
1 tsk múskat (enska: nutmeg)
1 tsk vínsteinslyftiduft
3-4 matskeiðar af hreinum
appelsínusafa.
Aðferð:
Sjóðið graskerið í söltu
vatni. Látið rétt fljóta yfir graskerið og sjóðið í um 20 mínútur
eða þangað til það er orðið meyrt. Kælið og maukið í matvinnsluvél.
Í annan pott skuluð þið
setja alla ávextina og börkinn ásamt agavesírópi eða hunangi,
kókosfeiti eða ólífuolíu og aprikósusultunni og sjóða í 3 mínútur.
Kælið.
Blandið saman speltinu,
kryddinu og vínsteinslyftiduftinu í stórri skál.
Bætið graskersmaukinu
varlega saman við.
Bætið nú ávaxtablöndunni
saman við og blandið öllu saman með sleif.
Setjið bökunarpappír í
stórt brauðform (14 cm. á
breidd og 21 cm. á lengd) og
hellið blöndunni ofan í (má líka setja í 2 minni form en baka þá í
aðeins skemmri tíma).
Bakið í 60 mínútur við
180°C. Ef toppurinn er orðinn mjög dökkur eftir 30-40 mínútur má
breiða álpappír yfir kökuna, eða lækka hitann og færa kökuna neðar.
Eftir 60 mínútur skuluð þið skoða kökuna og pota prjóni eða hnífi í
miðjuna og ef hnífurinn kemur út með deigi á (þó það sé bara
smávegis) skuluð þið baka hana í aðrar 15 mínútur. Ef þið stingið í
ávöxt þá verður hnífurinn blautur eftir hann en það er ekki eins og
þegar deigið er ekki nægilega bakað, þá koma meira eins og klessur á
hnífinn.
Tékkið á kökunni eftir 15
mínútur og bakið lengur ef þörf er á. Það er misjafnt eftir ofnum
hvað kökurnar þurfa.
Þegar kakan er komin úr
ofninum, stingið þá strax mörg göt í hana og hellið nokkrum
matskeiðum af appelsínusafa yfir kökuna.
Pakkið kökunni, í forminu
inn í álpappír og látið kólna alveg, jafnvel yfir nótt.
Gott er að gera nokkrar
kökur, skera þær svo í tvennt, pakka inn í bökunarpappír og
plastpoka og geyma í frysti. Þá er hægt að taka út smá skammt í einu
fyrir ykkur eða gestina.
Nota má
appelsínumarmelaði/sultu í staðinn fyrir aprikósusultuna þá má
sleppa appelsínuberki í uppskriftina. Ég hef meira að segja notað
rabbabarasultu á móti appelsínumarmelaði og kakan heppnaðist bara
vel.
Einnig má nota 75
gr þurrkuð epli eða mangó (án sykurs
eða aukaefna) á móti þurrkaða ananasinum.
Ef þið eruð að sjóða frosið
grasker er ágætt að kreista bitana eftir að þeir hafa soðið til að
losa aukavatn.
|
|
 |
Laufabrauð Vísir.is |
|
Að skera út
laufabrauð er einn af hápunktum aðventunnar hjá mörgum fjölskyldum. Hægt
er að kaupa deigið tilbúið, en vilji menn búa til það sjálfir er þessi
uppskrift góð.
900 g hveiti
100 g rúgmjöl
1 tsk þurrger
5 dl mjólk
1 dl rjómi
0.5 dl sykur
25-30 g smjör
1 tsk. salt
1 tsk. hjartasalt
Rúgmjöli, hveiti og geri er blandað saman í skál. Mjólkin er sett í pott
ásamt smjöri, sykri og salti. Þetta er hitað að suðu og þá er rjóminn
settur út í, potturinn tekinn af og hjartasaltið sett í. Vætt í
þurrefnunum með mjólkinni sem freyðir og deigið síðan hnoðað.
Vísir,
29. okt. 2008
|
|
 |
Laufabrauð 3 |
|
|
1 kg Hveiti
1/4 teskeið Baker's Ammonia
1 teskeið Salt
6-7 dl mjólk
Feiti til djúpsteikingar
Hitið mjólkina að suðu. Siktið saman hveiti og salt. Hellið mjólkinni í
hveitið og hnoðið saman í deig, og formið í langa rúllu. Skerið rúlluna
niður í bita og rúllið hverjum bita út í mjög þunnar kökur. Þetta er
auðveldast að gera á hveitistráðum plastdúk. Skerið brauðið í hringlaga
kökur t.d. eftir disk og skreytið af hjartans lyst. Pakkið brauðinu inn
til að koma í veg fyrir að það þorni meðan það bíður steikingar. Áður en
brauðið er steikt er það "pikkað" með gafli, djúpsteikið síðan í vel
heitri feiti á báðum hliðum þar til það er gullinbrúnt.
|
|
 |
Laufabrauð 2 |
|
|
800 gr. hveiti
200 gr. heilhveiti
1 tsk. salt
6-7 dl mjólk
100 gr. sykur, 2 msk heilt kúmen
Mjólkin hituð ásamt smjörlíki og kúmeni.
Hellt yfir mjölið
og hnoðað.
Breytt mjög þunnt
út skorið og pikkað.
Steikt vel í
heitri feiti.
|
|
 |
Eplakaka Milanaise
|
|
Þessa köku lærði ég að gera
hjá Ítölskum kokki sem vann með mér 3 daga í veiðihúsinu í Kjarrá,
Þverárhlíð. Þessi kokkur sýndi mér nýja hlið á Ítalskri matreiðslu.
Fullkominn eplakaka!
Deig:
250 gr Hveiti
160 gr Smjör
½ Sítróna – börkurinn í ræmur
½ tsk vanillusykur
2 egg
1 gr salt
Fylling:
6 stk græn epli
½ tsk vanillusykur
½ sítróna - börkurinn í ræmur
100 gr sykur
10 ml dökkt romm
1-Hnoðið saman degið varlega og látið hvílast í kæli í 2 tíma.
2-Fletjið degið út og látið í botninn á forminu.
3-Setjið einnig lag af deginu í hliðar formsins.
4-Setjið fyllingu í formið svo rétt nemi við efstu brún degsins.
5-Setið restina af deginu yfir fyllinguna og sléttið vel.
Fylling:
1-Afhýðið og kjarnskerið eplin og skerið í bita á stærð við nögl.
2-Setjið allt í pott og sjóðið varlega í nokkrar mínútur-Kælið vel.
|
|
 |
Möndlukaka dönsk |
|
Þessi kaka var á matseðlinum
í Grillinu á Hótel Sögu þegar ég vann þar. Mjög góð kaka og er best
volg. Ég setti þessa uppskrift saman úr uppskrift í uppskriftarbæklingi
sem fylgdi Braun matvinnsluvél.
Deig:
500 gr hveiti
375 gr smjör
175 gr flórsykur
½ egg
Fylling:
50 gr smjör
250 ml rjómi
50 gr hunang
400 gr ljóst síróp
500 gr möndluflögur eða spænir (splitter)
Deig:
1-Hnoðið öllu saman og hvílið í kæli í 30 mín.
2-
Fletjið út með kefli og setjið í lausbotna form.
3-Bakið fyrst í 10 mínútur við 150 gráður með smjörpappír og baunir sem
ok.
4-Bakið síðan í 15 mín án pappírs og bauna við 120 gráður.
Fylling:
1-Blandið öllu saman í pott, nema möndlum og sjóðið í karamellu.
Karamellan verður að vera þykk.
2-Setjið möndlurnar í og veltið þeim saman við karamelluna stutta stund
yfir hitanum- fyllið botnana.
3-Rétt fyrir framreiðslu skal bregða kökunum undir grill og gefa þeim
fallegan gljáa. Framreitt með rjóma. Kakan er dálítið sæt þannig að allt
það meðlæti sem inniheldur sykur hentar ekki.
|
|
 |
Jólapiparkökur |
|
Þetta eru bestu piparkökur
sem ég hef smakkað.
500 gr hveiti
250 gr sykur
200 gr smjör
2 stk egg
2 tsk matarsóti
6 tsk lyftiduft
1 tsk kanill
1 tsk negulduft
1 tsk hvítur pipar
2 msk kakóduft
250 gr síróp
1-Hrærið saman sykur og smjör.
2-Bætið eggjum saman við.
3-Blandið þurrefnum saman og setjið saman við.
4-Hrærið saman og setjið sírópið saman við síðast.
5-Mótið litlar kúlur úr deginu og raðið á bökunarplötu.
6-Bakið fallega brúnar.
|
|
 |
Marengs með rjóma og
jarðaberjum |
|
8 stk eggjahvítur
1/4 stk salt
400 gr sykur
3 stk edik
500 ml þeyttur rjómi
Fersk jarðaber
1-Eggjahvítur eru stífþeyttar ásamt salti.
2-Sykur settur útí smátt og smátt. Edikið er sett síðast.
3-Hellið deginu í smurt og hveitistráð eldfast form, ýtið svolítið upp í
miðjunni.
4-Bakið við 150 gráðu hita í 30 mínútur og svo við 175 gráður í 35
mínútur.
5-Látið kólna og smyrjið með rjóma (framreiðið í forminu).
6-Skreytið með jarðaberjum eða jarðaberjum og kiwi.
|
|
 |
Súkkulaðibitakökur með möndlum
|
|
Þessi uppskrift hefur fylgt
fjölskyldunni á aðventunni, undanfarnar þrjár kynslóðir að minnsta
kosti. Fyrir mér eru þessar kökur, bragð jólanna.
Uppskriftin:
400 gr smjör
200 gr púðusykur
200 gr sykur
500 gr hveiti
2 egg
2 tsk lyftiduft
2 tsk matarsódi
1 bolli muldar möndlur
150 gr suðusúkkulaði í bitum
1/2 tsk vanillusykur
Allt hrært saman og látið hvílast í nokkrar klukkustundir í kæli. Mótað
í litlar kúlur og sett á bökunarplötu. Hafið gott bil á milli. Ýtið létt
á kúlurnar með gaffli. Bakið við 180 gráður fallega brúnar.
|
|
 |
|
|
|
16 stykki
Deig:
10 gr ger
125 ml volgt vatn
1/2 tsk salt
1 msk ólífuolía
200 gr hveiti
Fylling:
70 gr tómatmauk
1 fínt saxaður hvítlauksgeiri
1 tsk þurrkað oregano
1/2 tsk salt
örl. pipar
200 gr rifinn mossarella-ostur
Hnoðið saman deigið í sprungulausa kúlu og látið hefast undir stykki, á
volgum stað í 45 mínútur. Fletjið út í c.a. 35x35 cm ferning. Blandið
fyllingunni saman og smyrjið jafnt á deigið. Stáið um 175 grömmum af
ostinum yfir og vefjið upp í rúllu. Skerið í 16 jafna snúða og komið
fyrir á bökunarplötu. Best að hafa bökunarpappír undir. Látið hefast
aftur í 30 mínútur og stráið síðan rest af osti á snúðana. bakið í 15
mínútur við 200 gráðu hita.
|
|
 |
Kleinuhringir / Lögguhringir |
|
200 ml mjólk eða vatn
1 1/2 msk þurrger
3 msk sykur
3 egg
50 g lint smjör
1 tsk vanilludropar
Rifinn börkur af 1 sítrónu
550 g hveiti
steikingarfeiti
Vökvinn velgdur þar til hann er nálægt 37°C og hellt í skál. Gerið sett
út í ásamt 1-2 tsk af sykri og látið standa þar til gerið er farið að
freyða. Þá er afgangurinn af sykrinum settur út í ásamt eggjum, smjöri,
bragðefni og hluta af hveitinu. Hrært vel og meira hveiti bætt út í
smátt og smátt, þar til deigið er vel hnoðunarhæft og klessist ekki við
hendur en er þó fremur lint. Hnoðað vel, mótað í kúlu, sett í
hveitistráða skál og látið lyfta sér við stofuhita í 30-45 mínútur. Þá
er það slegið niður og flatt út í 1 cm þykkt, eða tæplega það. Hringir
stungnir úr því (8 cm þvermál) og afskurðinum svo hnoðað saman í kúlu
sem er flött út og fleiri hringir stungnir út - það ættu að verða u.þ.b.
14-18 hringir úr deiginu. Raðað á bökunarpappírsörk og látnir lyfta sér
á meðan feitin er hituð. Þegar hún er 180-190°C eru kleinuhringirnir
settir gætilega út í, 3-5 í senn eftir stærð steikingarpottsins, og
steiktir í 1 1/2-2 mínútur á hvorri hlið (þurfa reyndar oftast heldur
styttri tíma þegar búið er að snúa þeim). Teknir upp með gataspaða og
látið renna af þeim á bökunarpappír. Bestir volgir og þá kannski með
flórsykri sigtuðum yfir, eða þeir eru látnir kólna og þykkum glassúr
dreypt yfir. Þeir eru samt alltaf langbestir nýsteiktir.
|
|
 |
Amerískar Pönnukökur |
|
225 gr sigtað hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk salt
2 tsk flórsykur
250 ml mjólk
2 egg
55 gr brætt smjör
Hrærið saman smjör, mjólk og egg. Blandið þurrefnum saman í skál og
hellið mjólkurblöndunni smátt og smátt saman við. Hrærið saman með sleif
eða þeytara. Bakið á viðloðunarfrírri pönnu. Þessi uppskrift nægir í 10
stórar eða 18 litlar pönnukökur. Framreiðið með smjöri og hlynsírópi.
|
|
 |
Súkkulaði-trufflukaka
|
|
Þessi kaka er mjög einföld,
en merkilega ljúffeng sem desert eða með góðum kaffibolla. Þessa köku
notaði ég mikið þegar ég var í veiðihúsinu að Kjarrá í Þverárhlíð. Ég
lagaði hana alltaf með 2ja daga fyrirvara því mér fannst hún eiginlega
betri þá. Ef ég man rétt þá gaf ég bláberjasorbet með.
150 ml vatn
100 ml glúkósi eða sykursíróp
4 blöð matarlím bleytt upp í köldu vatni
5oo gr dökkt súkkulaði
1 ltr léttþeyttur rjómi
Kakóduft
Þunnur svampbotn
Sterkt kaffi
Jarðaberjamauk
Bakaður er þunnur svampbotn, hann settur í botn á springformi. bleytið
upp með kaffinu og smyrjið létt yfir botninn með jarðaberjamaukinu.
Hitið saman vatn, glúkósa og matarlím. Brytjið niður súkkulaðið og
bræðið saman við. Kælið örlítið og blandið rjómanum saman við og hellið
í formið. Kælið vel og stráið kakói yfir.
|
|
 |
Súkkulaði og Myntukaka |
|
Súkkulaðifrauðið:
4 eggjarauður
75 gr sykur
75 ml vatn
300 gr brætt suðusúkkulaði
250 ml hálfþeyttur rjómi
Myntufrauðið:
250 ml rjómi
4 stk eggjarauður
75 gr sykur
6 stk matarlímsblöð
300 ml hálfþeyttur rjómi
3 msk myntulíkjör (Crème de Menthe)
Súkkulaðibotn:
2 egg og 4 eggjarauður
200 gr flórsykur
25 gr hveiti
25 gr kartöflumjöl
25 gr kakóduft
Aðferð súkkulaðibotn:
1-Blandið saman kartöflumjöli, hveiti og kakódufti og sigtið.
2-þeytið saman flórsykri og eggjum yfir hita, þar til hræran þykknar.
3-Bætið þurrefnum saman við.
4-Setjið í smurt form og bakið 18 mín við 180 gráðu hita.
5-Bregðið undir salamander í restina ef með þarf -kælið.
Myntumousse:
1-Sjóðið upp á myntu og rjóma og kælið örlítið.
2-Legerið sykur og eggjarauður saman þar til hræran er orðin frekar
þykk.
3-Hellið þá smátt og smátt rjómanum saman við.
4-Leggið matarlímið í kalt vatn, kreystið og leysið upp í
rjómablöndunni.
5-Kælið hræruna niður fyrir 40 gráður og blandið þeyttum rjóma saman
við.
6-Hellið yfir súkkulaðibotnin og kælið vel áður en súkkulaðilagið er
sett ofaná.
Súkkulaðimousse:
1-Sjóðið saman vatn og sykur í þunnt síróp.
2-Legerið eggjarauður í sírópinu þar til hræran fer að flykkna.
3-Bætið súkkulaðinu saman við og kælið örlítið.
4-Setjið þeyttan rjóma saman við síðast og setjið ofaná myntulagið.
5-Kælið vel og stráið kakódufti yfir kökuna.
|
|
 |
Laufabrauð |
|
50 gr Smjör
600 ml Mjólk
1 kg Hveiti
30 gr Sykur
Örl. Salt
Sjóðið saman smjör og mjólk. Hnoðað allt vel saman og látið hvílast í
kælí í 6 klukkustundir.
Flatt út, skorið og skreytt samkvæmt venju og steikt í plöntufeiti.
|
|
 |
Saumaklúbbskaka |
|
|
4 eggjahvítur
200 g sykur
1 tsk lyftiduft
4 dl kornflex
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar, sykurinn og lyftiduft sett smám saman
útí. Kornflexið er grófmulið og því er síðan blandað varlega saman
við. Þekið tvö tertuform með bökunarpappír og hellið deiginu jafnt
í formin. Bakið við 125-150 gr hita í 50 mín. Losið kökurnar
úr forminu og kælið.
Á milli
2 ½ dl rjómi
súkkulaðirúsínur og hnetur
eða epli, bananar, jarðarber
Krem
2 eggjarauður
1 dl rjómi
100 g suðusúkkulaði/myntusúkkulaði
Þeytið eggjarauðurnar mjög vel í hrærivél þar til blandan er ljós.
Bræðið súkkulaðið og rjómann saman í potti og blandið saman við
eggjakremið. Kælið vel. Að lokum er kreminu hellt yfir
kökuna og hún er skreytt að vild t.d. með jarðarberjum.
|
|
 |
Nammikaka nuddarans
|
|
Marengs
4 eggjahvítur
200 sykur
100 g suðusúkkulaði
100 g döðlur
1-2 bananar
2 askja jarðarber
½ l rjómi
Þeytið eggjahvítur og sykur vel saman. Saxið súkkulaðið og
döðlurnar og blandið varlega saman við deigið. Setjið í tvö form
klædd bökunarpappír. Bakið við 120 gr hita í 45-60 mín.
Þeytið rjómann. Skerið banana og jarðarber í litla bita og blandið
saman við helminginn af rjómanum og látið á milli botnanna. Hinn
helmingurinn af rjómanum er settur ofan á kökuna og hún er síðan skreytt
með jarðarberjum og bræddu súkkulaði.
|
|
 |
Jarðarberjaísterta
|
|
Kökubotnarnir
4 eggjahvítur
120 g sykur
½ dl flórsykur
100 hakkaðar hnetur
Ísfylling
½ kg jarðarber (frosin)
100-150 g sykur
5 eggjahvítur
50 g flórsykur
4 dl rjómi
Skreyting
2-3 dl rjómi
jarðarber (fersk)
Stífþeytið eggjahvíturnar og setjið sykurinn saman við í smá skömmtum.
Þeytið flórsykrinum saman við marengsdeigið þegar það er orðið vel þykkt
og stíft. Hrærið hökkuðu hnetunum vel saman við. Teiknið tvo
hringi á bökurnarpappír eftir springformi (24-26 cm) og skiptið deiginu
í tvennt á pappírinn. Bakið botnana – helst einn í einu – við 125
gr hita í 35-40 mín. Losið þá botnana frá pappírnum og kælið á
rist.
Gerið næst fyllinguna. Maukið jarðarberin í matvinnsluvél, blandið
sykrinum saman við og hrærið þar til sykurinn er uppleystur.
Þeytið eggjarauður og flórsykur létt og ljóst. Blandið eggjunum
saman við jarðarberjamaukið og síðan þeyttum rjómanum. Frystið í
1-1 ½ klst. eða þar til ísinn er léttfrosinn. Setjið annan botninn
í springformið og jafnið ísnum þar yfir. Setjið hinn botninn yfir
og þrýstið vel. Geymið í frysti í minnst 3 klst
Þeytið þá rjómann og smyrjið yfir kökuna og á hliðarnar og frystið
aftur. Um 20 mín áður en kakan er borin fram er hún tekin úr
frystinum og skreytt með ferskum jarðarberjum.
Fyrir 8-12 manns, þessa má vel geyma.
|
|
 |
Kransakökubitar
|
|
|
500 gr. marsipan
300 gr. sykur
125 gr eggjahvítur
hrært saman og sett í spruatupoka
Skreyting
200 gr. möndluflögur
70 gr. súkkulaði
Þekið skúffu með möndluflögum sprautið
massanum í lengjurá. Sett í bita
og velt upp úr flögunum. Bakað við 250° í
10 - 12 mín. Súkkuðaði sétt á
botnin á kökunum.
|
|
 |
Súkkulaði
terta |
|
|
200 gr. smjör
200 gr. súkkulaði
1 dl. hveiti
4 egg
3 dl. sykur
100 gr fínt malaðar hersilhnetur
Bræðið saman smjör og súkkulaði í vatnsbaði og
látið rjúka mestann hitann
úr því.
Þeytið saman egg og sykur og hellið því næst
bræddu súkkulaði og smjörinu
aman við.Að lokum hrærið varlega saman við
hveiti og hnetum. Setja í springform og
baka við 180° í 35 - 50 mín.
Kakan á að vera blaut.
Skreytt með flórsykri og ferskum ávöxtum t.d
kíví eða jarðarberjum.
|
|
 |
Bananasplitt |
|
|
2 bollar haframjöl mulið
1 1/2 bolli smjör eða smjörlíki
2 bollar flórsykur
2 egg
5 bananar
1 dós kurlaður ananas
2 pelar rjómi
valhnetukjarnar
koktel kirsuber
Hálfum bolla af smjöri blandað saman við
kexmylsnuna og sett í botninn á
aflöngu móti.
Þeytið vel saman einum bolla af smjöri eggjunum
og flórsykrinum og smyrjið
yfir kexbotninn. Bananarnir sneiddir og raðað
yfir. Safinn látinn renna af
ananasnum og því síðan smurt yfir bananana.
Þeyttur rjómi látinn ofan á og skreytt með
muldum valhnetum og kirsuberjum.
Kælt yfir nótt.
|
|
 |
Tartalettur |
|
|
1stk. Brie m/gráðostarönd
1stk rauð paprika
1/2ds sveppir
200gr skinka
1peli kaffirjómi
allt sett í pott og jafnað með sósujafnara sett
í tartalettur og hitað
Borið fram með sultu
dugar í 10-15 tartalettur
|
|
 |
Mars
terta |
|
|
4dl púðursykur
5. eggjahvítur
Þetta stífþeytt saman
Bakað við 130gr í 1og1/2 tíma ekki á
blæstri
Á milli:
1/2l rjómi
2st mars brytjað samanvið
Krem:
60gr smjör
3stk Mars
þetta sett í pott og brætt saman
hrært vel á meðan
Síðan eru fimm rauður og 3msk sykur þeytt vel
saman
og svo mars og
smjörhrærunni blandað
vandlega samanvið
|
|
 |
Heitt
rúllutertu brauð |
|
|
250g
sveppasmurostur ,1/4dós aspas, 200 gr skinka, 3 msk majones, . smá
súrmj+ol
ostur settur í pott ásamt
aspassafa í skömmtun þar til bráðið tekið af hellu. majoes skinka og
aspas sett út í. Smurt á rúllubrauð rúllað upp, majones og súrmjólk
smurt utan á ostur og paprikuduft sett ofaná hitað við 200 gr í 10-15
mín.eða þar til osturinn er bráðna
|
|
 |
Stóri Dímon:Brauðréttur |
|
|
1 brauð
1 stórt skinkubréf
200 gr. sveppir
1/2 dós apríkósur
1 1/2 peli rjómi
1 stóri dímon
rifinn ostur.
Osturinn bræddur við vægan hita í rjómanum. Sveppirnir steiktir í
örlitlu
smjöri. Brauðið rifið niður í eldfast mót. Apríkósurnar
brytjaðar niður
og sett yfir brauðið ásamt safanum af þeim. Sveppir og skinka sett
yfir
og að lokum rifinn ostur og í ofn.(hitað þar til rétturinn er vel heitur
í gegn)
|
|
 |
Sítrónukaka |
|
|
Marenge: 5 eggjahvítur, 2 1/2 dl sykur
eggjahvítur þeyttar sér og sykri hrært saman við,sett í form og bakað
við 250° (200° blástursofn) og slökkt um leið látið vera
yfir nótt og alls ekki opna ofninn næstu 5 klst
KREM: 5 eggjarauður,1dl sykur,safi og rifinn sítrónubörkur af 1/2
sítrónu,75 gr smjör
Allt sett í pott nema smjör,suðan látin koma upp (má ekki sjóða) þeyta
þar til þykknar
tekið af hellunni og látið kólna aðeins þá er smjörinu hrært í þar til
það bráðnar
kælið kremið og smyrjið yfir marenge botninn þeytið 2-3 dl af
rjóma og setjið yfir og skreytið með bræddu suðusúkkulaði
|
|
 |
Kóngabrauð |
|
|
Þetta er hversdagskaka,
ákaflega fljótgerð og mjög góð.
6 bollar(stórir) hveiti
3 bollar sykur
1/2 stk smjörlíki
1 egg
6 tsk. lyftiduft
mjólk
rabarbarasulta
kanilsykur
Látið þurrefnin á borð eða í víða og grunna skál. Myljið smjörlíkið
saman við og hrærið eggið og mjólkina upp í. Passið að deigið verði ekki
þurrt áður en það hnoðast saman, betra er að hnoða meira hveiti upp í á
eftir.
Skiptið deiginu í tvennt. Fletjið hvorn helming út þannig að hann sé
u.þ.b. þrisvar sinnum lengri en breiddin er. Passleg þykkt er 3/4 cm.
Smyrjið síðan rabarbarasultu á deigið og rúllið upp. (Á að vera eins og
mjög löng rúlluterta) Vætið rúlluna með mjólk (eða eggjamjólk) og stráið
kanilsykri yfir. Setjið eins og S á vel smurða plötu (má hafa
smjörpappír undir).
Bakið við 200°, u.þ.b. 30 mínútur. Skerið í sneiðar um leið og neytt er.
P.S. Til tilbreytingar má taka hluta af deiginu og þynna með mjólk og
bæta kakói saman við. Er það þá notað í stað sultu.
|
|
 |
Flatkökur |
|
|
1 kg. hveiti
1/2 kg. heilhveiti
250 gr. haframjöl
sjóðandi vatn
Blandið mjölinu saman og vætið í með
sjóðandi vatninu.Ath! Passið að hræra nægu vatni saman við, hnoðið
frekar upp í á eftir. Hnoðið eins hratt saman og þið getið. Búið til
rúllu og skerið í passlega bita. (rúllan u.þ.b.5 cm. í þvermál og
bitarnir ca. 4 cm.á breidd. Mótið kökurnar fyrst í höndunum en ljúkið
svo við að fletja þær út með kefli. Pikkið vel með gaffli. Ath! Það er
mjög mikilvægt að þið náið að hnoða deigið saman áður en það kólnar.
Annars verða kökurnar seigar. Stillið plötuna á hæsta hita. Ég steiki
flatkökurnar á uppgjafa pönnukökupönnu (en þá er ekki er hægt að nota
hana í neitt annað síðar), en sumir steikja þær beint á plötunni. Þegar
pannan er orðin vel heit, er kakan sett á hana og steikt þar til hún
þornar. Ath! Það tekur mjög skamma stund að steikja kökurnar, í mesta
lagi 15 sekúndur hvoru megin. Bregðið spaða undir kökurnar á meðan þær
steikjast, þannig að lofti undir þær. Þetta varnar því að brunablettir
komi í kökurnar og þarf að gera allan tímann meðan verið er að steikja.
Staflið upp og vefjið leirþurrku utan um meðan kólnar.
|
|
 |
Lagterta
brún -
hrærð
|
|
|
500 gr. hveiti
350 gr. sykur
250 gr. smjörlíki
2 egg
4 msk. kakó, kúffullar
1 tsk. negull
2 tsk. kanill
2 tsk. sódaduft
2 1/2 dl. mjólk
Smjörkrem
250 gr. smjörlíki
1 kg. flórsykur
1/2 bolli sterkt lagað "Neskaffi"
örl. vanilludropar ef vill
Hrærið smjörlíki og sykur vel saman,
bætið eggjum og mjólk varlega út í.
Blandið þurrefnunum saman og
setjið út í hræruna. Sett á vel smurða
bökunarplötu og bakað við 200°
ca. 15 mín Ath! Þessi uppskrift
dugar á 2-3 plötur, eftir stærð þeirra.
Látið botnana kólna vel og setjið síðan
smjörkrem á milli.
Hálfbræðið smjörlíkið og hrærið síðan
öllu saman. Ath! Sumum finnst betra
að hafa meira af smjörlíkinu og minna
af flórsykri, en það er smekksatriði.
|
|
 |
Ávaxtakaka
|
|
|
(1 stórt form)
2 bollar hveiti
1/2 bolli sykur
2 tsk. lyftiduft
1 egg
mjólk
ávaxtamauk inn í kökuna
kanelsykur
Notið vel smurt form með lausum botni. Hnoðið deigið í skál og hafið það
frekar blautt. Takið smávegis frá af deiginu en þrykkið restinni inn í
formið og upp með brúnum þess. Smyrjið síðan ávaxtamaukinu á deigið og
skellið frátekna deiginu í smádoppum þar ofan á. Stráið kanelsykri yfir.
Bakið við 200°
|
|
 |
Hvít lagkaka, hvít með sultu |
|
|
500 gr.
500 gr.
2
1 kg
2 tsk.
1 tsk.
2 tesk.
|
sykur
smjörlíki
egg
hveiti
lyftiduft
hjartarsalt
vanilludropar
rabarbarasulta eða einhver önnur sulta til að hafa á milli botnanna
|
Öllu (nema sultunni auðvitað) hnoðað saman. Deiginu skipt í 4 jafnstóra
hluta. Deigið flatt þunnt út í ferhyrndar kökur næstum því eins stórar
og bökunarplatan. Bakað þar til fallega brúnt, í svona 5-10 mínútur á að
giska.
Kökuplöturnar síðan lagðar saman með sultu á milli, fallegasta platan
efst. Lagkökunni síðan pakkað vel inn í eldhúsfilmu eða álpappír og
látin bíða í 2-3 daga til að mýkjast. Þá er hún skorin í 6-8 stykki og
hverju stykki pakkað vel inn, umbúðirnar þurfa að vera loftþéttar svo
kakan harðni ekki. Geymist vel í frysti.
|
|
 |
lagkaka með
kremi |
|
|
1 kg.
500 gr.
400 gr.
200 gr.
2-3
2 tsk.
2 tsk.
2 tsk.
2 tsk.
2 tsk.
2 tsk.
6 tsk. |
hveiti
smjörlíki
sykur
síróp
egg (eftir stærð)
kanill
kakó
hjartarsalt
allrahanda
negull
engifer
lyftiduft |
Öllu hnoðað saman. Deiginu skipt í 4 jafnstóra hluta. Deigið flatt þunnt
út í ferhyrndar kökur næstum því eins stórar og bökunarplatan. Bakað þar
til fallega brúnt, í svona 5-10 mínútur á að giska.
Kökuplöturnar síðan lagðar saman með smjörkremi á milli, fallegasta platan
efst. Lagkökunni síðan pakkað vel inn í eldhúsfilmu eða álpappír og
látin bíða í 2-3 daga til að mýkjast. Þá er hún skorin í 6-8 stykki og
hverju stykki pakkað vel inn, umbúðirnar þurfa að vera loftþéttar svo
kakan harðni ekki. Geymist vel í frysti.
|
|
 |
Hafrakex |
|
|
400 gr.
300 gr.
200 gr.
1+1/2 tsk.
1+1/2 tsk.
250 gr.
|
haframjöl
hveiti
sykur
lyftiduft
hjartarsalt
smjörlíki
mjólk eftir þörfum |
Öllu blandað saman og hnoðað. Mjólk bætt í ef þarf, gæta þess þó að
setja ekki of mikla mjólk, svo deigið verði of blautt. Deigið flatt
frekar þunnt út og kexkökurnar skornar út undan glasi. Kökurnar pikkaðar
með gaffli, settar með hæfilegu millibili á smurða bökunarplötu og
bakaðar í um það bil 10 mín. við 200°C hita.
Sérlega gott hafrakex, best smurt með smjöri
|
|
 |
Brúnterta |
|
|
125 gr.
1 bolli
2
1/2 bolli
1+1/2 bolli
1 tsk.
1 tsk.
1/2 tsk.
2 msk.
1/2 bolli
1 tsk. |
smjörlíki
sykur
egg
volgt vatn
hveiti
matarsódi
lyftiduft
salt
kakó
mjólk
vanilludropar |
Smjörlíki og sykur hrært vel saman. Eggin sett útí og aftur hrært vel.
Hveitið mælt og matarsóda, lyftidufti, salti og kakaó blandað saman við
það og þessu síðan hrært saman við. Að síðustu er mjólkin og droparnir
sett útí og hrært vel. Sett í 2 smurð tertuform af meðalstærð og bakað
við um það bil 200°C í um það bil 30 mínútur.
|
|
 |
Brúnkaka 2 |
|
|
250 gr.
2
375 gr.
500 gr.
1 tsk.
1 tsk.
1 tsk.
2+1/2 dl.
|
smjörlíki
egg
púðursykur
hveiti
matarsódi
negull
kanill
mjólk
rúsínur |
Sykur og egg
þeytt, smjörlíkið síðan sett útí og þessu hrært vel saman. Hveitið
vigtað og lyftidufti, kryddi og rúsínum hrært saman við hveitið áður það
er sett útí það sem búið er að hræra. Mjólkin hrærð í síðast. Bakað við
meðalhita. Deigið passar í eitt hringform eða tvö löng form.
Aths. ömmu:
Auk neguls og kanils má nota ýmislegt annað krydd í þessa köku, svo sem
engifer, allrahanda, múskat, kardimommur eða "brúnkökukrydd". Ég breyti
sífellt til og nota 2-4 kryddtegundir til skiptis og í magni eftir
hvernig liggur á mér þann daginn.
|
|
 |
Brúnkaka |
|
|
1 Egg
150 gr. Púðursykur
1 ½ dl.
50 gr. Smjörlíki
175 gr. Hveiti 2 ½
dl.
1 tsk. Sódaduft
2 tsk. Kanill
1 tsk. Negull
1 tsk. Engifer
½ tsk. Allrahanda
2 msk. Kako
1 ½ dl. Súrmjólk
Döðlur eða rúsínur
eftir smekk.
Egg og sykur þeytt
saman, smjörlíkið hálfbrætt og hrært samanvið. Síðan er þurrefnunum
blandað í ásamt döðlum/rúsínum.
Bakað við 170°í ca.
50 mínútur.
Þessi kaka er ódýr
og mjög góð.
Ágætt að baka í 2
litlu formunum og frysta annað.
|
|
 |
Sænskar kókóskúlur |
|
|
100 gr. smjör
1 dl sykur
3 dl haframjöl
2 msk kakó
1/2 tsk vanilludropar
2 msk kalt kaffi
Allt saman sett saman í skál, blandað saman og rúllað í litlar kúlur.
Kúlurnar svo rúllaðar í gegnum perlusykur eða kókós. Setjið svo í ísskáp
í smástund
|
|
 |
Sörur
3 |
|
|
|
Botn:
100g möndlur,malaðar
2 eggjahvítur
1 1/2 dl sykur
Krem:
3/4dl sykur
1/2dl vatn
3 eggjarauður
150g smjör
kakó eftir smekk
Ofaná:
100g suðusúkkulaði
Blandað saman möndlum og sykri. Þeytið eggjahvíturnar og blandið
möndlusykurblöndunni saman við. Setjið með teskeið á plötu klædda
bökunarpappír og breiðið þær þunnt út. Bakið í u.þ.b.10 mín við
200-225°C eða 160°C blæstri. Kælið.
Hitið vatn og sykur í potti og látið sjóða. Bráðin er hæfilega heit
þegar dropi sem settur er í kalt vatn stífnar. Hellið þessu í mjórri
bunu út í eggjarauðurnar og þeytið á meðan. Kælið eggjarauðuhræruna
vel áður en smjörinu er bætt við. Hrærið smjörið þar til það verður
mjúkt og setjið örlítið í einu saman við eggjarauðuhræruna. Hrærið
vel í og bætið síðan kakói út í eftir smekk. Bræðið súkkulaðið.
Smyrjið eggjarauðukreminu neðan á kökurnar. Kælið. Penslið yfir
kremið með bræddu súkkulaðinu. kælið. Geymið í vel lokuðum plastpoka
í kæli eða frysti.
|
|
|
 |
Súkkulaðibitakökur
|
|
|
1 bolli hveiti
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
150 gr smjörlíki
6 msk sykur
6 msk púðursykur (ekki verra ef hann er ljós)
1/2 tsk vanilludropar
1/4 tsk vatn (maður getur bara hrækt í skálina, þetta er svo lítið magn!)
1 egg
100-200 gr Suðusúkkulaði, niðurbrytjað (ég kaupi 200 gr en ét alltaf
eitthvað af því svo það kemst aldrei allt í uppskriftina).
Fyrst er hveiti,
matarsóda og salti syktað saman og lagt til hliðar. Því næst er
smjörlíki, sykri, púðursykri vanilludropum, vatni og eggi þeytt saman
þar til blandan er orðin létt og ljós. Síðan er hveitinu og co. hrært
útí og að síðustu niðurbrytjuðu súkkulaðinu. Maður getur líka látið 1
bolla af söxuðum heslihnetum nema ef maður er með ofnæmi fyrir þeim þá
myndi ég sleppa þeim. Ég læt þær aldrei í. Bakað við 175 gráðu hita í
10-12 mín
|
|
 |
Engiferkökur |
|
|
800 gr. hveiti,
400 gr smjörlíki,
2 bollar sykur,
1/2 kanna sýróp (t.d. eins og maður drekkur kaffi úr í HÍ, ca 300 gr),
2 kúfaðar tsk matarsódi,
2 kúfaðar tsk kanill,
2 kúfaðar tsk negull,
2 kúfaðar tsk malað engifer,
2 egg
Allt sett í hrærivél og
hrært í deig. Litlum kúlum raðað á bakaraplötu (size of an eye ball).
Bakað í 8-10 mín. við 180 gráður
|
|
 |
Hnetusmjörssmákökur |
|
|
1 1/3 bolli hveiti
1.tsk natron
1/2 tsk salt
1/2 bolli púðursykur
1/2 bolli smjörlíki
1/2 bolli hnetusmjör
1 egg
2 msk.mjólk
1 tsk vanilludropar
Suðusúkkulaði til skrauts
Hrærið saman öllu sem í
deigið á að fara.Mótið kúlur og veltið þeim uppúr sykri.Bakið kökurnar
við 200 gráður í 10-12 mín.Stingið hálfum súkkulaðibitum í kökurnar um
leið og þær eru teknar út úr ofninum.
|
|
 |
Amerískar súkkulaðibitakökur ca
70 stk |
|
|
1 bolli mjúkt smjör
3/4 bollar sykur
3/4 bollar púðursykur (pakkaður)
1 tsk. vanilludropar
2 egg
2 1/4 bollar hveiti
1 tsk. matarsódi
1/2 tsk. salt
2 bollar súkkulaðidropar
1 bolli saxaðar hnetur
Hitið ofninn í 190°C
Þeytið smjör, sykur og vanillu þar til ljóst og létt.
Hrærið eggjum útí (brjótið þau fyrst í glas eða skál ef ykkur finnst
eggjaskurn ekki góð)
Blandið saman hveiti, sóda og salti, hrærið varlega útí smjörblönduna.
Þeytið vel.
Hrærið súkkulaði og hnetum útí. Ekki er verra að vera ekkert að nískast
með súkkulaðið. Ég sturta alltaf hálfum aukabolla útí. Hvítt súkkulaði
er sérstaklega gott í þessar kökur.
Ca. 1 tsk. af deiginu er mátuleg stærð. Hafið plötuna ósmurða (gott að
hafa smjörpappír eða tefflonfilmu undir).
Bakið í 8-10 mínútur. (Ef þú ert með blástursofn, lækkið þá hitann í 170°C
og styttið bökunartímann.
Tilbrigði: Ef þú vilt fjölga smákökusortunum fyrir jólin á auðveldan hátt
gerðu þá eina uppskrift af deiginu. Slepptu megninu af súkkulaðinu og
öllum hnetunum. Skiptu deiginu í nokkra hluta og settu súkkulaði í einn
hluta, hnetur og súkkulaði í annan, M&M í einn og t.d. Rice Crispies,
kornfleks eða gott sem þú átt í skápnum. Þetta vekur mikla lukku hjá
börnunum og gaman að leyfa þeim að prófa sig áfram.
|
|
 |
Piparkökur x |
|
|
500 gr hveiti
250 gr sykur
250 gr smjörlíki
375 gr sýróp
6 tsk lyftiduft
2 tsk matarsódi
1 tsk negull
1 tsk kanill
1 tsk kakó
1 tsk season all
1 tsk engifer
1 tsk pipar (hvítur)
1 egg
Hrærið öllu saman í
skál. Ágætt að setja blautefnin fyrst.
Hnoðið deigið, fletjið út og mótið í þunn munstur eða litlar kúlur.
Bakist við 175 gráður í 10 til 12 mínútur.
Ath. Sum piparkökudeig þurfa að standa í kæli marga tíma áður en þau eru
notuð en þetta deig má baka strax.
|
|
 |
Kurltoppar |
|
|
3 eggjahvítur,
200 gr. púðursykur,
150 gr. rjómasúkkulaði eða 2 poka
súkkulaði spæni,
2 poka nóa lakkrís kurl
Stífþeytið eggjahvítur og sykur,
setjið hitt varlega út í.
Bakað í 20 mín. við 150°C hita.
|
|
 |
Mömmukökur |
|
|
500 gr Hveiti
125 gr Smjörlíki
250 gr Sýróp
2 tsk Engifer
1 tsk Natron
1 stk Egg
Krem:
200 gr flórsykur
100 gr smjör (linað ekki brætt)
vanillusykur... slatti
Takið fyrst eina skál,
gott að það sé hrærivél sem getur hnoðað, Setjið svo allt saman út í,
eitt í einu og hrærið svo saman.
Byrjið að hræra á lágum snúning hraðinn er svo aukinn eftir tilfinningu
hvers og eins.
Gott er að taka deigið úr hrærivélinni og hnoða það í höndunum, á borði,
svona í restina.
Einnig er gott að hafa smjörlíkið lint, t.d láta það standa yfir nótt á
borðinu, ekki bræða það í potti eða örbylgjuofni.
Látið deigið inn í ískáp í einhvern tíma (yfir nótt)
og fletjið svo út og gerið hringlaga kökur. Hægt er að nota glas.
Bakið við 175 c° þar til þær eru ljósbrúnar.
Látið kólna og gerið kremið á meðan.
Krem:
Hrærið efnunum saman og smakkið aðeins til, ef smjörbragð er af kreminu
skellið örlítið meiri flórsykri og vanillusykri. Smyrjið á kökurnar og
gerið svona kökusamlokur, sem sagt 2 og 2 saman.
Setjið í dunk, gott er að henda einni brauðsneið með svo þær haldist
linar.
|
|
 |
Smjörkökur |
|
|
2 bollar smjör
1 bolli púðursykur
1/4 tsk. salt
4 bollar hveiti
Smjörið verður að vera
við stofuhita. Hitið ofninn á 150°C. Hrærið smjörið þar til það er orðið
eins og þeyttur rjómi, í sér. Hrærið sykrinum út í. Saltið. Setjið
hveitið út í, einn bolla í einu, hrærið eftir hvern bolla. Hnoðið deigið
á borði sem búið er að strá hveiti á. Mótið kökur að þeirri lögun sem
þið viljið. Sniðugt að nota kökujárn. Setjið á ósmurða plötu og bakið í
20 mín., eða þar til kökurnar eru orðnar ljósbrúnar.
|
|
 |
Banana- og döðlusmákökur |
|
|
2 bananar, maukaðir
1 bolli döðlur, saxaðar
1/3 bolli matarolía
2 bollar haframjöl
1/2 bollar saxaðar valhnetur
1/2 tsk. salt
1 tsk. vanilla
Hitið ofninn á 180ºc.
Blandið saman banönum, döðlum og matarolíu. Bætið höfrum, hnetum, salti
og vanillu út í; blandið lítillega. Látið standa í nokkrar mínútur.
Setjið með teskeið á bökunarpappír á bökunarplötu. Bakið í 25 mín. eða
þar til þær eru tilbúnar
|
|
 |
Kókoskúlur |
|
|
400 gr hveiti
200 gr kókosmjöl
1/2 tsk hjartarsalt
400 gr smjörlíki
250 gr sykur
6 tsk kakó
2 stk egg
1 tsk vanilludropar
Blanda saman sykri og kókosmjöli til að láta kúlurnar ofan í
Þurrefnin öll sett saman í skál eða vask síðan smjörlíkið og eggin,hnoðað
vel saman.Gott að láta vera í ísskáp yfir nótt.Mótið litlar kúlur og
dýfið toppnum á þeim ofan í sykur og kókosmjöl blönduna.Bakað við 200°í
5-7 mín.
|
|
 |
Kókoshringirnir hennar ömmu |
|
|
250 gr smjör
250 gr hveiti
250 gr sykur
250 gr kókosmjöl
1 egg
Öll þurrefnin sett
fyrst,síðan egg og smjörlíki,hnoðað vel saman.Gott að láta degið standa
í ísskáp yfir nótt.Bakað við 200°í 5-7 mín
|
|
 |
Konfekt |
|
|
Rjómasúkkulaði
Núgat
Hnetur eða möndlur
Súkkulaði brætt með núgat og hinu blandað saman og sett á lítil form.
|
|
 |
Loftkökur |
|
|
500
g flórsykur
8 tsk kakóduft
1 stk egg
1 tsk hjartasalt
1. Blandið saman
þurrefnum, setjið egginn saman og hnoðið.
2. Setjið degið í hakkvél með loftköku móti (slétt nyðri og riflað uppi)
Búið til lengur og hafið kökurnar u.þ.b. 5 sm langar.
3. Bakið kökurnar í miðjum ofni við 200 c° í 10-20 mín eða þar til þær
lyftast.
|
|
 |
Bóndakökur |
|
|
200
gr. smjörlíki
250 gr. sykur
1 stk. egg
300 gr. hveiti
75 gr. kókosmjöl
1 tsk. natron
2 msk. sýróp
Mónu súkkulaðidropar
(þessir gömlu góðu)
Hræra sykur og
smjörlíki létt og ljóst.
Bæta egginu út í og hræra vel.
Bæta þurrefnunum saman við og hnoða aðeins upp í deiginu.
Sýrópið fer síðan í síðast.
Deigið er hnoðað saman (sennilega þarf að bæta aðeins hveiti út í þegar
verið er að hnoða upp í deiginu).
Gerðar eru litlar kúlur og einn súkkulaðidropi settur ofan á og bakað við
200 ° c í 8-10 mín.
|
|
 |
Kanilsnúðar Fíu |
|
|
500
gr Hveiti (eftir þörfum)
250 gr Sykur
200 gr Smjör eða líki
1 tsk Hjartarsalt
1 1/2 tsk Lyftiduft
2 dl Mjólk
Mjólk
Kanilsykur: 1tsk kanill og ca 1 dl sykur
Þurrefnunum blandað saman á borðplötu. Smjörið bitað niður og blandað með
þurrefnunum. Hola gerð í miðju deigsins og mjólkinni hellt í holuna.
Deigið er þá hnoðað saman. Ef það er of blautt, blandið þá meira hveiti
saman við þangað til að það loðir ekki við fingurna.
Skipt í 2 helminga og flatt út. Örlítið af mjólk helt yfir útflatta deigið
til að bleyta aðeins í þvi og binda kanilsykurinn. Dreifið úr mjólkinni
með hreinum fingrum eða pensli. Kanilsykrinum stráð vel yfir allt
deigið.
Deigið er því næst rúllað upp og skorið niður í ca 2cm sneiðar og raðað á
smjörpappír á bökunarplötu með ca 2 1/2 cm millibili.
Bakað í blástursofni við 170°C þar til snúðarnir eru orðnir fallega
gylltir. Þeir verða harðari eftir því sem þeir eru dekkri.
|
|
 |
Súkkulaði kökur. |
|
|
200,gr, hveiti
200, gr,smjörliki
100,gr, kokosmjöl
125,gr, sykur
3,tsk, kakó
1/4,tsk, hjartasalt
1, egg
vanilla
smá salt
|
|
 |
Kornflex smákökur |
|
|
4 eggjahvítur
2 bollar púðursykur > stífþeytt.
4 bollar kornflex
2 bollar af kókosmjöli blandað saman við
100 gr af smáttsöxuðu suðusúkkulaði
1 tsk af vanilludropum
|
|
 |
Sörur 2 |
|
|
3 Eggjahvítur
3 1/2 dl flórsykur
200 gr möndlur má sleppa
krem
3/4 dl sykur
3/4 dl vatn
3 eggjarauður
100 gr smjör (lint
2 msk kakómalt
Undir köku
250 gr síríus súkkulaði
stífþeytið eggjahvíturnar blandaðmöndlunum og flórsykri varlega saman við
bakið við 180 °c í 10 min. Krem sjóðið saman sykur og vatn í síróp, ekki
mjög þykkt. Hrærið eggjarauðurnar vel saman hellið sírópinu í mjórri
bunu út í eggin meðan er verið að hrært er setið sian smjörið og þar á
eftir kakómaltið.Setjið kremið á kaldar kökurnar og stingið þeim í
frystir. Þekið kremið með súkkulaðibráðinni þegar það er orðið kalt.
Geymið kökurnar í kælir
|
|
 |
Bananaterta 2 |
|
|
Botnar (2)
4 egg
100 gr. hveiti
200 gr. sykur
Bananakremið
175 gr. smjörlíki
150 gr. flórsykur
3 stk. stappaðir bananar
Súkkulaðibráð(kremið)
150 gr. flórsykur
2 msk. kakó
sjóðandi vatn
Bakaðu botnana, settu kremið á milli og súkkulaðið ofan á.
|
|
 |
Kanelsnúðar |
|
|
Hér eru einfaldir kanelsnúðar.
1 kg hveiti
300 gr smjörlíki
300 gr sykur
2 egg
4 tsk lyftiduft
1 tsk hjartarsalt
2 1/2 dl mjólk
|
|
 |
Kotasælubollur |
|
2 tsk þurrger
1 1/2 dl volgt vatn
|