|
Rúgbrauð
6 bollar rúgmjöl
2 bollar heilhveiti
1 msk. salt
1.5 bolli sykur
5 tsk. perluger (1 bréf)
Vætt í með 1,4 l. mysu (14 dl)
Þurrefnin eru sett í skál og mysan hituð
og hrærð samanvið. Sett í álformmeð álpappír yfir og bakað í eina
klukkustund við 50C en þá er hitinn hækkaður í 100-120C og bakað i
11-12 klukkustundir. Brauðið er borðað nýtt með smjöri og
heimareyktu hangikjöti.
Randalína
250 g smjörlíki
325 g sykur
500 g hveiti
2 egg
3 msk. kakó
1 tsk. matarsódi
2 tsk. negull
1 tsk. kanill
½ tsk. kardimommudropar
2 dl mjólk
Krem:
2 msk smjör/smjörlíki
2 bollar flórsykur
1 eggjarauða
2 msk. rjómi
Vanilludropar eftir smekk
Hrærið smjörlíki þar til lint og ljóst.
Setjið
sykur og egg saman við og hrærið.
Bætið
hveiti, matarsóda, kryddi og kakói út í og hrærið saman.
Bætið
mjólk út í og hrærið þar til deigið verður lint.
Smyrjið
deiginu í fjórum hlutum á bökunarplötu, svo hver lengja verði um 0,5
cm á þykkt.
Bakið við
200 gráður í 20 mín.
Hrærið
innihaldi kremsins saman. Raðið kökunni saman og smyrjið kremlagi á
milli lengja, svo samtals verði þrjú lög.
Vöfflur.
Hráefn
250 g hveiti
1 tsk lyftiduft
1 msk strásykur
1/2 tsk salt
1 tsk vanillusykur
1 dl nýmjólk (eða pilsner)
2 dl súrmjólk eða rjómi (eða til
helminga)
1 dl kalt vatn
80 g brætt smjörlíki eða
0,7 dl matarolía
3-4 egg eftir stærð
Leiðbeininga
Eggin aðskilin. Eggjarauður og sykur
þeytt vel saman. Þurrefnum sáldrað
saman ásamt vökva og hrært
vel. Bræddri feitinni bætt út í og
að síðustu stífþeyttum
eggjahvítunum.
Bakað í vel heitu vöfflujárni. Fer
eftir tegund járns hvort þarf að
bera feiti í það.
Bornar fram með sultu og þeyttum
rjóma eða smjöri og sýrópi.
Laufabrauð úr hveiti
1 kg hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
7-8 dl sjóðandi mjólk
jurtafeiti til steikingar
1. Setjið hveiti í skál ásamt salti og
lyftidufti. Hrærið sjóðandi mjólkina út í. Hnoðið deig þar til það
er gljáandi og sprungulaust. Haldið deiginu heitu meðan flatt er út.
Gott getur verið að búa bara til helminginn í einu. Hægt er að halda
deiginu heitu með því að vefja það í handklæði og teppi.
2. Fletjið örþunnt út, skerið undan diski, skerið síðan laufaskurð í
brauðið.
3. Hitið feitina, takið smábút af deigi og steikið til að aðgæta
hitann. Steikið síðan laufakökuna á báðum hliðum. Þrýstið hlemmi
varlega ofan á hana um leið og hún er tekin úr pottinum.
Kristín Gestsdóttir
Laufabrauð með rúgmjöli
(Kristín Gestsdóttir Mbl 29. nóvember
1994)
500 g hveiti
500 g rúgmjöl
2 tsk. lyftiduft
2 msk. sykur
2 tsk. salt
70 g smjörlíki
lítri sjóðandi mjólk
lítri sjóðandi vatn.
1. Blandið saman hveiti, rúgmjöli,
lyftidfufti, salti og sykri.
2. Skerið smjörlíkið smátt og myljið út í mjölið.
3. Hitið vatn og mjólk og setjið út í. Hnoðið saman þar til þetta er
slétt og sprungulaust deig.
4. Farið að eins og segir hér að ofan.
Laufabrauð
(Mbl. 23. desember 1995)
900 g hveiti
100 g rúgmjöl
1 tsk Royal ger
5 dl mjólk
1 dl rjómi
0.5 dl sykur
25-30 g smjör
1 tsk. salt
1 tsk. hjartasalt
Rúgmjöli, hveiti og geri er blandað saman
í skál. Mjólkin er sett í pott ásamt smjöri, sykri og salti. Þetta
er hitað að suðu og þá er rjóminn settur út í, potturinn tekinn af
og hjartasaltið sett í. Vætt í þurrefnunum með mjólkinni sem freyðir
og deigið síðan hnoðað.
Kleinur
(Mbl.13. mars 1994)
200 g smjörlíki
250 g sykur
2 egg
1 kg hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. hjartarsalt
5 dl mjólk
4 tsk. kardimommudropar
1 kg jurtafeiti
1. Blandið þurrefnunum saman á borði.
2. Myljið smjörlíkið saman við og vætið í með eggjum og mjólk.
3. Hnoðið deigið þannig að það verði samfellt og festist ekki við
borðið.
4. Skiptið deiginu í 8 hluta, fletjið það út og skerið með
kleinujárni í 3 sm breiðar ræmur sem síðan eru skornar á ská í 5-10
sm langa bita. Skerið litla rifu í miðju hverrar kleinu og snúið
þeim við með því að stinga öðrum endanum í gegnum rifuna.
5. Steikið 68 kleinur í einu í steikingarfeitinni þar til þær verða
gullbrúnar.
Pönnukökur með sykri
(Mbl.13. mars 1994)
6 bollar hveiti
67 msk. sykur
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
2 egg
80100 g smjörlíki, brætt
örl. sítrónudropar
1 l mjólk, u.þ.b.
1. Bræðið smjörlíkið og kælið aðeins.
2. Blandið saman hveiti, sykri, lyftidufti og matarsóda.
3. Vætið í með eggjum og smjörlíki.
4. Bætið mjólkinni smátt og smátt saman við þar til deigið verður
þunnt og rennur vel á pönnunni.
5. Steikið við frekar háan hita. Pönnukökurnar eiga að vera þunnar.
6. Stráið sykri á pönnukökurnar, vefjið þær þétt saman og raðið þeim
á disk.
Marmarakaka
(Mbl.13. mars 1994)
250 g smjörlíki
250 g sykur
5 egg
250 g hveiti
2 msk. kakó
örl. af möndludropum
1. Hrærið smjörlíki og sykur vel saman.
2. Bætið eggjunum í einu og einu í senn og hrærið vel á milli.
3. Blandið hveitinu saman við deigið og skiptið því í þrjá hluta.
Blandið kakóinu og möndludropunum saman við einn þeirra.
4. Setjið deigið í lögum í jólakökuform, fyrst hvítt, þá brúnt og að
síðustu hvítt. Takið oddmjóan hníf og dragið varlega bókstafinn S
eftir mótinu endilöngu, þannig myndast marmaramunstrið.
5. Bakið við 170 í 1 klst. eða þar til prjónn kemur þurr upp úr
kökunni.
6. Marmaraköku má frysta.
Bessastaðakökur
rúml. 100 stk.
(Kristín Gestsdóttir Mbl. 3. mars 1996)
250 g smjör (ekki smjörlíki)
250 g (3 dl) flórsykur
250 g (5 dl) hveiti
1 eggjarauða
nokkrir val- eða pecanhnetukjarnar
1. Bræðið smjörið við hægan hita, látið síðan storkna. Takið
smjörskjöldinn ofan af en fleygið syrjunni (botnfallinu), skafið það
af sem er laust neðan á smjörskildinum.
2. Setjið hveiti og flórsykur í skál,
hnoðið smjörið saman við.
3. Fletjið út sm á þykkt, skerið síðan
undan kringlóttu litlu glasi, þvermál um 4 sm. Einnig má búa til
rúllu úr deiginu og skera í sm þykkar sneiðar.
4. Setjið smádropa af eggjarauðu ofan á
hverja köku, leggið bita af val- eða pecanhnetukjarna á hann.
5. Hitið bakaraofn í 180 C, blástursofn í
170 C, setjið í miðjan ofninn og bakið í um 15 mínútur. Kökurnar
eiga ekki að taka lit, þær eiga að vera alveg hvítar.
Gyðingakökur
150 stk. 6 sm í þvermál
(Kristín Gestsdóttir Mbl.13. mars 1996)
425 g (rúml. 8 dl) hveiti
tsk. hjartarsalt
150 g (rúml. 1 dl) sykur
200 g smjör (ekki smjörlíki)
2 lítil egg
10 steyttar kardimommur eða tsk. kardimommudropar
2 eggjahvítur ofan á
100-150 g afhýddar möndlur ofan á
1 1 dl sykur ofan á
1. Setjið hveiti, hjartarsalt og sykur í
skál, myljið smjörið út í. Setjið síðan eggin saman við ásamt
steyttum kardimommum eða kardimommudropum. Hnoðið samfellt deig.
Geymið á köldum stað í 1 - 2 klst.
2. Fletjið deigið mjög þunnt út, stingið út kringlóttar kökur með
glasi. Raðið á bökunarpappír á bökunarplötu.
3. Setjið eggjahvíturnar á disk og sláið sundur með gaffli svo að
örlítil froða myndist.
4. Saxið möndlurnar frekar smátt og setjið saman við sykurinn.
5. Penslið kökurnar með eggjahvítunni alveg út á brúnir, stráið
síðan möndlu/sykri ofan á alveg út á brúnina, gott er að hafa mikið
af möndlum á kökunum.
6. Hitið bakaraofn í 190 C, blástursofn í 180 C. Setjið í miðjan
ofinn og bakið í um 10 mínútur eða þar til kökurnar hafa aðeins
tekið lit, en þær eiga að vera ljósar.
Athugið: Ef kökurnar eru mjög þunnar verða um 150 stk. af þeirri
stærð sem upp er gefin úr þessu deigi, en ef þær eru þykkari verða
þær að sjálfsögðu færri.
Hálfmánar
(Uppskrift frá Önnu Snorradóttur Mbl. 1.
desember 1994)
250 g hveiti
150 g smjörlíki
100 g sykur
1 egg
1 tsk. lyftiduft
tsk. hjartarsalt
vanilludropar
rabarbarasulta
Smjörlíki mulið saman við hveitið ásamt
lyftiefnum. Sykri blandað saman við og vætt í með eggi og
vanilludropum. Deigið síðan hnoðað uns það er slétt og sprungulaust.
Síðan er gott að láta það bíða í kulda yfir nótt. Deigið flatt út og
mótað í kökur ca. 7 cm í þvermál. Sulta látin á hverja köku og þær
brotnar til helminga og brúnum þrýst létt saman.
Litlar jólakringlur
(Mbl. 1. desember 1994)
300 g hveiti
225 g smjör
1 msk. sykur
rifinn börkur af einni sítrónu
6 msk. þeyttur rjómi
vatn og sykur til penslunar
Smjör og hveiti hrært saman. Sykur og
sítrónubörkur settur í og síðan rjóminn. Hnoðað. Deigið rúllað í
frekar þunnar lengjur sem úr eru mótaðar kringlur. Penslað með vatni
og perlusykri stráð yfir. Bakað við 225C í 810 mínútur.
(Kringlurnar eiga að vera ljósar.)
Piparkökuhús
( Mbl.1. desember 1994)
3 dl síróp
800 g
sykur
500 g smjör
1 msk. engifer
2 msk. negull
2 msk. kanill
1 egg
1.800 g hveiti
1 tsk. natron
Hnoðið allt saman og kælið í ísskáp í 34 klukkustundir.
Fletjið út deigið og þykktin á að vera um hálfur sentimetri. Stækkið
teikningarnar tvisvar til þrisvar eða eftir vild.
Skerið út eftir teikningum og merkið í deigið fyrir bjálkum í veggi
og þakplötum.
Bakið á bökunarpappír við 175 C í um það bil 1216 mínútur eða þar
til fullbakað.
Skerið út glugga og hurðir að vild og bakið líka. Hurðina má hafa
opna upp á hálfa gátt og síðan eru þetta gluggahlerar sem geta
skreytt húsið. Milliloftið þarf að ná út fyrir húsið sjálft þannig
að hægt sé með góðu móti að gera svalir. Tröppur getur hver og einn
gert með því að búa til renning úr deiginu. Þrepin eru svo teiknuð á
með sprautuðu súkkulaði.
Hliðar hússins eru settar saman með Mónu tertuhjúp.
Glassúrinn sem notaður er í snjó er búinn til úr tveimur eggjahvítum
og 200400 g af flórsykri. Eftir að búið er að laga glassúrinn
verður að stífþeyta hann.
Handriði er sprautað á bökunarpappír. Í það er notaður Mónuhjúpur.
Þegar handriðið er síðan fest við húsið er Mónuhjúpurinn líka
notaður til þess.
Í lokin sé húsið skreytt með því að gera grýlukerti og svo er
flórsykri sigtað yfir í lokin.
Piparkökur
(Uppskrift Brynhildar Baldursdóttur Mbl.
1. desember 1994)
500 g hveiti
250 g sykur
180 g smjörlíki
4 tsk. kanill
2 tsk. negull
2 tsk. engifer
2 tsk. natron
tsk. pipar
8 msk. síróp
8 msk. mjólk
Allt hnoðað saman og rúllað í sívalninga, skorið í sneiðar og
penslað með vatni á hverja sneið. Bakað við 200C í 1520 mínútur.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Jólaskonsur |
|
(ca. 12 skonsur)
Innihald
5 dl hveiti
2 msk sykur
1 msk Dr. Oetker Vanillusykur
1 msk Dr. Oetker Brun bagepulver (lyftiduft)
75 g smjör
1 egg
1 dl súrmjólk
50 gr súkkulaði
Framkvæmd
Blandið saman hveiti, sykri, vanillu og lyftidufti. Myljið smjörið
út í og bætið eggi og súrmjólk við. Setjið svo smátt skorið
súkkulaðið út í. Fletjið deigið út þar til það er um 1½-2 cm á
þykkt. Skerið út 12 litlar skonsur með glasi eða kökuformi og raðið
þeim á bökunarplötu. Bakið í 10 mín við 220°C.
Sknosur eru bestar nýbakaðar með smjöri.
|
|
Brúnkökur |
|
(ca. 200 stk)
Innihald
1 1/2 tsk Dr. Oetker Potaske
1/2 dl vatn
250 g smjörlíki
200 g síróp
200 g sykur
500 g hveiti
1 brev Dr. Oetker Brunkagekrydderi (brúnkökukryddblanda)
100 gr saxaðar möndlur
100g Dr. Oetker Súkkat
Framkvæmd
Leysið potaske upp í vatninu. Setjið smjörlíki, síróp og sykur í
pott og hitið upp að suðu. Hrærið uppleystu potaske út í. Látið
kólna lítillega. Setjið restina af innihaldsefnunum út í og hrærið
þeim saman við sykurmassann. Hnoðið deigið búið til lengjur, ca 4 cm
í þvermál. Kælið yfir nótt. Skerið deigið í þunnar sneiðar og raðið
á bökunarplötu.
Bakið í miðjum ofni við 180ºC í 8-10 mín.
Skemmtilegt
Einnig er að hægt að búa til fígúrur úr deiginu, baka og skreyta með
glassúr.
|
|
Bóndakökur 2 |
|
200 gr. smjörlíki
250 gr. sykur
1 stk. egg
300 gr. hveiti
75 gr. kókosmjöl
1 tsk. natron
2 msk. sýróp
Mónu súkkulaðidropar
Hrærið sykur og smjörlíki létt og
ljóst og bætið svo egginu út í og hrærið vel. Þá er þurrefnunum
blandað saman við og hnoða aðeins upp í deiginu, að lokum bætist
sýrópið út í. Hnoðið degið saman, þá gæti þurft að bæta við hveiti.
Gerið litlar kúlur og einn súkkulaðidropi settur ofan á og bakað við
200 ° c í 8-10 mín.
|
|
Hnetusmjörskökur |
|
¼ bolli smjörlíki
¾ bolli sykur
¾ bolli dökkur púðursykur (þétt
troðinn)
1 teskeið vanillusykur
1 stórt egg
2 stórar eggjahvítur létt slegnar
3 bollar hveiti
2 teskeiðar matarsóti
ögn af salti
1 bolli gamaldags hnetusmjör
Blandið smjörlíkinu og sykrunum
saman í hrærivél eða mixara. Bætið vanillu, egginu og eggjahvítunum
saman við, hrærið vel. Blandið saman hveitinu, sótanum og salti og
bætið út í hræruna. Látið loks hnetusmjörið saman við og hrærið vel.
Setjið á plötu með teskeið og sléttið með gafli. Bakið í forhituðum
ofni þar til kökurnar eru ljós brúnar, um 10 mín.
|
|
Vanillukransar |
|
500 g hveiti
400 g smjör
300 g strásykur
1 egg
vanilla
Hrærið öllu saman og hnoðið þar
til degið verður mjúkt (ef það er of þurrt má setja ögn af vatni).
Rúllið upp í lengju ca 7 mm þykka. Skerið lengjuna í ca 8 cm lengjur
og gerið hring úr hverri. Raðið krönsunum á smurða ofnplötu með
svolitlu bili á milli. Bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 6 mínútur.
|
|
Sörur 4 |
|
400 g fínmalaðar möndlur
6 dl flórsykur
5 eggjahvítur
Blandið saman möndlum og
flórsykri. Stýfþeytið eggjahvítuna og blandið möndlu/sykrinum saman
við. Bakið við 180°C í u.þ.b. 15 mín.
Krem:
1 dl sterkt kaffi
1 msk hveiti
1 eggjarauða
125 g mjúkt smjör
1/2 dl sykur
1/2 tsk vanillusykur
250 g hjúpsúkkulaði
Sjóðir saman kaffið og hveitið
þar til það þykknar og kælið. Blandið eggjarauðunni við
kaffiþykknið. Hrærið saman smjör, sykur og vanillusykur þar til
blandan verður létt og ljós en þá er kaffikreminu blandað saman við.
Smyrjið kreminu á sléttu hliðina
á kökunum. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og látið kólna niður í
u.þ.b. 40°C. Dýfið nú hverri köku í súkkulaðið og látið það þekja
kaffikremið.
|
|
Hnetutoppar
|
|
Setjið allt hráefnið saman í
hræriskálina og vinnið rólega saman, rúllið út í pylsu og kælið,
skerið svo niður. Setjið á bökunarpappír, penslið yfir með hrærðu
eggi, stráið smá sykri yfir. Stingið heilli heslihnetu í miðjuna og
bakið við 180° í 10-12 mín.
|
|
Hálfmánar
2 |
|
500 gr hveiti
250 gr sykur
200 gr smjör
½ tsk hjartasalt
1 tsk lyftiduft
1 egg
1 dl mjólk
kardimommudropar
sveskjusulta
Hveiti, sykur,
hjartasalt og lyftiduft sett saman. Myljið smjörið útí.
Vætið í með eggjunum og mjólkinni. Látið bíða á köldum stað um
stund.
Fletjið deigið
út. Mótið kringlóttar kökur. Setjið 1 tsk af
sveskjusultunni á hverja þeirra og leggið kökurnar saman.
Þrýstið brúnunum saman með gaffli og bakið ljósbrúnar á 180°C
|
|
Jólabrauð (Sweden) |
|
50
gr. ger
½ lítri mjólk
150-200 gr. bráðið
smjör
1 gr. saffran
½ teskeið salt
¼ lítri sykur
1 egg
1 ½ lítri hveiti
1 desilítri
möndlubitar
rúsínur
Blandið mjólkinni og smjörinu
saman og hitið að ca. 37°C, þannig að þú finnir hvorki heitt né kalt
ef þú stingur fingri í blönduna. Blandið gerinu saman við. Bætið
saffran, salti, sykri, eggi og möndlum við blönduna. Setjið nú
hveitið smátt og smátt útí þar til deigið er ekki klístrað, losnar
auðveldlega frá skálinni en er ekki of þurrt heldur, í einstaka
tilfellum gæti þurft að bæta meira hveiti en segir í uppskriftinni
og stundum þarf minna. Látið nú deigið hefast undir klút í 30
mínútur. Setjið nú svolítið hveiti á borð og hnoðið deigið létt.
Skiptið nú deiginu í 32 jafnstóra bita og rúllið hverjum bita upp í
ca 10 tommu langann orm. Byrjið nú á öðrum enda ormsins og rúllið
honum upp að miðju, byrjið svo eins frá hinum endanum. Nú ætti
ormurinn að vera eins og tveir samfastir snúðar eða tölustafurinn 8.
Settu nú rúsínu í miðju hvorns "snúðs". Látið nú hefast aftur undir
klút í aðrar 30 mínútur. Hitið ofninn að 225°C. Penslið brauðið með
eggi og bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 10 mínútur.
|
|
Jólahnetuhleifur Margrétar |
|
Púrrulaukur ekki mjög stór
cashew hnetur rúml. 100 gr.
pine hnetur rúml. 100 gr.
lífrænar apríkósur 150 gr. ca
sveppir slatti
ghee (ósaltað smjör)
fersk persilja, helst flöt
eitt hvítlauksbrauð t.d frá Hattings
svartur pipar
2 grænmetisteningar
1-2 egg
Smá rjómasletta
Rauðvínsskvetta
Bakað hvítlauksbrauðið sett í matvinnsluvél og mulið. Tekið úr
vélinni og sett í skál.
Púrra, sveppir, hnetur og apríkósur steikt upp úr gheeinu. Persilju
og öðru kryddi bætt saman við. Þegar þetta
er orðið mjúkt og ljósbrúnt er það sett í matvinnsluvélina og
hakkað, ekki of fínt. Síðan er hnetublandan sett í
skál með brauðmylsnunni, eggjunum, rjóma og rauðvíni, allt hrært vel
saman. Blandan svo sett í
bökunarform eða eldfast mót og bakað við 200°C í ca 30 mínútur.
Úr þessu verður einn hleifur ekki mjög stór.
Gott að hafa kalda sósu með sem er búin til úr Sýrðum rjóma (36% eða
þeim danska) chilli sósu, hvítlauk og
svörtum pipar. Eins er alveg örugglega gott að hafa
rauðvínsvepparjómasósu með þessum hleif.
|
|
Jólakaka (ítölsk ófitandi) |
|
ekkert hveiti, engin fita, enginn sykur
500g hnetur og möndlur Hnetur og börkur í matvinnsluvél og mulið.
Hunang hitað aðeins með
börkur af einni appelsínu brytjuðum gráfíkjunum útí. Setjið bananann
útí hunangsblönduna
½ tsk kanill og svo öllum þurrefnunum ásamt berki og hnetum. Hrært
og
½ tsk negull sett í form. Bakað við ca 170°C. Má bræða 70 %
súkkulaði og
½ tsk koriander smyrja þunnt yfir. Þessi kaka er æðisleg og full af
hollustu.
½ tsk engifer
2 msk spelt
100g hunang úr heilsubúð, einn stappaður banani, 5 gráfíkjur
Það er einfalt að gera baksturinn hollari með því að nota flókin
kolvetni í stað þeirra einföldu. Já, hvað er
flókið og einfalt?
Einföld kolvetni eru: Hvítt hveiti, hvítur sykur, sykraðir drykkir,
fljótandi sykur eins og sýróp, hvítt pasta,
Hvít hrísgrjón.
Flókin kolvetni eru: Spelt, heilhveiti og allt gróft korn, ávextir
(ferskir og þurrkaðir), brúnt pasta, brún grjón,
Svo er hægt að fá náttúrulegt fljótandi hunang og hrásykur sem er
betra í bakstur en
hvíti sykurinn. Spelt og heilhveiti er svo hægt að nota í allan
bakstur, pönnukökur og svamptertubotna meira
að segja. Svo er olían hollari fita en smjör og smjörlíki, tæpur
desiliter í stað 100g af smjöri. Einnig er hægt
að setja stappaða banana eða maukuð epli í stað smjörs og sykurs.
Döðlurnar eru sætar og betri á bragðið en
hvíti sykurinn. Hnetur, möndlur, gulrætur og kartöflur geta svo
komið í staðinn fyrir mjöl.
|
|
Besta brauð í heimi |
|
800g mjöl frjálst val Allt nema egg og sesamfræ er sett í skál og
blandað saman með
100g sólblómafræ sleif. Settí 3 jólakökuform, eggið pískað, smurt
yfir og
4 tsk kúfaðar lyftiduft sesamfræjunum stráð yfir.
1 tsk sléttfull natron Bakað við 150°C í 15-20 mín og hækkað í 200°C
og bakað áfram
1 tsk salt í allt að 1 klst.
6 dl ab-mjólk
2 ½ dl vatn, 1 egg, 100g sesamfræ
|
|
Jólahjörtu Guðnýar |
|
2 ½ tsk þurrger fylling: 75g gráfíkjur Ávextirnir er klipptir í smá
1 dl volgt vatn 25g döðlur stykki og safa og mjólk hellt
1 ½ msk hrásykur 25g aprikósur yfir og látið standa í minnst 30 mín.
25g heslihnetur 50g sveskjur
¼ tsk kanill 1 ½ msk hrásykur
¼ tsk engifer ½ dl appelsínusafi
½ tsk salt 1 dl mjólk
50g smjörlíki
425g hveiti (má nota heilhveiti)
1 egg til að pensla
Leysið gerið upp í volgu vatninu, setjið saman við þurrefnin, síðan
lint smjörlíkið og ávaxtablandan, hnoðið
saman og látið hefast í ca 1 klst. Mótið 16 hjörtu eða bollur og
látið hefast í cs ½ klst, penslið með eggi og
bakið við 185°C í 18-20 mín. Gott að frysta.
|
|
Jólasmábrauð |
|
Hitið mjólk í 37°C og hrærið geri saman við. Bætið salti,
kardimommum og hveitiklíð út í og síðan hveiti (u.þ.b. 2/3)
ásamt mjúku smjörinu. Hrærið vel. Saxið hnetur gróft og smækkið
kokkteilber og appelsínubörk ef þarf. Blandið ávöxtum og hnetum
í hveitiblönduna. Hrærið vel. Látið deigið lyfta sér í 40-50
mín. Hnoðið deigið og mótið bollur eða smábrauð, setjið á plötu
og látið lyfta sér í 15-20 mín. Penslið með eggjablöndu eða
vatni og bakið í miðjum ofni við 200-220°C í 10-15 mín.
|
5,00 |
dl mjólk |
4,00 |
tsk þurrger |
50,00 |
g smjör |
1,00 |
tsk salt |
1,50 |
tsk kardimommur |
25,00 |
g hveitiklíð |
360,00 |
g hveiti |
50,00 |
g hnetur |
50,00 |
g kokkteilber |
50,00 |
g sultaður appelsínubörkur |
|
|
Aðventukringla |
|
Hrærið vel saman smjör, sykur og egg. Blandið
rúsínunum, söxuðu ávöxtunum og brytjuðu súkkkulaðinu saman við
hveitið. Blandið sýrða rjómanum og kardimommum (má nota
vanilludropa) saman við smjörhræruna og því næst hjartarsalti og
hveitiblöndunni. Setjið deigið í fallegan hring með matskeið á
bökunarpappír á plötu. Bakið við 200°C í 20-25 mín. í miðjum
ofni. Gott er að strá möndluflögum og perlusykri yfir áður en
bakað er. Látið kringluna bíða í u.þ.b. 1 klst. áður en hún er
borin fram.
100,00 |
g smjör |
130,00 |
g sykur |
1,00 |
egg |
1,00 |
ds sýrður rjómi (10%) |
230,00 |
g hveiti |
1,50 |
tsk hjartarsalt |
2,00 |
tsk kardimommur |
36,00 |
g rúsínur |
2,00 |
msk kokkteilber |
3,00 |
msk þurrkaðar apríkósur |
50,00 |
g súkkulaði |
1,00 |
skm möndluflögur og perlusykur (skreyting) |
|
|
Piparkökur fyrir sykursjúka |
|
150 grömm hveiti
¼ teskeið kanil
¼ hnífsoddur negull
¼ hnífsoddur pipar
25 grömm smjörlíki
35 grömm atwel eða perfect fit, eða annað sætuefni
1 hnífsoddur hjartasalt
Aðferð fyrir Piparkökur fyrir sykursjúka:
Blandið hveiti, hjartasalti, kanil, negul og pipar saman. Klípið
smjörlíkið útí og blandið sætuefninu saman við. Þeytið eggið og
hellið útí, hrærið degið saman og setjið það svo í ískápinn í 15
mínútur. Rúllið deginu í cirka 1 cm þykkar pylsur. Skerið pylsurnar
í bita og rúllið bitunum upp í kúlur. Setjið á plötu og ýtið aðeins
á kúlurnar þannig að þær verið flatar. Bakið við 200 gráður í 10
mínútur.
|
|
Marengs terta |
|
Svampbotnar:
2 egg
1 desilítri sykur
1/2 desilítir hveiti
1/2 desilítri kartöflumjöl
Marengs:
3 eggjahvítur
2 desilítrar sykur
Krem:
3 eggjarauður
4 matskeiðar flórsykur
50 grömm Síríus suðusúkkulaði (konsum)
2 1/2 desilítrar rjómi, þeyttur
Aðferð fyrir Marengsterta:
Svampbotnar:
Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Sigtið þurrefin og blandið þeim
varlega saman við eggjahræruna. Bakið í lausbotna formi við 175-200
gráður í 12 mínútur.
Marengs:
Stífþeytið eggjahvíturnar, bætið sykrinum smám saman út í og þeytið
vel. Setjið marengsinn í lausbotna form (bökunarpappír í botninn) og
inn í 150 gráðu heitan ofn. Lækkið hitann niður í 100 gráður og
bakið í um það bil 1 klukkustund. Látið marengsinn kólna í ofninum.
Krem:
Þeytið eggjarauðurna og flórsykurinn saman. Bræðið súkkulaðið yfir
vatnsbaði, kælið það örlítið og blandið því saman við eggjahræruna.
Smyrjið helmningnum af rjómanum á svampbotninn og helmingnum af
kreminu ofan á hann. Síðan er marengsbotninn settur ofan á og endað
á kreminu. Gott er að geyma tertuna í frysti í 6-8 klukkustundir
áður en hún er borin fram.
|
|
Marengskaka |
|
200 grömm flórsykur (sigtaður)
4 eggjahvítur
100 grömm smátt brytjað súkkulaði
100 grömm saxaðar döðlur
Aðferð fyrir Marengskaka:
Stífþeytið eggjahvíturnar og 5 matskeiðar af flórsykrinum saman.
Bætið afganginum af flórsykrinum, súkkulaðinu og döðlunum varlega
saman við.
Smyrjið ofnplötu vel og sáldrið hveiti yfir. Jafnið degið í tvo
hringlótta botna á plötuna og bakið í tvær klukkustundir við 100
gráður. Þeytið 1-2 pela rjóma og setjið á milli og ofan á. Setjið
kökuna saman 4-6 klukkustundum áður en hún er borin fram.
|
|
Súkkulaðismákökur |
|
250 grömm rjómaostur
200 grömm smjör
3/4 bollar sykur
1 egg
1 teskeið vanilludropar
2 1/2 bolli hveiti
1 teskeið lyftiduft
1/2 teskeið salt
1/2 bolli saxaðar hnetur
150 grömm saxað súkkulaði
Aðferð fyrir Súkkulaðismákökur:
Hitið ofninn í 200 gráður. Hrærið saman rjómaosti smjöri og sykri,
þar til hræran verður létt og ljós. Hrærið eggi og vanilludropum út
í. Blandið þurrefnunum saman við og síðan súkkulaði og hnetum.
Setjið með teskeið á plötu og bakið í 15-20 mínútur. Óhætt er að
setja kökurnar nokkuð þétt saman á plöturnar, þar sem þær renna
nánast ekkert út. Geymið í loftþéttu boxi á köldum stað.
|
|
Kókostoppar |
|
200 grömm smjör
1 1/2 desilítri sykur
1 egg
1 teskeið vanilludropar
2 1/2 - 3 desilítrar kókosmjöl
2 teskeið hjartasalt
5 desilítrar hveiti
Aðferð fyrir Kókostoppar:
Hrærið smjör og sykur þar til það verður létt og ljóst. Hrærið eggin
út í. Blandið kókosmjöli og hjartasalti út í og að lokum hveitinu.
Setjið degið með teskeið á smurða plötu. Bakið við 150 gráður í
u.þ.b. 20 mínútur. Geymið í loftþéttu boxi á köldum stað.
|
|
Jólakringla |
|
Það er siður í Skandínavíu að bjóða upp á góða
kringlu á jólunum. Þennan sið hafa fleiri og fleiri tekið upp á
Íslandi og borið fram ljúffenga jólakringlu í fjölskylduboðum
milli jóla og nýárs.
375 g |
Smjör (kalt) |
500 g |
Hveiti |
1 dl |
Mjólk (volg) |
1 bréf |
Þurrger (eða 50 g. pressuger) |
2 stk |
Egg |
1 tsk |
Kardimomma, mulin |
-
Myljið smjörið í hveitinu.
Bætið við sykri og kardimommudropum.
Leysið upp gerið í volgri mjólkinni. Blandið því og eggjunum
saman við deigið og hnoðið vel.
Setjið í skál með plastfilmu yfir og látið hefast í 30 mín.
Fylling:
125 g |
Smjör (lint) |
125 g |
Sykur |
125 g |
Marsípan |
1/2 dl |
Rúsínur |
Egg til penslunar, möndluflögur og perlusykur til
skrauts.
Rífið marsípanið gróft og hrærið saman fyllingunni.
Fletjið deigið út svo úr verði langur renningur.
Setjið fyllinguna í miðju deigsins og rúllið því upp í
"pylsu" (látið brotið snúa niður). Látið á bökunarpappír og
formið "pylsuna" í kringlu. Látið kringluna hefast í 30 mín.
Penslið kringluna með eggi og stráið möndluflögum og
perlusykri yfir.
Bakið í uþb. 30 mín. við 225°C.
|
|
Emmur |
|
80 stk.
5 dl |
Púðursykur, þéttfullir |
450 g |
Mjúkt smjör |
3 stk |
Egg |
2 tsk |
Vanillusykur |
2½ dl |
Haframjöl |
7½ dl |
Hveiti |
1 tsk |
Matarsódi |
1 tsk |
Lyftiduft |
1 tsk |
Salt |
1 pund |
M&M kúlur = 1 poki 453,6 g |
2½ dl |
Ljósir súkkulaðidropar |
-
Þeytið saman púðursykur og smjör þar til það er létt.
Bætið eggjum, vanillu og haframjöli út í og hrærið vel.
Blandið saman restinni af þurrefnunum og hrærið smám saman
útí deigið.
Bætið að lokum m&m og súkkulaðidropum út í og blandið vel
saman við. Kælið deigið smástund.
Setjið með teskeið á ósmurðar plötur og bakið við 200°C í um
8 mínútur. Látið standa í 2 mínútur áður en kökurnar eru
teknar af plötunni.
|
|
Snikkaraterta |
|
Þessi ísterta er ótrúlega einföld og bragðgóð en bragðið
líkist einna helst þekktu amerísku hnetusúkkulaði. Tertuna er gott
að eiga í frysti þegar gesti ber að garði eða sem eftirrétt á
jólunum.
300 g súkkulaðibitaköur eða kex
50 g smjör
1 1/2 lítri vanilluís
1 1/2 bolli hnetusmjör með hnetubitum (Crunchy peanut butter)
Setjið kökurnar í matvinnsluvél og hrærið þar til þær eru orðnar að
mylsnu. Bræðið smjörið og hrærið því út í mylsnuna. Þrýstið
mylsnunni í botn og upp kantana á kökuformi. Setjið ísinn í skál og
hrærið varlega með gaffli. Bætið hnetusmjörinu út í og blandið vel
saman. Setjið ísblönduna í mylsnubotninn og frystið í a.m.k. 3-4
tíma. Berið ístertuna fram með volgri súkkulaðisósu.
Súkkulaðisósa:
1/2 dl rjómi
100 g 70% Síríus súkkulaði eða Síríus Konsum
Hitið rjómann að suðumarki, takið af hitanum og brytjið súkkulaðið
út í. Hrærið á meðan súkkulaðið bráðnar.
|
|
Bounty kúlur |
|
4 dl kókosmjöl
2-3 dl flórsykur
2 msk mjúkt smjör
1 eggjahvíta
2 msk rjómi
súkkulaði til að hjúpa með
Aðferð:
1. Blandið þurrefnunum saman.
2. Bætið smjöri, eggjahvítu og
rjóma saman við.
3. Hnoðið deigið.
4. Mótið litlar kúlur og setjið á
plötu og frystið.
5. Bræðið súkkulaðið t.d. í
örbylgjuofni og hjúpið kúlurnar til hálfs.
|
|
Möndlukúlur |
|
3 dl hveiti
1 dl sykur
1 tsk vanillusykur
½ tsk lyftiduft
100 g smjör
1 lítið egg
súkkulaðidropar
Aðferð:
1.
Blandið þurrefnunum
saman í skál.
2.
Myljið
smjörið saman við þurrefnin með fingurgómunum.
3.
Bætið egginu í og
hrærið deigið með sleif.
4.
Hnoðið deigið á
borði og mótið litlar kúlur úr deiginu eða rúllið í lengjur og skerið í
sneiðar.
5.
Bakað við 175°C í
8-10 mín.
6.
Þegar kökurnar eru
teknar út úr ofninum er einn súkkulaðidropi settur á hverja köku.
|
|
Jólakonfekt með döðlum |
|
300 gram síríus suðusúkkulaði
2 desilítrar kókosmjöl
1 desilítri saxaðar döðlur
1 desilítri saxaðar gráfíkjur
1 desilítri saxaðar rúsínur
Það má skipta einhverju af þessu út fyrir möndlur eða hnetur, eftir
smekk.
Aðferð fyrir Jólakonfekt med döðlum:
Súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði. Allt hráefnið hrært saman við. Sett
með teskeið á pappírsklædda bökunarplötu og látið storkna.
Hversu mikið er haft í hverri teskeið fer bara eftir því hvað
bitarnir eiga að vera stórir.
Gott er að halda hrærunni heitri yfir vatnspottinum á meðan hræran
er sett á plötuna, annars á hún til að storkna áður en allt er komið
á plötuna.
Gæta þarf þess að gufa komist ekki í súkkulaðið á meðan það er
brætt, þá hvítnar það.
|
|
Rúlluterta 2 |
|
3 egg
125 grömm sykur
1 1/2 teskeið lyftiduft
2 matskeiðar kakó
50 grömm kartöflumjöl
Smjörkrem:
125 grömm smjör
125 grömm flórsykur
1 eggjarauða
Vanilludropar
Aðferð fyrir Drauma-rúlluterta:
Búið til smjörpappírsskúfu á bökunarplötu. Smyrjið hana með smjöri.
Þeytið egg og sykur þar til hræran verður létt og ljós. Blandið
saman þurrefnum og bætið þeim varlega í eggjahræruna. Hellið deginu
í pappírsskúffuna og bakið við 180-200 gráður, í 10-15 mínútur í
miðjum ofni. Hvolfið kökunni á sykurstráðan smjörpappír, leggið
rakan klút yfir og kælið. Smyrjið kreminu á kökuna. Rúllið kökunni
upp og hafið pappírinn utan um. Gætið þess að samskeytin snúi niður.
Krem:
Hrærið smjör og sykur þar til hræran verður létt og ljós og bætið
svo eggjarauðunni í. Smakkið til með vanilludropum.
|
|
Gráfíkju terta |
|
150 grömm hveiti
1 teskeið matarsódi
100 grömm sykur
100 grömm smjörlíki
1 egg
150 grömm gráfíkjur
1-2 desilítrar vatn
Aðferð fyrir Gráfíkjuterta:
Hitið ofninn í 200 gráður. Saxið og sjóðið gráfíkjurnar í vatninu
þar til þær eru komnar í mauk. Sigtið þurrefnin þ.e hveiti,
matarsóda og lyftiduft í hrærivélaskálina. Blandið sykrinum saman
við. Látið síðan lint smjörlíki, egg, gráfíkjumauk og vatn í
skálina. Hrærið degið í eina mínútu á minnsta hraða og síðan í 3
mínútur á mesta hraða vélarinnar. Takið tímann nákvæmlega. Bakið
degið í tveim vel smurðum tertumótum í 30-40 mínútur. Leggið botnana
saman með gráfíkjumauki eða þeyttum rjóma. Skreytið að vild.
|
|
Tertubotnar |
|
3 egg
225 grömm sykur
180 grömm hveiti
2 teskeiðar lyftiduft
1 desilítri heitt vatn
Aðferð fyrir Tertubotnar:
Egg og sykur þeytt vel saman. Hveiti og lyftidufti blandað saman og
sett í eggjahræruna til skiptis við vatnið. Bakið í tveimur
tertumótum eða einu stóru við 180 gráður þar til tertubotnarnir
losna frá börmunum.
|
|
Jarðaberjaterta |
|
4 eggjahvítur
1 bolli sykur
2 bollar kókosmjöl
100 grömm brytjað suðusúkkulaði
1 peli rjómi
1/2 dós jarðaber
Aðferð fyrir Jarðaberjaterta:
Eggjahvíturnar og sykurinn þeytt saman. Kókosmjöl og súkkulaði
blandað varlega saman við. Smyrjið ofnplötu vel og sáldrið hveiti
yfir. Smyrjið deigið út í tvo hringlótta botna á plötuna. Bakið við
150 gráður í cirka 30 mínútur. Botnarnir lagðir saman með pela af
þeyttum rjóma og 1/2 dós af jarðaberjum sem eru marin út í rjómann.
|
|
Piparkökudropar |
|
500 grömm púðursykur
500-700 grömm hveiti
200 grömm smjörlíki
2 teskeiðar engifer
2 teskeiðar sódaduft
2 teskeiðar negull
2 teskeiðar kanill
1/2 teskeið pipar
1 desilíter síróp
2 desilíter mjólk
Aðferð fyrir Piparkökudropar:
Blandið öllum þurrefnunum saman. Myljið smjörlíkið út í og vætið í
með sírópi og mjólk. Hnoðið degið og hnoðið upp í það hveiti svo það
verði vel meðfærilegt. Búið til litlar kúlur og þrýstið örlítið á
þær. Bakið við 200 gráður í 3-5 mínútur.
|
|
Peruterta |
|
3 egg brotin í glas
Sykur mældur í öðru glasi jafn hátt og eggin ná
Í þriðja glasið:
2 matskeiðar kartöflumjöl
2 teskeiðar lyftiduft
Hveiti það mikið að það verður jafn mikið og í glasinu með sykrinum.
Að sjálfsögðu verða öll glösin að vera jafn stór.
Döðlusulta:
1 pakki döðlur
Safi úr einni peru dós
Aðferð fyrir Pertuterta:
Egg og sykur þeytt saman. Þurrefnunum blandað varlega saman við
eggjahræruna. Deigið bakað í einu stóru djúpu formi. Það má líka
skipta því í tvennt.
Döðlusulta:
Döðlurnar eru soðnar í safanum úr einni perudós. Síðan er sultunni
smurt jafnt yfir kökuna og perunum raðað þar ofan á.
|
|
Rjómatertu botnar |
|
4 egg
200 grömm sykur
70 grömm hveiti
70 grömm kartöflumjöl
1 teskeið lyftiduft
Aðferð fyrir Rjómatertubotnar:
Egg og sykur þeytt vel saman. Þurrefnunum blandað saman og bætt út í
eggjahræruna smátt og smátt. Bakað í tveim vel smurðum tertumótum
við 180 - 200 gráður þar til botnarnir losna frá börmunum.
|
|
Hálfmánar |
|
500 grömm hveiti
200 grömm smjörlíki
200 grömm sykur
50 grömm egg
150 grömm mjólk
1/2 teskeið hjartasalt
1 teskeið lyftiduft
1/2 teskeið kardimommur
Aðferð fyrir Hálfmánar:
Þurrefnunum blandað saman. Vætið í með eggi, mjólk og dropum.
Smjörlíkið mulið saman við og hnoðað vel. Degið rúllað þunnt út á
hveitistráðu borði. Kringlóttar kökur skornar út með glasi eða móti.
Sulta að eigin vali sett á hverja köku, hún brotin saman og þrýst á
brúnirnar með gaffli.
Gæta þarf þess að setja ekki of mikið af sultu á kökurna þá hættir
þeim við að springa.
|
|
Snittubrauð |
|
Einfalt og fljótlegt. Þó að snittubrauðið sé ekki eins létt og
loftkennt og út úr búð þá er það mun hollara!
Gerir eitt langt brauð
5 dl spelti
1 dl hveitiklíð (má
sleppa og nota meira spelti í staðinn)
1 tsk Himalaya eða
sjávarsalt
1 msk agavesíróp
2 msk vínsteinslyftiduft
1-2 dl sojamjólk eða
hrein jógúrt, súrmjólk eða AB mjólk
1/2-1 dl sjóðandi heitt
vatn
Aðferð:
Blandið þurrefnunum varlega saman.
Bætið vökvanum smátt og smátt út í þangað til hægt er að
hnoða deigið. Misjafnt er hversu mikinn vökva þarf og gætið
þess að deigið verði ekki of blautt, það á sem sagt að vera
hægt að hnoða það (en þó ekki mikið).
Hnoðið og búið til eina lengju (eða tvær styttri) úr
brauðinu (álíka þykka og venjulegt snittubrauð). Gætið þess
að séu ekki sprungur í deiginu.
Hitið í um 30 mínútur við 180°C.
Látið kólna í 10 mínútur og skerið svo í sneiðar og berið
fram.
Upplagt með súpum, pottréttum, baunakássum og mörgu öðru.
|
|
Jólaglögg óáfengt |
|
Fyrir 2-3
1/2 lítri 100% hreinn trönuberjasafi (enska: cranberry
juice)
1/2 lítri 100% hreinn eplasafi
1 lófafylli heilar möndlur
1 lófafylli rúsínur
2 kanilstangir
4 negulnaglar
1 tsk ávaxtasykur eða
hrásykur
Safi úr 1/2 sítrónu
Aðferð:
Sjóðið allt nema sítrónu í potti í
u.þ.b. 5-10 mín.
Takið þá negulnaglana og kanelstangirnar úr og setja safann
af sítrónunni út í.
Setjið möndlur og rúsínur út í.
Berið fram í frekar háum og mjóum bollum.
|
|
Jólakonfekt 2 |
|
Gerir um 30 konfektbita
1 banani, vel þroskaður
1 dl haframjöl
1 dl kókosmjöl
1/4 dl carobduft (eða
gott kakóduft með háu kakóinnihaldi)
25 gr döðlur, sem búnar eru
að liggja í bleyti í
u.þ.b. 1 klst
25 gr gráfíkjur, sem búnar
eru að liggja í bleyti í
u.þ.b. 1 klst
1 tsk vanilluduft eða
vanilludropar
50 gr saxað, dökkt
gæðasúkkulaði (með ávaxtasykri eða hrásykri) eða carob
1 tsk kanill
Kókosmjöl til að velta konfektinu upp úr, eða malaðar
möndlur
Aðferð:
Setjið allt í matvinnsluvél.
Kælið blönduna í nokkra tíma.
Mótið litlar kúlur og veltið upp úr kókosmjöli, carobdufti
eða kakódufti eða möndlum.
Geymist best í frysti en einnig í 1-2 vikur, innpakkað í
plast í ísskáp.
Blandan getur verið blaut eða þurr allt eftir því t.d. hvort
bananinn er stór eða ekki. Ef ykkur finnst blandan blaut
skuluð þið setja hana inn í ísskáp og eftir klukkutíma
skoðið þá hvort hún er enn þá of blaut til að móta úr henni
kúlur. Ef hún er of blaut, bætið þá aðeins meira af
haframjöli við ásamt aðeins meira af carobi og kókosmjöli.
Setjið svo aftur inn í ísskápinn. Það er langbest að velta
konfektinu upp úr einhverju t.d. kókosmjöli eða muldum
möndlum.
|
|
Jólakonfekt |
|
Hollt og gott jólakonfekt, fullt af próteinum, trefjum, C
vítamínum og fleiru. Maður þarf ekki að hafa samviskubit yfir
þessum í kringum jólin. Svo hollt að maður getur meira að segja
fengið sér mola með morgunkaffinu.
Gerir um 40 konfektmola
Tæpur 1 bolli (2 dl) cashewhnetur. Ég miða við 250
ml bolla
1/4 bolli möndluflögur
1/2 bolli kókosmjöl
15-20 gráfíkjur (um 250 gr), snúið litla stubbinn á endanum
af, saxið gróft
8-10 döðlur, saxið gróft
1/2 bolli rúsínur
1 bolli puffed rice (sprengd hrísgrjón, fást t.d. í
Heilsuhúsinu)
3-5 msk hreinn
appelsínusafi
4 msk hreint hlynsíróp
(enska: maple syrup)
3 msk carobduft (má nota
kakóduft, notið þá lífrænt framleitt og gott kakó)
100 gr carobstykki eða
sykurlaust, lífrænt ræktað súkkulaði. Þeir sem hafa
glúteinóþol ættu að lesa innihaldslýsingu súkkulaðisins.
Aðferð:
Malið möndlur, puffed rice og hnetur og kókos í
matvinnsluvél.
Bætið carobdufti út í og malið aðeins áfram.
Setjið í stóra skál.
Maukið döðlur, gráfíkjur og rúsínur með smá appelsínusafa
þangað til allt er orðið að mauki.
Blandið öllu vel saman, jafnvel í hrærivél (gott að vera í
þunnum plasthönskum ef þið notið hendurnar).
Áferðin á deiginu á að vera nokkuð þétt, alls ekki blaut en
allt á samt að festast vel saman.
Gott að láta blönduna bíða aðeins í kæli, betra að móta
konfektið þannig.
Mótið litlar kúlur (álíka stórar og vínber)
Bræðið carobið í potti yfir lægsta hita. Fylgist vel með því
og passið að það ofhitni ekki því annars skemmist það. Um
leið og það er farið að bráðna slökkvið þá undir hitanum.
Gott er að slétta botninn á hverju konfekti, það stendur
betur á disknum þannig.
Notið kokteilpinna eða tannstöngla til að dýfa kúlunum ofan
í carobið (dýfa toppnum ofan í). Veltið upp úr kókosmjöli
eða einhverju öðru ef þið viljið.
Látið kólna.
Hægt er að frysta molana en þeir geymast í margar vikur í
lokuð íláti í ísskáp.
Gott er að setja rifinn börk af einni appelsínu í hluta
deigsins.
Til tilbreytingar er gott að setja 1/2
tsk engifer og 1/2
tsk
kanil í hluta deigsins
Hægt er að velta konfektinu upp úr kókosmjöli, sesamfræjum,
möluðum möndlum, carobdufti o.s.frv.
Einnig má nota þurrkaðar aprikósur á móti döðlunum í
uppskriftina.
Athugið að súkkulaði getur innihaldið glútein.
|
|
Jólakaka með ensku ívafi |
|
Gerir 1 kökubrauð
300 gr rúsínur (ljósar og
dökkar)
290
ml apríkósusulta (hrein, án
viðbætts sykurs og aukaefna)
250 gr aprikósur, saxaðar í
grófa bita
1 tsk agavesíróp eða
hunang
250 gr soðið og maukað
grasker (hægt að nota butternut squash líka). Um 400 gramma
grasker þarf fyrir uppskriftina).
1 tsk salt (til að sjóða
graskerið upp úr)
120 gr þurrkaður ananas (án
sykurs eða aukaefna), saxaður í grófa bita. Einnig má nota
ferskan ananas eða úr dós (án sykurs) en þá þarf að sigta
allan vökva mjög vel frá
280 gr spelti
80 gr döðlur, saxaðar í
grófa bita
Börkur af einni lífrænt ræktaðri appelsínu
Börkur af 1/2 lífrænt ræktaðri sítrónu
1 tsk kókosfeiti eða
ólífuolía
3 tsk kanill
2 tsk negull (enska:
clove)
1 tsk múskat (enska:
nutmeg)
1 tsk vínsteinslyftiduft
3-4 matskeiðar af hreinum appelsínusafa.
Aðferð:
Sjóðið graskerið í söltu vatni. Látið rétt fljóta yfir
graskerið og sjóðið í um 20 mínútur eða þangað til það er
orðið meyrt. Kælið og maukið í matvinnsluvél.
Í annan pott skuluð þið setja alla ávextina og börkinn ásamt
agavesírópi eða hunangi, kókosfeiti eða ólífuolíu og
aprikósusultunni og sjóða í 3 mínútur. Kælið.
Blandið saman speltinu, kryddinu og vínsteinslyftiduftinu í
stórri skál.
Bætið graskersmaukinu varlega saman við.
Bætið nú ávaxtablöndunni saman við og blandið öllu saman með
sleif.
Setjið bökunarpappír í stórt brauðform (14
cm. á breidd og 21
cm. á lengd) og hellið blöndunni ofan í (má líka
setja í 2 minni form en baka þá í aðeins skemmri tíma).
Bakið í 60 mínútur við 180°C. Ef toppurinn er orðinn mjög
dökkur eftir 30-40 mínútur má breiða álpappír yfir kökuna,
eða lækka hitann og færa kökuna neðar. Eftir 60 mínútur
skuluð þið skoða kökuna og pota prjóni eða hnífi í miðjuna
og ef hnífurinn kemur út með deigi á (þó það sé bara
smávegis) skuluð þið baka hana í aðrar 15 mínútur. Ef þið
stingið í ávöxt þá verður hnífurinn blautur eftir hann en
það er ekki eins og þegar deigið er ekki nægilega bakað, þá
koma meira eins og klessur á hnífinn.
Tékkið á kökunni eftir 15 mínútur og bakið lengur ef þörf er
á. Það er misjafnt eftir ofnum hvað kökurnar þurfa.
Þegar kakan er komin úr ofninum, stingið þá strax mörg göt í
hana og hellið nokkrum matskeiðum af appelsínusafa yfir
kökuna.
Pakkið kökunni, í forminu inn í álpappír og látið kólna
alveg, jafnvel yfir nótt.
Gott er að gera nokkrar kökur, skera þær svo í tvennt, pakka
inn í bökunarpappír og plastpoka og geyma í frysti. Þá er
hægt að taka út smá skammt í einu fyrir ykkur eða gestina.
Nota má appelsínumarmelaði/sultu í staðinn fyrir
aprikósusultuna þá má sleppa appelsínuberki í uppskriftina.
Ég hef meira að segja notað rabbabarasultu á móti
appelsínumarmelaði og kakan heppnaðist bara vel.
Einnig má nota 75
gr þurrkuð epli eða mangó (án sykurs
eða aukaefna) á móti þurrkaða ananasinum.
Ef þið eruð að sjóða frosið grasker er ágætt að kreista
bitana eftir að þeir hafa soðið til að losa aukavatn.
|
|
Laufabrauð Vísir.is |
|
Að skera út laufabrauð er einn af hápunktum aðventunnar hjá
mörgum fjölskyldum. Hægt er að kaupa deigið tilbúið, en vilji
menn búa til það sjálfir er þessi uppskrift góð.
900 g hveiti
100 g rúgmjöl
1 tsk þurrger
5 dl mjólk
1 dl rjómi
0.5 dl sykur
25-30 g smjör
1 tsk. salt
1 tsk. hjartasalt
Rúgmjöli, hveiti og geri er blandað saman í skál. Mjólkin er
sett í pott ásamt smjöri, sykri og salti. Þetta er hitað að suðu
og þá er rjóminn settur út í, potturinn tekinn af og
hjartasaltið sett í. Vætt í þurrefnunum með mjólkinni sem
freyðir og deigið síðan hnoðað.
Vísir,
29. okt. 2008
|
|
Laufabrauð 3 |
|
1 kg Hveiti
1/4 teskeið Baker's Ammonia
1 teskeið Salt
6-7 dl mjólk
Feiti til djúpsteikingar
Hitið
mjólkina að suðu. Siktið saman hveiti og salt. Hellið mjólkinni í
hveitið og hnoðið saman í deig, og formið í langa rúllu. Skerið
rúlluna niður í bita og rúllið hverjum bita út í mjög þunnar kökur.
Þetta er auðveldast að gera á hveitistráðum plastdúk. Skerið brauðið
í hringlaga kökur t.d. eftir disk og skreytið af hjartans lyst.
Pakkið brauðinu inn til að koma í veg fyrir að það þorni meðan það
bíður steikingar. Áður en brauðið er steikt er það "pikkað" með
gafli, djúpsteikið síðan í vel heitri feiti á báðum hliðum þar til
það er gullinbrúnt.
|
|
Laufabrauð 2 |
|
800 gr. hveiti
200 gr. heilhveiti
1 tsk. salt
6-7 dl mjólk
100 gr. sykur, 2 msk heilt kúmen
Mjólkin hituð ásamt smjörlíki og kúmeni.
Hellt yfir mjölið og hnoðað.
Breytt mjög þunnt út skorið og pikkað.
Steikt vel í heitri feiti.
|
|
Eplakaka Milanaise
|
|
Þessa köku lærði ég að gera hjá Ítölskum kokki sem vann með mér
3 daga í veiðihúsinu í Kjarrá, Þverárhlíð. Þessi kokkur sýndi
mér nýja hlið á Ítalskri matreiðslu. Fullkominn eplakaka!
Deig:
250 gr Hveiti
160 gr Smjör
½ Sítróna – börkurinn í ræmur
½ tsk vanillusykur
2 egg
1 gr salt
Fylling:
6 stk græn epli
½ tsk vanillusykur
½ sítróna - börkurinn í ræmur
100 gr sykur
10 ml dökkt romm
1-Hnoðið saman degið varlega og látið hvílast í kæli í 2 tíma.
2-Fletjið degið út og látið í botninn á forminu.
3-Setjið einnig lag af deginu í hliðar formsins.
4-Setjið fyllingu í formið svo rétt nemi við efstu brún degsins.
5-Setið restina af deginu yfir fyllinguna og sléttið vel.
Fylling:
1-Afhýðið og kjarnskerið eplin og skerið í bita á stærð við
nögl.
2-Setjið allt í pott og sjóðið varlega í nokkrar mínútur-Kælið
vel.
|
|
Möndlukaka dönsk |
|
Þessi kaka var á matseðlinum í Grillinu á Hótel Sögu þegar ég
vann þar. Mjög góð kaka og er best volg. Ég setti þessa
uppskrift saman úr uppskrift í uppskriftarbæklingi sem fylgdi
Braun matvinnsluvél.
Deig:
500 gr hveiti
375 gr smjör
175 gr flórsykur
½ egg
Fylling:
50 gr smjör
250 ml rjómi
50 gr hunang
400 gr ljóst síróp
500 gr möndluflögur eða spænir (splitter)
Deig:
1-Hnoðið öllu saman og hvílið í kæli í 30 mín.
2-
Fletjið út með kefli og setjið í lausbotna form.
3-Bakið fyrst í 10 mínútur við 150 gráður með smjörpappír og
baunir sem ok.
4-Bakið síðan í 15 mín án pappírs og bauna við 120 gráður.
Fylling:
1-Blandið öllu saman í pott, nema möndlum og sjóðið í karamellu.
Karamellan verður að vera þykk.
2-Setjið möndlurnar í og veltið þeim saman við karamelluna
stutta stund yfir hitanum- fyllið botnana.
3-Rétt fyrir framreiðslu skal bregða kökunum undir grill og gefa
þeim fallegan gljáa. Framreitt með rjóma. Kakan er dálítið sæt
þannig að allt það meðlæti sem inniheldur sykur hentar ekki.
|
|
Jólapiparkökur |
|
Þetta eru bestu piparkökur sem ég hef smakkað.
500 gr hveiti
250 gr sykur
200 gr smjör
2 stk egg
2 tsk matarsóti
6 tsk lyftiduft
1 tsk kanill
1 tsk negulduft
1 tsk hvítur pipar
2 msk kakóduft
250 gr síróp
1-Hrærið saman sykur og smjör.
2-Bætið eggjum saman við.
3-Blandið þurrefnum saman og setjið saman við.
4-Hrærið saman og setjið sírópið saman við síðast.
5-Mótið litlar kúlur úr deginu og raðið á bökunarplötu.
6-Bakið fallega brúnar.
|
|
Marengs með rjóma og
jarðaberjum |
|
8 stk eggjahvítur
1/4 stk salt
400 gr sykur
3 stk edik
500 ml þeyttur rjómi
Fersk jarðaber
1-Eggjahvítur eru stífþeyttar ásamt salti.
2-Sykur settur útí smátt og smátt. Edikið er sett síðast.
3-Hellið deginu í smurt og hveitistráð eldfast form, ýtið
svolítið upp í miðjunni.
4-Bakið við 150 gráðu hita í 30 mínútur og svo við 175 gráður í
35 mínútur.
5-Látið kólna og smyrjið með rjóma (framreiðið í forminu).
6-Skreytið með jarðaberjum eða jarðaberjum og kiwi.
|
|
Súkkulaðibitakökur með
möndlum
|
|
Þessi uppskrift hefur fylgt fjölskyldunni á aðventunni,
undanfarnar þrjár kynslóðir að minnsta kosti. Fyrir mér eru
þessar kökur, bragð jólanna.
Uppskriftin:
400 gr smjör
200 gr púðusykur
200 gr sykur
500 gr hveiti
2 egg
2 tsk lyftiduft
2 tsk matarsódi
1 bolli muldar möndlur
150 gr suðusúkkulaði í bitum
1/2 tsk vanillusykur
Allt hrært saman og látið hvílast í nokkrar klukkustundir í
kæli. Mótað í litlar kúlur og sett á bökunarplötu. Hafið gott
bil á milli. Ýtið létt á kúlurnar með gaffli. Bakið við 180
gráður fallega brúnar.
|
|
|
|
16 stykki
Deig:
10 gr ger
125 ml volgt vatn
1/2 tsk salt
1 msk ólífuolía
200 gr hveiti
Fylling:
70 gr tómatmauk
1 fínt saxaður hvítlauksgeiri
1 tsk þurrkað oregano
1/2 tsk salt
örl. pipar
200 gr rifinn mossarella-ostur
Hnoðið saman deigið í sprungulausa kúlu og látið hefast undir
stykki, á volgum stað í 45 mínútur. Fletjið út í c.a. 35x35 cm
ferning. Blandið fyllingunni saman og smyrjið jafnt á deigið. Stáið
um 175 grömmum af ostinum yfir og vefjið upp í rúllu. Skerið í 16
jafna snúða og komið fyrir á bökunarplötu. Best að hafa
bökunarpappír undir. Látið hefast aftur í 30 mínútur og stráið síðan
rest af osti á snúðana. bakið í 15 mínútur við 200 gráðu hita.
|
|
Kleinuhringir / Lögguhringir |
|
200 ml mjólk eða vatn
1 1/2 msk þurrger
3 msk sykur
3 egg
50 g lint smjör
1 tsk vanilludropar
Rifinn börkur af 1 sítrónu
550 g hveiti
steikingarfeiti
Vökvinn velgdur þar til hann er nálægt 37°C og hellt í skál.
Gerið sett út í ásamt 1-2 tsk af sykri og látið standa þar til
gerið er farið að freyða. Þá er afgangurinn af sykrinum settur
út í ásamt eggjum, smjöri, bragðefni og hluta af hveitinu. Hrært
vel og meira hveiti bætt út í smátt og smátt, þar til deigið er
vel hnoðunarhæft og klessist ekki við hendur en er þó fremur
lint. Hnoðað vel, mótað í kúlu, sett í hveitistráða skál og
látið lyfta sér við stofuhita í 30-45 mínútur. Þá er það slegið
niður og flatt út í 1 cm þykkt, eða tæplega það. Hringir
stungnir úr því (8 cm þvermál) og afskurðinum svo hnoðað saman í
kúlu sem er flött út og fleiri hringir stungnir út - það ættu að
verða u.þ.b. 14-18 hringir úr deiginu. Raðað á bökunarpappírsörk
og látnir lyfta sér á meðan feitin er hituð. Þegar hún er
180-190°C eru kleinuhringirnir settir gætilega út í, 3-5 í senn
eftir stærð steikingarpottsins, og steiktir í 1 1/2-2 mínútur á
hvorri hlið (þurfa reyndar oftast heldur styttri tíma þegar búið
er að snúa þeim). Teknir upp með gataspaða og látið renna af
þeim á bökunarpappír. Bestir volgir og þá kannski með flórsykri
sigtuðum yfir, eða þeir eru látnir kólna og þykkum glassúr
dreypt yfir. Þeir eru samt alltaf langbestir nýsteiktir.
|
|
Amerískar Pönnukökur |
|
225 gr sigtað hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk salt
2 tsk flórsykur
250 ml mjólk
2 egg
55 gr brætt smjör
Hrærið saman smjör, mjólk og egg. Blandið þurrefnum saman í skál
og hellið mjólkurblöndunni smátt og smátt saman við. Hrærið
saman með sleif eða þeytara. Bakið á viðloðunarfrírri pönnu.
Þessi uppskrift nægir í 10 stórar eða 18 litlar pönnukökur.
Framreiðið með smjöri og hlynsírópi.
|
|
Súkkulaði-trufflukaka
|
|
Þessi kaka er mjög einföld, en merkilega ljúffeng sem desert eða
með góðum kaffibolla. Þessa köku notaði ég mikið þegar ég var í
veiðihúsinu að Kjarrá í Þverárhlíð. Ég lagaði hana alltaf með
2ja daga fyrirvara því mér fannst hún eiginlega betri þá. Ef ég
man rétt þá gaf ég bláberjasorbet með.
150 ml vatn
100 ml glúkósi eða sykursíróp
4 blöð matarlím bleytt upp í köldu vatni
5oo gr dökkt súkkulaði
1 ltr léttþeyttur rjómi
Kakóduft
Þunnur svampbotn
Sterkt kaffi
Jarðaberjamauk
Bakaður er þunnur svampbotn, hann settur í botn á springformi.
bleytið upp með kaffinu og smyrjið létt yfir botninn með
jarðaberjamaukinu. Hitið saman vatn, glúkósa og matarlím.
Brytjið niður súkkulaðið og bræðið saman við. Kælið örlítið og
blandið rjómanum saman við og hellið í formið. Kælið vel og
stráið kakói yfir.
|
|
Súkkulaði og Myntukaka |
|
Súkkulaðifrauðið:
4 eggjarauður
75 gr sykur
75 ml vatn
300 gr brætt suðusúkkulaði
250 ml hálfþeyttur rjómi
Myntufrauðið:
250 ml rjómi
4 stk eggjarauður
75 gr sykur
6 stk matarlímsblöð
300 ml hálfþeyttur rjómi
3 msk myntulíkjör (Crème de Menthe)
Súkkulaðibotn:
2 egg og 4 eggjarauður
200 gr flórsykur
25 gr hveiti
25 gr kartöflumjöl
25 gr kakóduft
Aðferð súkkulaðibotn:
1-Blandið saman kartöflumjöli, hveiti og kakódufti og sigtið.
2-þeytið saman flórsykri og eggjum yfir hita, þar til hræran
þykknar.
3-Bætið þurrefnum saman við.
4-Setjið í smurt form og bakið 18 mín við 180 gráðu hita.
5-Bregðið undir salamander í restina ef með þarf -kælið.
Myntumousse:
1-Sjóðið upp á myntu og rjóma og kælið örlítið.
2-Legerið sykur og eggjarauður saman þar til hræran er orðin
frekar þykk.
3-Hellið þá smátt og smátt rjómanum saman við.
4-Leggið matarlímið í kalt vatn, kreystið og leysið upp í
rjómablöndunni.
5-Kælið hræruna niður fyrir 40 gráður og blandið þeyttum rjóma
saman við.
6-Hellið yfir súkkulaðibotnin og kælið vel áður en
súkkulaðilagið er sett ofaná.
Súkkulaðimousse:
1-Sjóðið saman vatn og sykur í þunnt síróp.
2-Legerið eggjarauður í sírópinu þar til hræran fer að flykkna.
3-Bætið súkkulaðinu saman við og kælið örlítið.
4-Setjið þeyttan rjóma saman við síðast og setjið ofaná
myntulagið.
5-Kælið vel og stráið kakódufti yfir kökuna.
|
|
Laufabrauð |
|
50 gr Smjör
600 ml Mjólk
1 kg Hveiti
30 gr Sykur
Örl. Salt
Sjóðið saman smjör og mjólk. Hnoðað allt vel saman og látið
hvílast í kælí í 6 klukkustundir.
Flatt út, skorið og skreytt samkvæmt venju og steikt í
plöntufeiti.
|
|
Saumaklúbbskaka |
|
4 eggjahvítur
200 g sykur
1 tsk lyftiduft
4 dl kornflex
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar, sykurinn og lyftiduft
sett smám saman útí. Kornflexið er grófmulið og því er síðan
blandað varlega saman við. Þekið tvö tertuform með
bökunarpappír og hellið deiginu jafnt í formin. Bakið við
125-150 gr hita í 50 mín. Losið kökurnar úr forminu og kælið.
Á milli
2 ½ dl rjómi
súkkulaðirúsínur og hnetur
eða epli, bananar, jarðarber
Krem
2 eggjarauður
1 dl rjómi
100 g suðusúkkulaði/myntusúkkulaði
Þeytið eggjarauðurnar mjög vel í hrærivél þar til blandan er ljós.
Bræðið súkkulaðið og rjómann saman í potti og blandið saman við
eggjakremið. Kælið vel. Að lokum er kreminu hellt yfir
kökuna og hún er skreytt að vild t.d. með jarðarberjum.
|
|
Nammikaka nuddarans
|
|
Marengs
4 eggjahvítur
200 sykur
100 g suðusúkkulaði
100 g döðlur
1-2 bananar
2 askja jarðarber
½ l rjómi
Þeytið eggjahvítur og sykur vel saman.
Saxið súkkulaðið og döðlurnar og blandið varlega saman við
deigið. Setjið í tvö form klædd bökunarpappír. Bakið
við 120 gr hita í 45-60 mín. Þeytið rjómann. Skerið
banana og jarðarber í litla bita og blandið saman við helminginn
af rjómanum og látið á milli botnanna. Hinn helmingurinn
af rjómanum er settur ofan á kökuna og hún er síðan skreytt með
jarðarberjum og bræddu súkkulaði.
|
Vöfflur II
2
egg
1 msk sykur
250gr. hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. kardimommu-
1 tsk. vanilludropar
3-4 dl. mjólk
80gr smjörlíki
Sykur og egg hrært saman. Hluta af þurrefni blandað við og hluta af
mjólk þar til allt er blandað vel saman. Bræddu smjörlíki hellt
varlega útí.
|
|
|
Jarðarberjaísterta
|
|
|
Kökubotnarnir
4 eggjahvítur
120 g sykur
½ dl flórsykur
100 hakkaðar hnetur
Ísfylling
½ kg jarðarber (frosin)
100-150 g sykur
5 eggjahvítur
50 g flórsykur
4 dl rjómi
Skreyting
2-3 dl rjómi
jarðarber (fersk)
Stífþeytið eggjahvíturnar og setjið sykurinn
saman við í smá skömmtum. Þeytið flórsykrinum saman við
marengsdeigið þegar það er orðið vel þykkt og stíft.
Hrærið hökkuðu hnetunum vel saman við. Teiknið tvo hringi
á bökurnarpappír eftir springformi (24-26 cm) og skiptið deiginu
í tvennt á pappírinn. Bakið botnana – helst einn í einu –
við 125 gr hita í 35-40 mín. Losið þá botnana frá
pappírnum og kælið á rist.
Gerið næst fyllinguna. Maukið jarðarberin í
matvinnsluvél, blandið sykrinum saman við og hrærið þar til
sykurinn er uppleystur. Þeytið eggjarauður og flórsykur
létt og ljóst. Blandið eggjunum saman við
jarðarberjamaukið og síðan þeyttum rjómanum. Frystið í 1-1
½ klst. eða þar til ísinn er léttfrosinn. Setjið annan
botninn í springformið og jafnið ísnum þar yfir. Setjið
hinn botninn yfir og þrýstið vel. Geymið í frysti í minnst
3 klst
Þeytið þá rjómann og smyrjið yfir kökuna og á
hliðarnar og frystið aftur. Um 20 mín áður en kakan er
borin fram er hún tekin úr frystinum og skreytt með ferskum
jarðarberjum.
Fyrir 8-12 manns, þessa má vel geyma.
|
|
Kransakökubitar
|
|
500 gr. marsipan
300 gr. sykur
125 gr eggjahvítur
hrært saman og sett í spruatupoka
Skreyting
200 gr. möndluflögur
70 gr. súkkulaði
Þekið skúffu með möndluflögum sprautið
massanum í lengjurá. Sett í bita
og velt upp úr flögunum. Bakað við
250° í 10 - 12 mín. Súkkuðaði sétt á
botnin á kökunum.
|
|
Súkkulaði
terta |
|
200 gr. smjör
200 gr. súkkulaði
1 dl. hveiti
4 egg
3 dl. sykur
100 gr fínt malaðar hersilhnetur
Bræðið saman smjör og súkkulaði í
vatnsbaði og látið rjúka mestann hitann
úr því.
Þeytið saman egg og sykur og hellið því
næst bræddu súkkulaði og smjörinu
aman við.Að lokum hrærið varlega saman
við hveiti og hnetum. Setja í springform og
baka við 180° í 35 - 50 mín.
Kakan á að vera blaut.
Skreytt með flórsykri og ferskum ávöxtum
t.d kíví eða jarðarberjum.
|
|
Bananasplitt |
|
2 bollar haframjöl mulið
1 1/2 bolli smjör eða smjörlíki
2 bollar flórsykur
2 egg
5 bananar
1 dós kurlaður ananas
2 pelar rjómi
valhnetukjarnar
koktel kirsuber
Hálfum bolla af smjöri blandað saman við
kexmylsnuna og sett í botninn á
aflöngu móti.
Þeytið vel saman einum bolla af smjöri
eggjunum og flórsykrinum og smyrjið
yfir kexbotninn. Bananarnir sneiddir og
raðað yfir. Safinn látinn renna af
ananasnum og því síðan smurt yfir
bananana.
Þeyttur rjómi látinn ofan á og skreytt
með muldum valhnetum og kirsuberjum.
Kælt yfir nótt.
|
|
Tartalettur |
|
1stk. Brie m/gráðostarönd
1stk rauð paprika
1/2ds sveppir
200gr skinka
1peli kaffirjómi
allt sett í pott og jafnað með
sósujafnara sett í tartalettur og hitað
Borið fram með sultu
dugar í 10-15 tartalettur
|
|
Mars terta |
|
4dl púðursykur
5. eggjahvítur
Þetta stífþeytt saman
Bakað við 130gr í 1og1/2 tíma ekki
á blæstri
Á milli:
1/2l rjómi
2st mars brytjað samanvið
Krem:
60gr smjör
3stk Mars
þetta sett í pott og brætt saman
hrært vel á meðan
Síðan eru fimm rauður og 3msk sykur þeytt
vel saman
og svo mars og
smjörhrærunni blandað
vandlega samanvið
|
|
Heitt
rúllutertu brauð |
|
250g
sveppasmurostur ,1/4dós aspas, 200 gr skinka, 3 msk majones, . smá
súrmj+ol
ostur settur í pott ásamt
aspassafa í skömmtun þar til bráðið tekið af hellu. majoes skinka og
aspas sett út í. Smurt á rúllubrauð rúllað upp, majones og súrmjólk
smurt utan á ostur og paprikuduft sett ofaná hitað við 200 gr í
10-15 mín.eða þar til osturinn er bráðna
|
|
Stóri Dímon:Brauðréttur |
|
1 brauð
1 stórt skinkubréf
200 gr. sveppir
1/2 dós apríkósur
1 1/2 peli rjómi
1 stóri dímon
rifinn ostur.
Osturinn bræddur við vægan hita í rjómanum. Sveppirnir
steiktir í örlitlu
smjöri. Brauðið rifið niður í eldfast mót. Apríkósurnar
brytjaðar niður
og sett yfir brauðið ásamt safanum af þeim. Sveppir og skinka
sett yfir
og að lokum rifinn ostur og í ofn.(hitað þar til rétturinn er vel
heitur í gegn)
|
|
Sítrónukaka |
|
Marenge: 5 eggjahvítur, 2 1/2 dl
sykur
eggjahvítur þeyttar sér og sykri hrært saman við,sett
í form og bakað við 250° (200° blástursofn) og slökkt um leið látið
vera yfir nótt og alls ekki opna ofninn næstu 5 klst
KREM: 5 eggjarauður,1dl sykur,safi og rifinn sítrónubörkur af 1/2
sítrónu,75 gr smjör
Allt sett í pott nema smjör,suðan látin koma upp (má ekki sjóða)
þeyta þar til þykknar
tekið af hellunni og látið kólna aðeins þá er smjörinu hrært í þar
til það bráðnar
kælið kremið og smyrjið yfir marenge botninn þeytið 2-3 dl af
rjóma og setjið yfir og skreytið með bræddu suðusúkkulaði
|
|
Kóngabrauð |
|
Þetta er hversdagskaka,
ákaflega fljótgerð og mjög góð.
6 bollar(stórir) hveiti
3 bollar sykur
1/2 stk smjörlíki
1 egg
6 tsk. lyftiduft
mjólk
rabarbarasulta
kanilsykur
Látið þurrefnin á borð eða í víða
og grunna skál. Myljið smjörlíkið saman við og hrærið eggið og
mjólkina upp í. Passið að deigið verði ekki þurrt áður en það
hnoðast saman, betra er að hnoða meira hveiti upp í á eftir.
Skiptið deiginu í tvennt. Fletjið
hvorn helming út þannig að hann sé u.þ.b. þrisvar sinnum lengri en
breiddin er. Passleg þykkt er 3/4 cm. Smyrjið síðan rabarbarasultu á
deigið og rúllið upp. (Á að vera eins og mjög löng rúlluterta) Vætið
rúlluna með mjólk (eða eggjamjólk) og stráið kanilsykri yfir. Setjið
eins og S á vel smurða plötu (má hafa smjörpappír undir).
Bakið við 200°, u.þ.b. 30 mínútur. Skerið í sneiðar um leið og neytt
er.
P.S. Til tilbreytingar má taka
hluta af deiginu og þynna með mjólk og bæta kakói saman við. Er það
þá notað í stað sultu.
|
|
Flatkökur |
|
1 kg. hveiti
1/2 kg. heilhveiti
250 gr. haframjöl
sjóðandi vatn
Blandið mjölinu saman og vætið í
með sjóðandi vatninu.Ath! Passið að hræra nægu vatni saman við,
hnoðið frekar upp í á eftir. Hnoðið eins hratt saman og þið getið.
Búið til rúllu og skerið í passlega bita. (rúllan u.þ.b.5 cm. í
þvermál og bitarnir ca. 4 cm.á breidd. Mótið kökurnar fyrst í
höndunum en ljúkið svo við að fletja þær út með kefli. Pikkið vel
með gaffli. Ath! Það er mjög mikilvægt að þið náið að hnoða deigið
saman áður en það kólnar. Annars verða kökurnar seigar. Stillið
plötuna á hæsta hita. Ég steiki flatkökurnar á uppgjafa
pönnukökupönnu (en þá er ekki er hægt að nota hana í neitt annað
síðar), en sumir steikja þær beint á plötunni. Þegar pannan er orðin
vel heit, er kakan sett á hana og steikt þar til hún þornar. Ath!
Það tekur mjög skamma stund að steikja kökurnar, í mesta lagi 15
sekúndur hvoru megin. Bregðið spaða undir kökurnar á meðan þær
steikjast, þannig að lofti undir þær. Þetta varnar því að
brunablettir komi í kökurnar og þarf að gera allan tímann meðan
verið er að steikja. Staflið upp og vefjið leirþurrku utan um meðan
kólnar.
|
|
Lagterta
brún -
hrærð
|
|
500 gr. hveiti
350 gr. sykur
250 gr. smjörlíki
2 egg
4 msk. kakó, kúffullar
1 tsk. negull
2 tsk. kanill
2 tsk. sódaduft
2 1/2 dl. mjólk
Smjörkrem
250 gr. smjörlíki
1 kg. flórsykur
1/2 bolli sterkt lagað "Neskaffi"
örl. vanilludropar ef vill
Hrærið smjörlíki og sykur vel
saman,
bætið eggjum og mjólk varlega út í.
Blandið þurrefnunum saman og
setjið út í hræruna. Sett á vel smurða
bökunarplötu og bakað við 200°
ca. 15 mín Ath! Þessi uppskrift
dugar á 2-3 plötur, eftir stærð þeirra.
Látið botnana kólna vel og setjið síðan
smjörkrem á milli.
Hálfbræðið smjörlíkið og hrærið
síðan
öllu saman. Ath! Sumum finnst betra
að hafa meira af smjörlíkinu og minna
af flórsykri, en það er smekksatriði.
|
|
Ávaxtakaka
|
|
(1 stórt form)
2 bollar hveiti
1/2 bolli sykur
2 tsk. lyftiduft
1 egg
mjólk
ávaxtamauk inn í kökuna
kanelsykur
Notið vel smurt form með lausum
botni. Hnoðið deigið í skál og hafið það frekar blautt. Takið
smávegis frá af deiginu en þrykkið restinni inn í formið og upp með
brúnum þess. Smyrjið síðan ávaxtamaukinu á deigið og skellið
frátekna deiginu í smádoppum þar ofan á. Stráið kanelsykri yfir.
Bakið við 200°
|
|
Hvít lagkaka, hvít með sultu |
|
500 gr.
500 gr.
2
1 kg
2 tsk.
1 tsk.
2 tesk.
|
sykur
smjörlíki
egg
hveiti
lyftiduft
hjartarsalt
vanilludropar
rabarbarasulta eða einhver önnur sulta til að hafa á
milli botnanna
|
Öllu (nema sultunni auðvitað)
hnoðað saman. Deiginu skipt í 4 jafnstóra hluta. Deigið flatt þunnt
út í ferhyrndar kökur næstum því eins stórar og bökunarplatan. Bakað
þar til fallega brúnt, í svona 5-10 mínútur á að giska.
Kökuplöturnar síðan lagðar saman með sultu á milli, fallegasta
platan efst. Lagkökunni síðan pakkað vel inn í eldhúsfilmu eða
álpappír og látin bíða í 2-3 daga til að mýkjast. Þá er hún skorin í
6-8 stykki og hverju stykki pakkað vel inn, umbúðirnar þurfa að vera
loftþéttar svo kakan harðni ekki. Geymist vel í frysti.
|
|
lagkaka með kremi |
|
1 kg.
500 gr.
400 gr.
200 gr.
2-3
2 tsk.
2 tsk.
2 tsk.
2 tsk.
2 tsk.
2 tsk.
6 tsk. |
hveiti
smjörlíki
sykur
síróp
egg (eftir stærð)
kanill
kakó
hjartarsalt
allrahanda
negull
engifer
lyftiduft |
Öllu hnoðað saman. Deiginu skipt
í 4 jafnstóra hluta. Deigið flatt þunnt út í ferhyrndar kökur næstum
því eins stórar og bökunarplatan. Bakað þar til fallega brúnt, í
svona 5-10 mínútur á að giska.
Kökuplöturnar síðan lagðar saman með smjörkremi á milli, fallegasta
platan efst. Lagkökunni síðan pakkað vel inn í eldhúsfilmu eða
álpappír og látin bíða í 2-3 daga til að mýkjast. Þá er hún skorin í
6-8 stykki og hverju stykki pakkað vel inn, umbúðirnar þurfa að vera
loftþéttar svo kakan harðni ekki. Geymist vel í frysti.
|
|
Hafrakex |
|
400 gr.
300 gr.
200 gr.
1+1/2 tsk.
1+1/2 tsk.
250 gr.
|
haframjöl
hveiti
sykur
lyftiduft
hjartarsalt
smjörlíki
mjólk eftir þörfum |
Öllu blandað saman og hnoðað.
Mjólk bætt í ef þarf, gæta þess þó að setja ekki of mikla mjólk, svo
deigið verði of blautt. Deigið flatt frekar þunnt út og kexkökurnar
skornar út undan glasi. Kökurnar pikkaðar með gaffli, settar með
hæfilegu millibili á smurða bökunarplötu og bakaðar í um það bil 10
mín. við 200°C hita.
Sérlega gott hafrakex, best smurt með smjöri
|
|
Brúnterta |
|
125 gr.
1 bolli
2
1/2 bolli
1+1/2 bolli
1 tsk.
1 tsk.
1/2 tsk.
2 msk.
1/2 bolli
1 tsk. |
smjörlíki
sykur
egg
volgt vatn
hveiti
matarsódi
lyftiduft
salt
kakó
mjólk
vanilludropar |
Smjörlíki og sykur hrært vel
saman. Eggin sett útí og aftur hrært vel. Hveitið mælt og matarsóda,
lyftidufti, salti og kakaó blandað saman við það og þessu síðan
hrært saman við. Að síðustu er mjólkin og droparnir sett útí og
hrært vel. Sett í 2 smurð tertuform af meðalstærð og bakað við um
það bil 200°C í um það bil 30 mínútur.
|
|
Brúnkaka 2 |
|
250 gr.
2
375 gr.
500 gr.
1 tsk.
1 tsk.
1 tsk.
2+1/2 dl.
|
smjörlíki
egg
púðursykur
hveiti
matarsódi
negull
kanill
mjólk
rúsínur |
Sykur og egg þeytt, smjörlíkið síðan sett útí og
þessu hrært vel saman. Hveitið vigtað og lyftidufti, kryddi og
rúsínum hrært saman við hveitið áður það er sett útí það sem búið er
að hræra. Mjólkin hrærð í síðast. Bakað við meðalhita. Deigið passar
í eitt hringform eða tvö löng form.
Aths. ömmu:
Auk neguls og kanils má nota ýmislegt annað krydd í þessa köku, svo
sem engifer, allrahanda, múskat, kardimommur eða "brúnkökukrydd". Ég
breyti sífellt til og nota 2-4 kryddtegundir til skiptis og í magni
eftir hvernig liggur á mér þann daginn.
|
|
Brúnkaka |
|
1 Egg
150 gr.
Púðursykur 1 ½ dl.
50 gr.
Smjörlíki
175 gr.
Hveiti 2 ½ dl.
1 tsk.
Sódaduft
2 tsk. Kanill
1 tsk. Negull
1 tsk.
Engifer
½ tsk.
Allrahanda
2 msk. Kako
1 ½ dl.
Súrmjólk
Döðlur eða
rúsínur eftir smekk.
Egg og sykur
þeytt saman, smjörlíkið hálfbrætt og hrært samanvið. Síðan er
þurrefnunum blandað í ásamt döðlum/rúsínum.
Bakað
við 170°í ca. 50 mínútur.
Þessi kaka er
ódýr og mjög góð.
Ágætt að baka
í 2 litlu formunum og frysta annað.
|
|
Sænskar kókóskúlur |
|
100 gr. smjör
1 dl sykur
3 dl haframjöl
2 msk kakó
1/2 tsk vanilludropar
2 msk kalt kaffi
Allt saman sett
saman í skál, blandað saman og rúllað í litlar kúlur. Kúlurnar svo
rúllaðar í gegnum perlusykur eða kókós. Setjið svo í ísskáp í
smástund
|
|
Sörur 3 |
|
|
Botn:
100g möndlur,malaðar
2 eggjahvítur
1 1/2 dl sykur
Krem:
3/4dl sykur
1/2dl vatn
3 eggjarauður
150g smjör
kakó eftir smekk
Ofaná:
100g suðusúkkulaði
Blandað saman
möndlum og sykri. Þeytið eggjahvíturnar og blandið
möndlusykurblöndunni saman við. Setjið með teskeið á
plötu klædda bökunarpappír og breiðið þær þunnt út.
Bakið í u.þ.b.10 mín við 200-225°C eða 160°C blæstri.
Kælið.
Hitið vatn og sykur í potti og látið sjóða. Bráðin er
hæfilega heit þegar dropi sem settur er í kalt vatn
stífnar. Hellið þessu í mjórri bunu út í eggjarauðurnar
og þeytið á meðan. Kælið eggjarauðuhræruna vel áður en
smjörinu er bætt við. Hrærið smjörið þar til það verður
mjúkt og setjið örlítið í einu saman við
eggjarauðuhræruna. Hrærið vel í og bætið síðan kakói út
í eftir smekk. Bræðið súkkulaðið. Smyrjið
eggjarauðukreminu neðan á kökurnar. Kælið. Penslið yfir
kremið með bræddu súkkulaðinu. kælið. Geymið í vel
lokuðum plastpoka í kæli eða frysti.
|
|
|
Súkkulaðibitakökur
|
|
1 bolli hveiti
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
150 gr smjörlíki
6 msk sykur
6 msk púðursykur (ekki verra ef hann er ljós)
1/2 tsk vanilludropar
1/4 tsk vatn (maður getur bara hrækt í skálina, þetta er svo lítið
magn!)
1 egg
100-200 gr Suðusúkkulaði, niðurbrytjað (ég kaupi 200 gr en ét alltaf
eitthvað af því svo það kemst aldrei allt í uppskriftina).
Fyrst er hveiti,
matarsóda og salti syktað saman og lagt til hliðar. Því næst er
smjörlíki, sykri, púðursykri vanilludropum, vatni og eggi þeytt
saman þar til blandan er orðin létt og ljós. Síðan er hveitinu og
co. hrært útí og að síðustu niðurbrytjuðu súkkulaðinu. Maður getur
líka látið 1 bolla af söxuðum heslihnetum nema ef maður er með
ofnæmi fyrir þeim þá myndi ég sleppa þeim. Ég læt þær aldrei í.
Bakað við 175 gráðu hita í 10-12 mín
|
|
Engiferkökur |
|
800 gr. hveiti,
400 gr smjörlíki,
2 bollar sykur,
1/2 kanna sýróp (t.d. eins og maður drekkur kaffi úr í HÍ, ca 300
gr),
2 kúfaðar tsk matarsódi,
2 kúfaðar tsk kanill,
2 kúfaðar tsk negull,
2 kúfaðar tsk malað engifer,
2 egg
Allt sett í
hrærivél og hrært í deig. Litlum kúlum raðað á bakaraplötu (size of
an eye ball). Bakað í 8-10 mín. við 180 gráður
|
|
Hnetusmjörssmákökur |
|
1 1/3 bolli
hveiti
1.tsk natron
1/2 tsk salt
1/2 bolli púðursykur
1/2 bolli smjörlíki
1/2 bolli hnetusmjör
1 egg
2 msk.mjólk
1 tsk vanilludropar
Suðusúkkulaði til skrauts
Hrærið saman öllu
sem í deigið á að fara.Mótið kúlur og veltið þeim uppúr sykri.Bakið
kökurnar við 200 gráður í 10-12 mín.Stingið hálfum súkkulaðibitum í
kökurnar um leið og þær eru teknar út úr ofninum.
|
|
Amerískar súkkulaðibitakökur
ca 70 stk |
|
1 bolli mjúkt
smjör
3/4 bollar sykur
3/4 bollar púðursykur (pakkaður)
1 tsk. vanilludropar
2 egg
2 1/4 bollar hveiti
1 tsk. matarsódi
1/2 tsk. salt
2 bollar súkkulaðidropar
1 bolli saxaðar hnetur
Hitið ofninn í
190°C
Þeytið smjör, sykur og vanillu þar til ljóst og létt.
Hrærið eggjum útí (brjótið þau fyrst í glas eða skál ef ykkur finnst
eggjaskurn ekki góð)
Blandið saman hveiti, sóda og salti, hrærið varlega útí
smjörblönduna. Þeytið vel.
Hrærið súkkulaði og hnetum útí. Ekki er verra að vera ekkert að
nískast með súkkulaðið. Ég sturta alltaf hálfum aukabolla útí. Hvítt
súkkulaði er sérstaklega gott í þessar kökur.
Ca. 1 tsk. af deiginu er mátuleg stærð. Hafið plötuna ósmurða (gott
að hafa smjörpappír eða tefflonfilmu undir).
Bakið í 8-10 mínútur. (Ef þú ert með blástursofn, lækkið þá hitann í
170°C og styttið bökunartímann.
Tilbrigði: Ef þú vilt fjölga smákökusortunum fyrir jólin á auðveldan
hátt gerðu þá eina uppskrift af deiginu. Slepptu megninu af
súkkulaðinu og öllum hnetunum. Skiptu deiginu í nokkra hluta og
settu súkkulaði í einn hluta, hnetur og súkkulaði í annan, M&M í
einn og t.d. Rice Crispies, kornfleks eða gott sem þú átt í skápnum.
Þetta vekur mikla lukku hjá börnunum og gaman að leyfa þeim að prófa
sig áfram.
|
|
Piparkökur x |
|
500 gr hveiti
250 gr sykur
250 gr smjörlíki
375 gr sýróp
6 tsk lyftiduft
2 tsk matarsódi
1 tsk negull
1 tsk kanill
1 tsk kakó
1 tsk season all
1 tsk engifer
1 tsk pipar (hvítur)
1 egg
Hrærið öllu saman
í skál. Ágætt að setja blautefnin fyrst.
Hnoðið deigið, fletjið út og mótið í þunn munstur eða litlar kúlur.
Bakist við 175 gráður í 10 til 12 mínútur.
Ath. Sum piparkökudeig þurfa að standa í kæli marga tíma áður en þau
eru notuð en þetta deig má baka strax.
|
|
Kurltoppar |
|
3 eggjahvítur,
200 gr. púðursykur,
150 gr. rjómasúkkulaði eða 2 poka
súkkulaði spæni,
2 poka nóa lakkrís kurl
Stífþeytið
eggjahvítur og sykur,
setjið hitt varlega út í.
Bakað í 20 mín. við 150°C hita.
|
|
Mömmukökur |
|
500 gr Hveiti
125 gr Smjörlíki
250 gr Sýróp
2 tsk Engifer
1 tsk Natron
1 stk Egg
Krem:
200 gr flórsykur
100 gr smjör (linað ekki brætt)
vanillusykur... slatti
Takið fyrst eina
skál, gott að það sé hrærivél sem getur hnoðað, Setjið svo allt
saman út í, eitt í einu og hrærið svo saman.
Byrjið að hræra á lágum snúning hraðinn er svo aukinn eftir
tilfinningu hvers og eins.
Gott er að taka deigið úr hrærivélinni og hnoða það í höndunum, á
borði, svona í restina.
Einnig er gott að hafa smjörlíkið lint, t.d láta það standa yfir
nótt á borðinu, ekki bræða það í potti eða örbylgjuofni.
Látið deigið inn í ískáp í einhvern tíma (yfir nótt)
og fletjið svo út og gerið hringlaga kökur. Hægt er að nota glas.
Bakið við 175 c° þar til þær eru ljósbrúnar.
Látið kólna og gerið kremið á meðan.
Krem:
Hrærið efnunum saman og smakkið aðeins til, ef smjörbragð er af
kreminu skellið örlítið meiri flórsykri og vanillusykri. Smyrjið á
kökurnar og gerið svona kökusamlokur, sem sagt 2 og 2 saman.
Setjið í dunk, gott er að henda einni brauðsneið með svo þær haldist
linar.
|
|
Smjörkökur |
|
2 bollar smjör
1 bolli púðursykur
1/4 tsk. salt
4 bollar hveiti
Smjörið verður að
vera við stofuhita. Hitið ofninn á 150°C. Hrærið smjörið þar til það
er orðið eins og þeyttur rjómi, í sér. Hrærið sykrinum út í. Saltið.
Setjið hveitið út í, einn bolla í einu, hrærið eftir hvern bolla.
Hnoðið deigið á borði sem búið er að strá hveiti á. Mótið kökur að
þeirri lögun sem þið viljið. Sniðugt að nota kökujárn. Setjið á
ósmurða plötu og bakið í 20 mín., eða þar til kökurnar eru orðnar
ljósbrúnar.
|
|
Banana- og döðlusmákökur |
|
2 bananar,
maukaðir
1 bolli döðlur, saxaðar
1/3 bolli matarolía
2 bollar haframjöl
1/2 bollar saxaðar valhnetur
1/2 tsk. salt
1 tsk. vanilla
Hitið ofninn á
180ºc. Blandið saman banönum, döðlum og matarolíu. Bætið höfrum,
hnetum, salti og vanillu út í; blandið lítillega. Látið standa í
nokkrar mínútur. Setjið með teskeið á bökunarpappír á bökunarplötu.
Bakið í 25 mín. eða þar til þær eru tilbúnar
|
|
Kókoskúlur |
|
400 gr hveiti
200 gr kókosmjöl
1/2 tsk hjartarsalt
400 gr smjörlíki
250 gr sykur
6 tsk kakó
2 stk egg
1 tsk vanilludropar
Blanda saman sykri og kókosmjöli til að láta kúlurnar ofan í
Þurrefnin öll
sett saman í skál eða vask síðan smjörlíkið og eggin,hnoðað vel
saman.Gott að láta vera í ísskáp yfir nótt.Mótið litlar kúlur og
dýfið toppnum á þeim ofan í sykur og kókosmjöl blönduna.Bakað við
200°í 5-7 mín.
|
|
Kókoshringirnir hennar ömmu |
|
250 gr smjör
250 gr hveiti
250 gr sykur
250 gr kókosmjöl
1 egg
Öll þurrefnin
sett fyrst,síðan egg og smjörlíki,hnoðað vel saman.Gott að láta
degið standa í ísskáp yfir nótt.Bakað við 200°í 5-7 mín
|
|
Konfekt |
|
Rjómasúkkulaði
Núgat
Hnetur eða möndlur
Súkkulaði brætt
með núgat og hinu blandað saman og sett á lítil form.
|
|
Loftkökur |
|
500
g flórsykur
8 tsk kakóduft
1 stk egg
1 tsk hjartasalt
1. Blandið saman
þurrefnum, setjið egginn saman og hnoðið.
2. Setjið degið í hakkvél með loftköku móti (slétt nyðri og riflað
uppi) Búið til lengur og hafið kökurnar u.þ.b. 5 sm langar.
3. Bakið kökurnar í miðjum ofni við 200 c° í 10-20 mín eða þar til
þær lyftast.
|
|
Bóndakökur |
|
200
gr. smjörlíki
250 gr. sykur
1 stk. egg
300 gr. hveiti
75 gr. kókosmjöl
1 tsk. natron
2 msk. sýróp
Mónu súkkulaðidropar
(þessir gömlu góðu)
Hræra sykur og
smjörlíki létt og ljóst.
Bæta egginu út í og hræra vel.
Bæta þurrefnunum saman við og hnoða aðeins upp í deiginu.
Sýrópið fer síðan í síðast.
Deigið er hnoðað saman (sennilega þarf að bæta aðeins hveiti út í
þegar verið er að hnoða upp í deiginu).
Gerðar eru litlar kúlur og einn súkkulaðidropi settur ofan á og
bakað við 200 ° c í 8-10 mín.
|
|
Kanilsnúðar Fíu |
|
500
gr Hveiti (eftir þörfum)
250 gr Sykur
200 gr Smjör eða líki
1 tsk Hjartarsalt
1 1/2 tsk Lyftiduft
2 dl Mjólk
Mjólk
Kanilsykur: 1tsk kanill og ca 1 dl sykur
Þurrefnunum
blandað saman á borðplötu. Smjörið bitað niður og blandað með
þurrefnunum. Hola gerð í miðju deigsins og mjólkinni hellt í holuna.
Deigið er þá hnoðað saman. Ef það er of blautt, blandið þá meira
hveiti saman við þangað til að það loðir ekki við fingurna.
Skipt í 2 helminga og flatt út. Örlítið af mjólk helt yfir útflatta
deigið til að bleyta aðeins í þvi og binda kanilsykurinn. Dreifið úr
mjólkinni með hreinum fingrum eða pensli. Kanilsykrinum stráð vel
yfir allt deigið.
Deigið er því næst rúllað upp og skorið niður í ca 2cm sneiðar og
raðað á smjörpappír á bökunarplötu með ca 2 1/2 cm millibili.
Bakað í blástursofni við 170°C þar til snúðarnir eru orðnir fallega
gylltir. Þeir verða harðari eftir því sem þeir eru dekkri.
|
|
Súkkulaði kökur. |
|
200,gr, hveiti
200, gr,smjörliki
100,gr, kokosmjöl
125,gr, sykur
3,tsk, kakó
1/4,tsk, hjartasalt
1, egg
vanilla
smá salt
|
|
Kornflex smákökur |
|
4 eggjahvítur
2 bollar púðursykur > stífþeytt.
4 bollar kornflex
2 bollar af kókosmjöli blandað saman við
100 gr af smáttsöxuðu suðusúkkulaði
1 tsk af vanilludropum
|
|
Sörur 2 |
|
3 Eggjahvítur
3 1/2 dl flórsykur
200 gr möndlur má sleppa
krem
3/4 dl sykur
3/4 dl vatn
3 eggjarauður
100 gr smjör (lint
2 msk kakómalt
Undir köku
250 gr síríus súkkulaði
stífþeytið
eggjahvíturnar blandaðmöndlunum og flórsykri varlega saman við bakið
við 180 °c í 10 min. Krem sjóðið saman sykur og vatn í síróp, ekki
mjög þykkt. Hrærið eggjarauðurnar vel saman hellið sírópinu í mjórri
bunu út í eggin meðan er verið að hrært er setið sian smjörið og þar
á eftir kakómaltið.Setjið kremið á kaldar kökurnar og stingið þeim í
frystir. Þekið kremið með súkkulaðibráðinni þegar það er orðið kalt.
Geymið kökurnar í kælir
|
|
Bananaterta 2 |
|
Botnar
(2)
4 egg
100 gr. hveiti
200 gr. sykur
Bananakremið
175 gr. smjörlíki
150 gr. flórsykur
3 stk. stappaðir bananar
Súkkulaðibráð(kremið)
150 gr. flórsykur
2 msk. kakó
sjóðandi vatn
Bakaðu botnana, settu kremið á milli og súkkulaðið ofan á.
|
|
Kanelsnúðar |
|
Hér eru einfaldir kanelsnúðar.
1 kg hveiti
300 gr smjörlíki
300 gr sykur
2 egg
4 tsk lyftiduft
1 tsk hjartarsalt
2 1/2 dl mjólk
|
|
Kotasælubollur |
|
2 tsk þurrger
1 1/2 dl volgt vatn
1 dl kotasæla
4 dl hveiti
1/2 dl klíð eða fræ
1 tsk sykur (má sleppa)
1 msk matarolía
(12 bollur)
Leystu gerið upp í vatninu. Blandið saman við afganginn af
hráefninu. Mótaðu 12 bollur úr deiginu. Penslaðu eða úðaðu vatni
yfir bollurnar. Settu sesamfræ ofan á þær ef vill. Láttu bollurnar
lyfta sér í hálftíma. Bakaðu bollurnar við 225°C í miðjum ofni í um
15 mínútur.
Svaka góðar volgar með smjöri og osti. |
|
Gróft brauð |
|
Öllum þurrefnunum blandað saman og vætt í með vatninu. Hnoðað vel
saman og látið hefast í 30 mínútur. Klútur breiddur yfir Hnoðað
aftur og skipt í 2-3 brauð. Látið hefast aftur í 30 mínútur með
klútinn yfir. Penslað með eggi eða mjólk. Gæta þarf þess að eggið
eða mjólkin séu ekki köld.
Bakað við 250°C í ca. 25 mínútur
|
|
Muffins |
|
-
2 egg
2 dl sykur
1 dl mjólk
100 gr brætt smjörlíki
3 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk vanilla
100 gr súkkulaðibitar
Þeytið fyrst saman egg og sykur og blandið svo hinu öllu saman við.
Bakið svo við 180°c í um 10 mínútur.
|
|
Þúsundeyjabrauðterta |
|
Blandið Þúsundeyjasósu og sýrðum rjóma saman. Takið frá u.þ.b. 2/3
bolla til að smyrja á brauðtertuna í lokin. Blandið öllu nema
brauðinu saman í skál. Smyrjið salati á milli brauðlaga og smyrjið
brauðtertuna að lokum. Skreytið að vild.
|
|
Vínarbrauð |
|
Egginu skipt í tvennt og helmingur settur til hliðar til að smyrja
ofan á vínarbrauðin, hinn helmingurinn fer í deigið. Öllu (nema
sultunni) hnoðað saman og mjólk bætt út í eftir þörfum þannig að
deigið loði vel saman en sé meðfærilegt til að fletja út.
|
|
Döðlubrauð2 |
|
100 gr. Döðlur
2 dl. Vatn
40.gr. Smjör
200 gr. Hveiti
160 gr. Púðursykur
1 tsk. Lyftiduft
1 stk. Egg
|
|
Marmarakaka |
|
|
|
Pönnukökur 2 |
|
|
|
Ananasostakaka |
|
Botn:
Fylling:
300 gr rjómaostur
2 tsk vanilludropar
¾ bolli sykur
1 dós ananaskurl
Ofan á:
|
|
Kókos bounty kaka |
|
-
4 eggjahvítur
200 gr sykur
200 gr kókosmjöli
Krem
4 eggjarauður
60 gr flórsykur
50 gr smjör
100gr súkkulaði
|
|
Vanilluostakaka |
|
-
Hafrakex
Brætt smjör
1 peli rjómi þeyttur
1 stór dós vanilluskyr
Góð berjasulta
|
|
Jólakaka |
|
Einnig má setja möndludropa í stað vanillu og kardimommudropa, og
súkkulaðibita í stað rúsínur.
|
|
Piparkökur |
|
-
250 gr hveiti
2 tsk kanill
1 tsk negull
1 tsk engifer
1/8 tsk pipar
1 tsk matarsódi
90 gr smjörlíki
1 dl og 3 msk sykur
1/2 dl sýróp
1/2 dl mjólk
Öllu blandað saman - hnoðað - flatt út og mótaðar kökur.
Bakað í 175° í 10 mín.
|
|
Bananaterta |
|
Botn
Púðursykur
260 gr
Púðursykur og smjörlíki hrært vel saman. Eggjum
Smjörlíki
125 --
bætt í smátt og smátt og hrært vel á milli.
Egg
130 --
Hveiti
250 --
Þurrefnum blandað saman og sigtuð. Bætt út í
Kako
25 --
hræruna ásamt mjólkinni og deigið hrært á
Lyftiduft
½ tsk miðlungshraða í 2 mínútur.
Natron
½ tsk
Mjólk
100 ml
Deig alls
880 g
Vigt pr/ botn 350 g í
kringlótt form 24 cm. í þvermál eða 420 g í form 28 cm. í þvermál.
|
|
MARMARAKÖKUR
OG SANDKÖKUR |
|
Sykur
1660 g Sykur og
smjörlíki hrærist í 3 mín
Smjörlíki
1250 g eggjum bætt í smátt
og smátt og
Egg
970 g hrært vel á milli,
skafið úr hliðum og botni
Vatn
1250 g Vatn sett út í (ekki
hrært)+ vaniiludropar.
Hveiti (köku)
3000 g þurrefni sigtuð
saman og bætt út í. Deigið
Vanilludropar
27 g hrært á miðlungshraða
í 2 mínútur.
Undanrennuduft
125 g
Lyftiduft
80 g
--------------------------------------------
Grunndeig alls:
8.362 g
Hægt er að búa til nokkrar
kökutegundir úr þessu grunndeigi:
-
Marmarakökur :
1800 g grunndeig fyrir hvíta
hlutann og 1000 g gr.d. til að nota í brúna hlutann.
Brúni hlutinn: 1000 g
grunndeig
10 g natrón (matarsódi)
50 g kakó
1 stk egg
Hræra þetta þangað til það er
orðið samfellt á litinn.
Skipta deiginu í formkökuform:
270 g hvítt deig og 150 g brúnt deig. Gott að draga ofan í formið
með skeið til að fá fram marmaraáferð í deigið.
-
Sandkökur með súkkulaðibitum:
2300 g grunndeig
160 g súkkulaðibitar
Hræra deigið í þangað til
það er orðið samfellt. Vigta í formk.form ca 410 g/stk
-
Sandkökur
með ávöxtum:
1300 g grunndeig
200 g
ávextir t.d. döðlur, kirsuber eða annað, setja 50 g hveiti og blanda
saman við ávextina áður en þeim er bætt út í grunndeigið
Hræra deigið þangað
til það er orðið samfellt. Vigta í formk.form ca 430
g/stk
-
Sandkökur:
1250 g grunndeig
20-30 g
appelsínupasta eða rifinn appelsínubörkur
Hræra deigið þangað til það er
orðið samfellt. Vigta í formk.form ca 410 g/stk og
e.t.v. strá perlusykri ofan á kökuna áður en hún er bökuð.
Kökurnar eru allar settar inn í
200 °C, lækkað í 180°C í u.þ.b. 45 mín, prófa með prjóni.
|
|
Mömmuskonsur |
|
30 gr
Púðursykur
150 gr
Smjörlíki
2 stk
Egg
500 gr
Hveiti
20 gr
Lyftiduft
½
tsk
Salt
180 g
Mjólk
½ tsk
Kardimomma
Öllu
blandað saman í skál. Hrært rólega með spaða í 3 mín.
Skafa niður
(bæta út í 150 g rúsínum/súkkulaðibitum) og hræra áfram í 2 mín.
Deigið
rúllað niður á u.þ.b. 12 mm. Stungið út með útstykkara.
Penslað
tvisvar sinnum með eggjum. Bakað við 250° C í ca. 10 mínútur.
|
|
Klessukökur (Súkkulaðibitakökur) |
|
450 gr
Púðursykur
250 gr
Smjörlíki
125 gr
Egg
375 gr
Hveiti
5 gr
Natron
625 gr
Súkkulaði
Öllu
blandað saman í skál. Deginu rúllað í lengju og kælt. Skorið í
sneiðar og bakað við 220° C í ca. 8 mínútur.
|
|
Skúffukaka 3 |
|
Púðursykur
390 g
Smjör
185 -
Egg
190 -
Hveiti
370 -
Lyftiduft
5 -
Natron
4 -
Kako
20 -
Vatn
70 ml
Mjólk
100 ml
Vigtað í álbakka 370 g/ stk
Krem
Smjör
125 g
Smjörlíki
125 g
Flórsykur
500 g
Kakó
150 g
Mjólk
75 g
Súkkulaði ljóst
80 g (bráðið)
Kreminu smurt á kökuna og e.t.v.
sáldrað kókósmjöli yfir.
|
|
Snúðadeig |
|
Smjörlíki
240 g
Sykur
125 g
Vatn (kalt)
600 g
Salt
15 g
Ger
120 g
Egg
3 stk
Hveiti (sterkt)
1560 g (u.þ.b.)
Vanilludropar
2 tsk
Appelsínubörkur rif 2 tsk
Sítrónubörkur rifinn 1 tsk
Allt sett í pott og hnoðað saman
þar til slétt.
Snúðar: Fletjið 1500 g af deigi
þar til það er u.þ.b. 60 cm langt og 40 cm breitt. Sáldrið
kanilsykri yfir stykkið en skiljið eftir 2 cm brún langsum
og penslið með vatni. Rúllið
lengjunni
þétt upp (að ykkur) þannig að hún
lokist með
Kanilsykur
vatninu. Skerið í 1,5 cm þykka
snúða og
raðið á plötu. Gerið ráð fyrir að
snúðarnir tvö-
faldast að stærð.
Vatn
Hefið og bakið við 200 °C þar til snúðarnir hafa
tekið fallegan lit. Passið að ofbaka ekki.
Klippilengja: Fletjið afganginn af deiginu þar til
það er 50 cm langt og 40 cm breitt. Smyrjið birkifyllingu yfir
stykkið þannig að hún þeki vel en skiljið eftir 2 cm brún langsum og
penslið með vatni. Rúllið lengjunni upp á sama hátt og
snúðunum. Skiptið í þrjár jafnstórar lengjur og setjið á
plötu. Klippið með skærum ofan í lengjuna með 1 cm millibili (beitið
skærunum skáhallt í) og leggið “klippin” niður á misvíxl
þannig að n.k. flétta myndist.
Hefið og bakið á sama hátt og snúðana.
Birki fylling
100 g kalt krem
100 g blátt birki
130 g bittermassi
130 g smjörlíki
2 stk egg
140 g vatn
75 g hveiti
Bæði snúðana og klippilengjurnar
er gott að “glassera” með hvítum eða brúnum glassúr.
Hvítur: 500 g
flórsykur + 180 ml. heitt vatn hrærist vel saman.
Brúnn: 500 g flórsykur + 100
g kakó blandist saman + 200 ml. heitt vatn
|
|
KRANSAKÖKUDEIG |
|
Aðferð >
Hnoðað deig, möndlumassi og sykur hnoðað saman fyrst og
eggjahvítum bætt út í smátt og smátt.
500 g Möndlumassi (helst KransaXX)
250 g sykur
U.þ.b. 100 g eggjahvítur (þetta á við ef
um kransakökukonfekt er að ræða, í
venjulega kransaköku er oftast miðað við að nota
50 g af eggjahvítum)
Sprautað á plötu í hæfilegar stærðir og bakað við
220 °C í stuttan tíma eða þar til það hefur tekið ljósan lit
(misjafn tími eftir stærð).
Hægt er að nota ýmsa ferska ávexti til að skreyta
kransakökubita. T.d. jarðarber, kiwi og vínber.
|
|
Kókóstebollur |
|
460 gr
sykur
Hræra vel saman smjörlíki og
460 - smjörlíki
sykri. Bæta eggjunum rólega út í.
300 - egg
Setja afganginn af hráefnunum
265 - vatn
í pottinn, vinna saman.
.
900 - hveiti
Sprauta á pappír eða mottur.
46 - lyftiduft
Baka við ca. 210 °C í ca. 15 mín.
200 - kókósmjöl
200 - súkkulaði
5 -
bragðefni t.d. vanilludropar
|
|
Pizzadeig |
|
1,250 g hveiti
60 g olía
15 g salt
35 g ger
(15 g rekord)
u.þ.b. 700 g vatn
Vinna deigið slétt
Deigvigt 200-250 g. pr/stk
Heil plata ca 700 g
Kúlað og sett á plötur með hveiti.
Setja filmu yfir og geyma í kæli
til næsta dags.
|
|
Hvít rúnnstykki |
|
Vatn
1000 g
Salt
30 g
Sykur
30 g
Ger
90 g
Smjörlíki
75 g
Hveiti
1850 g
Vinnsla: Volgt vatn
Þyngd: 55 - 60 g/stk eða
Vinnst í 3 mín hægt og 4 mín hratt.
1650 – 1800 g/brekk
Meðhöndlun: Hvíla á borðinu
áður en degið er vigtað upp. Því næst er því
slegið upp í kúlur og látið standa hæfilega, c.a 10 –
15 mín. Þá er rúnnstykkjunum slegið upp eins og óskað er eftir, sett
fræ ofan á ef það á við og sett á plötu. Hefuð hæfilega
og e.t.v. skorið í áður en þau fara í ofninn. Bakstur: 230°
inn í ofn, skvettu af vatni, bakað í 5.mín
Hitastig á
rúnnstykkjum lækkað í 200° og bökuð í: c.a 10 - 13 mín.til viðbótar.
Spjaldið opnað
síðustu 5 mín.
|
|
Fransbrauð |
|
Vatn
1000 g
Salt
30 g
Sykur
30 g
Ger
50 g
Smjörlíki
50 g
Hveiti
1800 g
Vinnsla: Volgt vatn
Vigtun: Brauð 500 gr
Vinnst í 3 mín hægt
og 4 mín hratt.
Meðhöndlun: Hvíla á borðinu
áður en degið er vigtað upp. Því næst er því
slegið upp í kúlur og látið standa
hæfilega, c.a 10 – 15 mín. Þá er brauðunum slegið upp og sett á
plötu. Hefuð hæfilega og skorið í brauðin áður en þau
fara í ofninn.
Bakstur: 240° inn í ofn,
skvetta bolla af vatni inn í ofninn, bakað í 5.mín
Hitastig á brauðum lækkað í 200°
og bökuð í: c.a 20 - 25 mín.til viðbótar.
Opna rifu á ofninn síðustu 7 mín.
|
|
Terta með Sherryfromas
|
|
Stutt lýsing:
Ekki keyra á eftir
Efni:
Marens:
150 gr hakkaðar möndlur
200 gr sykur
4 eggjahvítur
1/2 tsk
Fromage:
2 egg
100 gr sykur
1/2 l rjómi
1 dl sherry
6 blöð matarlím
50gr súkkulaði
200 gr marsipan
Meðhöndlun:
Marens:
Eggjahvíturnar þeyttar og sykri bætt smátt og smátt útí.
Lyftidufti og möndlum bætt varlega úti. Bakað í einum botni
26-28 cm þvermál við 120°c blástur svona 160-180° venjulega ca.
1-2 tíma. Gott er líka láta hann kólna í ofninum yfir nótt.
Fromage:
Egg og sykur þeytt saman. Rjóminn þeyttur. Matarlímið er bleytt
upp í köldu vatni síðan kreist og brætt yfir vatnsbaði, sherryi
bætt út og kælt. Súkkulaði brytjað og blandað saman við
eggjahræruna. Því næst er sherryinu og matarlíminu bætt saman
við og síðast þeyttur rjómi, áður enn fromageblöndunni er hellt
í formið ofan á kökubotninn er nauðsynlegt að þjappa aðeins
ofaná hann til að ekki myndist loftrúm á milli laga.
Svo er marsipanið flatt út og sett ofan á kökuna þegar allt er
orðið stíft. Best að setja á tertuna 1-1 1/2 sólarhring áður.
|
|
Sörur |
|
Stutt lýsing:
Hreint sælgæti
Efni:
100g möndlur,malaðar
2 eggjahvítur
3/4dl sykur
1/2dl vatn
3 eggjarauður
150g smjör
kakó eftir smekk
100g suðusúkkulaði
Meðhöndlun:
Blandað saman möndlum og sykri. Þeytið eggjahvíturnar og blandið
möndlusykurblöndunni saman við. Setjið með teskeið á plötu
klædda bökunarpappír og breiðið þær þunnt út. Bakið í u.þ.b.10
mín við 200-225°C eða 160°C blæstri. Kælið.
Hitið vatn og sykur í potti og látið sjóða. Bráðin er hæfilega
heit þegar dropi sem settur er í kalt vatn stífnar. Hellið þessu
í mjórri bunu út í eggjarauðurnar og þeytið á meðan. Hrærið
smjörið þar til það verður mjúkt og setjið örlítið í einu saman
við eggjarauðuhræruna. Hrærið vel í og bætið síðan kakói út í
eftir smekk. Bræðið súkkulaðið. Smyrjið eggjarauðukreminu neðan
á kökurnar. Kælið. Penslið yfir kremið með bræddu súkkulaðinu.
kælið. Geymið í vel lokuðum plastpoka í kæli eða frysti.
|
|
Sælgætisostakaka |
|
Stutt lýsing:
Frábær ostakaka
Efni:
2 bollar homblest mynsla
75-100 gr smjör (brætt)
500 gr rjómaostur
6-8 msk kaffilíkjör (kalúa)
150 gr mulið Mars(eða djam,snikkers, rommy)
5 dl þeyttur rjómi (1 peli)
(2-3 matarlímblöð)
Meðhöndlun:
Mynslan og smjörið er blandað sama. Sett í form og þjappað vel í
botninn. Rjómaosturinn þeyttur og líkjörið sett útí.
Mars sett útí og rjóminn settur saman við.
Kælt.
Hún er mjúk og ef bætt er í matarlími verður hún stíf.
Mætti setja 2-3 blöð af matarlími.
|
|
Svönubrauð |
|
Stutt lýsing:
Ótrúlega gott fjölkorna brauð. Fljótlegt, hollt og gerlaust.
Efni:
200 gr hveiti
125 gr heilhveiti
50 gr haframjöl
50 gr sesamfræ
50 gr hveitiklíð
25 gr hveitikím
1/2 lítri súrmjólk
1/2 tsk. natron (matarsódi)
1 tsk. salt
1 msk. púðursykur
4 tsk. lyftiduft
Meðhöndlun:
Öllu hrært saman, hnoðað og bakað í 55 mín við 190 gráður.
Álpappír settur yfir síðustu 15 mín.
|
|
Svamptertubotn Mjög Góður |
|
Stutt lýsing:
Mjög góður svampbotn
Fínn í veislutertur
Efni:
8 stk. Egg
250 gr. Sykur
250 gr. Hveiti
3 tsk. Lyftiduft
3 msk. Vatn.
Meðhöndlun:
Stífþeytið egg og sykur og blandið sigtuðu hveiti, lyftidufti
og vatni saman við. Notið kantað mót 30*40 sm eða 3 hringmót 26
sm.
Bakið við 170-180c í miðjum ofni í 10 - 20 mín.
|
|
Súkkulaðisynd |
|
500 gr dökkt súkkulaði
2 tsk skyndi kaffi
150 ml heitt vatn
300 gr sykur
10 eggjarauður
10 eggjahvítur
2-3 msk. gróft saxaðar valhnetur
eða pistasíuhnetur
Hitið ofninn í 190°C. Þekið rúllutertuform, u.þ.b. 35-40 sm í
þvermál, með bökunarpappír eða búið til form úr álpappír og þekið
botninn með bökunarpappír. Brjótið súkkulaðið í litla bita og
bræðið í vatnsbaði. Gætið þess að enginn vökvi komist í
súkkulaðið. Leysið skyndikaffið upp í heita vatninu, bætið því
út í bráðið súkkulaðið og hrærið vel í . Takið súkkulaðið af
hitanum og látið mesta hitann rjúka úr því. Þeytið
eggjarauðurnar og sykurinn á meðan þar til blandan er orðin svo þykk
að rák eftir t.d.skeið er í það minnsta 5 sek. að hverfa.
Bætið því næst kældu súkklaðinu út í eggjablönduna. Stífþeytið
síðan eggjahvíturnar og bætið valhnetunum út í þær. Blandið
síðan eggjahvítunum varlega út í súkkulaðiblönduna. Hellið
deiginu því næst í bökunarformið og bakið í 15-18 mín. Stingið
prjóni í kökuna og bakið hana í 3-5 mín. til viðbótar ef hann kemur
ekki hreinn út. Látið kökuna kólna í forminu.
Fylling
5 dl rjómi
250 gr frosin hindber eða önnur ber
flórsykur til skrauts
Hvolfið kökunni á smjörpappír og losið pappírinn, sem hún bakaðist
á, frá. Dreifið þeytta rjómanum jafnt yfir kökuna án þess að
láta hann ná alveg út á þann kant sem rúllast upp síðast.
Þekið með berjum eftir smekk eða berið þau fram með. Rúllið
kökunni síðan upp og notið pappírinn til að hjálpa ykkur.
Setjið kökuna á langan disk eða bakka og sigtið flórsykur yfir til
skrauts. Hafið ekki áhyggjur af því þótt sprungur komi í
yfirborð kökunnar því það gerir útlit hennar bara skemmtilegra.
Annars er kakan auðvitað nákvæmlega jafngóð þott hún sé skorin í
lengjur og þær lagðar saman með rjóma og berjum. Í stað
flórsykurs má svo láta bráðið súkkulaði leka yfir tertuna áður en
hún er borinn fram til að gera hana að enn meiri ”bombu”
|
|
Súkkulaðisósa |
|
1 msk smjör
100 gr súkkulaði
4 msk volg mjólk
6 tsk síróp
1 tsk Vanilludropar
Bræðið súkkulaði og smjör yfir vatnsbaði. Bætið
mjólkinni saman við og hellið blöndunni í pott. Bætið sírópi og
sykri saman við hafið vægan hita undir pottinum og hrærið þar til
sykurinn hefur leysts upp og sjóðið í 5 mín án þess að hræra í.
Takið pottinn af hellunni. Bætið Vanilludropum út í og hrærið vel.
Berið sósuna fram heita.
|
|
Súkkulaðimús með sósu |
|
250 gr suðusúkkulaði saxað
4 egg aðskilin
150 gr smjör mjúkt
¼ bolli rjómi
45 gr sykur
Sósa:
1 dl rjómi
1 msk skyndikaffi
2 msk vatn
1 msk kakó
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hrærið eggjarauðunum saman við
einni í einu, þá rjómanum. Hrærið smjörinu saman við smátt og smátt.
Þeytið hvíturnar, bætið sykrinum saman við og stífþeytið. Blandið
hvítunum varlega í súkkulaðihræruna. Skiptið hrærunni í skálar,
kælið hægt er að laga músina með dags fyrirvara, en þá þarf að láta
músina standa við stofuhita í ca 30 mín áður en hún er borin fram.
Sósan: leysið skyndikaffið upp í vatninu, þeytið rjómann örlítið upp
með þeytara þannig að froða myndist. Blandið kaffinu saman við,
hellið yfir músina rétt áður en borið er fram. Stráið kakói yfir ef
vill.
|
|
Súkkulaðibráð |
|
(góð á t.d.
bolludagsbollur og snúða)
150 g flórsykur, 3 msk kakó, 1 msk vatn (sjóðandi), 1 msk kaffi, 1
tsk vanilludropar –þeytt saman
|
|
Marengs með
súkkulaðirúsínum |
|
(2 botnar)
4 eggjahvítur
200gr sykur
þeytt vel saman
1 tsk lyftiduft
2 bollar rice crispies
blandað saman við
Bakað í 1 1/2- 2klst við 125°C á blæstri (3 klst í venjul. ofni)
Á milli botnanna er einn peli rjómi og 200gr súkkulaðirúsínur
Krem ofan á:
100gr suðusúkkulaði
50gr smjör
4 eggjarauður
60gr flórsykur
Suðusúkkulaði og smjör brætt saman í vatnsbaði.
Eggjarauður og flórsykur þeytt vel saman. Eggjarauðubl. hrærð
saman við suðusúkkulaðið þegar mesti hitinn er rokinn úr
súkkulaðinu.
|
|
Steypukaka |
|
Stutt lýsing:
Mjög stór og matarmikil kaka
Efni:
BOTNAR: (1 BOLLI=4 DL)
3 bollar hveiti
3 bollar sykur
1 bolli kakó
1/2 bolli brætt smjör
3 tsk matarsódi
2 bollar mjólk
2 egg
KREM (1 BOLLI=10 DL=) (UPPSKRIFTIN ER EINGÖNGU TIL VIÐMIÐUNAR)
300 gr smjör
4 bollar flórsykur
1/2 bolli kakó
1 egg
vanilludropar
heitt kaffi
Meðhöndlun:
BOTNARNIR:
Allt hrært saman í tvær mínútur nema eggjum, síðan egg með í
tvær mínútur. Sett í eldföst form og bakað við 210°C. Ef að
deigið kemst fyrir í tvö form er það bakað í 40-60 mínútur.
KREMIÐ:
Uppskriftin af því er eingöngu til viðmiðunar. Magninu verður að
breyta að vild, en þó er aðaluppistaðan lint smjörlíki og
flórsykur. Botnarnir eru síðan settir ofan á hvern annan og
kremið á milli og utan á þá. Oft er ágætt að nota kremið til að
fylla upp í lægðir sem kunna að myndast þegar botnarnir eru
komnir saman.
Hrærivélaskálin þarf að vera í stærra lagi
Gætið þess að skera aðeins örþunna sneið handa hverjum og einum,
vegna þess að oft verða menn pakksaddir af einni sneið.
|
|
Snickers-æði
með bönunum |
|
Botn:
150 gr. hafrakex (haust) fínmulið
75 gr. smjör
Smjörið brætt og og kexinu blandað saman við. Þrýst með fingrunum í
botninn á forminu/skálinni og aðeins upp með börmunum
Fylling:
360 gr. snickers (6x58 gr. stk.)
1 peli rjómi
250 gr. mascarpone ostur
3 bananar, sneiddir
salthnetur
Snickers og rjómi sett í pott og brætt við vægan hita, hrærið
stöðugt í. Takið pottinn af hitanum og bæta mascarpone ostinum saman
við þegar allt er bráðnað. Raðið einu lagi af bananasneiðum á
kexmylsnubotninn og hellið snickers blöndunni yfir. Látið kólna og
skreytið með bananasneiðum og salthnetum. Berið kökuna fram ískalda
með þeyttum rjóma eða ís.
|
|
Smjörkrem með köku |
|
Stutt lýsing:
Uppskriftinni fylgir líka kaka
Efni:
SMJÖRKREM:
100 gr Smjörlíki
2 1/3 dl flórsykur (Tæplega þó)
1 Eggjarauða
2 tsk Vanilludropar
Matarlitur ef vill (Helst blár :)
KAKA:
100 gr SmjörLÍKi
2 bollar (um 5 dl) sykur (Tæplega þó)
2 meðalstór egg
2 bollar (um 5 dl) hveiti
2 msk kakó
1 bolli Súrmjólk (Má vera nýmjólk)(Tæplega þó).
1 tsk matarsódi (Fjallatsk. lyftiduft)
Meðhöndlun:
SMJÖRKREM:
Þeitið smjörlíkið
bætið flórsykrinum við
og síðan og síst eggjarauðan, vanilludr. og
matarlitur.
ATH: Það má líka nota Pilsbury súkkulaðikrem,
en þá er þetta orðið að súkkulaðikremi en ekki
smjerkremi.
KAKA:
Þeytið smjörlíki, sykur og egg saman, bætið síðan
hveiti og kakói út í.
Hrærið súrmjólk og lyftidufti saman (sér) og
þeytið svo allt heila klabbið saman, svo er
blandan sett í form (Í minna lagi) og bakað við
200°C/400°F þangað til kakan er orðin nógu
bökuð (u.þ.b 30 mín.)
|
|
Skyrterta |
|
Efni:
1 stór Aprikósuskyr dós
1 stk Egg
1/4 Þeyttur rjómi
2 msk Sykur
3 stk Matarlímblöð
Hafrakex
Smjörlíki
Meðhöndlun:
Skyr, egg, sykur þeytt saman. Rjómanum bætt út í. Matarlímíð
brætt í vatnsbaði
og hellt varlega út í meðan þeytt er.
Hafrakexið mulið , smjörlíki brætt og hellt yfir kexið, þjappað
í lausbotna form.
Skyrhrærunni hellt yfir og sett í kæli í sólarhring.
|
|
Skúffukakan |
|
Efni:
BOTN:
255 gr hveiti
310 gr sykur
3 msk kakó
1 tsk lyftiduft
1 tsk natron (matarsódi)
1/2 tsk salt
1 tsk vanilla
2 egg
125 gr brætt smjörlíki
1 bolli mjólk
Allt sett í skál, hrært saman og bakað við 200°C í 10-15 mín
KREM:
200 gr smjörlíki
300 gr flórsykur
2 msk kakó
1 tsk vanilludropar
Allt sett saman í skál, hrært vel og einni eggjarauðu bætt út í.
Að lokum er súkkulaðispæni eða kókosmjöli stráð yfir kökuna
|
|
Skúffukaka |
|
Efni:
1 1/2 dl. sykur
2 egg
150 g. smjör (eða smjörlíki)
50 g. dökkt súkkulaði (eða 2 msk. kakó)
2 dl. hveiti
1/2 tsk. lyftiduft
Meðhöndlun:
Egg og sykur þeytt vel saman þangað til það er orðið mjög létt.
Smjör og súkkulaði brætt og bætt síðan við eggjahræruna.
Afgangnum er síðan bætt við. Bakað neðst í ofni við 175°C í
u.þ.b. 15 mín.
|
|
Skreyting á kökur |
|
1 dl rjómi
200 gr suðusúkkulaði
heslihnetuflögur
Brjótið súkkulaðið niður í skál. Hitið rjómann að suðumarki og
hellið honum yfir súkkulaðið. Hrærið þar til súkkulaðið er
bráðnað og bráðin farin að þykkna. Hellið súkkulaðinu
óreglulega yfir kökuna. Skreytið með heslihnetuflögunum. Látið
kökurnar standa í a.m.k. 2 ½ klst. áður en hún er tekin úr forminu
og borin fram
|
|
Sacher
terta |
|
Botnar
200 gr dökkt súkkulaði
(með meira en 60% kakóefna)
8 eggjarauður
125gr smjör
10 eggjahvítur
salt á hnífsoddi
140 gr sykur
125 gr hveiti
Bræðið smjörið og súkkulaðið yfir heitu vatnsbaði.
Hrærið eggjarauðurnar vel og bætið súkkulaðiblöndunni varlega í.
Stífþeytið eggjahvíturnar og að viðbættum sykri og salti blandið
varlega í Hrærið varlega 1/3 hluta af eggjahvítunni út í
súkkulaðihræruna og síðan því sem eftir er af eggjahvítunum.
Sigtið hveitið yfir blönduna og hrærið varlega saman við þar til
hræran hefur fengið jafnan lit. Setjið í tvö fremur stór
tertuform og bakið við 180°C í 45 mín. Látið kökubotnana síðan
kólna í formunum og hvolfið köldum botnunum svo á kökurist.
Krem
150 gr dökkt súkkulaði
(með háa kakóprósentu)
2 ½ dl rjómi
150 gr flórsykur
1 msk vanillusykur
1 egg
8 msk apríkósusulta
Bræðið súkkulaði, rjóma, flórsykur og vanillusykur
saman í potti við vægan hita og hrærið í þar til súkkulaðið er
bráðið. Látið blönduna síðan malla við lágan hita í 5 mín. án
þess að hræra í á meðan . Þeytið eggið og hrærið síðan saman
við það þremur msk. af súkkulaðiblöndunni. Hellið henni síðan saman
við blönduna í pottinum og hrærið vel. Látið þetta kólna við
stofuhita. Smyrjið annan tertubotnin með apríkósusultu og
leggið hinn botninn ofan á. Smyrjið súkkulaðikreminu jafnt
yfir alla tertuna með spaða og kælið hana í ísskáp í 3 klst. eða þar
til kremið hefur alveg stífnað. Takið hana úr kæli ½ klst.
áður en hún er borinn fram.
Þeyttur rjómi borinn með.
|
|
Rúgbrauð 3 |
|
(3) 6 bollar rúgmjöl
(1,5) 3 bollar heilhveiti
(0,5-1,5) 1-3 tsk salt
(2,5) 5 tsk. matarsódi
(0,5) 1 bolli púðursykur
(0,5) 1 lítri súrmjólk
(0,5) 1 dl. sýróp
Öllu blandað
saman í mjög stóra skál, hrært lauslega saman með sleif.
Deiginu er
skipt jafnt á milli fjögurra eins lítra mjólkurferna, þeim lokað
aftur (Ef þær vilja ekki lokast er hægt að nota tréklemmur) og
látnar standa neðst í ofni við 100°c í 6-7 klukkutíma.
Þegar brauðið
er bakað þá er slökkt á ofninum og brauðið látið kólna þar, gott að
láta það t.d. standa yfir nótt.
EKKI nota safafernur, eða fernur sem eru með áli, bara mjólkur- og
súrmjólkurfernur!!!
|
|
Roloterta |
|
Marengs
4 eggjahvítur
2 dl. sykur
l dl. púðursykur
1-2 lúkur Rice Crispies.
Fylling.
2 pelar rjómi
1 askja fersk jarðaber
1 lítil askja fersk bláber
Krem.
2½ pakki Rolo
50 gr. suðusúkkulaði
4-6 msk. rjómi
Aðferð:
Marenge.
Stífþeytið eggjahvíturnar, sykurinn og púðursykurinn mjög vel saman.
Hræra síðan mjög varlega Rice Crispies útí. Teikna á bökunarpappír 2
x 20 cm hringi. Skipta deiginu jafnt á hringina. Baka báða í einu á
125-130° í 50-60 mín á blæstri.
Fylling.
Þeyta rjómann, skera berin niður (öll nema þau sem nota á til
skreytingar á tertunni) og bæta síðan útí og setja á milli.
Krem.
Bræða súkkulaðið yfir vatnsbaði og þynna með rjómanum, passa að það
verði ekki of þunnt. Hella síðan yfir tertuna og skreyta með ferskum
jarðaberjum.
Best er að setja tertuna saman deginum áður en bera á fram.
|
|
Rísterta |
|
Botnar:
4 egg
120 gr. sykur -hrært vel saman
2 msk hveiti
½ tsk lyftiduft
75 gr kókosmjöl
100 gr. brytjað súkkulaði
Bakað í tveimur formum við 200 gr. í 10 - 15 mín
Á milli:
3 dl þeyttur rjómi
Rísbuff frá Lindu (6 - 8 stk)
Helmingurinn af þeytta rjómanum settur á neðri botninn. Rísbuffið
skorið í sneiðar og dreift yfir rjómann. Restin af rjómanum sett
yfir og efri botninn ofaná.
Ofaná:
2 - 3 Snickers (og smá rjómi)
Snickers brætt við vægan hita og sett yfir tertuna.
Kæla í ca. ½ sólarhring áður en borin fram
|
|
RICE CRISPÍS æðislega gott
|
|
Stutt lýsing:
sko,, þegar þú byrjar er ekki hægt að hætta
Efni:
1.pakki Ricecrispís(þarft ekki að nota hann allann,, fer ftir
græðgi)
5.matskeiðar SÍRÓP
200-300g súkkulaði(eitthvað gott)
200g Smjör
Meðhöndlun:
tekur stóran pott og hellir Ricinu út í setur svo sírópið
ogsúkkulaðið út í
og smjörið,,, passaðu þig að láta þetta ekki sjóða,,,, bara
bráðna á lágum
hita,, ef þér finnst vanta meira smjör,,, súkkulaði eða eitthvað
bætir þú bara út í,,,,
þú finnur þetta sjálf/ur
so tekurðu bara lítil form(má líka láta á stóra plötu)og lætur
svoldið með skeið og lætur storkna ,,,,
helst í ískáp...
svo er bara að borða.. og vittu til... þetta verður ekki til
lengi,,,svo þá er bara að flýta sér að rumsa
þessu í sig og fá maga pínu!!
Verði þér að góða
|
|
Rabarbarakaka |
|
Stutt lýsing:
Handa 5-7 manns. Bragðast vel með rjóma.
Efni:
400 gr rabarbari
1/2 dl hveiti
2 egg
2 1/2 dl sykur
---
1 3/4 dl hveiti
1 1/2 dl púðursykur
50 gr smjör
Meðhöndlun:
Hitið ofninn í 200°C. Rabarbarinn þveginn og skorinn í ca. 2 cm
bita.
Blandið saman rabarbara, hveiti, sykri og eggjum og setjið í
smurt, eldfast mót.
Myljið saman hveiti,púðursykur og smjör og dreifið yfir
rabarbarann. Bakið í ca.
45 mínútur. Borin fram volg með rjóma.
|
|
Pönnukökur |
|
1 dl mjólk og 2-4 egg þeytt vel saman.
125 gr hveit,i 1/2 tsk lyftiduft, 1/4 tsk matarsódi,
1/4 tsk salt, 25 gr smjörlíki (brætt a pönnunni) og vanilludropar
hrært saman við og þynnt með meiri mjolk eftir þörfum (2-4 dl i
viðbot), þynna deigið smám saman, það er betra að byrja með of þykkt
deig en of þunnt.
|
|
Pönnsur fyrir hann |
|
Stutt lýsing:
Þetta er venjuleg pönnukökuuppskrift með ítarlegri vinnulýsingu
fyrir litla bræður sem eyðileggja hvert degið á fætur öðru... á
ekki að bregðast
Efni:
3 dl hveiti
1/2 tsk lyftiduft
1-2 msk sykur
1/4 tsk salt
1-2 egg
4-5 dl mjólk
25 gr smjörlíki
1/4 tsk vanilludropar
Meðhöndlun:
Jæja Lilli. svona ferðu að þessu:::
Þurrefnin sett í skál, mjólkinni er hrært saman við.(ekki alla í
einu) svo bætirðu dropum og eggjum saman við og hrærir vel. svo
er brætt smjörlíkið sett útí og hrært vel. það má bæta mjólk útí
þangað til degið verður nógu þunnt. það á að vera eins og
súrmjólk að þykkt. svo á að setja pönnukökupönnuna á eldavélina
og stilla á hæsta straum. svo má minnka hitann aðeins en pannan
á að vera snarpheit. degi er hellt á og pönnunni snúið þannig að
degið hylji pönnuna. svo þarf pönnukökuspaða til að losa
brúnirnar og snúa pönnsunni við. svo er best að taka pönnsuna af
þegar hún er orðin dulítið brún og baka næstu..... svo er gott
að njóta þeirra með sykri eða sultu og rjóma....
|
|
Púðursykurterta |
|
Stutt lýsing:
Dísæt og mjög svo góð terta með rjóma.
Uppskrift fengin úr Kökubókinni(1.tbl)
Efni:
4 eggjahvítur (ATH: alls engin rauða má blandast við!!)
4 dl púðursykur
2 pelar rjómi
Meðhöndlun:
Eggjahvítur og púðursykur þeytt saman.
Sett í tvö form, sem smurð hafa verið mjög vel með Bláa
borðanum.
Þurrkað í 40 til 45 mínútur við 95-120C (200-250F)
1 peli af þeyttum rjóma látinn á milli botnanna og tertan látin
bíða í 6-8 tíma.
1 peli af þeyttum rjóma látinn ofan á tertuna.
|
|
Pizzu deig |
|
Stutt lýsing:
Mjög mjúkt og bragðgott pizzu deig. Enga stund verið að gera
það.
Efni:
4 dl hveiti.
3 tsk þurrger
1/2 tsk salt.
2 msk matarolía
2 dl volgt vatn.
Meðhöndlun:
Allt saman í skál og látið lyfta sér í 10-15 mín.
|
|
Ofnpönnukökur |
|
Fyrir 4
Bakið venjulegar pönnukökur úr ósætu deigi en hafið þær örlítið
þykkari en venjulega.
Fylling:
2 msk. smjör
2 msk. hveiti
1 dl asparssoð
1 dl mjólk eða rjómi
200 g skinka eða rækjur
aspars
söxuð, rauð paprika
salt og pipar eftir smekk
200 g rifinn ostur
Búið til jafning úr smjörinu og hveitinu og þynnið með asparssoðinu
og mjólkinni. Bætið skinkunni út í ásamt asparsinum og paprikunni.
Bragðbætið með salti og pipar eftir smekk. Leggið fyllingu á hverja
pönnuköku, rúllið þeim upp og raðið í smurt, eldfst mót. Stráið osti
yfir og bakið í 12-15 mínútur. Berið fram með salati. |
|
Möggubrauð |
|
Brauð og kökur
Stutt lýsing:
Alveg rossalega gott nammibrauð
Efni:
750 gr mjöl (t.d. 500 gr hveiti og 250 gr grahamsmjöl eða
bollumjöl)
1 tsk salt
100 gr sólblómafræ
200 gr sveskjur
2 stór epli (græn eða bara það sem til er)
2 msk maltextrakt
2 bréf þurrgers
5 dl volgt vatn (~30°)
Meðhöndlun:
Setjum maltextrakt í skál ásamt 2 dl af vatninu og hrærum saman.
Þá er
sólblómafræjunum, sveskjunum og eplunum blandað saman við og
saltað. Þá
er restinni af vatninu hellt útí. Setjum þurrger og mjöl í
hrærivélarskál
og hellum vökvanum útí. Hnoðum í hrærivél. Skiptum deiginu í 2
brauð og
látum hefast í 30 mínútur. Bökum í 40 til 45 mínútur við 180°C.
Þegar
brauðin eru tilbúin er gott að vefja þau inn í rök viskustykki
svo
skorpan verði ekki of hörð. Brauðin má frysta.
Maltextrakt er sérstakt sætuefni sem hægt er að fá í
Heilsuhúsinu.
Það lítur út eins og síróp og er í krukku. Það sem ég á við með
"bollumjöl" er tilbúið þurrefni sem þarf aðeins að bæta vatni í
eða e-ð
svoleiðis og þá ertu með tilbúið bolludeig í um 20 bollur. Þetta
fæst í
öllum búðum býst ég við.
|
|
Myntu súkkulaðikaka- GEGGJUÐ
|
|
Stutt lýsing:
Súkkulaðitertubotn með þykku lagi af hvítu myntukremi og
súkkulaðikremi þar ofaná...
Efni:
250 gr hveiti
1 tsk lyftidut
1/2 tsk matarsódi
3/4 tsk salt
300 gr sykur
4 msk kakó
125 gr smjörlíki mjúkt.
2 dl mjólk
2 egg
Meðhöndlun:
Þurrefni í skál, smjörlíki útí, og rúml helmingur af mjólkinni.
hrært í 2 mín (í hrærivél)
svo egg og rest af mjólkinni hrært í 2 mín..
bakaðí ca 30-40 mín við 175 c.
Jarðarberjasultu smurt á botnana. svo eru kremin sett á.
Myntukrem:
2 bollar sykur
1 bolli vatn
5 blöð matarlím
myntu dropar essence
sykur og vatn soðið í 10 mín. kælt aðeins.
þeytt vel og matarlím og ca 1/2 tsk dropar sett útí,
kremið verður hvítt og hálf stíft,
(ekki setja það á kökuna nema það sé hálf stíft,
ef það stífnar illa þá þarf að kæla það aðeins betur)
(annars lekur það um allt)
SÚKKULAÐIKREM:
100 gr suðusukkulaði
50 gr smjörlíki
1 þeytt egg
Bræða saman súkkulaði og smjör í potti á vægum hita.
eggið þeytt vel og súkkulaðismjörunu er blandað samanvið og
hrært vel..
þetta krem er svo sett ofaná myntukremið...
sem sagt= botn-sulta-myntukrem-súkkulaðikrem...
botnarnir eru 2 og því verða þetta 2 kökur (og veitir ekki af
þvi þetta er svo gott.)
|
|
Múslibrauð |
|
Stutt lýsing:
Einfallt og þægilegt
Efni:
3 bollar hveiti
1 bolli múslí
1/2 bolli hveitiklíð
1/4 bolli sykur
2 msk lyftiduft
1tsk salt
1 1/2 bolli súrmjólk
1 bolli mjólk
Meðhöndlun:
Þetta er bara öllu hrært saman og sett í formköku form.
Bakað við 190°
Það er voða gott að nota súkkulaði músli
|
|
Mjúkar Engiferkökur
|
|
½ kg hveiti
½
kg púðursykur
225 g smjörlíki
2
egg
30 g lyftiduft
1
tsk natron
1-2 tsk engifer
1
tsk kanill
11/2 tsk negull
Hrært, rúllað upp í stöngla, kælt, skorið í smáar kökur – sett á
plötu og bakað
við fremur hægan hita . ( hjá mér 150°C blástur í um 10-12 mín)
Mér finnst þetta voða mikið af lyftidufti
en hef nú ekki prufað að minnka skammtinn af því.
Þær eiga hafa sprungur á yfirborðinu þegar þær eru
tilbúnar
|
|
Marsterta |
|
2 botnar :
3 eggjahvítur
1 dl sykur
1 dl púðursykur
1/2 tsk lyftiduft
2 bollar Rice Crispies
Krem:
3 Eggjarauður
2 msk sykur
2 Mars súkkulaðistykki
60 gr smjörvi (ekki smjörlíki)
1 peli þeyttur rjómi
Meðhöndlun
Sykur (lítið í einu) þeyttur saman við eggjahvítur
Lyftiduft og Rice Crispies hrært saman með sleif.
Búnir til 2 botnar á bökunarpappír neðst í ofni við
150° í 80 mín
Kremið:
Eggjarauður og sykur þeytt vel.
Mars súkkulaði og smjör brætt saman í potti og kælt,
hrært síðan saman við eggjarauðurnar.
Sett saman.
Botn helmingur af marskreminu, 1 peli þeyttur rjómi.
Hinn botninn fer ofan á og afgangurinn af marskreminu
sett yfir og látið leka niður með hliðum kökunnar.
Í staðinn fyrir Mars mætti nota snickers
|
|
Mars smákökur
|
|
370 g sykur
200 g hveiti
125 g smjör
75 g möndlur, malaðar
½ dl rjómi
Eftirfarandi er sett ofan á:
4 msk rjómi
4 stk Mars (65 g. hvert)
heilar möndlur til skrauts.
Bakstur
Hnoðið saman hveiti, möndlur, sykur, smjör og rjóma. Hnoðið deigið
vel saman. Búið til kúlur úr deiginu og leggið með góðu millibili á
bökunarplötu, klædda bökunarpappír. Bakið neðarlega í ofninum við
170°C í 15 mín.
Ofan á
(Mars bráð)
Bræðið Mars súkkulaðið yfir heitu vatnsbaði, bætið rjómanum saman
við og hrærið vel í þar til massinn er orðinn mjúkur. Setjið
smávegis á hverja köku með teskeið og þrýstið möndlu ofan á. Best er
að gera þetta meðan kökurnar eru ennþá volgar.
|
|
Marensterta með
snikkersrjóma |
|
Stutt lýsing:
Verðlauna uppskrift í mars og snikkerskeppni Perlunar
Efni:
Botn:
3 eggjahvítur
150 gr. Sykur
Krem:
3 eggjarauður
4 msk. Flórsykur
2 stk. Snikkers stór
½ lítri rjómi
Meðhöndlun:
Botn:
Eggjahvíturnar þeyttar vel og sykurinn settur smátt og smátt
saman við og þeytt þangað til hvítan verður stíf. Sett á 2.
bökunarplötur, gott er að teikna hring á bökunarpappír og setja
svo marensinn á pappírinn.
Bakað við 150° hita þar til hann er orðin þurr ca. 1-2 tíma.
Gott að láta hann kólna í ofninum yfir nótt. Með blæstri 130°
hita.
Krem:
Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn vel saman. Bræðið snikkersin
yfir vatnsbaði setja smá rjóma út í. Blandað varlega saman við
eggjablönduna og þeytið vel á meðan.
Þeytið rjóman, setjið helming af rjómanum í snikkersblönduna
smátt og smátt. Gott er að kæla snikkersblönduna þangað til hún
þykknar áður enn hún er sett yfir tertuna.
Setja saman tertuna.
Marensbotn rjómi snikkersrjómi,
Marensbotn rjómi snikkersrjómi.
|
|
Marengsterta með karamellubráð |
|
Botnar:
3 eggjahvítur
150 gr púðursykur
80 gr sykur
Þeytið eggjahvítur og bætið báðum tegundum af
sykri saman við. Þeytið þar
til sykur er vel uppleystur, smyrjið út tvo botna
á pappír (24cm) og bakið
við 150 gráður í 40 mín.
Rjómakrem:
3dl rjómi
1/2tsk sykur
3/4 tsk vanilludropar.
Þeytið
rjóma sykur og vanilludropa saman og setjið á milli botnana.
Karamellubráð:
1 dl rjómi
150 gr sykur
40 gr síróp
30 gr smjör
1/2 dl þeyttur
rjómi
Setjið rjóma, sykur og síróp saman
í pott og sjóðið við vægan hita, þar til
karamellan er farin að loða vel við sleifina.
setjið þá smjör og vanillu
blandað saman við , takið af hitanum. Hrærið þar
til smjörið er bráðið,
kælið litillega og blandið þeytta rjómanum saman
við, kælið þar til hægt er
að setja ofan á tertuna. Kælið svo tertuna í 3-4
tíma áður en hún er borin
fram.
|
|
Lionbar smákökur |
|
100 g Lion
bar( um 2 stór )
100 g suðusúkkulaði, saxað
150 g púðursykur
80 g smjörlíki
1 egg
160 g hveiti
1/4 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
smá vanilludropar
Allt hrært í kássu, Lion barið sett síðast út í svo það fari ekki
alveg í mauk.
Sett á plötu með teskeið, um 1/2 -1 tsk í köku, ágætt bil á milli
því þær renna út. Bakaðar við 175°C í 8 mín. Ekki of lengi því þá
verða þær harðar.
|
|
Krydd bauð |
|
Stutt lýsing:
Fínt að leyfa krökkunum að gera þetta
Efni:
160 gr hveiti
150 gr sykur
120 gr haframjöl
1 tsk negull
1 tsk kanill
1 tsk kakó
1 tsk natron(matarsódi)
3 dl mjólk
Meðhöndlun:
Hrært allt saman með sleif.Mjög gott að láta deigið liggja í c.a
1 klukkutíma og leyfa því að blotna vel saman.
Bakað við 200°C en með blæstri 180°C í 30-50 mín.
|
|
Kóngabrauð (vínarbrauð)
|
|
Stutt lýsing:
Þetta eru mjög góð ömmu vínarbrauð. Fín í ferðalagið.
Efni:
1,5-1,6kg hveiti
500gr sykur
500gr smjörlíki
4 egg
5 tsk lyftiduft
sítrónu dropar
mjólk eða súrmjólk
Meðhöndlun:
hnoðað á venjulegan hátt bakað við 180-200°c
þar til er fallega brúnt.Út úr þessu fást
sex vínarbrauð.Má setja glassúr ef
viðkomandi vill.
|
|
Kókosbolluterta.
|
|
1 stk. svampbotn (keyptur eða bakaður)
1 stk. púðusykursmarensbotn
1 lítil dós af perum
1 stk banani
6 stk kókósbollur
2 pelar rjómi
1/2 plata suðusúkkulaði (50 gr)
Aðferð:
Rjóminn er þeyttur
Svampbotninn er vættur með perusafanum
Bananinn skorinn í bita og raðað á svampbotninn. Perusneiðum raða
ofan á.
Örlítið að þeyttum rjóma smurt yfir.
Kókósbollurnar eru skornar í tvennt og þeim raðað ofan á.
Þeyttum rjóma er smurt ofan á þetta.
Marensbotninn er settur ofan á og hulin með þeyttum rjóma
Súkkulaðið er brætt og hellt kalt yfir rjómann til skreytingar.
|
|
Konfektkaka mömmu
|
|
Stutt lýsing:
þetta er ein sú besta með kókos
Efni:
4 stk eggjahvítur
140g flórsykur
140g kókos
krem:
80 g smjör
60 g flórsykur
4stk eggjarauður
100g brætt suðursukkuladi
Meðhöndlun:
hvíturnar eru þeyttar með sykrinum til maranges
kókosnum blandað saman við
bakað 150 gráður í ca 15 mínutur
krem:
sykurinn og smjörið þeytt saman og eggjarauðrnar tilsettar og
súkkulaðið í restina.
best daginn eftir....
|
|
Keisaralegar Pönnukökur |
|
6 stykki
6 eggjarauður
200 gr hveiti
50 gr sykur
2 tsk rifinn sítrónubörkur
2½ dl mjólk
salt á hnífsoddi
6 eggjahvítur
smjör til steikingar
40 gr rúsínur
flórsykur, ef vill
Hrærið saman eggjarauður, hveiti, sykur, sítrónubörk, mjólk og salt
þar til deigið er slétt og kekkjalaust. Stífþeytið
eggjahvíturnar og hrærið þeim varlega saman við. Hitið
pönnukökupönnu á meðalhita og penslið hana með smjöri. Hellið
nú deigi á pönnunna. Þetta eiga að vera þykkar kökur, og stráið
nokkrum rúsínum yfir. Bakið 5 kökur til viðbótar á sama hátt
og penslið pönnuna á milli með smjöri. Látið steikjast í
fáeinar mínútur. Snúið kökunni við og rífið í grófa bita með gaffli.
Steikið áfram þar til bitarnir eru orðnir gullnir en varist að
steikja of lengi því bitarnir eiga að vera örlítið rakir.
Setjið á eftirréttardiska og stráið örlitlum flórsykri yfir ef vill.
Berið kökurnar fram volgar með góðri berjasultu og kúla af vanilluís
til viðbótar yrði punkturinn yfir i-ið fyrir ís unnendur.
|
|
Kartöflubrauð 2 |
|
750 gr soðnar kartöflur
1 kg hveiti
4 tsk lyftiduft
4 tsk salt
3 ½ dl mjólk
Hakkið kartöflurnar og blandið öllu hráefninu saman, hnoðið og
fletjið út í hringlóttar kökur og bakið á pönnu við meðal hita.
|
|
Kanelsnúðar |
|
Stutt lýsing:
Þeir bestu!!!!
Efni:
100-150 gr. smjör eða smjörlíki
5 dl mjólk
50 gr. ger
1-1,5 dl sykur
1/2 tsk. salt
2 tsk. kardimommudropar
16-17 dl hveiti
Fylling:
50 gr. smjörlíki eða smjörvi
1 dl sykur
1 msk kanell
Ofaná:
hrært egg
perlusykur eða hakkaðar möndlur
Meðhöndlun:
Bræðið smjörið, bætið útí mjólk og hitið í 37°C. Myljið gerið í
stóra skál og hellið vökvanum yfir og hærið þar til gerið er
upplelyst. Blandið þurrefnunum útí en skiljið eftir smá hveiti
til að hnoða með. Látið hefast undir dúk í ca. 40.mín. Hnoðið
deigið og skiptið því í tvennt, fletjið út hvort stykki um sig í
2 aflangar kökur. Smyrjið smjörinu á, stráið yfir sykri og
kanel, rúllið upp. Skerið hverja rúllu í 24 bita, látið í
pappírsform á bökunarplötu og dúk yfir. Látið hefast í
30-40.mín, penslið með eggi og stráið perlusykri eða möndlum
yfir. Bakist í miðjum ofni við 250°C í 6-8.mín. Látið kólna
undir dúk á bökunarrist.
|
|
Kaffihúsakaka |
|
Djöflatertubotn
100 gr smjör
1 bolli sykur
4 eggjarauður
1 tsk vanilludropar
2 ¼ bolli hveiti
½ bolli kakó
1 ½ tsk matarsódi
1 tsk salt
1 1/3 bolli kalt vatn
3 eggjahvítur
¾ bolli sykur
Þeytið smjörið og sykur saman þar til það er orðið
létt og ljóst. Bætið einni eggjarauðu í einu saman við og
hrærið vel á milli. Bætið vanilludropum út í. Blandið
saman öllum þurrefnum og bætið þeim varlega saman við, ásamt
vatninu,(til skiptis). Stífþeytið eggjahvíturnar. Bætið
síðan sykrinum saman við og þeytið áfram. Blandið varlega
saman við deigið og setjið í hveitistráð form. Bakið við 175°C
í 60 mín.
Frómas
4 dl rjómi
100 gr suðusúkkulaði, saxað
50 gr hesilhnetuflögur
12-13 litlar makkarónukökur, muldar
3 eggjarauður
50 gr sykur
6-7 blöð matarlím
1 dl hnetusíróp, má líka nota líkjör að eigin vali, t.d. Kahlúa,
Tia Maria eða Grand Marnier
½ - 1 tilbúinn marensbotn brúnn
Þeytið rjómann. Blandið súkkulaði, makkarónukökum og
heslihnetuflögum saman við hann. Þeytið eggjarauður og sykur
sér þar til það verður létt og ljóst. Leysið matarlímið upp
skv. leiðbeiningum á umbúðunum. Blandið sírópi(eða líkjör)
saman við. Hellið saman við efnablönduna. Hellið því
næst öllu saman við rjómann. Klæðið hátt springform að innan
með smjörpappír sem nær upp fyrir barmana. Setjið
djöflatertubotn-
inn í formið og hellið frómasnum yfir hann. Brjótið hálfan
marensbotn niður og stingið molunum í frómasinn Má nota meiri marens
ef vill.
|
|
Ínukaka |
|
Stutt lýsing:
Kryddkaka með rúsínum (eða kúrenum) uþb 70ára gömul uppskrift,
nefnd eftir henni Ínu.
mjög góð kryddkaka, bragðmild, ekkert krem, börnin elska hana,
helst bökuð í kringlóttu formi með gati.
Efni:
500 gr hveiti
250 gr smjörlíki
375 gr púðurlykur
100 gr kúrenur(rúsínur)
2 egg
1 tsk kanill
1 tsk negull
1 tsk matarsódi
2 tsk lyftiduft
2 dl mjólk
Meðhöndlun:
smjör og sykur er vel þeytt. eggjum bætt útí. hrært vel á milli.
Þurrefnum blandað saman og þau sigtuð saman við.
þá mjólkin og síðast rúsínurnar.
sett í kringlótt form með gati. eða formkökuform
hiti 150-170
tími ca 60 mín
|
|
Bökudeig 1 og 2 |
|
Bökudeig 1
200 gr hveiti
150 gr smjör
2 msk rjómi
Myljið saman hveiti og smjör. Bætið vökvanum
saman við smátt og smátt, það er ekki víst að þurfi að nota allan
vökvann.Látið deigið standa á köldum stað í smá stund áður enn það
er unnið. Bökur úr þessu deigi eru oftast bakaðar við 200°C í 25-30
mín.
Bökudeig 2
3 dl hveiti
75 gr smjör
2 msk vatn
Myljið hveiti
og smjör saman bætið vatninu saman við og hnoðið vel, kælið deigið í
30 mín áður enn það er unnið, bakið við 200-225°C í 15-20 mín.
|
|
Innbökunardeig 1 til 3 |
|
Innbökunardeig 1
1 kg hveiti
500 gr smjörlíki/smjör
20 gr salt
2 ½ dl vatn
Hnoðið allt saman og kælið hnoðið saman aftur og
haldið köldu.
Innbökunardeig 2
1 kg hveiti
5-600 gr smjörlíki
4 dl vatn
salt og ögn af sykri
Öllu hnoðað saman og kælt. Deigið er unnið eins
kalt og hægt er.
Innbökunardeig 3
250 gr hveiti
½ tsk gróft salt
1 tsk lyftiduft
150 gr kalt smjör
½ dl köld mjólk
Allt hnoðað
aðeins saman og kælt í um það bil eina klukkustund.
|
|
Hversdagsbrauð
|
|
8 dl rúgsigtimjöl
6
dl hveiti
1
msk sykur
1
tsk salt
3
tsk þurrger (eða ca 20 gr. pressuger)
4
msk matarolía
2
bollar volgt vatn
þurrefnum blandað vel saman ásamt þurrgeri. Matarolíu bætt við og
loks vatni. Síðan hnoðað vel. Hefast í 1 klst, búin til 2 brauð og
látin hefast í hálftíma. Bakað við 200°C í hálftíma.
Ef maður notar pressuger er það
leyst upp í vatninu og blandað við deigið síðast.
|
|
Hveitikökur |
|
Stutt lýsing:
Efni:
8 bollar hveiti
4 ts ger
1 1/2 bolli sykur
1 1/2 ts salt
1 ts natron
3 egg
ca 1/4 l súr rjómi
1/2 l súrmjólk
mjólk ef þarf
Meðhöndlun:
Allt hnoðað
saman, ekki of mikið því þá verður deigið seigt. flatt út,bakað á
pönnu
|
|
Hráefni í brauð. |
|
Flestar
korntegundir tilheyra grasafjölskyldunni. Fyrir um það bil 10.000
árum byrjaði maðurinn að rækta nokkrar tegundir af korni. Í
Skandinavíu hafa fundist 5000 ára gamlar leirkrukkur með restum af
hveiti frá hveitifræi og virðist hafa verið einhverskonar
ger-grautur sem einnig innihélt hnetur og blóð.
Í dag er unnið markvisst að
ransóknum til þess að ná fram korntegundum sem gefa af sér stórar
uppskerur og þola sjúkdóma vel. Rannsóknunum er stýrt með það fyrir
augum að auka gæði hveitikjarnans og einnig er stefnt að því að auka
bökunargæði hveitisins. Þá er mikilvægt að ná fram miklum gæðum á
próteini hveitisins. Aðal næringarefnin í korntegundum er kolvetni í
formi mjölva og sellulósa.
Hveitið,kornið er eitt af því
fyrsta sem maðurinn fór að rækta. Það er mikilvægasta korntegundin
og er ræktað svo að segja í öllum heiminum í dag. Góðir
bökunareiginleikar hveitikornsins stafa úr frá því að glútein magnið
í hveitikorninu er hærra en í öðrum korntegundum.
Hveitiafurðir í skandinafíu.
Hveitimjöl:
búið til úr kjarna hveitikornsins, hýði og kím er sigtað frá. Búið
er að bæta í hveitið B-vitamínum.
Landhveitimjöl:
hveiti sem hefur verið malað frekar mikið, þar sem kímið er
látið fylgja með.
Grahamshveiti:
hveiti sem ekkert er skilið frá, allt kornið malað þ.e.a.s.
kjarninn, kím og hýði.
Matreiðsluhveiti:
hveiti sem er frekar kornótt (grófara) í sér og hentar mjög
vel til þess að þykkja súpur og
sósur.
Mannagrjón:
búið til úr kjarna próteinríks
hveitikorns t.d. durum eða manitobahveiti. Notað í grauta.
Cous-cous:
líkist mannagrjónum og er búið til í Norður Afríku úr sérstöku
hveiti. Notað með mat eins og
hrísgrjón.
Grahamsgrjón:
búið til úr öllu hveitikorninu og er notað í grauta.
Mulið (krossat) hveiti:
búið til úr öllu hveitikorninu en er grófara en
grahamsgrjón. Notað í gróf brauð
en verður að sjóða áður en það er notað.
Burghar (bulghar):
mulið hveiti sem er búið að forsjóða. Það er líkt og
matreiðsluhveiti og er mikið notað í miðaustur-löndum, meðal annars
í rísotto og í salöt.
Hveitiklíð:
er úr hýði hveitikornsins og er
mjög fíberríkt. Einnig er til extra gróft hveitiklíð.
Hveitikím:
er mjög lítill hluti
hveitikornsins. Inniheldur mikilvæg prótein, B- og E-vitamín og
einnig töluvert járn. Kímið ætti að geyma á köldum stað því það
getur þránað.
Pasta.
Við lögun á pasta-afurðum er
notað hveiti með mjög miklu próteininnihaldi. Í pastadeig er notað
hveiti og vatn og stundum egg. Úr deiginu er mótað ýmislegt munstur
í pastavélum og oft er sett í deigið krydd eða grænmeti.
Spaghetti:
búið til úr durumhveiti og sérstöku sænsku hveiti. Það er
B-vitamínbætt.
Makarónur:
eru lagaðar úr fínmöluðum mannagrjónum eða hveiti og vatni. Þær eru
B-vitamínbættar.
Hafrar.
Hafrar eru töluvert fituríkari en
aðrar kornvörur og eru þar af leiðandi viðkvæmari fyrir geymslu,
gæti verið hætta á þránun.
Haframjöl (malað):
er gufumeðhöndlað og oftast er bætt í það mjólkurdufti. Það er
notað í grauta. Með gufumeðhöndluninni fær mjölið mildara bragð og
er léttsoðnara.
Hafragrjón:
eru gerð úr stórum hafragrjónum sem búið er að skræla, gufumeðhöndla
og pressa í flögur.
Fíberrík hafragrjón eru bætt með
ristuðu hveitiklíði. Fíbermagnið í þessum hafragrjónum er um það bil
15% eða helmingi meira en í venjulegum hafragrjónum.
Hafraklíð:
er búið til úr skrældum, kliptum, gufumeðhöndluðum og pressuðum
höfrum sem eru síðan sigtaðir. Fíbermagnið í hafraklíði er um það
bil 18%.
Rúgur.
Rúgur er harðger korntegund, hann
passar þar af leiðandi til ræktunar á kaldari slóðum. Rúgurinn er
þolinn á móti sjúkdómum. Rúgur hefur mikla þýðingu fyrir
brauðgerðina. Glúteinmagnið í rúgji er töluvert minni en í hveiti.
Fínt rúgmjöl:
er svokallað fullkornsmjöl og malað úr öllum rúgnum, þ.e.a.s.
kjarna, kími og hýði.
Gróft rúgmjöl:
er eins og fínt rúgmjöl, nema að það er grófmalað.
Rúgsigtimjöl:
er rúgmjöl blandað með hveiti. 60% er hveiti frá ytri hluta
hveitikjarnans og 40% er sigtað rúgmjöl sem er mikið malað.
B-vitamíni er bætt í blönduna.
Mulinn rúgur:
allt rúgkornið er marið (ekki malað).
Rúgflögur:
búið til úr rúgi sem er klipptur í smá bita, gufumeðhöndlaður og er
síðan útrúllað í flögur.
Hrísgrjón.
Hrísgrjón eru æfagömul í ræktun,
og var þegar farið að rækta þau fyrir 5000 árum síðan. Við
hliðina á maís og hveiti eru hrisgrjóninn ein af mikilvægustu
fæðutegundum heims. Hrísgrjónið er eins og annað korn með harða skel
utan um sig og er mjúkt undir skelinni. Það eru til tvær aðalgrúbbur
en það eru fjallarís sem þolir frekar lágt hitastig við ræktunina og
flóarís sem er ræktaður við hærri hita í grunnu vatni.
Meðhöndlun:
Óunnið hrísgrjón er kallað paddy.
Fyrst er ysta og harðasta lagið fjarlægt og í ljós kemur
silfurhimnan svokallaða. Við frekari meðhöndlun er silfurhimnan
tekinn af og þá hverfa B-vitamínin og próteinin og þetta er það
hrísgrjón sem við þekkum hvað best (sérstaklega ódyrustu grjónin).
Við sérstaklega meðhöndlun er
hægta að halda töluverðum hluta vitamína og próteina eftir. Þá eru
grjónin gufuhitameðhöndluð við háan þrýsting áður en silfurhimnan er
tekin af og vitamínin eru pressuð inn í hrísgrjónið.
Hrísgrjónið verður við þessa
meðhöndlun daufgult á litin. Þessi meðhöndlun er kölluð "parboiling"
eða forsuða. Við þessa meðhöndlu klístrast sterkjan sem er utan á
hrísgrjónunum og gerir það að verkum að grjónin klessast ekki saman
við frekari suðu, en það gera öll grjón sem ekki hafa fengið þessa
meðferð, þau grjón eru þar af leiðandi líka ekki eins holl.
Til eru hinar ýmsu tegundir eins
og t.d. hrárís, langrís, kringlótt rís, avoríorís, rísmjöl eða malað
rís, fljótrís sem er forsoðið og þurkað sem veldur því að það tekur
stuttan tíma að elda það.
Bókhveiti.
Bókhveiti er þríkanta fræ. Það er
ekki talið með korntegundum. Bókhveiti er svo að segja glúteinfrítt.
Heilt bókhveiti:
er skrælt og er hægt að nota eins og hrárís.
Marið bókhveiti:
er skrælt og marið, það er notað í brauðgerð.
Bókhveitimjöl:
er skrælt og malað bóghveiti, það er blandað saman við hveiti t.d.
þegar blinnis er bakað.
Soja-afurðir.
Úr sojabauninni er búið til
sojamjöl og sojaflögur, sem geta verið með eða án fitu.
Sojaflögur:
eru notaðar í tilbúna kjötfarstétti.
Sojamjöl:
er notað í bökunarvörur, þar sem það betrumbætir brauðið og heldur
því lengur fersku og hindrar þránun. Sojamjöl er mest notað í
barnamat og í megrunarfæði.
Samsett sojamjöl:
þá er notað fitusnautt sojamjöl sem er blandað með vatni og pressað
við mikinn þrýsting sem gerir það drýgra. Samsett sojamjöl er sett í
marga tilbúna kjötfarsrétti til að drýgja og binda vegna þess að það
er mög líkt og kjöt í sér. Sojamjöl er einnig notað í morgunkorn og
í marga grænmetisrétti.
Í matvælaiðnaði er einnig notað
koncentrerat sojaprótein, en það hefur í sér lítið magn af vatni.
Það er hægt að nota í stærra magni við matvælaiðnað vegna þess að
það er bragðminna.
Sojaprótein-isolat:
er um það bil 90% hreint prótein sem líkist kjöti. Þetta soja er
mikið notað í pylsugerð og einnig töluvert í brauðiðnaði.
|
|
Hollur og ódýr Hammari
|
|
Stutt lýsing:
Hollur hamborgari laus við sósuógéð sem hefur eyðilagt
hamborgara ýmind á íslandi
Efni:
100 gr ungnautahakk 8-12 % fita
Hamborgarabrauð
Steiktur laukur
Hrár laukur
Súrar gúrkur ora
Ostur
Heinz fat free tómatsósa
Meðhöndlun:
Hnoðið hakk í snjóbolta og pressið, t.d. með diski
Steikið hamborgarann við 3/4 hita og kryddið með season all,
passið ykkur ad steikja ekki of mikið, helst að hafa ann smá
rauðan
Leyfa ostinum að bráðna aðeins á pönnunni.
Setjið tómatsósu á bæði brauðin, laukinn á neðra brauðið svo
borgarann
ofaná með ostinum á því næst gúrkur
|
|
Heitt brauð í eldföstu móti
|
|
1 fransbrauð
250-300 gr skinka
1 dós aspas
1 dós sveppir
200 gr majones
3 eggjarauður
3 eggjahvítur þeyttar
salt og pipar
rifinn ostur
Smyrjið eldfast mót, takið skorpuna af
fransbrauðinu og rífið það niður í botninn á mótinu. Hellið aspasnum
yfir (safinn líka), hellið sveppasafanum yfir
Hrærið majonesið út með eggjarauðunum, kryddið
með salti og pipar. Saxið skinkuna og blandið saman við ásamt
sveppunum. Hellið blöndunni yfir brauðið. Í lokin er eggjahvítunum
dreift yfir, rifnum osti stráð ofan á og bakað í 30 mín við
180-200°C.
ATH. Það má líka nota ananas í staðinn fyrir
aspas og gott getur verið að nota hvítlaukssalt. Það má líka hræra
eggjahvítunum saman við alla blönduna í lokin en passa að hræra ekki
of mikið.
|
|
Heitt rúllubrauð |
|
1
rúllutertubrauð
1 dós sveppaostur
½ dós aspas
250 gr skinka
2 eggjahvítur þeyttar
2 msk majones
rifinn ostur
Velgið sveppaostinn og þynnið með aspassafanum,
kælið blönduna. Skerið skinku og aspas í bita og blandið saman við
ostinn. Smyrjið blöndunni á rúllutertubrauðið og rúllið því upp,
látið samskeytin snúa niður, smyrjið þeyttu eggjahvítunni yfir og
bakið brauðið í 15 mín við 180°1C. Berið fram.
|
|
Heit ávaxtabaka |
|
Stutt lýsing:
Mjög fljótgerð og ljúffeng bæði með kaffinu ef óvæntan gest ber
að garði
og sem ábætisréttur.
Efni:
1 bolli hveiti
1 bolli sykur
1 stk. egg
1/2-dós niðursoðnir ávextir með safanum -blandaðir ávextir
eða hverjir þeir sem til eru í kotinu.
1/2 bolli púðursykur
1/2 bolli kókosmjöl
rjómi eða vanilluís
Meðhöndlun:
Hveiti,sykri,eggi og ávöxtunum ásamt safanum blandað saman -
ávextirnir settir síðast.
Látið í eldfast mót.Púðursykrinum og kókosmjölinu stráð yfir.
Bakað í miðjum ofni við 200°í 30 mínútur.
Borið fram heitt með þeyttum rjóma eða vanilluís og etið með
góðri lyst.
|
|
Brúnkaka með kremi |
|
Kakan
(3,25 dl) 6 ½ dl hveiti
(1,4 dl) 2 ¾ dl sykur
(0,60 dl) 1 ¼ dl púðursykur
(0,5 dl) 1 dl kakó
(1
tsk) 2 tsk lyftiduft
(0,5 tsk) 1 tsk matarsódi
(1-2) 3 egg
(0,75 dl) 1 ½ dl súrmjólk
(0,5 msk) 1 msk vanillusykur
(90
g) 175 g ósaltað smjör, brætt og kælt
(0,6 dl) 1 ¼ dl maisolía
(1,5 dl) 3 dl ískalt vatn
Krem
(90 g) 175 g dökkt súkkulaði
(minnst 70% kakóinnih.)
(125 g) 250 g ósaltað smjör
(herbergisheitt)
(2,25 dl) 4 ½ dl flórsykur
(0,5 msk) 1 msk vanillusykur
Aðferð
Hitið ofnin í
180°C, smyrjið og hveitistráið tvö 20 cm kringlótt form. Blandið
saman þurrefnunum; hveiti, sykri, púðursykri, kakói, lyftidufti,
matarsóda og salti. Þeytið saman egg, súrmjólk og vanillusykur.
Þeytið saman brædda smjörinu og olíu í hrærivél rétt þannig að það
blandist saman, þeytið þá vatni saman við. Bætið við þurrefnunum,
öllum í einu og hrærið. Bætið loks eggjablöndunni samanvið og hrærið
áfram þar til deigið er mjúkt og fínt Bakið í 50 – 55 mín. Látið
kökurnar kólna í formunum á grind í 15 mín. Takið þær þá úr formunum
og látið kólna alveg.
Súkkulaðið brætt í vatnsbaði og kælt aðeins. Smjörið
hrært þar til það er mjúkt og þá bætt við sigtuðum flórsykri.
Þetta er þeytt þar til það er létt og mjúkt. Þá er bætt við
vanillusykri og brædda súkkulaðinu og allt hrært saman þar til það
er glansandi og slétt. Um það bil ¼ af kreminu er sett á milli
botnanna, restin er sett ofan á og á hliðarnar.
|
|
Heimatilbúnar
Kókosbollur |
|
2 dl vatn
5 dl sykur
8 blöð matarlím
1 dl sjóðandi vatn (til að leysa upp matarlímið í)
2 tsk vanilludropar
súkkulaði til að hjúpa með
plöntufeiti (ef þarf til að þynna súkkulaðið)
kókosmjöl til að velta bollunum uppúr
Vatn og sykur soðið saman í 12 mín, síðan kælt.
Matarlímið lagt í bleyti í sjóðandi vatnið.
Blandað saman við sykur upplausnina ásamt vanillu og þeytt mjög vel
eða þar til nokkurn veginn stíft.
Látið á smjörpappír með 2 skeiðum og látið storkna í ca. 1/2 klst í
kæliskáp.
Hjúpað með súkkulaði og velt uppúr kókosmjöli
Borðið nú ekki yfir ykkur !
|
|
Heilsusamloka |
|
Stutt lýsing:
Holl, góð og fitulítil samloka
Efni:
2 stórar heilhveitisamlokur
sinnep
10% sýrður rjómi
tómatar
rauðlaukur
11% ostur
Meðhöndlun:
Blandið saman sinnepi og sýrðum rjóma, smyrjið því á
brauðsneiðarnar.
Setjið næst niðurskorna tómata á, því næst ostinn og síðast
rauðlaukinn.
Mjög gott er að skella samlokunni í samlokugrill eða rista
brauðsneiðarnar
fyrir smurningu.
|
|
Heilsu bollur |
|
Stutt lýsing:
Góðar og hollar bollur
Efni:
5 dl heitt vatn
5 dl mjólk
12 tesk þurger eða 120 gr pressuger
5 tesk púðusykur
5 matsk smjörlíki
2 dl hveitiklíð
12 dl heilhveiti
3 dl hveiti
5 tesk salt
Meðhöndlun:
blandið saman vatni og mjólk c.a 37° heitu og hellið yfir gerið,
hrærið linu smjörlíki, sykri, salti og helming af mjölinu saman
við
hnoðið þar til það er seigt og gljáandi, stráið dálitlu af
mjölinu yfir deigið
og það látið lyfta sér í c.a. 30 mín, (ef deigið er lint lyfta
bollurnar sér
betur) hnoðið það sem eftir er af mjölinu upp í deigið og mótið
bollur
sett á smurða plötu, og látið lyfta sér 15 -20 mín
baka í miðjum ofni við 225° í 10-15 mín.
|
|
Heilhveitibrauð með
lyftidufti
|
|
Stutt lýsing:
Gott gerlaust brauð. fljótlegt og rosa gott með rabbarbarasultu
eða osti. fljótlegt og auðvelt.
Efni:
5 dl hveiti
3 dl heilhveiti
4 tsk lyftiduft
3 tsk sykur
1/2 tsk salt
4 dl mjólk (má vera súr)
2-3 msk hveitiklíð
3 msk hveitikím
2 msk hörfræ
Meðhöndlun:
Þurrefnin í skál, svo vökvi, hrært vel.. það er óþarfi að nota
hrærivél. bara skál og sleif....
sett í smurt jólakökumót.. langt. eða 2 lítil
bakað við 175-200 c í 40-60 mín
|
|
Hawaii Toast |
|
Stutt lýsing:
Himnasending frá Hawaii
Efni:
Brauðsneið
Ostur
Skinka
Ananas (viðarepli/pineapple)
Meðhöndlun:
--ostur---
--ananas--
--skinka--
----------
| brauð |
----------
hendist í heitann ofn og/eða örbylgju.
|
|
Gulrótarkaka 2 |
|
2 egg
2 dl. sykur
2 dl. hveiti
1 tesk. matarsódi
1 tesk. kanell
1 tesk. lyftiduft
1 dl. matarolía
3 stórar gulrætur, rifnar
Bakað í springformi við 175° í ca 30 mínútur
Krem:
200 gr. rjómaostur
30 gr. smjör
2 dl. flórsykur
1 tesk. vanilludropar
Brætt saman, síðan þeytt kröftuglega þar til kremið þykknar. Breitt
yfir kökuna þegar hún er orðin köld.
|
|
Gulrótarkaka
|
|
5 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
1 1/2 tsk matarsódi
1 tsk salt
2 tsk kanill
1 tsk múskat
5 dl sykur
2 dl matarolía
4 egg
5 dl gulrætur
1/2 dós kurlaður ananas (ekki safinn)
2 1/2 dl hnetur
Krem:
150 g rjómaostur
250 g flórsykur
sítrónusafi eftir smekk
Blanda saman hveiti, lyftiduft, matarsóda, salti,
kanil, múskati og sykri
Rífið gulrætur og grófsaxið hneturnar. Hrærið egg
og olíu saman og blandið með sleif saman við hveitiblönduna ásamt
ananas, gulrótum og hnetum.
Setjið deigið í stórt smurt form. t.d. ofnskúffu
og bakið neðarlega í ofni í u.þ.b. klukkustund við 180°C. Kælið
kökuna
Krem:
Hrærið saman rjómaost, flórsykri og sítrónusafa
og setjið á kalda kökuna
í hverjum skammti eru 317 hitaeiningar, 6 g
mettuð fita og 9 g ómettuð fita. :o)
Uppskrift nægir í 24 bita
Undirbúningur: 40 mín
Bökunartími: 60 mín
|
|
Grunnuppskrift að
brauði: |
|
Hveiti / korn*): 61/2 dl**)
Salt: 1 tsk.(5g)
Síróp eða púðursykur: 1 msk.(10g)
Matarolía: 2 msk. (25ml)
Ylvolgt vatn: 21/2 dl
Þurrger: 11/2 tsk.(4g)
*) Hér prófar maður sig áfram. Ef það á að baka
franskbrauð er bara notað hveiti. Uppástunga að brauði, hæfilega
grófu - við köllum það sólblómabrauð - gæti verið eftirfarandi: 5dl
af hveiti, 1dl af heilhveiti,1/2 dl af sólblómafræjum.
**) Rúmmál og þyngd á hveiti eða
korni: Hveiti 1dl: 60g, heilhveiti 1dl: 70g, annað korn 1dl:50g.
|
|
Gómsætt
rúllutertubrauð |
|
Gómsætt
rúllutertubrauð fyrir 6-10 manns. Mjög vinsælt í veislum.
Efni:
2 rúllutertubrauð
300 gr. skinka
1 dós aspas
250 gr. paprikuostur
250 gr. sveppaostur
6 matskeiðar majones
Ostur
Provencale-krydd (ef ekki til þá bara Season All)
Paprikukrydd
Aðferð:
Papriku- og sveppaostur settir í pott og hitaðir þar til þeir hafa
blandast vel saman. Majónesið og helmingur af aspassafanum hrært
saman við. Niðurskorin skinka og aspas sett út í pottinn og kryddað
með Provancale. Þessu er svo smurt í rúllutertubrauðið og því rúllað
upp. Rifnum osti stráð yfir og kryddað með paprikudufti. Hitað við
180°C þar til osturinn er farinn að bráðna.
|
|
Gómsætt kökubrauð
|
|
Stutt lýsing:
gott jóla brauð. fyrir 101.
Efni:
13 egg
500 g smjörlíki
3 dl pipar
2 kg salt
4 kg hveiti
1 flak ýsa
1 l bláberjagrautur
Meðhöndlun:
öllu blandað saman og hrært í um.þb. 5 mín
sett í form og bakað við 451 gráður í 4klukkutíma eða eftir
smekk.
|
|
Góð Formkaka |
|
Stutt lýsing:
Hrærið saman smjörlíki og sykur þar til það er létt og ljóst.
Blandið einu og einu eggi saman við.Að lokum hveiti,lyftidufti
og appelsínuberki. Bakið í 50 mín.við 200 hita c. VERÐI YKKUR AÐ
GÓÐU.
Efni:
250.g smjörlíki 4stk. egg. 2. 1/2.dl.sykur 4dl hveiti 1 tsk.
lyftiduft .rifinn börkur af appelsínu.
|
|
Súkkulaðikaka Gateaux Jaqueline.
|
|
Fyrir 15-25 pers. eftir stærð
skammta.
Strásykur =
500 gr.
Vatn =
2 dl.
Suðusúkkulaði = 500 gr.
Hveiti =
8 msk.
Smjör =
500 gr. Bráðið, við lágum hita.
Eggjarauður = 8
stk.
Eggjahvítur =
8 stk. Stífþeyttar með tveimur msk. af flórsykri.
1.
Bræddu sykurinn í
vatninu og láttu sjóða þar til sykurinn verður tær. Taktu
sykurblönduna af hitanum og láttu kólna í smá stund. Bættu í
súkkulaði og láttu það bráðna í sykurblöndunni.
2.
Þegar súkkulaðið er
bráðnað bættu þá í hveitinu og hrærðu í þar til allt hefur blandast.
3.
Skvettu þá í
smjörinu smátt og smátt, hrærðu í stöðugt á meðan eða þar til allt
hefur blandast.
4.
Hrærðu út í
eggjarauðunum, einni og einni í einu.
5.
Að síðustu er
stífþeyttri eggjahvítunni bætt í deigið og hrært í rólega með sleif.
6.
Álpappír eða
smjörpappír/bökunarpappír settur í ofnskúffu og deiginu hellt í
skúffuna.
7.
Bakað við 175 °C. í
ca. 40 mín. (miðað við blástursofn, ef ofn án blásturs þá þarf
hitinn að vera ca. 30 °C. hærri.
Kakan er borin á borð volg eða köld með vanilluís
og/eða þeyttum rjóma.
|
|
Fylltar pönnukökur
|
|
Fyrir 4-6
6 pönnukökur
3 dl soðin hrísgrjón
1 msk. smjör eða olía
100 g sveppir, skornir í sneiðar
200 g söxuð skinka
½ saxaður blaðlaukur
½ tsk. karrí
½ tsk. lauksalt eða hvítlaukssalt
100 g rifinn ostur
1. Hrærið deig í venjulegar pönnukökur en sleppið vanilludropunum og
sykrinum. Bakið 6-8 frekar þykkar pönnukökur.
2. Sjóðið hrísgrjónin, steikið sveppina í smjörinu og setjið saman
við hrísgrjónin. Bætið skinkunni og blaðlauknum út í og kryddið
blönduna.
3. Setjið 2 matskeiðar af hrísgrjónafyllingunni á hverja pönnuköku,
rúllið þeim upp og leggið í smurt, eldfast mót. Stráið rifna ostinum
yfir pönnukökurnar og bakið í 12-15 mínútur í ofni. Berið fram með
salati.
|
|
Frönsk horn |
|
1 1/2 tsk þurrger
1/2 dl vatn
1 dl hveiti
Deig gert úr þessu og látið
tvöfaldast að stærð
7 1/2 dl hveiti
3 dl mjólk
2 msk sykur
Hnoðað saman í annað deig og
bæði deigin hnoðuð saman í eitt.
175 g kalt smjör
Deigið flatt út í ferhyrnda
köku, ca 1 cm þykka. Kalt smjörið skorið niður með ostahníf og hálf
kakan hulin með því. Kakan lögð saman, börmunum þrýst vel saman, og
flött út í aflanga köku. Brotin saman þreföld og látin bíða á köldum
stað (ísskáp) í 20 mín. Flött út og brotin saman tvisvar ennþá og
kæld á milli. Deigið látið bíða á köldum stað í 4 klst. eða yfir
nótt (ég hef kaldan skáp sem ég læt það hefast í). Flatt út í 1/2 cm
þykka köku og hún skorin sundur í 10 cm lengjur sem aftur eru
skornar í 10 cm bita. Hver biti skorinn á ská í tvennt
(þrihyrningur) og rúllað upp í horn. Hornin látin hefast á plötu í
þrefalda stærð áður en þau eru pensluð með eggi og bökuð við 225°C í
ca. 12 mín.
|
|
Frönsk
súkkulaðikaka II |
|
4 egg
1 dl hveiti
3 dl sykur
200 g smjör
100 g hakkaðar möndlur (ef þú átt allskonar hnetur þá skelltu þeim
hökkuðum með)
200 g suðusúkkulaði.
Súkkulaði og smjör brædd í vatnsbaði. Eggin og sykurinn þeytt vel
saman og blanda síðan súkkulaðiblöndunni, möndlunum og hveitinu
saman við. Sett í tertuform (24 cm) bakað v/180°C í 45 min.
Má bræða 100 g suðusúkkulaði m/2 msk rjóma, smyrja yfir köku,
skreyta með berjum og bera fram með þeyttum rjóma eða ís.
|
|
Frönsk súkkulaðikaka
I |
|
Botn:
250g smjör(ekki smjörlíki)
1 1/2 bolli sykur
4 egg
2msk. vanilludropar
2/3 bolli kakó
1/2 bolli hveiti
þeyta smjör og sykur vel saman. bæta eggjum og vanilludropum út í
(eitt egg í einu). sigta kakó og hveiti og blanda smátt og smátt út
í deigið. Baka í hringlaga formi í 35 mín. við 160 gráður.
Krem númer 1:
1-2 eggjahvítur
1/2 bolli sykur
1msk heitt vatn
150 gr mjúkt smjör(ekki smjörlíki)
1/2 tsk vanilludropar
100 g suðusúkkulaði
Stífþeyta hvíturnar. setja sykur og vatn í pott og láta leysast upp
við vægan hita í 5 mín. (hrærið stöðugt í á meðan). láta mesta
hitann rjúka úr og hræra þá líka stöðugt í á meðan og hellið svo
sykurmassanum í mjórri bunu út í hvíturnar. bræða súkkulaðið og
þeyta smjörinu og vanilludropunum saman við. hræra í eina
mínútu.Lata kremið kólna áður en því er hellt yfir botninn og smurt
jafnt á alla kanta og ofan á kökuna. Tertan er kæld í 30 mín. t.d. í
frysti áður en hún er hjúpuð.
Hjúpur:
1/2 bolli rjómi
1/2 tsk vanilludropar
1 1/2 msk síróp
100g suðusúkkulaði
setja rjómann, vanilludropana og sírópið í pott og hitið að suðu.
Hella þessu yfir suðusúkkulaðið og hrært saman. Láta kólna vel en þó
ekki í kæli. Hellið hjúpnum svo yfir kremið á kökunni en ekki öllum
í einu heldur er þetta endurtekið þar til hjúpurinn er búinn.Látið
storkna í kæli.
Ekki gleyma að bera fram þeyttan rjóma með henni.
|
|
Fljótlegur morgunverður
|
|
Stutt lýsing:
Mjög fljótlegur morgunverður fyrir fólk sem hefur ekkert allt of
mikinn tíma á morgnana
Efni:
1/2 Pizza frá kvöldinu áður (má vera köld)
eða
Lítið bitinn hamborgari (má vera útúr öðrum ef þið hafið lyst)
kókglas, helst með gosi
Meðhöndlun:
Pizzunni eða borgaranum skellt í örbylgjuofn eða hituð upp í
handarkrikanum meðan þið tannburstið ykkur
Kókinu hellt á milli yfir í pappaglas eða bara ljótt glas sem að
tengdamamma ykkar gaf ykkur og þið þolduð hvort eð er alldrei
Borðist á leið út í strætóskýli í einum grænum (því maður má jú
ekki borða í strætó, nema þið getið borðað án þess að
bílstjórinn sjái til)
kókglasinu hent í ruslið (götur eru ekki ruslafötur
|
|
Englakrem 2 |
|
Stutt lýsing:
Englakrem er hvítt sætt krem sem fer vel á djöflaköku.
Efni:
1 bolli sykur.
1/3 bolli vatn.
2 eggjahvítur.
Meðhöndlun:
Sjóðið vatnið og látið sykurinn leysast upp í því.
Eggjahvítunum er hrært saman í skál og sykurvatninu
er bætt smá saman útí á meðan er hrært.
|
|
Eggjakökur 8
gerðir fyllinga |
|
3 egg
fylling
olía til steikingar
Eggin eru hrærð saman, panna hituð eggjahræran
sett út á heita pönnu og fylling sett ofan á og eggjakakan bökuð
Fylling 1.
100 gr beikon skorið í sneiðar og steikt
1 stk laukur saxaður og steiktur
5 stk saxaðar kartöflur
100 gr ostur
Fylling 2.
100 gr sveppir í sneiðum og steiktir
100 gr rækjur
Fylling 3.
100 gr rækjur
100 gr kræklingur úr dós
100 gr aspargus
Fylling 4.
100 gr skinka í bitum
100 gr rifinn ostur
Fylling 5.
2 stk tómatar í sneiðum
100 gr pylsusneiðar
100 gr blaðlaukur í sneiðum
Fylling 6.
100 gr sveppasneiðar
100 gr skinkusneiðar
100 gr paprikusneiðar
Fylling 7.
100 gr rækjur eða kræklingur
100 gr soðnir fiskafgangar
100 gr rifinn ostur
Fylling 8.
100 gr tómatar í sneiðum
100 gr eplabitar
100 gr gráðostur
|
|
Eggjakaka með skinku og grænmeti |
|
Fyrir 4
3 egg
½ tsk. jurtasalt
2 ½ dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 ½ dl mjólk
2 msk. olía
Þeytið saman egg og salt. Bætið hveitinu og lyftiduftinu út í og
þynnið smátt og smátt með mjólkinni. Hrærið olíunni út í og bakið
4-5 frekar þykkar pönnukökur úr deiginu.
Fylling:
olía eða smjör til steikingar
1 blaðlaukur, saxaður
1 rauð paprika, skorin í bita
100 g sveppir, skornir í sneiðar
¾ tsk. tímían eða basilikum
½ tsk. hvítlauksduft eða hvítlaukssalt
salt og pipar
150 g skinka, skorin í strimla
2-3 tómatar, skornir í sneiðar
100 g rifinn ostur
Hitið olíuna á pönnu og mýkið allt grænmetið í henni. Kryddið
grænmetið og setjið skinkustrimlana út í. Leggið eina pönnuköku í
eldfast mót og setjið hluta af fyllingunni yfir. Leggið aðra
pönnuköku yfir og svo fyllingu til skiptis. Raðið tómatsneiðum efst
og tráið rifnum osti yfir. Bakið við 180°C í 15-20 mínútur.
|
|
Eftirlæti piparsveinsins
|
|
Stutt lýsing:
Einfalt, gott, hollt(?) og bolt, og fljótt, og ódýrt
Efni:
1 stk eldavél
1 stk panna (meðalstór)
1 slatti smjör/matarolía
2 brauðsneiðar
1/4 lítri kjötfars
krydd eftir smekk
1 stk smekkur
Meðhöndlun:
Kveikið á eldavélinni, pönnuna á heitu helluna, smjörið á heitu
pönnuna,
kjötfarsið á brauðsneiðarnar (báðum megin, brauðsneiðarnar á heita
smjörið,
sem er á heitu pönnunni, sem er á heitu eldavélinni, steikið í 2-3
mín
(gleymdi 1 stk. klukka), snúið, étið (með t.d. svona jukk-salati,
sem fæst
búðum í plastboxum).
|
|
Döðlubrauð |
|
Stutt lýsing:
Mjög gott döðlubrauð!
Efni:
1 bolli döðlur
1,5 bolli sjóðandi vatn
1,5 bolli sykur
2,5 bolli hveiti
1 stk. egg
2 tsk. matarsódi
1 msk. brætt smjörlíki
1 tsk. vanilludropar
Meðhöndlun:
Döðlur og sjóðandi vatn sett saman. Restin sett útí.
Bakað við 175 - 180°C í 40-50mín.
|
|
Dýrar smákökur. |
|
Stutt lýsing:
Fann þessa smákökulýsingu á netinu ásamt sögunni um það hvernig
viðkomandi
komst yfir hana, en uppskriftin kostaði hann víst eina $250.
N.B. Þetta er allt á ensku og sumar mælieiningar því bandarískar.
Efni:
2 cups butter 4 cups flower 2 tsp. soda
2 cups sugar 5 cups blended oatmeal** 24 oz. chocolate chips
2 cups brown sugar 1 tsp. salt 1 8 oz. Hershey Bar (grated)
4 eggs 2 tsp. baking powder 3 cups chopped nuts
2 tsp. vanilla
(your choice)
** measure oatmeal and blend in a blender to a fine powder.
Meðhöndlun:
Cream the butter and both sugars. Add eggs and vanilla; mix together
with
flour, oatmeal, salt, baking powder, and soda. Add chocolate chips,
Hershey Bar and nuts.
Roll into balls and place two inches apart on a cookie sheet. Bake
for 10
minutes at 375 degrees. Makes 112 cookies.
|
|
Djöflakaka |
|
Stutt lýsing:
Góð Djöflakaka og er deigið er einnig gott í skúffuköku.
Efni:
1 og 3/4 bolli Hveiti.
1 tesk Salt.
1 tesk Matarsóti.
1/2 bolli Sykur.
2/3 bolli Mjólk.
2 stk Egg.
100 gr Smjörlíki.
1 tesk Vanilludropar.
Meðhöndlun:
Hræra vel saman sykri og smjörlíki.
Bæta síðan eggjunum út í og hræra vel.
Blandið þurrefnum saman sér og vökvanum sér.
Bætið þurrefnum og vökvanum svo í slurkum út í og hrærið á milli.
Varist að hræra mikið eftir að síðasta slurknum hefur verið bætt út
í því þá verður degið seigt.
Hún er svo tilbúinn þegar hún er byrjar að losna frá köntunum. Það
er líka hægt að pota í hana og ef hún lyftir sér upp aftur þá er hún
líklega til búin.
Bakist við ....hmmm.. 200 til 180 gráður á celsíus, held ég þori
ekki alveg að fara með það.
Gott er að nota englakrem á kökuna.
|
|
Dísæti Siggi |
|
Stutt lýsing:
Ég held að það sé best að þið lesið uppskriftina
Efni:
3-4 bauðsneiðar
2 egg
1 dl mjólk
3 tsk vanilludropar
Mikið sýróp
Meðhöndlun:
Hrærið saman mjólk, eggjum, og vanilludropum.
Dýfið brauðinu (báðum hliðum) ofan í mjólkureggjavanilluhræruna.
Steikið brauðið sem var dýft ofan í mjólkureggjavanilluhræruna á
pönnu.
Setjið nú brauðið á disk og opnið sýrópsdósina varlega.
Náið í teskeið og dýfið ofaní sýrópið og snúið henni svo ekkert
sýróp fari til spillis.
Smyrjið svo brauðið með sýrópinu strax á meðan brauðið er enn heitt.
Borðist ekki án mín. Skolist niður með sýrópi (optional).
|
|
Dísuterta
(algjör draumur) |
|
4 eggjahvítur
2 dl sykur
1 dl púðursykur
2-3 dl rice crispies.
Þeytið eggjahvítur og sykur ofsalega vel
saman, bætið rís saman við. Bakið við 150 gráðu hita í eina klst.
Látið kólna í ofninum.
Á milli fer 1/2 l af rjóma þeyttur .
Krem ofan á:
4 eggjarauður
50 gr flórsykur
100 gr suðusúkkulaði
40 gr smjör
Eggjarauður og flórsykur hrært vel saman, bræðið súkkulaði og smjör
og hrærið varlega saman við eggjarauðublönduna. Látið kremið drjupa
með skeið ofan á kökuna og niður með hliðum.
|
|
Deigkarfa. |
|
Innihald
fyrir: 15-20 körfur.
Eggjahvíta =
1/4 lit.
Hveiti =
200 gr.
Sykur =
150 gr.
Smjör =
125 gr. (brætt)
Aðferð:
1.
Eggjhvítu og sykri
er þeytt saman þar til sykurinn hefur að mestu bráðnað, hveitinu er
hrært út í og að síðustu er bræddu smjörinu hrært í smátt og smátt
þar til blandan er orðin að mjúku deigi.
2.
Deiginu er smurt út
mjög þunnt á tefflonmottu eða á smurða og hveituga plötu. Stærðina
er best að hver velji fyrir sig. Passa verður að þykktin sé ekki of
mikil og einnig að deiginu sé ekki smurt slitrótt á plötuna.
3.
Bakað við 220 °C.
gullinbrúnt.
4.
Mótað eftir smekk
strax og deigið er bakað og á meðan að það er brennandi heitt,
annars er ómögulegt að móta það, því þegar bakan kólnar verður hún
að kexi og brotnar ef haldið er áfram að móta.
|